Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2011, Blaðsíða 16
16 | Erlent 4. apríl 2011 Mánudagur
Saklausir borgarar og uppreisnarmenn falla í Líbíu:
Gerðu skelfileg „mistök“
Blóðug átök standa enn yfir í Líbíu
og æ oftar koma skuggahliðar stríðs
í ljós. Bandamenn halda áfram að
varpa sprengjum á hersveitir sem
eru enn hliðhollar Muammar al-
Gaddafi, leiðtoga Líbíu, með það að
yfirlýstu markmiði að liðsinna upp-
reisnarmönnum og vernda saklausa
borgara. Því var svo sannarlega ekki
að dreifa nú um helgina þegar tvær
árásir mistókust hrapallega með
skelfilegum afleiðingum.
Á laugardag skutu bandamenn
eldflaugum á bílalest hersveitar sem
var á bandi Gaddafis. Það tókst ekki
betur til en svo að þegar sprengj-
an hæfði skotmarkið var bílalestin í
þorpinu Argobe, ekki langt frá borg-
inni Ajdabiya – þar sem harðir bar-
dagar hafa geisað. Í bílnum sem varð
fyrir sprengjunni var geymt púð-
ur og handsprengjur sem sprungu.
Sprengjubrot flugu í allar áttir, með-
al annars inn í nærliggjandi hús. Alls
létust átta, þar af þrjár stúlkur sem
voru á aldrinum 12 til 16 ára.
Annað atvik af svipuðum toga átti
sér stað á sunnudag. Hópur upp-
reisnarmanna fagnaði sigri rétt fyrir
utan borgina Ajdabiya, en sigrinum
fögnuðu þeir með því að skjóta úr
byssum sínum upp í loftið. Herþotur
bandamanna voru á sveimi á svæð-
inu og töldu flugmenn þeirra greini-
legt að verið væri að skjóta á þot-
urnar. Skutu þeir sprengjum í átt að
uppreisnarmönnunum sem máttu
sín lítils gegn eyðingarmætti eld-
flauganna. Alls létust 15 í árásinni.
Mustafa Gueriani, talsmaður
bráðabirgðastjórnar uppreisnar-
manna í Bengasi, gerði lítið úr atvik-
unum. „Við verðum að skoða heild-
armyndina. Það verða alltaf gerð
mistök. Við erum að losa okkur við
Gaddafi og auðvitað fylgir því mann-
fall, þó við séum auðvitað ekkert
ánægð með þetta.“ bjorn@dv.is
Silvio Berlusconi, forsætisráðherra
Ítalíu, hefur verið í sviðsljósinu und-
anfarna mánuði eftir að upp komst
um fjölmargar svallveislur sem
haldnar voru á heimili hans í Ar-
core í úthverfi Mílanóborgar. Í veisl-
unum var 17 ára stúlka, Karima el-
Mahroug að nafni, tíður gestur og er
talið víst að hún hafi þegið greiðslur
frá forsætisráðherranum fyrir að
stunda kynlíf. Vændi er ekki ólöglegt
á Ítalíu, en það er hins vegar ólög-
legt að borga ólögráða einstakling-
um fyrir kynlíf. Saksóknaraembættið
í Mílanó hefur unnið hörðum hönd-
um við undirbúning fyrir væntanleg
réttarhöld yfir forsætisráðherranum,
en þau munu hefjast á miðvikudag
næstkomandi. Saksóknaraembætt-
ið hefur grafið upp fjöldann allan af
sönnunargögnum og hefur unnið
skýrslu um „konurnar hans Berlus-
conis“ sem telur alls 20 þúsund blað-
síður. Þar kennir ýmissa grasa.
Konur kallaðar „pakkar“
Berlusconi er ekki við eina fjölina
felldur, svo vægt sé til orða tekið,
þegar kemur að kvennamálum. Á
heimili hans voru skipulagðar svall-
veislur, sem kallaðar voru „Bunga
bunga“-veislur, þar sem fáklædd-
ar konur umkringdu Berlusconi og
vini hans. Forsætisráðherrann fékk
einn vina sinna, Dario Mora, til að
sjá um að útvega kvenfólk. Mora
þessi var í ágætri stöðu til þess, en
hann starfar alla jafna við að finna
„hæfileikaríkt“ fólk til að koma fram
í sjónvarpi. Upptökur af símtölum
milli Mora og Berlusconis hafa leitt
í ljós að þeir töluðu sín á milli um
kvenfólk sem „pakka“ sem þyrfti að
„senda og taka við.“ Þrír aðrir vinir
Berlusconis hafa einnig verið sak-
aðir um að hafa liðsinnt honum við
kvennaleit en þeir hafa allir neit-
að því að hafa starfað sem nokkurs
konar „dólgar“ fyrir glaumgosann
frá Sardiníu.
Upptekinn – nema á
mánudögum
Á miðvikudag verður mál Berlus-
conis loksins tekið fyrir í dómhús-
inu í Mílanó. Ekki er talið líklegt að
Berlusconi verði viðstaddur, en á
þessum fyrsta degi réttarhaldanna
verður væntanlega búin til stunda-
skrá fyrir málið, en Berlusconi á
ekki heimangegnt hvaða dag sem
er. Honum hentar best að mæta
einungis á mánudögum og líklega
verður farið að kröfum kappans,
þar sem hann ætlar sér einnig að
verja sig sjálfur.
Bunga bunga
Eftir að hafa rætt við tugi gesta hef-
ur saksóknaraembættið í Mílanó
nú fengið staðfest hvernig Bunga
bunga-veislur Berlusconis gengu
fyrir sig, þó engar tvær veislur hafi
verið nákvæmlega eins. Hófust
veislurnar ætíð á glæsilegri fjög-
urra rétta kvöldmáltíð en í kjöl-
farið var ætlast til þess að kon-
urnar sem þar voru staddar hæfu
nektardans. Voru þær þá annað
hvort naktar eða klæddar í bún-
ing, en meðal vinsælla búninga
má nefna lögreglubúning sem og
hjúkrunarkonubúning. Berlusconi
ákvað síðan hvaða kona, eða kon-
ur, myndu njóta þess heiðurs að
fá að sænga með honum. Þær sem
urðu svo „heppnar“, fengu auka-
lega greitt, bæði í peningum og
dýrum gjöfum.
Konur eru
„paKKar“
n Málarekstur gegn Silvio Berlusconi hefst næstkomandi miðvikudag í Mílanó
n Sjálfur mætir hann ekki, en hann vill bara mæta fyrir rétt á mánudögum
n Kallaði konur „pakka“ og fékk vini sína til að finna fyrir sig kvenfólk
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is
Karima el-Mahroug Fæddist í Marokkó en
sigraði fegurðarsamkeppni á Sikiley. Gengur
einnig undir nafninu „Ruby hjartaþjófur“.
„Þeir töluðu sín á
milli um kvenfólk
sem „pakka“ sem þyrfti
að „senda og taka við“
Loksins fyrir dóm Berlusconi
gæti átt yfir höfði sér 15 ára fangelsi
verði hann fundinn sekur.
Uppreisnarmenn fagna Tíðkast
hefur hjá uppreisnarmönnum að skjóta
úr byssum sínum til að fagna.
Drengur féll úr
rússíbana
Þeim sem eru smeykir við að fara
í rússíbana er ráðlagt að lesa ekki
lengra. AP-fréttastofan greindi frá
því í gær að bandarískur drengur,
þriggja ára að aldri, hefði látist eftir
að hann féll til jarðar úr rússíbana.
Drengurinn var ásamt foreldrum
sínum í skemmtigarðinum Go Ban-
anas sem er staðsettur í úthverfi
Chicago. Hann stóðst allar kröfur
sem gerðar eru til gesta um hæð
og stærð, og fékk hann því að sitja í
rússíbananum sem ber heitið Pyth-
on Pit. Drengurinn sat við hlið tví-
burabróður síns sem slapp ómeidd-
ur. Lögreglan á staðnum segir að um
hörmulegt slys hafi verið að ræða.
Ofurlaun
bankamanna
Það er ekki aðeins á Íslandi sem
stendur styr um himinhá laun
bankamanna. Nú hefur fjárfestinga-
bankinn Goldman Sachs ákveð-
ið að láta af stefnu sinni sem var að
takmarka allar aukagreiðslur og fríð-
indi í kjölfar efnahagskreppunnar
sem skall á heimsbyggðinni árið
2008. Hefur þetta vakið mikla reiði í
Bandaríkjunum, en Goldman Sachs
var einn þeirra banka sem þáði
björgunarpakka frá ríkisstjórninni,
en í tilfelli Goldman Sachs var sá
pakki metinn á 10 milljarða dollara.
Nú er ljóst að bankamaðurinn Lloyd
Blankfein framkvæmdastjóri mun fá
um 14 milljónir dollarar í fríðinda-
greiðslur fyrir störf sín á árinu 2010,
en það samsvarar um 1,6 milljörð-
um íslenskra króna.
Tveir látnir í
Fukushima
Japönsk stjórnvöld hafa staðfest
fyrstu dauðsföllin sem má rekja með
beinum hætti til áhrifa geislunar
vegna kjarnorkuslyssins í Fukushima
Daiichi-kjarnorkuverinu. Slysið átti
sér stað vegna risaskjálftans sem
skók Japan þann 11. mars síðast-
liðinn. Tveir menn fundust látnir í
einni byggingu kjarnorkuversins á
miðvikudag, en ákveðið var að segja
ekki opinberlega frá því fyrr en á
sunnudag, til að sýna fjölskyldum
hinna látnu virðingu. Mennirnir,
annar 24 ára og hinn 21 árs, voru
við störf þegar þeir létust. Þeir unnu
að því að koma kælikerfi kjarnorku-
versins í gang, en án þess er hætta á
að kjarnaofn ofhitni og bræði úr sér
með skelfilegum afleiðingum.