Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2011, Qupperneq 19
Umræða | 19Mánudagur 4. apríl 2011
Sögulegur
sigur að
mörgu leyti
1 Finnst hún vera ljót og með hár eins og Davíð Oddsson Nærmynd
af Ingu Lind í helgarblaði DV.
2 Skipstjóri bjargaði bátnum sínum: „Ef við deyjum þá deyjum
við saman“ Japanskur skipstjóri
sigldi á móti fljóðbylgjunum sem
skullu á Japan til þess að bjarga skipi
sínu.
3 Charlie Sheen tapaði í Detroit Áhorfendur voru ekki hrifnir af
uppistandi Sheen.
4 KÆRI HANNES HÓLMSTEINN Bréf Jóhanns Haukssonar blaða-
manns til Hannesar Hólmsteins.
5 Mogginn gefins Könnun sýnir að lestur Morgunblaðsins eykst en
blaðinu var dreift frítt í könnunarvik-
unni.
6 Lokuðu skemmtistaðnun Kebab bensín Lögreglan lokaði
skemmtistað þar sem nokkrir gesta á
staðnum reyndust vera undir lögaldri.
7 Stór hluthafi í Icelandair Pétur Árni Jónsson, útgefandi Viðskipta-
blaðsins, er stærsti einstaki hlut-
hafinn í Icelandair Group.
Bjarni Lúðvíksson sat fyrir miðju í
Gettu betur-liði Kvennaskólans í
Reykjavík sem hrósaði sínum fyrsta
sigri í spurningakeppni framhalds-
skólanna á laugardagskvöldið. Kvennó
hafði betur gegn nágrönnum sínum úr
MR, 22–21, í æsispennandi keppni.
Hver er maðurinn?
„Bjarni Lúðvíksson.“
Hvar ertu uppalinn?
„Ég er uppalinn í Grafarvogi.“
Hvað er það fyrsta sem þú gerir á
morgnana?
„Ég fæ mér lýsi.“
Hvar vildirðu helst búa ef ekki á Íslandi?
„Maður verður að nefna eitthvert sniðugt
land. Marokkó. Ég hef samt ekki komið
þangað.“
Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?
„Ég veit það ekki alveg. Segjum bara
páskaegg.“
Með hverjum heldurðu í enska?
„Ég held víst með Liverpool.“
Hvernig voru taugarnar þegar MR reyndi
við svarið í lokaspurningunni?
„Maður var náttúrulega alveg alveg á nálum
en hélt samt einbeitingunni. Annars man ég
nú bara varla eftir þessu.“
En þegar þú heyrðir að svarið væri rangt?
„Það var rosalegt. Þetta var alveg frábær
tilfinning.“
Hefurðu lengi stefnt að því að vinna
Gettu betur?
„Já, ég hef stefnt að því síðan 2009. Sem
sagt í tvö ár.“
Er ekki ánægjulegt að vera í fyrsta sigur-
liðinu sem er með stelpu innanborðs?
„Jú, það er alveg frábært. Þetta er sögulegur
sigur að mörgu leyti.“
Hvað æfið þið mikið fyrir hverja keppni?
„Við æfum svona fjórum til fimm sinnum í
viku og erum þá aðallega bara að lesa.“
Ert þú með eitthvert sérsvið?
„Nei, maður er bara með svona almennan
Gettu betur-fróðleik.“
Hvað heitir forsætisráðherra Nepal?
„Þú hefðir átt að spyrja liðsfélaga minn að
þessu. Ég verð bara að segja pass. [Svar:
Jhala Nath Khanal]
„Nei, það er enginn búinn að gabba mig en
ég lét vinkonu mína líta upp í loft.“
Sigrún Helga Lund
29 ára, nemi
„Nei, enginn búinn að gabba mig.“
Ívar Örn Björnsson
30 ára, sölumaður
„Nei.“
Sunneva Eyvindsdóttir
62 ára, öryrki
„Já, frændi minn sagði mér að það væri frír
hamborgari á Prikinu.“
Máni Sigurðsson
21 árs, atvinnulaus
„Nei, en ég vaknaði við mjög skrýtna
útsendingu í útvarpinu og áttaði mig á hvað
var í gangi og ákvað þá að gabba frænda
minn.“
Ólafur Sverrir Traustason
20 ára, nemi
Mest lesið á dv.is Maður dagsins
Hljópstu 1. apríl?
Loksins, loksins Austurvöllur hefur legið í vetrardvala undanfarna mánuði en um helgina færðist loksins
líf yfir hann – enda komið fram í apríl og vorið á næsta leiti. Kaffihúsagestir fjölmenntu, sátu úti í góða veðrinu
og mynduðu skemmtilega sumarstemningu. Mynd: Róbert Reynisson
Myndin
Dómstóll götunnar
Þ
jóðernishyggja er barnasjúk-
dómur; hún er mislingar
mannkynsins,“ var haft eftir
Albert Einstein. Spurningin er
hvort hefja þurfi bólusetningu hér á
landi gegn henni.
Með þjóðernishyggju er í þessum
pistli átt við gildi sem hvíla á traustum
grunni og vísa til sjálfstæðisbaráttu ís-
lensku þjóðarinnar, hugmynda um
langvinna kúgun erlendra þjóða, sjálf-
stæði og fullveldi sem sótt var með
harðri hendi í greipar þeirra.
Stundum færi að vísu betur á því
að tala um þjóðrækni þegar rætt er
um harðbýlt land og útfærslu land-
helginnar í óþökk nágranna – og við-
skiptaþjóða á nýliðinni öld. Þessu er ef
til vill best lýst sem föðurlandsást. Varla
er hún svo slæm, jafnvel er hún göfug,
segja margir.
