Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2011, Side 29
Fólk | 29Mánudagur 21. mars 2011
Gaf 115 milljónir
SamSæriSkenningar
og alríkiSlögreglan
í
síðustu viku var nektarmyndum af Vanessu
Hudgens enn og aftur lekið á netið. Að þessu
sinni voru myndirnar grófari en áður og var
þetta mikið áfall fyrir leikkonuna ungu. Á und-
anförnum árum hafa myndir af Vanessu lekið
á netið með reglulegu millibili en það eru myndir
sem stolið var úr gmail-pósthólfi hennar og voru
ætlaðar þáverandi kærasta hennar, Zac Efron.
Eftir að nýjustu myndirnar birtust blandaði FBI
sér í málið þar sem Vanessa var 17 ára þegar þær
voru teknar og málið litið mjög alvarlegum augum.
Leikkonan átti til að mynda langan fund fyrir helgi
með fulltrúum FBI þar sem farið var yfir málið.
Tvær mismunandi kenningar eru uppi um hver
hafi lekið myndunum á netið. Annars vegar hafa ver-
ið fluttar fréttir af því að hópur tölvuþrjóta hafi skipu-
lega herjað á tölvugögn frægs fólks og selt hæstbjóð-
endum það sem upp úr krafsinu kom. En öryggið í
netvæddum heimi er lítið sem ekkert þegar færustu
tölvuþrjótar eru á ferð.
Hin kenningin er öllu áhugaverðari en hún snýr
að vinkonu Vanessu, Alexu Nikolas, sem sést kyssa
hana á nokkrum myndanna. Tölvupóstur var fyr-
ir helgi sendur á fjölda manns og þar á meðal fjöl-
miðla þar sem því er haldið fram að Alexa hafi bæði
átt hugmyndina að myndunum og á endanum lekið
þeim á netið. Í tölvupóstinum segir að Alexa og önn-
ur ung stjarna, Kayslee Collins, hafi staðið að mynd-
birtingunum. Þær hafi á sínum tíma hvatt Vanessu
til þess að taka klúrar myndir af sér til að senda kær-
astanum. Þar á meðal hafi verið teknar myndir af
Vanessu og Alexu að kyssast. Hins vegar tóku hinar
tvær engar nektarmyndir af sér líkt og Vanessa.
Því er svo haldið fram að Vanessa hafi notað
gmail-aðgang sinn heima hjá Alexu og gleymt að
skrá sig út úr póstforritinu. Þannig hafi „vinkonan“
komist yfir myndirnar og lekið þeim smám saman á
netið undanfarin ár. Ástæðan er sögð vera afbrýði-
semi þar sem ferill Vanessu hefur blómstrað á með-
an hinar tvær sátu eftir. Alexa hafi svo ákveðið að láta
nokkrar myndir af sér fljóta með til að villa um fyrir
Vanessu. Ekkert hefur verið staðfest ennþá og engin
þeirra hefur tjáð sig opinberlega um málið.
Vanessa Hudgens Er nóg
boðið og FBI er komið í málið.
Vinkonur eða „vinkonur“? Alexa Nikolas, Kayslee Collins
og Vanessa Hudgens.
Gefur út plötu
Gwyneth Paltrow landar risa plötusamningi:
Ó
skarsverðlaunaleikkonan Gwyneth Palt-
row ætlar að senda frá sér sína fyrstu plötu
seinna á árinu. Hún hefur gert stærðarinn-
ar plötusamning við Atlantic Records sem
tryggir henni um 100 milljónir króna. Sú
upphæð er bara fyrir að skrifa undir hjá fyrirtækinu
og gera plötuna og gæti hún hækkað umtalsvert ef
vinsældir Gwyneth verða miklar.
Paltrow leyfði söngröddinni nýlega að hljóma í
þættinum Glee en hún kom einnig fram á Country
Music Awards sem og Grammy-verðlaunahátíð-
inni. Þá lék Gwyneth einnig söngkonu í myndinni
Country Strong sem kom út á síðasta ári. Sjálf hefur
hún lýst tónlist sinni sem poppaðri kántrítónlist.
Gwyneth þekkir tónlistarbransann vel því eigin-
maður hennar er Chris Martin, söngvari Coldplay.
Gwyneth Paltrow Sendir frá
sér sína fyrstu plötu.
Þ
essi baðföt söngkon-
unnar Ke$hu hafa vak-
ið nokkra athygli og
þá aðallega mittisháar
buxurnar. Söngkonan
synti í sjónum og gerði jógaæf-
ingar á ströndinni í Adelaide í
Ástralíu fyrir helgi. Þar slakar
söngkonan nú á eftir að hún
kom fram á Future Music Festi-
val í Sydney.
Næst á dagskrá hjá söng-
konunni ættu að vera tónleikar
í Japan en óvíst er hvort þær
miklu hamfarir sem riðið hafa
yfir landið hafi áhrif á þá. Þar-
næst er ferðinni heitið til Suð-
ur-Kóreu.
UNdArlEg
baðföt
Ke$ha Er
þekkt fyrir
undarlegan
klæðaburð.
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur