Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2010, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2010, Qupperneq 22
22 úttekt 29. nóvember 2010 mánudagur Samkvæmt nýlegri rannsókn eru karlmenn sem eru með lægri laun en eiginkonan lík-legri til að halda framhjá. Konur eru líklegri til að halda fram- hjá ef þær eru með hærri laun en eig- inmaðurinn. Christin Munsch, út- skriftarnema við Cornell-háskólann sem leiddi rannsóknina, datt í hug að rannsaka áhrif launa á framhjáhald eftir að hafa frétt af hliðarspori vinar síns sem útskýrði hegðun sína með því að hann hefði upplifað sig valda- lausan því „konan hélt fjölskyldunni uppi, átti alla vinina og hann hefði flutt til að geta verið með henni.“ Launaháir halda framhjá Munsch komst að því að næstum 7 prósent aðspurðra giftra karlmanna höfðu stundað kynlíf með öðrum en maka og 3 prósent aðspurðra giftra kvenna. Svartir og spænskir karlmenn voru líklegri til að halda framhjá en hvítir karlmenn. Hærra menntun- arstig og trú minnkuðu líkur á fram- hjáhaldi beggja kynja. „Breyturn- ar menntun og trú hafa jákvæð áhrif á framhjáhald en líkurnar aukast ef konan hefur hærri laun. Hins vegar er ekki hægt að tala um mikla aukn- ingu. Konur, sem eru tekjuhærri en eiginmenn sínir, ættu ekki að ganga út frá að þeir muni taka hliðarspor,“ segir Munsch sem segir lág laun reyna á karlmennsku karlmanna. Há laun kvenna veiti þeim hins vegar meira frelsi og aðstöðu til að standa í fram- hjáhaldi. Í rannsókn Munsch kom einnig fram að há laun beggja kynja ykju líkur á framhjáhaldi. „Ef þú vinn- ur langan vinnudag og hefur mikla peninga á milli handanna verður auð- veldara að fela hliðarsporin. Stórar út- tektir á kreditkortinu vekja ekki jafn mikla athygli og hjá hjónum sem hafa lægri tekjur,“ segir Munsch og bæt- ir við að þeir tekjuháu ferðist frekar vegna vinnunnar og hitti því mikið af öðru fólki. Ríkir menn vinsælir Mannfræðingurinn og prófessorinn Helen Fisher við Rutgers-háskólann segir aðrar rannsóknir hafa sýnt fram á að hærri laun auki líkur á framhjá- haldi karlmanna. „Launaháir karl- menn eru vinsælir á meðal kvenna. Þeir ferðast mikið, keyra flotta bíla og borða á fínum veitingastöðum. Kon- ur um allan heim falla fyrir slíkum mönnum,“ segir Fisher sem segir nið- urstöðu Munsch veita nýtt sjónarhorn á sambönd kynjanna. „Út frá þróun- arkenningunni ættu ástæður til fram- hjáhalds að vera minni hjá mönnum sem eru tekjulægri en eiginkonur sín- ar. Þeir ættu að una glaðir við sitt. Það að karlmenn, sem afla lægri tekna en eiginkonurnar, haldi frekar framhjá á sér sennilega sálrænar skýringar.“ Tilfinningar, ekki kynlíf En er hægt að treysta maka sem hélt fram hjá sínum fyrrverandi til að vera með þér? Samkvæmt dr. Yvonne K. Fulbright, höfundi The Better Sex Guide to Extraordinary Lovemak- ing, getur samband sem hefst sem framhjáhald þróast upp í alvarlegt og langvarandi ástarsamband. Fulbright segir þó slík sambönd frekar undan- tekningu en reglu. „Flestir þeirra sem halda framhjá eru ósáttir í eigin sam- bandi. Þótt kynlíf hafi sitt að segja halda flestar konur og karlar fram hjá vegna tilfinninga. Þeim finnst eitthvað vanta í sambandið og leita að því ann- ars staðar. Það þarf því ekkert endilega að vera að fólk sem heldur fram hjá sé hrifið af manneskjunni sem það held- ur við. Aðallega leitar það í athyglina sem manneskjan veitir og tilfinning- unni að vera þráð/ur.