Lýðveldið var stofnað 1944 og hafði
fjarri því slitið barnsskónum og náð
einhverjum þroska þegar það hafnaði
undir verndarvæng Bandaríkjamanna
með pólitískum samningum og komu
herliðs sem settist að á Miðnesheiði.
Einangrunarhyggja grefur
um sig
Meðal nágrannaþjóða eru gildin að
mörgu leyti önnur en þau sem gegn-
sýrðu íslenska þjóð. Í seinni tíð ber
samt æ meir á því að gildi nái fótfestu
sem tengjast verndun þjóðernisins
sjálfs og þjóðlegra gilda. Pólitískar til-
raunir til að hefta búsetu fólks af fram-
andi þjóðerni og menningu í viðkom-
andi löndum er af þessum toga. Nýlegt
dæmi er velgengni Svíþjóðardemó-
kratanna í þingkosningum í Svíþjóð.
Sænsk stjórnmálamenning ákvað hins
vegar að einangra framboðið frá stjórn
landsins og draga sem mest úr form-
legum áhrifum þess.
Nú fullyrða ýmsir að íslensk börn
verði hneppt í þrælahald næstu áratug-
ina verði Icesave-samningurinn sam-
þykktur í þjóðaratkvæðagreiðslu um
næstu helgi. „Sýnum-þessum-helvít-
is-útlendingum-í-tvo-heimana“-sjón-
armiðið er sömuleiðis býsna útbreitt.
Þótt menn séu á móti Icesave-
samningnum og ESB jafngildir það vit-
anlega ekki því að menn séu þjóðernis-
og einangrunarsinnar. En samt verður
ekki framhjá því horft að NEI-sinnarnir
sækja fylgi til hópa sem rækta andúð af
þessum toga. Viðhorfin fara saman við
sjálfsmynd þjóðar sem telur sig standa
eina gegn ofurafli þegar á reynir.
„Gjaldið sem Íslendingar greiða nú
er gjaldið fyrir að það að vilja standa
einir,“ sagði Uffe Ellemann Jensen, Ís-
landsvinur og fyrrverandi utanríkis-
ráðherra Dana í Berlingske Tidene
tveimur vikum eftir bankahrunið 2008.
Hvaða stefnu bjóða flokkarnir?
Tilraunir eru gerðar af þjóðernis- og
einangrunarsinnum til að ná undir-
tökunum bæði í Sjálfstæðisflokknum
og Framsóknarflokknum. Bjarni Bene-
diktsson formaður og hófsöm breið-
fylking innan Sjálfstæðisflokksins, fer
halloka í harðskeyttri and-Icesave- og
and-ESB-umræðunni. Hvernig sem
þjóðaratkvæðagreiðslan fer um næstu
helgi munu átök harðna innan flokks-
ins milli frjálslyndis og einangrunar-
hyggju.
Í Framsóknarflokknum sækja
einangrunarsinnar fram í nafni Vig-
dísar Hauksdóttur sem hyggur á
framboð til varaformanns á flokks-
þingi um næstu helgi. Undir harð-
línusjónarmiðin gegn Iceave og ESB
kyndir hluti þingflokksins. Þeir sýn-
ast vilja ganga í skrokk á hófsömum
miðjumönnum í flokknum. Á hlið-
arlínunni stendur hófsemdarfólkið
sem hallast að miðjunni, vill skoða
nýjar leiðir í landbúnaði, sjávar-
útvegi, ljúka aðildarumsókn að ESB
með þjóðaratkvæðagreiðslu, sam-
þykkja Icesave og skipta um gjald-
miðil. Þetta fólk ætlar að mæta á
flokksþing um næstu helgi og reyna
að komast að því hvort það sé statt í
réttum stjórnmálaflokki. Það veit að
það er ekki í tísku að vera með nafn
Evrópusinnans Halldórs Ásgríms-
sonar á vörunum innan flokksins.
En hefur flokkurinn eitthvað upp á
að bjóða? Til hvaða kjósenda ætlar
Framsóknarflokkurinn að höfða þeg-
ar hann hefur svælt út frjálslyndið og
tyllt undir þjóðræknina, íhaldssem-
ina og einangrunarhyggjuna?
Flokkakerfi riðlast
Þetta eru átökin milli þjóðrækni- og
þjóðernissjónarmiðanna annars vegar
og frjálslyndis og alþjóðahyggju hins
vegar. Ekki er vitað hvort sömu kraft-
arnir slíta sundur friðinn í Framsókn-
arflokknum, Sjálfstæðisflokknum og
VG. Engin ástæða er til að ætla að
ystavinstrið og öfgahægrið geti starf-
að saman þótt afstaðan í lykilmálum
sé keimlík. Átökin geta hins vegar náð
því stigi að flokkakerfið taki að riðl-
ast. Frumkvæðið gæti komið frá frjáls-
lyndu miðjufólki í öllum flokkum sem
tæki höndum saman gegn íhaldssöm-
um flokki á hægri vængnum. Á vinstri
kantinum yrðu græningjar og sósíalist-
ar líkt og fyrr.
Hræringarnar í flokkakerfinu
Kjallari
Jóhann
Hauksson„Frumkvæðið gæti
komið frá frjáls-
lyndu miðjufólki í öllum
flokkum sem tæki hönd-
um saman gegn íhalds-
sömum flokki á hægri
vængnum.