Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2011, Blaðsíða 22
22 | Viðtal 4. apríl 2011 Mánudagur
E
bba Guðný Guðmundsdóttir
og fjölskylda hafa búið mán-
aða skeið í Suður-Afríku, nán-
ar tiltekið Western Cape sem
er nálægt Höfðaborg. Ævin-
týramennskan réð för en kynni fjöl-
skyldunnar af fótalausum suðurafrísk-
um manni hafði úrslitaáhrif því sonur
þeirra Hafliði fæddist þannig.
Í Afríku lifa þau ljúfu og þægilegu
lífi og njóta þess að borða hollan og
góðan mat. Ebba Guðný er mikill mat-
gæðingur og leggur í matseld sinni
sterka áherslu á hollustu og gæði.
Hún telur að með því að breyta lífs-
stíl sínum geti hún aukið lífsgæði sín
og barna sinna. Þessi trú hennar hvet-
ur hana til að prófa sig áfram í elda-
mennskunni á hverjum degi og í Afr-
íku er hráefnið eins ferskt og ljúffengt
og það getur orðið. Ebba Guðný gaf
út bókina Hvað á ég að gefa barninu
mínu að borða og bókin sló í gegn.
Bókin hefur verið gefin út tvisvar sinn-
um og af vinsældunum að dæma eru
foreldrar í dag tilbúnir að breyta lífs-
stíl sínum og barnanna til að lengja
og bæta lífið. Ebba Guðný segir frá
dvöl sinni í Afríku og gefur lesendum
nokkrar hvetjandi og girnilegar upp-
skriftir að prófa heima við. Og eins og
Ebba Guðný segir sjálf, stórt ferðalag
hefst á því að trúa að eitthvað gott sé
handan við hornið.
Kynni af suðurafrískum
spretthlaupara
„Síðastliðið sumar ákváðum við að
flytja til Suður-Afríku og vera þar í
nokkra mánuði. Við höfðum lengi
verið búin að spá í að stækka við okk-
ur húsnæði og þegar við seldum íbúð-
ina okkar ákváðum við að fara á vit
ævintýranna í nokkra mánuði áður
en við festum okkur aftur í húsnæðis-
hlekkjum. Hvers vegna alla leið til
Suður-Afríku? spurðu margir skiljan-
lega. Nokkrar ástæður komu þar til.
Tímamismunur er lítill þar sem við
vinnum héðan og heim með hjálp
internetsins. Einnig langaði okkur
að fara eitthvert þar sem við mynd-
um upplifa hlýtt og gott sumar yfir
íslenska vetrarmánuði. Og síðast en
ekki síst er Oscar Pistorius, góðvin-
ur okkar, fæddur og uppalinn í Suð-
ur-Afríku. Hann er spretthlaupari,
oft kallaður „The fastest man on no
legs!“ Hann fæddist án fóta fyrir neð-
an hné; nákvæmlega eins og son-
ur minn, hann Hafliði. Fötlun þeirra
er alveg eins og ákaflega sjaldgæf og
Oscar er dásamlegur maður svo ekki
sé sterkara að orði kveðið. Við urðum
fljótt forvitin um Suður-Afríku eftir
að hafa heyrt lýsingar Oscars þaðan.
Þar að auki komu Oscar og umboðs-
maður hans okkur í samband við for-
eldra lítils drengs, Williams, í Jóhann-
esarborg, sem er eins og Hafliði. Ég
var í sambandi við foreldra Williams
frá því hann fæddist. Við ákváðum þó
að vera hér í Western Cape því hér er
öruggara umhverfi.
Við flugum þó til Jóhannesarborg-
ar og heimsóttum bæði Oscar og Willi-
am fyrir jólin. Við nýttum þá tækifærið
og hittum alla þá sérfræðinga sem
hafa unnið með Oscar í gegnum tíð-
ina og það reyndist okkur dýrmætt.
Oscar hefur líka komið hingað til okk-
ar í heimsókn. Við ætluðum fyrst að
vera hér í þrjá mánuði en framlengd-
um dvöl okkar um aðra þrjá mánuði
og sáum ekki eftir því. Þannig náðum
við sumartímanum hér.“
Sannkölluð paradís
„Það er dásamlegt að vera hér þar sem
við búum, í Somerset West, Western
Cape eins og það er kallað. Sannkölluð
paradís. Nú er aðeins farið að hausta
og kólna í veðri en annars hefur ver-
ið hér sól upp á næstum hvern ein-
asta dag, síðan við komum. Heitustu
mánuðurnir eru þó janúar og febrúar.
