Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2011, Blaðsíða 23
Viðtal | 23Mánudagur 4. apríl 2011
Cafe Catalina n Hamraborg 11 n 200 Kópavogur n Sími: 554 2166 n www.catalina.is
Kanaríeyjakvöld á Catalinu
borðhald
hefst kl. 20
dansleikurinn
hefst kl. 23
í tilefni af afmæli
Örvars Kristjánssonar
Föstudaginn 8. apríl
Boltinn
alltaf
í Beinni
Óli Sæm fer
með gamanmál
Hljómsveitin
Arizona leikur
fyrir dansi
ásamt Örvari
og Rúnu
panta þarf matinn
fyrir miðviku-
daginn 6. apríl!
Á kvöldin elda ég grænmetis-
mat og hef alltaf eitthvað hrátt
með, grænmeti og/eða salat. Og
einstaka sinnum hamingjusaman,
lífrænan kjúkling.
Í Afríku förum við miklu oftar út
að borða og maturinn hér þar sem við
búum er dásamlega ferskur og góður.
Fáum okkur einu sinni í viku sushi
og einu sinni í viku pítsu. Krakkarn-
ir vita þegar það er sushi dagur og
pítsudagur og þá er mikil stemning.
Við förum á stað þar sem hægt er að
fá glúteinlausar pítsur með alls kyns
dásamlegu ofan á. Heima baka ég
pítsu einu sinni í viku. Annars er auð-
velt að fá dásamleg salöt hér og fisk.
Hér á veitingastöðum er auðvelt að fá
dásamleg salöt, fisk og kjöt sem oft er
lífrænt. Suður-Afríkumenn eru miklir
kjötkarlar.“
Borðar súkkulaði á hverjum degi
Ebba segir það ekkert meinlætalíf
að borða hollt. Hollur matur sé ein-
staklega ljúffengur. Hún borðar til að
mynda súkkulaði á hverjum degi.
„Ég borða oft dökkt súkkulaði,
næstum því bara á hverjum degi.
Hér fæ ég þurrkað mangó og ananas
og borða hvort tveggja mikið, einnig
ávexti eins og banana og mangó sem
dæmi. Mér finnst líka gott að fá mér
stundum hnetur að maula og stund-
um bý ég mér til sáraeinfaldan súkk-
ulaðisjeik. Hann er afar ljúffengur
og slær á hungurtilfinningu um leið
og hann svalar sætuþörf. Kakó slær
á matarlystina og er stútfullt af nær-
ingu.
Á leiðinni heim
Blaðamanni leikur forvitni á að vita
hvort öll fjölskyldan sé samstillt.
Borða aðrir fjölskyldumeðlimir sama
mat?
„Já, svona að mestu leyti, en því
miður ekki öllu. Sonur minn er gikk-
urinn og hann vill allt maukað í sjeik-
um og súpum á meðan dóttir mín vill
frekar ávextina sína og grænmetið
niðurskorið í bita. Allir borða kvöld-
matinn, það er ekkert mál enda græn-
metispottréttir og súpur og annað svo
dásamlega gott svo ekki sé minnst á
speltpítsur og speltpasta með heima-
löguðu pestói sem dæmi.“
Lífið í Suður-Afríku hefur gert
þeim gott. „Það er án efa hollt að stíga
út fyrir sitt venjulega líf og eiga svona
mikinn tíma bara með sinni kjarna-
fjölskyldu. Við erum alltaf saman öll
fjögur. Það getur reynt á en hefur þó
gengið vel í flestum tilfellum og styrkt
okkur öll. Og það skemmtilega við að
vera á nýjum stað er að það er alltaf
eitthvað nýtt að sjá, skoða og upplifa.
Einnig hefur veðrið mikið að segja og
maður er duglegri þegar sólin skín
endalaust. Hún gefur manni orku, á
því leikur enginn vafi. Annars finnst
okkur líka ósköp gott að sýsla eitthvað
heima fyrir. Börnin eru oft með gesti
og það er gaman.“
Fjölskyldan snýr heim á næstu
vikum. „Nú við erum að leita okkur
að stærra húsnæði heima þar sem
við eigum ekkert heimili eins og er.
Og svo tekur bara þetta sama við,
börnin fara í skólann, leikskólann
sinn og við maðurinn minn höldum
áfram að vinna í okkar verkefnum en
við vinnum sjálfstætt og höfum getað
unnið hér með dyggri aðstoð inter-
netsins. Ég ætla að reyna að halda að
minnsta kosti tvö námskeið í maí um
barnamat og næringu ungbarna sem
og nokkra minni fyrirlestra.“
kristjana@dv.is
Sáraeinfaldur
súkkulaðisjeik
n vænn (fremur stór) þroskaður ban-
ani - frosinn (gerir sjeikinn kaldann)
n 200 ml vatn
n 1 msk. hreint hrátt lífrænt kakó
n vanilluduft á hnífsoddi eða smá
kanill (má sleppa)
n 1 msk. kaldpressuð kókosolía (má
sleppa)
Einnig má nota klaka í staðinn fyrir
eitthvað af vatninu og nota ófrosinn
banana.
Morgundrykkur
Hafliða
n ½ avókadó
n banani
n hnefi fersk ber (ef þau eru til annars
bara sleppa)
n 1 daðla, sveskja eða fíkja (ef til)
n ½ mangó eða papaja
n ½ msk Spirulina eða hrátt kakó
n ½ gúrka eða 1–2 hnefar lífrænt salat
og smá vatn.
Þessu er bara blandað saman og
nákvæmrar mælingar ekki þörf.
Fjölskyldan Ebba Guðný og eiginmaður
hennar Hafþór Hafliðason með börnunum
sínum, Hafliða og Hönnu, í Suður-Afríku.