Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2011, Síða 12
12 | Fréttir 4. apríl 2011 Mánudagur
Einar Karl Haraldsson, ráðgjafi og
fyrrverandi upplýsingafulltrúi í for-
sætisráðuneyti Jóhönnu Sigurð-
ardóttur og fyrrverandi aðstoðar-
maður Össurar Skarphéðinssonar
utanríkisráðherra, er einn þeirra ís-
lensku aðila sem veitt hefur starfs-
mönnum erlendu auðmannanna
tíu sem sótt hafa um íslenskt rík-
isfang ráðleggingar. Auðmennirn-
ir tíu segjast ætla að fjárfesta fyrir
milljarða króna hér á landi. Alls-
herjarnefnd Alþingis mun taka af-
stöðu til umsókna auðmannanna í
vikunni.
Umsóknir auðmannanna tíu um
íslenskt ríkisfang hafa vakið mikið
umtal í samfélaginu frá því greint
var frá þeim í Kastljósinu síðast-
liðinn fimmtudag. Formenn ríkis-
stjórnarflokkanna, Jóhanna Sigurð-
ardóttir og Steingrímur J. Sigfússon,
hafa bæði lýst sig andsnúin því að
veita auðmönnunum tíu ríkisfang á
þeim forsendum að þeir ætli sér að
verja miklum fjármunum í fjárfest-
ingar hér á landi.
Vinnur ekki fyrir þá lengur
Einar Karl segist hafa rætt við Da-
vid Lesperance, kanadískan lög-
mann auðmannanna tíu, rétt fyrir
áramótin en hafi ekki unnið fyrir
auðmennina síðan. „Þeir komu og
spurðu mig ráða. Ég gaf þeim bara
ráðleggingar og síðan hafa þeir ver-
ið að vinna þetta sjálfir... Ég talaði
við þennan Lesperance.“
Einar Karl segir að
ráðleggingarnar sem hann hafi gef-
ið Lesperance hafi verið almenns
eðlis og snúist um það hvernig þeir
ættu að kynna hugmyndina um rík-
isborgararéttinn hér á landi. „Ég
lagði nú áherslu á það að þetta væri
það framandi hugmynd að það
þyrfti að gefa henni góðan tíma ef
menn ætluðu sér að ná einhverjum
árangri með hana,“ segir Einar Karl.
Ræddi við Róbert
Einar Karl segist aðspurður ekki
hafa verið í því sjálfur að kynna
hugmyndina eða agitera fyrir
henni. „Nei, ég hef ekkert verið að
því en ég hef vitað af þessu og lagði
fram almennar ráðleggingar um
hvernig skynsamlegast væri að tala
um þetta við menn.“ Einar Karl seg-
ist aðspurður ekki hafa beitt sínum
tengslum inn í íslensk stjórnmál
til að vinna hugmyndinni braut-
argengi fyrir hönd auðmannanna.
Hann segist hafa rætt um málið við
Róbert Marshall, þingmann Sam-
fylkingarinnar og formann allsherj-
arnefndar. „Einhvern tímann drap
ég á þetta við Róbert en ég hef ekki
átt neina fundi með honum um
málið enda hefur hann bara tekið
á móti þessu erindi eins og hverju
öðru sem berst.“
Róbert Marshall segist ekki geta
rætt samskipti sín við talsmenn eða
umboðsmenn einstakra umsækj-
enda um íslenskan ríkisborgararétt.
Hann segir hins vegar að í þessu til-
tekna máli hafi hann alltaf sagt við
alla hlutaðeigandi aðila að til þess
að umræddum auðmönnum verði
veittur íslenskur ríkisborgararéttur
þurfi að fara fram opinber umræða
um réttmæti þess og að pólitísk sátt
þurfi að skapast um þá niðurstöðu
að veita þeim íslenskt ríkisfang.
