Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2011, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2011, Page 4
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt 24 ára karlmann í níu mán- aða fangelsi fyrir margvísleg brot. Maðurinn var meðal annars sak- felldur fyrir að stela níu bifreiðum af bílaleigum á höfuðborgarsvæð- inu. Flestum bílunum stal hann með nokkurra daga millibili seinni part septembermánaðar á síðasta ári. Auk þess að vera sakfelldur fyr- ir bílaþjófnað var maðurinn einn- ig sakfelldur fyrir að brjótast inn í nokkrar verslanir. Þannig stal hann fartölvu í verslun Tals við Suður- landsbraut árið í apríl 2009 og raf- tækjum í versluninni Sense í Kópa- vogi að verðmæti tvær milljónir króna. Hann braust einnig inn á sólbaðsstofuna Sæluna í september síðastliðnum þar sem hann hafði á brott með sér flatskjá af gerðinni Panasonic. Þá braust maðurinn inn í kennslustofur Snælandsskóla í Kópavogi þar sem hann hafði á brott með sér farsíma. Brot manns- ins voru mun fleiri því hann var einnig sakfelldur fyrir rangar sakar- giftir og fyrir að stela eldsneyti. Maðurinn hefur margoft kom- ið við sögu lögreglu áður og hlotið dóma fyrir margvísleg brot, meðal annars fyrir umferðar- og fíkniefna- lagabrot. Dómurinn yfir manninum er óskilorðsbundinn en hann játaði á sig öll brotin. Þá var litið til þess við ákvörðun refsingar að maður- inn kom til lögreglu að eigin frum- kvæði og játaði á sig brotin. Mað- urinn hefur þegar verið sviptur ökuréttindum ævilangt en honum var einnig gert að greiða samtals 170 þúsund krónur í sakarkostnað og í laun skipaðs verjanda síns. 4 | Fréttir 21. mars 2011 Mánudagur Síbrotamaður dæmdur í níu mánaða fangelsi: Stal níu bifreiðum Opið virka daga kl. 9 -18 og á laugardögum kl. 11 - 16 Rafknúnir hægindastólar sem auðvelda þér að setjast og standa upp Fjölbreytt úrval Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is Rannsókn á banaslysi að ljúka: Málið verður sent ríkis­ saksóknara „Málið er á lokastigi rannsóknar og verður svo sent sína leið í kerfinu þegar þar að kemur,“ segir Gunnar Jóhannsson, yfirmaður rannsókn- ardeildar lögreglunnar á Akureyri. Lögreglan hefur haft til rannsóknar banaslys sem varð á Eyjafjarðar- braut þann 20. janúar síðastliðinn. Þá var bifreið ekið á mann sem var að skokka norður Eyjafjarðarbraut vestri en bifreiðin var einnig á norð- urleið. Svo virðist sem bifreiðin hafi farið yfir á rangan vegarhelming og lent aftan á manninum. Blóðsýni voru tekin úr ökumanni bifreiðar- innar en það er vaninn í slíkum til- fellum. Gunnar gefur ekkert upp um niðurstöður blóðprufunnar og vill ekkert segja til um hvort ökumaður- inn hafi verið undir áhrifum þegar atvikið átti sér stað. Um er að ræða karlmann á tuttugasta og fimmta aldursári sem hefur komið við sögðu lögreglu áður. Með honum í bílnum var einn farþegi. „Öll svona mál eru send til ríkis- saksóknara sem tekur ákvörðun um það hvort ákært sé í þeim eða ekki,“ segir Gunnar og bætir við að málið fari til ríkissaksóknara einhvern tím- ann á næstu vikum. Árni efins um krónuna Árni Þór Sigurðsson, þingflokks- formaður Vinstri grænna, hefur ákveðnar efasemdir um framtíð ís- lensku krónunnar. Þetta sagði Árni Þór í útvarpsþættinum Sprengi- sandi á sunnudag. „Íslenska krónan er smæsti sjálfstæði gjaldmiðillinn í heiminum,“ sagði Árni sem sagðist hafa þá trú að gjaldmiðlum muni fækka í framtíðinni. Hann sagðist þó ekki efast um að krónan verði gjald- miðill Íslendinga næstu árin þó ekki væri sjálfgefið að hún yrði hér til langs