Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2011, Síða 10
10 | Fréttir 4. apríl 2011 Mánudagur
Dýrafræðingur segir að ótal tegundir séu til af tarantúlum:
Tarantúlur yfirleitt meinlausar
„Það sem menn kalla tarantúlur
eru ótal margar tegundir og eru allt
frá því að vera hættulegar niður í að
vera algjörlega meinlausar, “ segir
Erling Ólafsson dýrafræðingur.
DV greindi frá því fyrir skömmu
að tarantúla hefði fundist í einum
strætisvagni borgarinnar en það
var hinn 25 ára Marcel Wojcik sem
rakst á hana þar. Honum var held-
ur betur brugðið þegar hann sat í
strætó í síðustu viku og fann stóra
tarantúlu í sætinu við hliðina á sér.
Marcel, sem var með tómt plast-
box meðferðis, gómaði köngulóna
og tók hana með sér heim þar sem
hún drapst stuttu seinna. Hann
sagðist hafa verið of forvitinn til
þess að yfirgefa dýrið sem hann
segir að hafi verið á lífi á þegar
hann fann það.
Erling bendir á að margir eigi
tarantúlur sem gæludýr en þess-
ar stóru köngulær séu yfirleitt ekki
hættulegar. Það séu minni tegund-
irnar sem séu oftar eitraðar. „Svarta
ekkjan er til dæmis varasöm og er
með hættulegri köngulóm. Það
eru til margar tegundir af henni og
þær eru mishættulegar,“ útskýrir
hann og bætir við að slík dýr ber-
ist stundum hingað til lands og þá
oftast með matvælum, til dæmis
vínberjum frá Ameríku. Aðspurður
hvernig fólk eigi að bregðast við
finni það eina slíka í vínberjak-
lasanum sínum, segir hann það
ákaflega ólíklegt og líkurnar í
raun hverfandi á að slíkt gerist. Ef
það hins vegar gerist þá geti við-
komandi haft samband við Nátt-
úrufræðistofnun. Hann segir það
númer eitt, tvö og þrjú að fólk eigi
að varast að snerta köngulóna því
hún geti bitið. Það sé sérstaklega
varasamt fyrir börn og hjartveika.
Fullfrískum einstaklingi yrði þó
væntanlega ekki meint af.
n Njálgur hefur stungið sér niður í leik- og grunnskólum n Birtist þar sem
mörg börn koma endurtekið saman n Mikilvægt að gæta ítrasta hreinlætis
Njálgur gerir vart
við sig í skólum
Njálgs hefur orðið vart í leik- og grunn-
skólum landsins, meðal annars í Graf-
arholti og Vesturbæ, en þessi óvel-
komni gestur vekur óhug hjá mörgum.
Tilfelli af njálgi koma þó reglulega upp
og ekki er í öllum tilfellum auðvelt að
losna við hann. Meðhöndla þarf alla
fjölskyldumeðlimi, oft þarf að gefa
meðferðina nokkrum sinnum og gæta
þarf ítrasta hreinlætis í hvívetna. Áður
fyrr var njálgur tengdur við sóðaskap
og óhreinindi en læknir sem DV ræddi
við segir að það sé misskilningur.
Snyrtipinnar geta fengið njálg
„Snyrtilegasta fólk og jafnvel þeir sem
eru ýktir í þrifum geta fengið njálg
þannig að hann er alls ekki merki um
sóðaskap,“ segir Gunnar Ingi Gunn-
arsson, yfirlæknir á Heilsugæslunni
í Árbæ. Hann segir að þar hafi orðið
vart við njálg að undanförnu og að slík
tilfelli komi með vissu millibili upp í
skólum. Þetta sé því ekkert sem þurfi
að vekja sérstaka athygli á því njálgur-
inn komi upp öðru hvoru.
Aðspurður hvort hægt sé að tengja
njálgstilfelli við hugsanlega minni þrif
í skólum og leikskólum segir hann að
þar séu engin tengsl. „Faraldur af þess-
um toga á sér fyrst og fremst ástæðu í
því að á ákveðnum stað komi mörg
börn saman, aftur og aftur. Eins og í
skólum og leikskólum, en þar smit-
ast börnin og svo gengur þetta á milli
manna í fjölskyldum.“
Fólk tekur þetta nærri sér
„Það er einhver gamall stimpill að
njálgurinn tilheyri þeim sem eru verr
staddir í þjóðfélagsstiganum og það
hefur enn áhrif á hvernig fólk lítur á
þetta. Margir taka það mjög nærri sér
ef njálgurinn stingur sér niður á heim-
ilinu. Fyrir utan það að leiðbeina fólki
hvernig á að meðhöndla slík tilfelli
erum við læknar mest í því að leið-
rétta þennan misskilning,“ segir hann
og bætir við að njálgurinn fari ekki í
manngreinarálit því hann hafi einfald-
lega ekki gáfur til þess.
