Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2011, Qupperneq 23

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2011, Qupperneq 23
Úttekt | 23Mánudagur 21. mars 2011 byggingar af völdum hans. Af fimmtíu og fimm mannskæð- ustu jarðskjálftum sögunnar hafa sjö riðið yfir Kína. 142.000 og 137.000 Japan hefur ekki farið varhluta af jarð- skjálftum og hafa fimm af mannskæð- ustu jarðskjálftum sögunnar átt sér stað í landinu. Mannskæðasti jarðskjálfti í sögu Japans reið yfir áðurnefnda Kantu- sléttu 1. september 1923. Hann skildi eftir sig dauða og eyðileggingu á gervöllu Kanto-svæðinu; Tókýó var í rúst, sem og hafnarborgin Yokohama og Chiba-, Kanagawa- og Shizuoka- héruð. Í Kamakura, í 60 kílómetra fjar- lægð frá skjálftamiðjunni, færðist 121 tonns Búddalíkneski úr stað sem nemur tæpum metra. Mannfall er metið á bilinu 100.000 til 142.000, en inni í hærri tölunni eru um 40.000 sem var saknað og voru talin af. Sé miðað við hærri töluna er skjálftinn í 10. sæti yfir mannskæð- ustu skjálfta sögunnar. Í 11. sæti er einnig jarðskjálfti sem varð í Japan, en þar ræðir um jarð- skjálfta sem kenndur er við Hokka- ido, næststærstu eyju Japans. Jarð- skjálftinn varð árið 1730 og áætlaður fjöldi látinna er um 137.000. Öflugustu jarðskjálftarnir Jarðskjálftinn í Sendaí í Japan 11. mars mældist 9,0 stig á Richter og deilir 4. og 5. sæti yfir öflugustu jarð- skjálfta sögunnar með Kamsjatka- jarðskjálftanum árið 1952, sem upp- haflega var skráður 8,2 stig en síðar, eftir endurskoðun, 9,0. Kamsjatka-skaginn og Sendaí í Japan eru ekki samanburðarhæf hvað varðar íbúafjölda eða yfirleitt nokkuð annað, enda var ekki um neitt mannfall að ræða í Kamsjatka árið 1952. Öflugasti skjálfti sem getið er í sögunni átti sér stað 22. maí 1960 í Valdiviu í Chile. Hann mældist 9,5 stig á Richter. Fjöldi fórnarlamba er á reiki en talinn vera á bilinu 2.000 til 6.000. Flóðbylgja kom í kjölfar skjálft- ans og gætti áhrifa hennar á Hawaii, í Japan, á Filippseyjum, austurhluta Nýja-Sjálands og Suðaustur-Ástralíu. Fregnir af tæplega ellefu metra hárri flóðbylgju bárust úr 6.000 kílómetra fjarlægð frá upptökum skjálftans. Annar öflugasti jarðskjálfti sög- unnar átti sér stað 27. mars 1964 í Alaska. Hann er skráður 9,2 stig á Richter og um 130 manns létust af hans völdum. Þriðji öflugasti skjálftinn átti sér stað öllu nær okkur í tíma, 26. des- ember 2004. Jarðskjálftinn mæld- ist 9,1 stig á Richter og voru upptök hans undan vesturströnd Súmötru á Indlandshafi. Skjálftinn orsakaði röð mannskæðra flóðbylgja sem skullu á ströndum flestra ríkja sem liggja að Indlandshafi með allt að 30 metra háum öldum. Indónesía varð verst úti, en um 230.000 manns, í fjór- tán löndum, létust í skjálftanum og hildarleiknum sem fylgdi í kjölfarið. Skjálftinn er í sjötta sæti yfir mann- skæðustu jarðskjálfta sögunnar. Heimildir: japan-guide.com, bbc.co.uk, wikipedia.com og fleiri miðlar 11. mars 2011 Gríðarlega öflugur jarðskjálfti, 9,0 á Richter, ríður yfir Japan og orsakar flóðbylgju sem sópar burtu heilu byggðunum. Hvað fjölda látinna af völdum skjálftans og afleiðinga hans varðar er ljóst að ekki eru öll kurl komin til grafar, en fjöldi látinna og þeirra sem saknað er hleypur á tugum þúsunda þegar þetta er skrifað. Auk mannskaða og gríðarlegrar eyðileggingar veldur skjálftinn eyðileggingu á Fukushama-kjarnorkuverinu í bænum Okuma með þeim afleiðingum að geislavirk efni berast út í andrúmsloftið. 13. apríl 2010 Jarðskjálfti sem mælist 6,9 á Richter ríður yfir Yushu í Kína með þeim afleiðingum að tæplega 7.000 manns farast. 