Hanna mín, 8 ára, og Hafliði minn, 5
ára, hafa gengið í Waldorf-skóla í Stel-
lenbosch, sem er bær rétt hjá Somer-
set West þar sem við búum og líkað
vel. Þau tala núna ensku eins og Osc-
ar vinur okkar, með africaan hreim,
sem mér og manninum mínum finnst
mjög fyndið. Það er óskaplega fallegt
hér og mér finnst fólkið vinalegt og
gott. Maturinn er ennfremur himn-
eskur, svo ferskur og góður enda vex
hér allt. Þeir hafa þó sín vandamál
hér eins og annars staðar og mun taka
einhvern tíma að rétta úr ójafnvæginu
enda tveir ólíkir menningarheimar
sem hér saman búa.“
Fannst hún ekki hress
Ebba Guðný er alin upp við venju-
legan íslenskan mat. Hún telur sig þó
hafa verið heppna því foreldrar henn-
ar elduðu yfirleitt alltaf frá grunni og
keyptu hreinan og ferskan mat.
„En þegar ólst upp og var ungling-
ur kom skyndibitamenningin af full-
um krafti inn í samfélagið okkar sem
og gosmenningin og aukaefni í mat-
vælum, fitulausi áróðurinn og allt það
rugl og að sjálfsögðu varð mitt heimili
að einhverju leyti vart við það.“
Ebba Guðný tók því til sinna ráða.
„Upp úr tvítugu fór ég að huga að
matar æðinu mínu. Sannleikurinn er
sá að ég var tilneydd. Mér fannst ég
ekki eins hress og ég ætti að vera mið-
að við aldur og grunaði að ég þyrfti að
byrja að borða hollari mat. En ég vissi
ekki alveg hvar ég átti að byrja eða
hvað ég ætti að gera, kunni ekki neitt.
Ég man að mamma og pabbi gáfu
mér grænmetisnámskeið með Sollu
og þar eyddi ég einum sunnudegi og
lærði heilan helling. Eftir það byrjaði
ég að elda grænmetismat mikið og
kaupa oftar lífrænt og borða meira af
grænmeti og ávöxtum. En svo þegar
ég átti dóttur mína Hönnu sem nú er
á níunda ári, þá varð ég mjög æst. Mér
fannst ábyrgð mín svo mikil gagnvart
henni að öllu leyti. Ég var eitthvað
svo handviss um að ég gæti aukið lífs-
gæði hennar með því að gefa henni
næringarríkan mat. Og ég varð örugg-
lega pínu klikk á tímabili svo æst var
ég í að mauka grænmeti og ávexti og
lesa mér til. Ég keypti bækur hvaðan-
æva að og las og las um næringu ung-
barna og skrifaði hjá mér og eins upp-
skriftir sem ég var að prófa eða búa til
og mér fannst bragðgóðar.“
Góðir hlutir taka tíma
„Ég vil taka fram í þessu sambandi að
góðir hlutir taka tíma. Ég er heppin að
finnast gaman að vesenast í eldhús-
inu og ég er matargat, elska að borða.
Það tekur tíma að tileinka sér nýtt mat-
aræði, það gerist ekki á einni nóttu.
Hvert lítið skref í rétta átt er mikill sig-
ur og maður á að gefa sér gott klapp
á bakið. Og trikkið held ég sé að taka
svona breytingar í skrefum. Ef maður
trúir því að eitthvað sé gott fyrir mann
og hjálpi manni þá er miklu auðveld-
ara að tileinka sér það. Svo er þetta
pínulítið þannig að fyrst les maður til
dæmis um að möndlur séu svo hollar
og maður eigi að leggja þær í bleyti og
búa svo til mjólk úr þeim og hugsar
svo „vá! vesen!“ En svo einhvern veg-
inn venst tilhugsunin og maður prófar,
líkar vel, líður vel og heldur áfram. Les
svo eitthvað annað: Búa til graskers-
fræjamjólk og sigta hana og aftur „vá
– vesen!“ En svo á góðum degi skellir
maður sér í verkið og þá er það kom-
ið. Og þannig heldur þetta áfram og
áfram og alltaf bætist eitthvað nýtt við.“
Græn og lystug vopn
Ebba Guðný segir það skemmtilega
við hollan lífsstíl vera að þegar van-
líðan og veikindi herji á líkamann þá
sé hún aldrei ráðalaus. „Þegar manni
líður illa þá hefur maður alls kyns
vopn á sínum snærum til að láta sér
líða betur. Drekkur grænan djús í einn
dag eða hakkar í sig engifer eða hvað
það nú er til að láta sér líða betur. Mér
finnst það einna dásamlegast að vita
hvað ég get gert til að láta mér líða bet-
ur ef eitthvað bjátar á, hvort sem það
eru meltingartruflanir eða kvef eða
eitthvað annað. En svo kemur líka fyrir
að maður þarf utanaðkomandi hjálp
og þá er það líka allt í lagi.“
Innkaup Ebbu Guðnýjar
„Spelt á ég alltaf, malað bókhveiti,
sem ég nota í vöfflur og pönnsur
ásamt speltinu, brún hýðishrísgrjón í
til dæmis grjónagrautur, quinoa; qui-
noa-grautur er æði með eplabitum
eða mangóbitum og sítrónuólífuolíu,
grænt, helst lífrænt eða vistvænt ís-
lenskt salat, en ég ætla nú að reyna að
rækta mitt eigið í sumar, sítrónur, lime,
engifer, gúrku, epli og alltaf banana og
avókadó, mangó og papaja, sérstak-
lega hér í Afríku! Gulrótadjús lífræn-
an á ég alltaf sem og lífrænar gulrætur,
lauka, öll fræ á ég, sem ég set í sjeikana
mína eða nota til að búa til fræjamjólk
sem ég sigta og drekk, hnetur allar teg-
undir og möndlur, sem ég nota á svip-
aðan hátt og fræin, ferskt grænmeti –
misjafnt hvað ég kaupi eftir því hvað
ég ætla að elda. Lífræna ólífuolíu á ég
alltaf sem og kókosolíu og hampolíu.
