Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2010, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2010, Page 20
Þeir eru fáir sem halda jafn mikið upp á Goldeneye í Nintendo 64 og undirritaður. Ég kæri mig ekki um að upplýsa hve mörgum klukku- tímum sem ég hef varið í leik- inn. Við hittumst ennþá vinirnir og spilum hann í „mulitiplayer“, enda algjört meistaraverk. Vænting- ar mínar til endurgerðarinnar voru því miklar. Það gleður mig mikið að tilkynna öðrum aðdáendum leiksins að það er klárlega þess virði að fjár- festa í þeim nýja. Hér er ekki verið að reyna að finna upp hjólið með of miklum nýj- ungum. Heldur er byggt ofan á þann gríðarlega sterka grunn sem gamli leikurinn er. Í „story mode“ er byggt ofan á þau verkefni sem voru í fyrri leiknum en þau eru sett í nýjan og spennandi búning. Þá er einnig að finna borð sem voru ekki í þeim gamla. Grafíkin í leiknum er frábær. Útlit hans er allt hið Bond-legasta og ekki skemmir fyrir að stórleikarar eins og Daniel Craig og Judi Dench ljá leikn- um rödd sína og andlit. Það skemmtilegasta við „story mode“ fannst mér, líkt og í fyrri leikn- um, að læðast um óséður og fella óvinina hljóðlaust með „silent-pp7“. Ef þú vilt hins vegar hlaupa um með vélbyssur á lofti þá er það hið besta mál líka, enda úrvalið mikið. Eftir því sem maður spilar á hærra erfiðleika- stigi bætast við fleiri verkefni á hverju borði. Það er mikill kostur að hægt sé að velja um ótal mismunandi útgáfu stýrikerfa. Allt frá því að nota Wii classic-stýripinnann, venjulega Wii- stýripinnann og svo yfir í Wii Zapp- er. Ég prófaði allar útgáfur en fannst besta flæði nást með venjulegu still- ingunni. Það er að segja Wii-stýri- pinnann í annarri og „nunchuck“-ið í hinni. En aðalmálið er „multiplayer“- möguleikinn. Því miður hef ég ekki náð að spila leikinn í gegnum netið. Hef átt í erfiðleikum með að tengjast og veit hreinlega ekki hvort vanda- málið sé mín megin eða ekki. Ég hef hins vegar lesið fjölmarga dóma og menn eru yfir höfuð sáttir við net- spilunina fyrir utan að keppendur geta ekki spjallað sín á milli. Svo er hægt að spila með „split- screen“, sem gerði fyrri leikinn ódauðlegan. Ég hef bara spilað tví- menning en það var frábær skemmt- un. Líkt og í gamla leiknum er hægt að sérhæfa leikina mikið. Eftir því sem maður spilar leikinn meira í „story mode“, því fleiri verða mögu- leikarnir. Goldeneye á Wii er frábær leikur og ég get ekki beðið eftir því að bjóða öllum félögunum heim í smá „spilt- screen action!“ Hálfvitar í þrívídd Jónsi í LaugardaLshöLLinni Tónlistarmað- urinn Jón Þór Birgisson, eða Jónsi úr Sigur Rós, lýkur heimstónleika- ferðalagi sínu á Íslandi í Laugardalshöllinni 29. desember. Áður en Jónsi stígur á svið í Laugardalshöllinni á lokatónleikum ferðalagsins mun hann ásamt hljómsveit hafa spilað á einum 99 tónleikum í Norður-Ameríku, Evrópu, Ástralíu og Asíu, þar á meðal tónlistar- hátíðunum Coachella, Summer Sonic, Öya, Pukkelpop, Electric Picnic og Bestival. Jónsi býður unglinga sérstaklega velkomna á tónleikana og býður þeim sérstakan afslátt í forsölu miða. TónLeikar nemenda Tónlistardeild Listaháskólans heldur sína árlegu nemendatónleika á haustönn í Þjóðmenning- arhúsinu. Tónleikarnir eru haustpróf nemenda sem stunda nám í hljóðfæraleik eða söng og er efnisskrá þeirra afar fjölbreytt. Fram koma nemendur af öllum námsárum og flytja um 20 mínútna langa efnisskrá hver. Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir. Tónleikunum verður nú í fyrsta sinn varpað beint bæði í hljóð og mynd á vef Listaháskóla Íslands, lhi.is. Tónleikarnir eru haldnir í sal Þjóðmenningarhúss á þriðjudagskvöld kl. 18. og kl. 20. 