“ indiana@dv.is Heldur þú framhjá? Karlmenn sem eru með lægri laun en konur þeirra eru líklegri til að halda framhjá samkvæmt nýlegri rannsókn. Þar kemur einnig fram að konur sem eru tekjuhærri en eiginmennirnir eru einnig líklegri til að halda framhjá. Dr. Yvonne K. Fulbright segir að sambönd sem verða til við framhjáhald geta orðið að löngum og farsælum ástarsamböndum en það sé frekar undantekning en regla. Vandamál: Leiði í sambandinu Þið hafið verið saman í tvö ár eða yfir tíu ár og nýjabrumið er horfið. Kynlífið er ekki lengur jafn spenn- andi og þér finnst þú stundum ekki hafa neitt að segja við makann. Ekki halda framhjá: Samkvæmt dr. Patti Britton, höfundi The Art of Sex Coaching, er kominn tími til að veita hugmyndafluginu frelsi. „Gerið eitthvað nýtt saman. Eitthvað sem þið hafið aldrei gert áður. Farið saman í hjálpartækjaverslun og prófið eitthvað nýtt í kynlífinu. Fjölbreytileiki losar dópamín í heilanum og lætur okkur líða líkt og við séum að upplifa eitthvað nýtt.“ Vandamál: Skortur á athygli Finnst þér þú ekki fá næga athygli frá makanum? Suma daga er eins og makinn sýni allt og öllum athygli nema þér; vinnunni, börnunum. Þú vilt kannski líka vera spurð/ur hvernig dagurinn hafi verið. Það væri líka notalegt að fá baknudd án þess að þurfa að grátbiðja um það. Ekki freistast til að halda framhjá: Britton hvetur fólk til að veirta makanum meiri athygli ef það sjálft vill meiri athygli. „Gerðu eitthvað fallegt fyrir makann og líkur eru á að þú fáir það til baka.“ Vandamál: Þú vilt fá staðfestingu þess að þú sért enn aðlaðandi Eftir langt samband hefurðu gleymt því hvernig er að vera þráð/ur (fyrir eitthvað annað en hæfileika þína í eldhúsinu, feita launaseðilinn eða uppeldisaðferðir). Ekki láta freistast: „Biddu gifta vini ykkar að koma með ykkur út á lífið og eyddu kvöldinu í saklaust daður,“ segir Ian Kerner sambands- og kynlífsfræðingur og höfundur Sex Recharge sem segir lítilsháttar daður geta haldið bölvun framhjáhalds fjarri og í leiðinni haft jákvæð áhrif á ástarsamband para. Vandmál: Þú ert spennufíkill Tekurðu áhættu þegar kemur að öðrum þáttum lífs þíns? Dregur hið mögulega stórslys, sem framhjá- hald myndi hafa á sambandið, þig til þess að stofna sambandinu í hættu? Ekki láta freistast: „Leitaðu leiða til að deila hasarnum með makanum,“ segir Kerner. „Leigið ykkur hryllingsmynd, farið í rússíbana eða teygjustökk. Finndu leiðir til að brjóta upp rútínuna án þess að svíkja manneskjuna sem þú elskar.“ Vandamál: Þú hrífst ekki lengur af makanum Ef makinn hefur fitnað eða er einfaldlega hættur að hugsa um útlitið getur reynst erfitt að laðast að honum kynferðislega. Ekki freistast til að halda framhjá: Stingdu upp á göngutúr eftir kvöldmatinn. Klæðið ykkur vel og leiðist út í myrkrið. Eldið hollari mat saman. Passaðu að gagnrýna hann ekki. „Jákvæð hvatning getur komið makanum aftur á rétta braut,“ segir Britton. Vandamál: Þið giftust ung og hafið fjarlægst Ef þið voruð um tvítugt þegar þið giftuð ykkur eru líkur á að þið hafið breyst, jafnvel þroskast í ólíkar áttir. Þegar þú svo hittir annan einstakling sem deilir sömu áhugamálum og þú er ekkert skrýtið að þú laðist að viðkomandi. Ekki freistast: „Þið þurfið ekki að gera alla hluti saman,“ segir Kerner. „Góð sambönd eru byggð á tveimur sterkum einstaklingum. Þú verður að geta gert þína hluti, átt þína vini og haft tíma fyrir þig. Auðvitað er best að eiga einhver áhugamál saman en þið þurfið líka að fá að þroskast sem einstaklingar.