Ofurmat á ég líka alltaf eins og spirul-
inuduft, hreint hrátt kakó, chia-fræ og
fleira í þeim dúr.“
Hvernig er dæmigerður dagur hjá
þér? Hvað færðu þér í morgunmat,
hádegismat, kvöldsnarl og svo fram-
vegis?
„Í morgunmat fæ ég mér annað
hvort grænan djús. Þá er það sellerí,
gúrka, salat, fennel jafnvel, sítróna,
engifer, mynta eða eitthvað slíkt, bara
svona slump og slatti maukað vel
með vatni og sigtað í gegnum spíru-
poka. En stundum fæ ég mér bara
sjeik af því ég geri hann hvort sem er
á hverjum morgni fyrir Hafliða son
minn.“
Börnin fá ljúffengt heilsufæði
Ebba Guðný segir ekkert mál að
bjóða börnunum upp á hollan og
ljúffengan mat. Hvort sem það er
hérna heima eða úti í Afríku.
„Ég borða hádegismat með börn-
unum mínum hér í Afríku. Við búum
til speltvöfflur og borðum með agave-
sírópi, dökku súkkulaði eða sykur-
lausri bláberjasultu. Ég set stundum
smá bókhveiti líka í vöfflurnar, stund-
um möluð sólblómafræ, stundum se-
samfræ, stundum soðin hýðishrís-
grjón; grunnuppskriftin er í bókinni
minni. Ég er mjög undirförul þegar
ég er að blanda deigið fyrir þau.
Svo geri ég oft hýðishrísgrjóna-
graut, quinoa-graut, baka speltboll-
ur og svo framvegis. Oftast fæ ég mér
salat með góðri salatsósu, hnetum,
trönuberjum, mangó og avókadó. Ef
ég er eitthvað skrítin í maganum bý
ég mér bara til melónusafa eða pa-
paja-safa og drekk hann.“
Ebba Guðný Guðmundsdóttir ferðaðist með fötluðum syni sínum og
fjölskyldu yfir hálfan hnöttinn vegna kynna þeirra af suður afríska spretthlaupar-
anum Oscar Pistorius sem fæddist, eins og sonur Ebbu Guðnýjar, fótalaus
fyrir neðan hné. Ebba Guðný er höfundur bókarinnar: Hvað á ég að gefa barninu
mínu að borða og trúir því að það megi auka lífsgæðin með því að borða hollan
og ljúffengan mat. Ebba Guðný segir frá dvöl sinni í Afríku og gefur lesendum að
auki nokkrar hvetjandi uppskriftir til að prófa heima við.
Eykur lífsgæði
barna sinna
Fyrir unga og aldna
Bók Ebbu Guðnýjar: „Hvað á ég að gefa
barninu mínu að borða?“ er handbók
ætluð foreldrum sem eru að byrja að
gefa börnum sínum fasta fæðu. Hér er
að finna ýmsar ráðleggingar og svör við
spurningum foreldra sem langar að gefa
barninu sínu frá byrjun næringarríkan og
heilsusamlegan mat. Bókin inniheldur
ítarlegan lista yfir hvenær börn mega
byrja að borða vissar fæðutegundir,
leiðbeiningar um meðhöndlun ávaxta og
grænmetis ásamt fjölda mynda. Í henni
er að finna fjölmargar einfaldar og góðar
uppskriftir að barnamat en einnig að mat
fyrir alla fjölskylduna. Ráðleggingar fyrir
foreldra sem eiga börn sem vilja helst
aldrei borða, heilsusamlegar uppskriftir
fyrir veislur og margt, margt fleira.
Hafliði litli að leik á ströndinni
Ebba Guðný segir son sinn himinlifandi
með ferðina til Afríku. Hér nýtur hann
sín á ströndinni.
Deyr aldrei ráðalaus Það skemmtilega við hollan lífsstíl
að mati Ebbu Guðnýjar er að hún er aldrei ráðalaus þegar
veikindi eða vanlíðan herjar á líkamann. Hún getur alltaf
brugðist við með því að búa til eitthvað nærandi og hollt.