Líkt og áður segir mun allsherj-
arnefnd taka umsóknir auðmann-
anna fyrir í vikunni. Nefndin hefur
vald til þess að hafna öllum um-
sóknunum ef hún metur það sem
svo að ekki sé tilefni til að veita
auðmönnunum íslenskan ríkis-
borgararétt. Allsherjarnefnd gæti
líka tekið þá ákvörðun að leggja til
að umræddum auðmönnum verði
veittur ríkisborgararéttur og myndi
hún leggja fram frumvarp þess efn-
is fyrir Alþingi. Miðað við viðtöl DV
við nokkra af meðlimum allsherjar-
nefndar fyrir helgi verður að teljast
ólíklegt að allsherjarnefnd muni
verði samþykk því að veita auð-
mönnunum ríkisborgararétt.
Segir hugmyndina
vissulega framandi
Einar Karl segir að honum finnist
það áhugavert að einhver sýni Ís-
landi áhuga og að óþarfi sé að missa
sig út af málinu. „Þetta er náttúru-
lega áhugavert þannig séð að ein-
hver sýni okkur áhuga. Ég held að
við þurfum ekkert að fara á líming-
unum út af þessu heldur bara að
afgreiða þetta eins og hvert annað
erindi. Ég held að menn hafi ekki
haft alveg raunhæfar hugmynd-
ir um þetta; að það væri hægt að
keyra þetta í gegn en, to, tre. Þetta
eru það framandi hugmyndir fyrir
okkur að menn vilja auðvitað skoða
þetta nokkuð vel.“
Vitnaði í Inspired by Iceland
Sú staðreynd að auðmennirn-
ir leituðu til Einars Karls eft-
„Ég held að við
þurfum ekkert að
fara á límingunum út af
þessu heldur bara að af-
greiða þetta eins og hvert
annað erindi.
n Einar Karl Haraldsson veitti erlendu auðmönnunum tíu ráðgjöf um ferlið í umsókn um ríkis-
borgararétt n Starfar ekki fyrir þá lengur n Auðmennirnir heilluðust af Inspired by Iceland
n Róbert segir að pólitísk sátt þurfi að skapast um að veita auðmönnunum ríkisborgararétt
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Ræddi við Einar Karl David Lesperance
ræddi við Einar Karl um umsóknarferlið.
Einar Karl segist ekki hafa beitt tengslum
sínum inn í Samfylkinguna til að agitera
fyrir umsóknum auðmannanna.
Einar Karl veitti auð-
mönnunum ráðgjöf
Aaron Robert Thane Ritchie
Thane Ritchie er stofnandi og forstjóri vogunarsjóðsins Ritchie
Capital Management sem fjárfestir aðallega á bandarískum
hlutabréfamarkaði. Hann var dæmdur til að greiða 40 milljóna
dollara sekt, jafngildi 4,5 milljarða króna á núvirði, í febrúar
2008 fyrir ólögleg viðskipti. SEC, sjálfstæð eftirlitstofnun með
verðbréfamörkuðum og kauphöllum í Bandaríkjunum, greindi
frá því að sjóðurinn hefði sett inn þúsundir tilkynninga um
viðskipti rétt fyrir lok markaða og að hann hefði reynt að fela
slóðina. Thane Ritchie er að því er virðist mikill áhugamaður um
nýtingu sjálfbærra orkuauðlinda, sem hann bloggar um á thaneritchie.com. Ahygli vakti
líka þegar það spurðist út í fyrra að hann hyggðist kaupa tímaritið Newsweek.
David Lesperance
Bandarískur lögfræðingur hjá Lesperance & Associates. Hann
sérhæfir sig í því að aðstoða fjárfesta í að greiða sem minnst
gjöld af tekjum sínum og eignum. Hann þykir lunkinn við að
útvega mönnum vegabréf og ríkisborgararétt í hinum ýmsu
löndum. Fjölmiðlar hafa greint frá því að hann sé þekktur í fjár-
málaheiminum fyrir óhefðbundnar aðferðir sínar við að komast
hjá háum skattgreiðslum. David Lesperance hefur leitt hópinn
sem vill öðlast íslenskan ríkisborgararétt. David sagði í viðtali
við Kastljós að hann hefði heillast af Inspired by Iceland-her-
ferðinni en sagði enn fremur að skjólstæðingum hans myndi aldrei detta í hug að greiða
ekki skatta af þeirri þjónustu sem þeir nýta sér. Hann segist hafa komið átta sinnum til
Íslands.