12. janúar 2010 Um 316.000 farast í miklum hamförum á Haítí í jarðskjálfta upp á 7,0 á Richter. Jarðskjálftinn er sá versti sem skráður hefur verið í 200 ára sögu svæðisins og sá þriðji mannskæðasti sem sögur fara af. 30. september 2009 1.115 farast í jarðskjálfta á suðurhluta Súmötru. 6. apríl 2009 Tugir farast í jarðskjálfta í L‘Aquila á Ítalíu. 12. maí 2008 Allt að 87.000 manns farast og um 370.000 slasast í Sesúan- héraði í Kína. 17. júlí 2006 Neðansjávarjarðskjálfti, 7,7 á Richter, veldur flóðbylgju sem skellur á 200 kílómetra svæði á suðurströnd Jövu. Yfir 650 farast. 27. maí 2006 Yfir 5.700 manns farast þegar jarðskjálfti upp á 6,2 á Richter ríður yfir Jövu. 8. október 2005 Jarðskjálfti sem mælist 7,6 á Richter ríður yfir Norður-Pakistan og verður yfir 73.000 að bana. 26. desember 2004 Hundruð þúsunda farast víða í Asíu vegna flóðbylgju eftir jarð- skjálfta upp á 9,2 stig. 26. desember 2003 Yfir 26.000 láta lífið þegar jarðskjálfti leggur Bam í Suður-Íran í eyði. 26. janúar 2001 Nærri 20.000 manns farast í jarðskjálfta upp á 7,9 í Gujarat-fylki á Indlandi. 12. nóvember 1999 Um 400 farast í jarðskjálfta upp á 7,2 stig í Ducze í Norðvestur- Tyrklandi. 17. ágúst 1999 Tyrknesku borgirnar Izmit og Istambúl verða illa úti í jarðskjálfta sem mælist 7,4 stig. Yfir 17.000 farast. 30. maí 1998 Um 4.000 farast í jarðskjálfta í Norður-Afganistan. 27. maí 1995 Jarðskjálfti upp á 7,5 stig á Shakalin-eyju kostar tæplega 2.000 mannslíf. 17. janúar 1995 6.430 farast í jarðskjálfta í Kobe í Japan. 30. september 1993 Um 10.000 láta lífið í suður- og vesturhluta Indlands. 21. júní 1990 Skjálftar í Gilan í Íran kosta um 40.000 manns lífið. 7. desember 1988 25.000 farast í jarðskjálfta upp á 6,9 stig í Norðvestur-Armeníu. 19. september 1985 Öflugur jarðskjálfti skekur Mexíkóborg og 10.000 farast. 28. júlí 1976 Kínverska borgin Tangshan er rústir einar eftir jarðskjálfta sem kostar 250.000 mannslíf. 23. desember 1972 Allt að 10.000 farast í jarðskjálfta í Managva, höfuðborg Níkaragva. 31. maí 1970 Jarðskjálfti hátt í Andesfjöllum veldur landskriði sem grefur bæinn Yungay og kostar 66.000 mannslíf. 1. september 1923 Hinn mikli Kanto-jarðskjálfti ríður yfir Tókýó og kostar 142.800 manns lífið. 18. apríl 1906 Röð öflugra skjálfta ríður yfir San Francisco og á bilinu 700 til 3.000 farast, annaðhvort vegna hruninna bygginga eða elda sem kvikna. Mannskæðir og öflugir jarðskjálftar ÁTÖK Í IÐRUM JARÐAR Graphic Story Size Artist Date Reporter Research Code EARTHQUAKE-LARGEST/ JAPAN-QUAKE/ 15 x 8.5 cm deep Chris Inton/RNGS 11 / 03 / 11 - - DIS © Copyright Reuters 2010. All rights reserved. http://www.reuters.se/media/graphics/ CONTEXT Japan’s 8.9 magnitude earthquake that struck on Friday is one the most powerful earthquakes recorded worldwide since 1900 1 6 2 4 5 3 7 9 10 8 Eftir stærð Röð Öflugustu jarðskjálftar heims síðan 1900 Heimild: Jarðvísindastofnun Bandaríkjanna 9,5 Chile 1960 - 5.000 dauðsföll 8,8 Chile 2010 - 520 dauðsföll 9,0 Kamtsjatka, Rússland 1952 Engin dauðsföll 9,2 Alaska, BNA 1964 125 dauðsföll 9,1 Súmatra, Indónesía 2004 297.000 dauðsföll 8,8 Ekvador 1906 - 1.000 látnir 8,6 Súmatra, Indónesía 2005 1.000 dauðsföll 8,7 Alaska, BNA 1965 Engin dauðsföll 8,6 Tíbet, Indland 1950 1.500 dauðsföll 8,9 Japan 2011 Flekamörk Öflugustu jarðskjálftar heims síðan árið 1900 Þorp á Súmötru árið 2004 Eyðilegging af völdum flóðbylgjunnar í kjölfar jarð- skjálftans var gríðarleg. MYND WIKIMEDIA Valdivia í Chile Öflugasti jarðskjálfti sem sögur fara af reið yfir Valdivia árið 1960. MYND WIKIMEDIA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.