Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2011, Síða 26
26 | Fólk 4. apríl 2011 Mánudagur
Steinþór Helgi Arnsteinsson þjálfari Kvennó í Gettu betur:
G
eðshræringin var svo mikil
þegar úrslitin lágu fyrir að ég
hreinlega brast í grát,“ segir
Steinþór Helgi Arnsteins-
son en hann er einn þjálfara sigur-
liðs Kvennaskólans sem hafði betur
gegn Menntaskólanum í Reykjavík
í úrslitum Gettu betur á laugardag.
Þetta er í annað skipti sem Stein-
þór sigrar í keppninni en hann fór
fyrir sigurliði Borgarholtsskóla sem
hreppti Hljóðnemann eftirsótta árið
2005.
„Þetta var þrefalt meiri tilfinning
heldur en að sigra sem keppandi,“
segir Steinþór en hann þjálfar liðið
ásamt þeim Birni Teitssyni og Stein-
dóri Grétari Jónssyni. „Ég var bæði
miklu stressaðari núna og ég fagn-
aði líka miklu meira. Ég hef bara
aldrei verið jafn stressaður á ævi
minni. Það er svo erfitt að hafa þetta
ekki í sínum höndum. Ég var bara
að fara á límingunum.“ Það vant-
aði heldur ekki spennuna á laugar-
daginn þar sem Kvennó sigraði MR
með einu stigi eftir að báðum liðum
hafði mistekist að svara þríþraut-
inni svokölluðu. Sjálfur var Steinþór
ekki með svarið á hreinu en hann
vissi að sigurinn væri í höfn áður en
dómarinn kvað upp úrskurð sinn.
„Ég var ekki með svarið á hreinu en
ég vissi að þetta væri ekki rétt hjá
MR.“ Kvöldið var rétt að byrja hjá
Steinþóri eftir sigurinn í Gettu bet-
ur. Eftir keppnina sló hann upp helj-
arinnar sigurveislu heima hjá sér
en síðan var ferðinni heitið á Nasa.
Þar hélt Steinþór nefnilega tónleika
með bandarísku rappgoðsögninni
Ghostface Killah úr Wu-Tang Clan.
„Þetta var bara frábært. Fullur
kofi og allir sáttir.“ Steinþór segist
sjaldan hafa hitt rólegri tónlistar-
menn en Ghostface og félaga. „Þeir
komu slakir inn og fóru slakir út.“
asgeir@dv.is
Hárgreiðslumaðurinn og skart-
gripahönnuðurinn Skjöldur Eyfjörð
ætlar að ganga í það heilaga í sumar.
Hann mun þá ganga að eiga unn-
usta sinn til margra ára, Magnús
Jóhann Cornette. Þeir eru búsettir í
Stafangri í Noregi en þangað fluttust
þeir saman á síðasta ári. Athöfnin fer
fram 30. júlí en Skjöldur deildi því með
vinum sínum á Facebook fyrir helgi að
brúðkaupsfötin væru komin í hús. Þá
sagði Skjöldur einnig frá því nýverið
að hann væri á fullu að semja texta
fyrir lag og má því ætla að hann hugsi
sér á frekari landvinninga í tónlistinni.
Hann endurgerði á sínum tíma Bubba-
smellinn Fjöllin hafa vakað.
Vala Grand
ákvað að hrekkja
Facebook-vini
sína 1. apríl með því að skrá
sig í sambandi á síðunni. Viðbrögðin
stóðu ekki á sér og fjölmargir óskuðu
henni til hamingju. Þar á meðal Jón
H. Hallgrímsson sem gengur jafnan
undir nafninu Jón stóri. Mbl.is skrifaði
einnig frétt um málið en ástalíf Völu
hefur verið mikið til umfjöllunar. Stuttu
seinna tilkynnti Vala að um aprílgabb
væri að ræða og bætti við: „Komst að
einu að ef ég byrja með einhverjum
þá verður það allt crazy að gera i fjöl-
miðlum! Fær maður ekki ástarlíf sitt
i friði!“
Giftir siG
í sumar
Hrekkjótt
Vala
Grét af Gleði
Hljóðneminn tvisvar Steinþór hrósaði sigri í Gettu betur 2005 og stýrði svo Kvennó til
síns fyrsta sigurs í ár.
H
ún er svo einstaklega
merkileg manneskja og
svo góð og hlý,“ segir Sig-
ríður Klingenberg spá-
kona en hún birti um
helgina ljóð til stuðnings Priyönku
Thapa, 23 ára nema, sem berst nú
fyrir því að fá landvistarleyfi hér á
landi til að komast hjá því að verða
neydd í hjónaband með manni
sem hún þekkir ekki í heimalandi
sínu Nepal. „Hún er dugleg í skól-
anum og vill allt gera til að vera
góður og nýtur þegn. Hún heillar
einhvern veginn alla upp úr skón-
um þessi kona og ég held að það
væri sérstaklega gott karma fyrir
okkur Íslendinga að senda hana
ekki úr landi.“
Sigríður þekkir Priyönku pers-
ónulega en hún hefur verið í sam-
bandi við dóttur Sigríðar. „Ég var
að kaupa lítinn hund af fjölskyld-
unni sem hún býr hjá fyrir jólin og
hún hefur síðan verið í sambandi
við dóttur mína, komið heim til
mín og við hist. Hún er einstaklega
merkilegur karakter og ég hef trú
á því að hún eigi eftir að gera eitt-
hvað merkilegt fyrir þetta land. Ég
hef þá tilfinningu,“ segir Sigríður
án þess að hika. „Hún er bara með
x-faktorinn. Við megum bara ekki
láta hana sleppa úr landi ef ég á að
segja mína skoðun því hún bætir
okkur Íslendinga.“
Mikil umræða hefur verið um
stöðu Priyönku hér á landi en hún
uppfyllir ekki þau skilyrði sem þarf
til að fá dvalarleyfi á grundvelli
mannúðarsjónarmiða á Íslandi.
Útlendingastofnun metur það svo
að ekki sé hægt að sýna fram á að
Priyanka verði neydd í hjónaband
en það byggir stofnunin á bréfi frá
bróður hennar þar sem segir með-
al annars að Priyanka verði fjöl-
skyldu sinni til skammar ef hún
giftist ekki manninum þar sem
honum hafi verið lofað að hann
fengi hana fyrir konu. Priyanka
hefur fengið mikinn stuðning á Ís-
landi en ríflega 12 þúsund manns
hafa gerst aðdáendur Facebook-
síðu til stuðnings henni.
n Birti ljóð til stuðnings Priyönku Thapa á Facebook n Hún er svo
einstaklega merkileg manneskja, segir Sigríður n Hefur þá
tilfinningu að Priyanka eigi eftir að gera góða hluti fyrir Ísland
Berst fyrir
Pri ö ku
Vill halda í Priyönku Sigríður Klingenberg
segir Priyönku vera einstaka manneskju og að
það sé mikill missir fyrir Ísland fari hún úr landi.
Mynd SiGTryGGur Ari
Sigríður Klingenberg:
Priyanka fær stuðning Ríflega 12 þúsund
manns hafa gerst aðdáendur Facebook-síðu
til stuðnings henni. Mynd SKJáSKoT AF rÚV