tíma. Síbrotamaður Brotin sem maðurinn framdi voru margs konar. Meðal annars stal hann níu bifreiðum af bílaleigum. „Þetta bílalán er stórkostlega um- deilt, það er þannig að fyrirtæki Úlf- ars selur öðru fyrirtæki bíl og það er svo óeðlilegt að Úlfar standi áfram sem sjálfskuldarábyrgðarmaður,“ segir Ólafur Thóroddsen, lögmað- ur Úlfars Eysteinssonar matreiðslu- meistara sem á og rekur veitinga- staðinn Þrjá frakka. Íslandsbanki hefur stefnt Úlfari vegna fjögurra milljóna króna bílaláns sem er í vanskilum og fór aðalmeðferð í málinu fram í Héraðsdómi Reykja- víkur í síðustu viku. Bú ehf., fyrir- tæki Úlfars, seldi fyrirtækinu Fag- fólk ehf. bílinn sem lánið hvílir á, í mars árið 2009 og taldi Úlfar sig á sama tíma hafa afsalað sér sjálf- skuldarábyrgðinni á láninu. Það kom honum því að óvörum þegar hann var krafinn um greiðslur af láninu þegar Fagfólk ehf. hætti að greiða af því. Úlfari var að lokum stefnt, eins og áður sagði. Mótsögn í yfirtökuskjalinu Úlfar segist hafa gert mistök þeg- ar hann skrifaði undir samninginn vegna yfirtöku Fagfólks ehf. á bíla- láninu. „Ég skrifaði í fljótfærni að sjálfskuldarábyrgðin ætti að vera áfram á bílnum, sem hún átti nátt- úrulega ekki að vera. Ég fer ekki að ábyrgjast bíl fyrir eitthvert ann- að fyrirtæki,“ segir Úlfar í sam- tali við DV. „Ég hefði aldrei selt bíl- inn hefði ég vitað að ég yrði ennþá í ábyrgð. Ég þekkti hvorki haus né sporð á þessu fyrirtæki, ég var bara grænn,“ segir Úlfar sem stóð sveittur yfir pottunum í eldhúsinu á Þremur frökkum þegar hann skrifaði undir pappírana. Ólafur, lögmaður Úlfars, seg- ir málið vera hið einkennilegasta. „Hví skyldi maður selja einhverju nýstofnuðu fyrirtæki góðan bíl og ábyrgjast fyrir það lánið?“ spyr hann. „Það er mótsögn í yfirtökusk- jalinu. Þar kemur bæði fram að Úlf- ar sé að fara út sem sjálfskuldar- ábyrgðarmaður og líka að hann eigi að vera inni.“ Ólafur segir ýmis gögn vanta frá bankanum, til að mynda liggi ekki fyrir hvaða bílasala annað- ist lánin. Treysti skjölunum sem komu frá bankanum Ólafur telur að Íslandsbanki hefði átt að vekja athygli Úlfars á mót- sögninni í samningnum. „Fjár- málafyrirtæki hafa upplýsinga- skyldu og mér finnst að fyrirtækið hefði átt að hafa samband við Úlf- ar og vekja athygli hans á því hvort hann ætlaði virkilega að vera áfram sjálfskuldarábyrgðarmaður, þetta var svo afbrigðilegt. Þá hefði þetta aldrei orðið,“ segir Ólafur. „Hann treysti bara skjölum sem komu frá bankanum og hélt að hann væri að skrifa sig frá sjálfskuldarábyrgð en þá var verið að hengja hann,“ bætir hann við. Sveinbjörn Sveinbjörnsson, lögmaður Íslandsbanka, segir að áframhaldandi ábyrgð Úlfars á lán- inu hafi verið foresenda fyrir því að yfirtakan gengi í gegn. Hann seg- ir skjalið vera staðlað og í því komi fram að ábyrgð Úlfars falli niður, en í skjalinu sé einnig yfirlýsing undir- rituð af Úlfari þar sem kemur fram að hann takist á hendur sjálfskuld- arábyrgð fyrir nýjan eiganda. „Ég þekkti hvorki haus né sporð á þessu fyrirtæki, ég var bara grænn. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir blaðamaður skrifar solrun@dv.is SELDI BÍLINN, ÞARF SAMT AÐ BORGA n Matreiðslumeistari hélt að hann væri að skrifa sig frá sjálfskulda­ ábyrgð n Seldi bílinn fyrir tveimur árum n Afbrigði­ legt, segir lögmaður Treysti bankanum Úlfar taldi sig vera að skrifa sig frá sjálfskuldarábyrgð. MYND HEIÐA HELGADÓTTIR Íslandsbanki Lögfræðingur bankans segir áframhaldandi ábyrgð Úlfars forsendu yfirtökunnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.