Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2011, Síða 4
4 | Fréttir 4. apríl 2011 Mánudagur
Seldi ekki hlutabréf í Glitni í maí 2008 líkt og DV hélt fram:
Guðbjörg beðin afsökunar
Í frétt í DV miðvikudaginn 30. mars
2011 var sagt frá því að Guðbjörg
Matthíasdóttir, útgerðarkona úr
Vestmannaeyjum, hefði selt tæp-
lega 7,4 milljónir hluta í Glitni sem
hún átti persónulega. Verðmæti um-
ræddra hlutabréfa var í kringum 130
milljónir. Þessi frétt DV var ekki rétt.
Sannleikurinn er sá að Guðbjörg á
ennþá umrædd hlutabréf í Glitni.
Hinar röngu upplýsingar um hina
meintu sölu Guðbjargar á hlutabréf-
unum í Glitni koma fram í hluthafa-
lista um 250 stærstu hluthafa bank-
ans sem DV hefur undir höndum. DV
hefur sagt nokkrar fréttir sem byggja
á umræddum hluthafalista, meðal
annars um sölu Bjarna Benedikts-
sonar á hlutabréfum í Glitni í febrúar
2008. Lögmaður Guðbjargar sendi
DV yfirlit frá Íslandsbanka síðastlið-
inn föstudag þar sem fram kemur að
Guðbjörg á enn umrædd hlutabréf í
Glitni sem nú eru orðin verðlaus.
Við eftirgrennslan DV kom í ljós
að við gerð hlutahafalistans sem DV
hefur undir höndum höfðu verið
gerð mistök þannig að svo virtist sem
Guðbjörg hefði selt umrædd hluta-
bréf í maí 2008. Þessi mistök voru til-
komin með þeim hætti að frá því í
maí 2008 og þar til í júní hvarf Guð-
björg af lista yfir 100 stærstu hlut-
hafa bankans, en mikil viðskipti áttu
sér stað með hlutabréf Glitnis í maí,
meðal annars vegna kaupa starfs-
manna Glitnis á bréfum bankans.
Þar sem Guðbjörg var ekki lengur
meðal 100 stærstu hluthafa bankans
í júní 2008, og kom því ekki fram á
listanum yfir þessa 100 stærstu hlut-
hafa, voru þær upplýsingar færðar
inn í hluthafalistann að hún hefði
selt bréf sín í bankanum. Þetta er
ekki rétt, líkt og áður segir.
DV biður Guðbjörgu Matthías-
dóttur, og lesendur blaðsins, afsök-
unar á því að hafa sagt að Guðbjörg
hafi selt umrædd hlutabréf í Glitni á
þessum tíma.
• Bylting fyrir bakið
• Styrkir magavöðvana
• Frelsi í hreyfingum
• Margviðurkenndur stóll
Swopper vinnustóllinn
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Unglingar á
Kebab bensíni
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
greip til þess ráðs að loka skemmti-
staðnum Kebab bensíni á Grensás-
veginum aðfaranótt sunnudags.
Ástæðan var sú að þar reyndust vera
ungmenni sem ekki höfðu tilskil-
inn aldur til að vera þar inni. Lög-
reglan mætti á staðinn klukkan hálf
eitt eftir miðnætti og var staðnum
lokað tímabundið meðan verið var
að koma ungmennunum út. Að sögn
varðstjóra vantaði einnig dyraverði
með tilskilin réttindi á staðinn.
Skákborð slegið
á átta milljónir
Einvígisborðið úr þriðju einvígis-
skák þeirra Boris Spasskí og Bobbys
Fischer var selt á uppboði hjá Philip
Weiss á laugardag. Borðið, sem var í
eigu Guðmundar G. Þórarinssonar,
fyrrverandi forseta Skáksambands
Íslands, var slegið á 67.500 dali,
eða tæpar átta milljónir króna. Tafl-
borðið og taflmennirnir voru notuð
í Laugardalshöll í júlí árið 1972 en
þriðja einvígisskákin er líklega ein
frægasta viðureign sögunnar.
Vill 37 milljarða
fyrir Aurum
Eignarhaldsfélagið Aurum Holdings,
sem er í eigu skilanefndar Lands-
bankans, er nú til sölu. Fréttastofa
Reuters greindi frá þessu á sunnu-
dag en félagið var áður í eigu Baugs,
eða allt þar til skilanefnd bank-
ans tók félagið yfir árið 2009. Undir
Aurum Holdings heyra margar af
stærstu skartgripaverslunum Bret-
lands. Má þar nefna Goldsmiths,
Watches of Switzerland, Mappin &
Webb og Mydiamonds.com.
Reuters greinir frá því að Cavend-
ish Corporate Finance muni sjá um
söluna en söluverðið er talið vera
um 200 milljónir punda, eða tæp-
lega 37 milljarðar króna.