Rodney Chadwick Muse
Muse hóf feril sinn í bankastarfsemi á níunda áratug síðustu
aldar, nánar tiltekið hjá Chase Manhattan-bankanum. Hann er
með B.A. gráðu frá St Lawrence-háskólanum og MBA gráðu frá
Harvard-háskólanum. Muse er einn af eigendum fjárfestingar-
félagsins Navis Capital Partners, sem er sagt sérhæfa sig í upp-
kaupum, endurfjármögnun og endurskipulagningu fyrirtækja,
samkvæmt fréttaveitunni Bloomberg. Félagið var stofnað árið
1988 og fjárfestir einkum í Ástralíu og Asíu. Hann er hluthafi
í Elspan Technologies Limited, fyrirtæki á sviði byggingar-
tæknifræði, sem staðsett er í Hong Kong. Muse hefur einnig reynslu af fyrirtækjum sem
vinna með olíu og gas.
Alexei Viktorovich Maslov
Hann er 36 ára Rússi og einn stjórnenda rússneska orkufyrirtækisins RusHydro. Stjórnar-
formaður RusHydro er orkumálaráðherra Rússlands. Maslov ku þó vera á leið úr stjórn
fyrirtækisins að beiðni yfirvalda í Kreml. Þá er Maslov stjórnarmaður í stóru rússnesku
eignarhaldsfélagi sem ber nafnið Interregional Distribution Grid Companies Holding.
Peter Kadas
Er Kanadamaður og forstjóri New World Resources, stærsta
kolaframleiðanda í Mið-Evrópu. Hjá fyrirtækinu vinna ríflega
18.500 manns en það hefur starfsstöðvar í Hollandi. Financial
Times greindi frá því að Kadas væri stofnandi rússneska fjár-
festingabankans Renaissance Capital.
Engar upplýsingar fundust um:
n Patrick Charles Egan
n David Joseph Steinberg
n Christopher Bailey Madison
n Calvin Wilson
n Patrick Holland
n Sandra Jean Houston
Báðu Einar Karl um ráðleggingar Umboðsmenn auðmannanna tíu báðu Einar Karl
Haraldsson um ráðgjöf varðandi umsókn þeirra um íslenskan ríkisborgararétt. Einar Karl
stýrði Inspired by Iceland verkefninu sem var ein af ástæðunum fyrir því að auðmennirnir
vilja fá íslenskt ríkisfang.
Þessir vilja ríkisborgararétt
ir ráðleggingum þarf ekki að
koma á óvart þegar litið er til
þess að hann var formaður fram-
kvæmdanefndar Inspired by
Iceland-auglýsingaherferðarinnar
sem auðmennirnir, ásamt Da-
vid Lesperance, heilluðust mjög
af ef marka má viðtal við Lesper-
ance sem sýnt var í Kastljósi í síð-
ustu viku. „Ég var mjög heillaður af
Inspired by Iceland-auglýsingaher-
ferðinni og skjólstæðingarnir mínir
líka,“ sagði Lesperance. Meðal þess
sem Lesperance sagði í viðtali var
að hann væri „Inspired by Iceland“
og að auglýsingaherferðin væri ein
af ástæðunum fyrir því að auð-
mennirnir vildu sækja um íslenskt
ríkisfang.
Meginhlutanum af kostnaðin-
um við Inspired by Iceland-her-
ferðina, eða um 593 milljónum
króna, var varið í að gera auglýs-
ingar um Ísland sem meðal ann-
ars voru birtar á fjölförnum lestar-
stöðvum í Bretlandi og Hollandi.
Sjónvarpsauglýsingar sem gerðar
voru á vegum Inspired by Iceland
vöktu sömuleiðis talsverða athygli,
bæði hér á landi og annars staðar.
Lesperance sagði í viðtali við
fréttastofu RÚV á föstudag að miklu
fleiri erlendir auðmenn hefðu
áhuga á að gerast íslenskir ríkis-
borgarar. DV sendi Lesperance
tölvuskeyti á sunnudag þar sem
lagðar voru fyrir hann spurningar
um umsóknir erlendra auðmanna
um íslenskt ríkisfang. Hann hafði
ekki svarað spurningum blaðsins
þegar það fór í prentun á sunnu-
dag.