20 fókus 29. nóvember 2010 mánudagur PíLagrímsganga menningarPíLa- gríms Draumurinn um veginn er kvik- myndabálkur í fimm hlutum sem fjallar um pílagrímsgöngu rithöf- undarins Thors Vilhjálmssonar til heilags Jakobs á Norður-Spáni. Myndin verður sýnd í Háskólabíói til 3. desember og er óhætt að hvetja þá sem hafa áhuga á þessari gönguleið að líta á myndina. Með pílagríms- göngu sinni og skýrgreiningu á sjálf- um sér sem menningarpílagrími lætur Thor Vilhjálmsson, einn helsti brautryðjandi nútímaskáldsögunn- ar á Íslandi, 40 ára draum sinn um að ganga hinn forna, 800 km langa pílagrímaveg til heilags Jakobs eftir endilöngum Norður-Spáni, rætast og það á árinu sem hann verður átt- ræður. sPennuTryLLir í Laugarásbíó Einn besti spennutryllir ársins, Paranormal Activity 2, hefur ver- ið tekinn til sýninga í Laugarás- bíói. Myndin gefur fyrri mynd- inni ekkert eftir og fór beint á toppinn í Bandaríkjunum eftir fyrstu sýningarhelgina. Sögu- þráðurinn er á þá leið að eftir röð innbrota á heimili sitt ákveður fjölskylda nokkur að koma fyrir öryggismyndavélum til að varpa ljósi á hver er að verki en upp- götvar að mannskepnan er ekki að verki heldur eitthvað annað mun skelfilegra. JóLadagaTaL í norræna húsinu Í desembermánuði hefur Norræna húsið boðið upp á jóladagatal alla daga fram að jólum. Jóladagatalið er opnað kl. 12.34 af starfsfólki hússins og þá kemur í ljós hvað er í boði. Jóladagatalið hefur slegið í gegn og ýmsir listamenn, rithöfundar og tónlistarfólk hafa skemmt fjölskyld- um sem sækja Norræna húsið heim á aðventunni í annríki jólanna. Eins og áður mun mikil leynd hvíla yfir því hvað er á dagskrá hvern daginn, og eins og með öll alvöru jóladagatöl er það ekki fyrr en glugginn er opn- aður að það sést hvað er í boði. Jackass-fyrirbærið er eitthvað sem fólk mun í framtíðinni líta á sem eitt af því sem einkenndi popp- menninguna í kringum aldamót- in 2000. Hópur ungra manna sem urðu heimsfrægir og moldríkir á því að láta eins og algjörir hálfvit- ar. En það er eitt að vera hálfviti og annað að vera fyndinn hálfviti. Jackass-hálfvitarnir mega eiga það að þeir eru drepfyndnir og þess vegna eru þeir að senda frá sér sína þriðju kvikmynd í fullri lengd og það í þrívídd. Það er svo sem ekkert nýtt af nál- inni hérna. Jackass-gengið, með Johnny Knoxville og Steve-O í far- arbroddi, gera það sem engum heil- vita manni myndi detta í hug og taka það upp. Þeir útfæra ýmis at- riði sem þeir hafa áður gert á frum- legan hátt og svo er nýju bætt við inn á milli. Meðan á tökum stend- ur leggja þeir sig svo alla fram við að koma hver öðrum á óvart með eins andstyggilegum hrekkjum og þeim dettur í hug. Þrívíddin í þessari þriðju mynd þeirra félaga skiptir svo sem ekki miklu. Það er aðallega öfgahægar endursýningar sem gefa atriðun- um nýja vídd. Þó að þrívíddin auki vissulega dýptina á því þegar maður er sleginn bylmings fast utan undir með fiskhræi. Ég skemmti mér konunglega á þessar mynd. Ég hló nánast sam- fleytt frá fyrstu mínútu til þeirra síðustu. Húmor kemur í endalaus- um birtingarmyndum og því fleiri þeirra sem maður getur notið því betra. Reyndar voru nokkur atriði þar sem manni ofbauð gjörsamlega en maður gerði líka ráð fyrir því. Það er samt merkilegt að spá í því að vinsældir Jackass virðast ein- skorðast við Bandaríkin og Ísland. Jackass-hópurinn hefur lengi ver- ið vinsæll á meðal íslenskra ung- menna og einnig bandarískra. Það sést best á því að 75 til 85 prósent af tekjum allra myndanna þriggja komu frá Bandaríkjunum. Sem heildstæð kvikmynd er erf- itt að gefa Jackass 3D háa einkunn en ef stjörnugjöfin væri mæld út frá hlátrasköllum fengi hún fimm af fimm mögulegum. Ásgeir Jónsson Jackass 3D Leikstjórn: Jeff Tremaine. Leikarar: Johnny Knoxville, Bam Mar- gera, Ryan Dunn, Steve-O, Jason “Wee Man” Acuña, Chris Pontius, Preston Lacy, Dave England, Ehren McGhehe. ásgeir jónsson skrifar óður TiL goLdeneye Daniel Craig Ljáir leiknum andlit sitt og rödd. GolDeneye 007 á Nintendo Wii Tegund: Hasarleikur. Útgefandi: Activision.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.