“ Vandamál: Þú leitar að útgönguleið Þú hefur í þó nokkurn tíma vitað að hjónabandinu væri í raun lokið en hefur bara ekki tilbúin/n til þess að setjast niður og ræða það erfiða mál við makann. Væri auðveldara að vera gripin/n í rúminu með einhverjum? Ertu kannski hrædd/ur við að binda enda á hjónabandið og vera ein/n? Ekki freistast til að halda framhjá: „Þú leysir engin vandamál með því að hoppa upp í rúm með einhverj- um. Til að leysa vandamálin þarftu að byrja á að vera hreinskiln/n við sjálfa/n þig og makann. Farðu til sálfræðings og reyndu að leysa úr flækjunni í hausnum á þér,“ segir Britton. Vandamál: Þú ert á nýjum stað Hefurðu grennst? Varstu að byrja í nýju spennandi starfi? Hefurðu tekið upp nýtt skemmtilegt áhuga- mál? Lífið hefur tekið skemmtilega og óvænta beygju og einhvern veginn verður makinn eftir. Ekki freistast til að halda framhjá: „Breytingar kalla á áskoranir og það er auðvelt að ákveða að makinn skilji þig ekki,“ segir Kerner. „Gefðu makanum séns og bjóddu honum að vera með þér í liði. Hann mun örugglega koma þér á óvart með skilningi sínum og ráðleggingum.“ Vandamál: Makinn hefur ekki áhuga á kynlífi Mismikil kynhvöt getur valdið erfiðleikum. Ef makinn er aldrei í stuði getur það haft alvarleg áhrif á samband ykkar og leitt huga þinn að kynlífi utan hjónabandsins. Ekki láta freistast: Ræddu málið við makann. „Reynið að tala saman og koma til móts við hvort annað. Reynið að finna milliveg,“ segir Britton. Vandamál: Þið eruð í fjarbúð Það er nógu erfitt að viðhalda hamingjusömu hjónabandi undir sama þaki. Löng fjarlægð vegna vinnu getur valdið virkilegu álagi. Þú getur fundið fyrir einmanaleika og leitað að einhverjum til að fylla upp í tómið. Ekki láta freistast: „Fjarlægðin getur og ætti að styrkja ástina. Notið tæknina, símann, netið og haldið áfram að stunda kynlíf þótt þið séuð ekki í sama herberginu,“ segir Kerner. Vandamál: Makinn hélt framhjá Hefur þér aldrei tekist að fyrirgefa framhjáhaldið? Langar þig að hefna þín til að jafna metin? Ekki láta freistast: „Þú færð aldrei það sem þú vilt með hefnd,“ segir Britton. „Einbeittu þér að því að byggja aftur upp sambandið eða komdu þér út úr því.“ Vandamál: Þráin er að yfirbuga þig Þú kannt að meta hjónabandið, þú elskar makann og þið stundið frábært kynlíf en einhverra hluta vegna hefur þriðji aðilinn komið sér fyrir í huga þínum. Þú getur einfaldlega ekki hætt að hugsa um hvað það væri ljúft að láta undan lönguninni. Ekki láta freistast: „Daðurskennd vinátta getur auð- veldlega þróast upp í annað og meira. Passaðu að eyða ekki of miklum tíma með þessum einstaklingi,“ segir Kerner sem mælir með að við látum fantasíur um annað fólk duga. „Margar konur hugsa um aðra menn þegar þær elskast með eiginmanninum. Fantasíur eru í fínu lagi – svo lengi sem þær verða ekki að raunveruleika.“ Saklaust daður getur tekið óvænta stefnu. allt í einu verður erfitt að standast freistinguna. af hverju freist- ar framhjáhald þín? Skoðaðu listann og sjáðu hvaða leiðir eru í boði aðrar en að leita út fyrir hjónabandið þegar vandamálin koma upp. Ekki falla í freistni Það þarf því ekk-ert endilega að vera að fólk sem held- ur framhjá sé hrifið af manneskjunni sem það heldur við. Aðallega leitar það í athyglina sem manneskjan veit- ir og tilfinningunni að vera þráð/ur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.