Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2011, Blaðsíða 20
Myndin fjallar um rithöfund-inn Eddie Morra (Bradley Cooper) sem virðist ekki
vera að gera neitt rosan gott mót í
lífinu. Hann er með alvarlega rit-
stíflu og er að renna út á tíma gagn-
vart útgefanda sínum. Hann geng-
ur í hálfgerðum lörfum, tekur ekki
til eftir sig, skuldar leigu og greiðir
sér afar sjaldan. Til að toppa von-
leysið ákveður síðan kærastan
hans að yfirgefa hann. Hann hef-
ur lifað á henni í langan tíma og
er ekki að sinna sambandinu sem
skyldi greinilega. Fyrir tilviljun þar
sem hann ráfar um í vonbrigðum
lífs síns rekst hann á gamlan félaga
sem gefur honum pillu af glænýju
byltingarkenndu lyfi. NZT virkj-
ar heilann þannig að notkunin á
honum er hundrað prósent en ekki
þessi fimm til tíu sem manneskjur
nota almennt. Það er ekki að því að
spyrja að hann verður allt í einu fá-
ránlega skarpur, kemst yfir glæsi-
legar konur og í framhaldi af því í
fyrrverandi kærustuna sína. Hann
fyllist miklum dugnaði, spennufíkn
og nýjungagirni í lífsstíl. Hann get-
ur allt í einu gert allt, skilið allt og
brillerar í öllu. Kókaínvímu hefur
oft verið lýst á þann hátt að menn
haldi að þeir geti allt. NZT er að
því leyti ólíkt að þar geturðu allt í
rauninni og veist líka af því. Eddie
gengur allt í haginn og verður al-
veg massífur verðbréfaplebbi sem
rakar inn seðlunum. Hann hug-
ar samt ekki að afleiðingunum þar
sem hann spænir í sig pillunum.
Þetta nýja líf Eddie er náttúrulega
alltof gott til að vera satt og eftirköst
og fráhvarfseinkenni hljóta að segja
til sín fyrr eða síðar. Skuldadag-
ar renna síðan upp og þeir skella
á honum harkalega. Eltingaleik-
ir, slagsmál og morð fylgja í kjöl-
farið. Það er í rauninni ekki mikið
um þetta að segja svo sem. Þetta er
bara hálf grunn töffaramynd sem
uppfyllir alveg afþreyingarkröfur
bíógesta en dýpra er það ekki. Ást-
arsamband Eddie og Lindy (Abbie
Cornish) er yfirborðslegt og hálf-
klárað eitthvað. Þessar gáfur sem
honum hlotnast eru ekki sannfær-
andi, það er ágætt að þekkja betur
til á þessum sviðum sem um ræðir
til að geta látið einhvern hljóma vel
að sér. Myndin er tæknilega fínt út-
færð og fer mikinn í grafíkflippinu
þar sem sjónarhornið flýgur með
mann gegnum marga kílómetra af
sömu götunni. Ég held að byrjun-
arsenan sem er á þessum nótum sé
minnisstæðasti parturinn af ræm-
unni. Og svo var poppið ágætt líka.
20 | Fókus 4. apríl 2011 Mánudagur
Vesturport tekst á við gamanleikjaformið:
Bananahýði og vandræðagangur
Í þessari viku hefjast sýningar á nýj-
um íslenskum gamanleik, Hús-
móðurinni. Það er leikhópurinn
Vesturport sem tekst á við gaman-
leikjaformið og ætlunin er að fylgja
hefðbundnu formi gamanleikja
en flétta saman við óvæntum upp-
ákomum að hætti Vesturports. Gam-
anleikjaforminu má lýsa sem formi
þar sem hurðir opnast og lokast á
hárréttu augnabliki, persónur birt-
ast á óþægilegu andartaki og leikarar
skipta ört um hlutverk. Bananahýði
og óbærilegur vandræðagangur.
Að sýningunni koma kjarni Vest-
urports, Björn Hlynur Haraldsson,
Gísli Örn Garðarsson, Víkingur Krist-
jánsson, Nína Dögg Filippusdóttir og
Jóhannes Níels. Pálmi Sigurhjartar-
son sér um tónlistina en gamanleik-
urinn er líka að hluta til söngleikur og
mjög músíkalskt verk.
Vesturportarana þarf vart að
kynna hér á landi en vinsælar sýning-
ar hópsins hafa farið frægðarför víða.
Þeirra helstu sýningar eru Rómeó og
Júlía, Ást, Woyzeck, Kommúnan og
Faust. Þessar sýningar hafa víða verið
settar upp; New York, London, Suð-
ur-Kóreu, Þýskalandi, Hollandi, Nor-
egi, Danmörku, Finnlandi og Mexíkó.