Ísfirðingar ráku upp stór augu á
sunnudag þegar Óskarsverðlauna-
hafinn Jer emy Irons lagði leið sína
í Skutulsfjörðinn. Jeremy var þar
í fylgd með breskum kvikmynda-
gerðarmönnum en þeir vinna nú að
heimildamynd sem beinir sjónum
sínum að sorpförgun og vandamál-
unum sem henni fylgja. Ísafjörður
komst nýverið í fréttirnar vegna sorp-
brennslustöðvarinnar Funa en henni
var lokað eftir að díoxínmengun
mældist frá henni.
Ísafjörður fyrsti
áfangastaðurinn
Jeremy ætlar því að beina sjónum
sínum að Ísafirði og þeim vanda-
málum sem sveitarfélagið hefur þurft
að takast á við vegna sorpförgunar og
ætla hann og félagar hans meðal ann-
ars að taka viðtal við bæjarstjóra Ísa-
fjarðarbæjar, Daníel Jakobsson, um
málið. Bjarni Brynjólfsson, ritstjóri
Iceland Review, hefur verið breska
framleiðslufyrirtækinu Blenheim
Films innan handar vegna verkefnis-
ins. „Þetta er alþjóðlegt verkefni sem
fjallar um sorpförgun og það er tekið
um allan heim í rauninni. Ísafjörður
er fyrsti áfangastaður og það er verið
að velta fyrir þessu díoxínvandamáli
sem kom upp og er hér á Íslandi, víð-
ar en hér reyndar,“ segir Bjarni.
Vandamál víðar en á Íslandi
Hann segir Breta notast við sorp-
brennslustöðvar og hyggi á byggingu
fleiri slíkra. „Þetta er því vandamál
víðar en hér. En mér skilst að það sé
verið að taka allhressilega á málum á
Íslandi og allir byrjaðir að flokka sorp
og taka til,“ segir Bjarni en hann segir
Jeremy Irons vera fenginn í verkefnið
sem kynnir myndarinnar.
Sorpbrennslustöðinni Funa í
Engidal í Skutulsfirði var lokað í
desem ber í fyrra eftir að díoxín
mældist í mjólk frá bóndabæ í Engi-
dal. Síðar kom í ljós að slátra þurfti
dýrum á bæjum í Skutulsfirði þar sem
díoxínmengun mældist yfir hámarks-
viðmiði. Díoxín er fituleysanlegt þrá-
virkt efni sem safnast fyrir í líkama
dýra og manna sem borða mengað
fóður.
Vingjarnlegur náungi
Ísfirðingurinn Guðjón Þorsteinsson
spjallaði við Irons er hann lenti á Ísa-
fjarðarflugvelli á sunnudag. „Ég var
að segja honum að hann væri einn af
þeim heppnu sem fengi að fljúga nið-
ur Engidalinn, en venjulega tekur flug-
vélin þessa margfrægu beygju í botni
Skutulsfjarðar,“ segir Guðjón. „Hann
spurði mig hvenær væri best að koma
í heimsókn hingað á árinu því strákinn
hans langi að koma hingað. Þetta er
rosalega vingjarnlegur náungi.“
Jeremy Irons á að baki afar farsælan
kvikmyndaferil en hann hlaut Óskars-
verðlaun árið 1991 fyrir leik sinn í kvik-
myndinni Reversal of Fortune. Þá hef-
ur hann einnig leikið í myndinni Die
Hard: With a Vengeance, The House of
Spirits og einnig ljáði hann Skara rödd
sína í hinni margfrægu teiknimynd
Konungi ljónanna.
Stórleikari skoðar
mengun á Ísafirði
Birgir Olgeirsson
blaðamaður skrifar birgir@dv.is
n Jeremy Irons kannar vandamál sem fylgja sorpförgun n Alþjóðlegt verkefni og
Ísafjörður fyrsti viðkomustaður n Hyggur á að snúa aftur til landsins með syni sínum
„Hann spurði mig
hvenær væri best
að koma í heimsókn
hingað á árinu því strák-
inn hans langi að koma
hingað.
Kannar sorpmálin Leikarinn Jeremy Irons er á
Ísafirði til að kynna sér vandamálin sem sveitarfé-
lagið hefur þurft að takast á við vegna sorpförgunar.
Funi Sorpbrennslustöðin Funi í Engidal í Skutulsfirði. Henni var lokað í desember síðast-
liðnum eftir að dioxín-mengun fannst í mjólk af bóndabæ í Engidal.
Afsökunarbeiðni DV biður Guðbjörgu
Matthíasdóttur afsökunar á því að hafa
sagt að hún hefði selt hlutabréf sem hún
átti persónulega í Glitni í maí 2008.