Eggin geta lifað í 3 vikur
Samkvæmt Vísindavefnum er njálg-
ur lítill innyflaormur og algengasta
sníkjudýrið hjá börnum og fullorðnum
í löndum þar sem veðurfar er svipað
og hjá okkur. Í sumum nálægum lönd-
um er talið að allt að 20 prósent barna
séu smituð. Þar segir einnig að smitun
verði þannig að egg berist frá smituð-
um einstaklingi og í munn annars. Þau
berist á milli manna í sængurfötum og
leikföngum og geti lifað í umhverfinu í
allt að þrjár vikur við venjulegan stofu-
hita. Eggin geta einnig svifið um í loft-
inu og borist þannig í öndunarfæri og
síðan meltingarfæri manna.
Upplýsingar af heimasíðu Heilsugæslu Reykjavíkur
Einkenni:
n Kláði (mest áberandi þegar barnið er komið undir sæng á kvöldin)
n Svefntruflanir
n Erting í leggöngum
n Lystarleysi
n Eirðarleysi
n Njálgur er stundum einkennalaus.
Greining:
Felst í því að finna orma og/eða egg við endaþarmsopið. Ormarnir sjást með berum
augum eins og litlir hvítir þræðir við svæðið kringum opið og einnig í saur. Best er að skoða
endaþarmsopið þegar barnið finnur fyrir einkennum og nota til þess vasaljós. Hægt er að
setja límband við endaþarminn og þá festast eggin á og hægt er að staðfesta smit með rann-
sókn ef þörf er á.
Meðferð:
n Tvö lyf er hægt að nota við meðhöndlun á njálg, annað er selt í lausasölu en hitt er
lyfseðilsskylt.
n Meðhöndla þarf alla fjölskylduna.
n Handþvottur er mjög mikilvægur, sérstaklega eftir salernisferðir og fyrir mat.
n Almennt hreinlæti, tíðari þvottur á salerni, krönum, baðkörum, hurðarhúnum og leikföngum.
n Klippa neglur vel því þá festast eggin síður undir þeim.
n Þvo föt og rúmföt við minnst 60°C hita.
n Dagleg nærfataskipti.
Hvernig er hægt að forðast njálg:
n Almennt hreinlæti og handþvottur er mjög mikilvægur.
n Forðast skal að vera með hendur uppi í munni og setja leikföng og annað upp í munninn.
n Reglulegur þvottur á leikföngum.
NjálgurGunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
Njálgur Erfitt getur verið að
losna við hann.
Grensásvegi 8 & Nýbýlavegi 12
Opið mán–föst 11.00–18.00
og lau 11.00–16.00
Úrval af
barnaskóm
BORGARNESI S: 437 1240
St. 28-35 Verð kr. 4.995,-
St. 24-35 Verð kr. 4.595,-
St. 24-35 Verð kr. 4.795,-
St. 19-24 Verð kr. 4.295,-
Lágmarkslaun verði 200 þúsund:
Málið ekki
í höfn
„Þetta potast áfram,“ segir Gylfi Arn-
björnsson, forseti ASÍ, aðspurður um
hvernig fundir Samtaka atvinnulífsins
og Alþýðusambandsins hafi gengið.
Fulltrúar þessara hagsmunasam-
taka launþega fóru fram um helgina
í Karphúsinu þar sem fundað var um
kaup og kjör í komandi kjarasamning-
um. Fulltrúar ASÍ og SA hafa unnið við
sameiginlegar tillögur um breytingar
á yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um
efnhagsmál og ráðgert var að afhenda
þær embættismönnum úr stjórnar-
ráðinu á sunnudagskvöld.
Gylfi segir það vera markmið í
kjaraviðræðunum að lægstu laun fari
yfir 200 þúsund krónur fyrir lok samn-
ingstímans. „Þetta hefur verið viðmið-
ið hjá okkur og við reynum að finna
leiðir til að það megi nást. En þetta er
þó ekki komið í höfn,“ segir hann.
Hann segir það mikilvægt að
samningsaðilar nái saman um ramma
um launauppbygginguna og viðræðu-
nefndir aðildarsambanda geti sæst á
draga upp innihaldið í sínum samn-
ingum. „Það verða áframhaldandi
fundir og það er ljóst að það verður
ekki einn kjarasamningur gerður.
Hvert samband og stærri félög verða
með sína eigin samninga.“ Vonast
samningamenn til þess að samið
verði fyrir vikulok.
Geta bitið Erling segir að fólk eigi að varast að snerta
köngulærnar. Það geti verið varasamt fyrir börn og hjartveika.