Í fyrra var Faust valin 40 ára afmælis-
sýning hins virta Young Vic-leikhúss í
London.
Húsmóðirin er samstarfsverkefni
Borgarleikhússins og Vesturports.
Vesturport á leiðinni til Pétursborgar
þessa dagana til að taka á móti Leik-
listarverðlaunum Evrópu. Frumsýnt
er 27. apríl næstkomandi en áður en
að frumsýningu kemur er hægt að
sækja aukasýningar sem eru til prufu.
Fyrsta slíka sýningin er fimmta apríl á
Nýja sviði Borgarleikhússins.
Nýtt verk frá
Ólafi Hauki
Ólafur Haukur Símonarson hefur
skrifað mörg leikrit sem átt hafa ein-
stökum vinsældum að fagna í Þjóð-
leikhúsinu á síðustu áratugum og
má þar nefna Gauragang, Þrek og tár,
Hafið, Græna landið og Bílaverkstæði
Badda. Þórhallur Sigurðsson hefur
sett öll þessi verk á svið, og nú færa
þeir félagar okkur glænýtt, fallegt og
skemmtilegt leikrit um Íslendinga í
nútíð og fortíð. Verkið kallast Bjart
með köflum og verður forsýnt í Þjóð-
leikhúsinu á miðvikudaginn. Verkið
fjallar um andstæður og öfgar Íslend-
inga og samband okkar við landið.
Verkið á sér stað árið 1968 og fjallar
um unga piltinn og rokkarann Jakob
sem sendur er í sveit.
Húsfyllir á uppi-
standskvöldum
Á miðvikudaginn er komið að
nýju uppistandskvöldi hjá Mið-Ís-
landi. Síðast fylltist húsið tvö kvöld
í röð og fólk þurfti frá að hverfa.
Nú verður hlaðið í nýja sýningu
með nýju efni og nýjum gesti, en
hann verður að þessu sinni einn
allra besti uppistandari landsins,
Pétur Jóhann Sigfússon. Grínið
fer fram miðvikudaginn 6. apríl
og verður að vanda í Þjóðleikhús-
kjallaranum.
Fastir meðlimir hópsins eru þeir
Ari Eldjárn, Bergur Ebbi Bene-
diktsson, Halldór Halldórsson og
Jóhann Alfreð Kristinsson og munu
þeir allir koma fram. Þá mun Mar-
grét Björnsdóttir, sem á dögunum
vann keppnina Fyndnasti Verzling-
urinn, vera með stórskemmtilega
innkomu á sýningunni.
Tvö frumsamin dansverk:
Dansveisla
í Tjarnarbíói
Darí Darí Dance Company ásamt
dönsurunum Steinunni og Brian
býður upp á dansveislu í Tjarnar-
bíói. Verkin voru
frumsýnd þann
3. apríl og næstu
sýningar verða
miðvikudaginn 6.
apríl og sunnu-
daginn 10. apríl.
Sýnd verða tvö
frumsamin verk,
Gibbla með Darí
Darí og „Steinunn and Brian DO art;
How to be Original“ eftir Steinunni
og Brian.
Gibbla er nýtt íslenskt dansverk
og það fjórða í röðinni hjá Darí Darí.
Verkið er afrakstur samstarfs sjö
listamanna úr mismunandi greinum
þar sem dans, tónlist og kvikmynda-
gerð fléttast saman og mynda eina
samræmda heild. Innblástur verks-
ins er sóttur í hinn goðsögulega arf,
til Asks Yggdrasils og örlaganorn-
anna þriggja, Urðar, Verðandi og
Skuldar.
Danshöfundar og dansarar eru
Guðrún Óskarsdóttir, Inga Maren
Rúnarsdóttir og Katla Þórarinsdóttir.
Steinunn og Brian hafa unnið
saman síðan árið 2007 og sýnt verk
sín víða í Evrópu og í New York. Þau
hafa vakið verðskuldaða athygli fyrir
túlkun sína og eru þekkt fyrir kald-
hæðni og dramatík.
Nína Dögg er húsmóðirin Vesturportarar eru á leiðinni til Pétursborgar til að taka á
móti Leiklistarverðlaunum Evrópu. Frumsýning á Húsmóðurinni verður í apríl en hægt verður
að sjá nokkrar prufusýningar í þessari og næstu viku.
ÚTÚRLYFJAÐUR
Á VELGENGNI
Bíómynd
Erpur
Eyvindarson
Limitless
IMDb 7,4 RottenTomatoes 68% Metacritic 59
Leikstjóri: Neil Burger
Handrit: Lesie Dixon, Alan Glyn
Leikarar: Bradley Cooper, Robert De Niro,
Abbie Cornish, Andrew Howard, Anna Friel,
Johnny Whitworth, Tomas Arana
105 mínútur