Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2011, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2011, Síða 8
8 | Fréttir 9. maí 2011 Mánudagur Björn Mikkaelsson ákærður fyrir eignaspjöll og fjársvik: „Ég stend með honum“ „Hann var ekkert að reyna að forða sér undan sinni ábyrgð. Ég er ekkert sammála því að menn eigi að rífa hús sitt og valda eignaspjöllum. En ég stend með honum vegna þess að rík- islögreglustjóri og ríkisstjórnin hafa ekkert gert til þess að hafa hendur í hári útrásarvíkinga og auðmanna,“ segir Ásgeir Mikkaelsson, bróðir Björns Mikkaelssonar, í samtali við DV. Búið er að gefa út ákæru á hend- ur Birni fyrir eignaspjöll og fjársvik en hann vakti mikla athygli á þjóðhá- tíðardaginn 2009 þegar hann reif niður hús sitt á Álftanesi með gröfu. Þetta gerði hann eftir að Frjálsi fjár- festingarbankinn krafðist útburðar. Ákæran um fjársvik er til kom- in vegna skuldbindinga sem fyrir- tæki Björns gat ekki staðið við. Hann hafði selt tvennum hjónum finnsk einingahús, að andvirði um 10 millj- óna króna hvort, en fyrirtæki hans fór í þrot og hjónin fengu aldrei húsin í sínar hendur. Ekki náðist í Björn við vinnslu fréttarinnar en Ásgeir bróðir hans segir að Björn hafi viljað og reynt að standa við sín fjárhagslegu loforð en ekki haft bolmagn í það. „Ef að útrásarvíkingarnir hefðu verið sóttir til saka, þá þætti mér ekk- ert að þessum ákærum, það ættu all- ir að ganga að sama borði.“ Hann segir það slæmt að fyrirtæki Björns hafi ekki getað greitt skuldir sínar, en þegar í fjárþrot sé komið sé það einfaldlega ekki hægt. „Það var heldur ekkert gott að hann væri að svíkja þetta fólk um peningana sína. En hversu mörg fyrirtæki sem hafa farið á hausinn og ekki getað stað- ið við sitt hafa verið kennd við fjár- kúgun? Hann var alltaf tilbúinn til þess að láta húsið á sölu til þess til að standa við sínar skuldbindingar. Hann átti hálft veð í húsinu og var til- búinn til þess að selja það svo hann gæti borgað fólkinu,“ segir Ásgeir. simon@dv.is Bjarni Ármannsson, fjárfestir og fyrrverandi bankastjóri Glitnis, á 100 til 200 milljóna króna kröfu á olíufélagið N1 í formi skuldabréfs. Bjarni staðfestir þetta í samtali við DV: „Ég á skuldabréf á N1, eða félag í minni eigu, að nafnvirði 100 til 200 milljónir króna.“ N1 var yfirtekið af kröfuhöfum félagsins í byrjun apríl síðastlið- ins og vinna kröfuhafarnir nú að endur skipulagningu á félaginu sem á að ljúka á næstunni. Skuldir N1 og tengdra félaga námu þá um sex- tíu milljörðum króna. Kröfuhafarn- ir komust að samkomulagi í byrjun apríl um að miklum hluta af skuld- um N1 skyldi breytt í hlutafé í fé- laginu. Bjarni Ármannsson gæti því orðið einn eigenda N1 í ljósi þess að hann á umrætt skuldabréf á hendur félaginu. Hávær orðrómur hefur verið um það í viðskiptalífinu um nokkurt skeið að Bjarni líti hýru auga til N1 enda er þar um að ræða stærsta olíufélag landsins sem er með rúmlega 100 starfsstöðvar um allt land. Þetta hefur þó ekki fengist staðfest fyrr en nú. Aðspurður segist Bjarni hafa eignast skuldbréfin fyrir febrúar 2010. „Það hafa engin viðskipti átt sér stað með skuldabréf N1 frá því í febrúar í fyrra. þannig að skulda- bréfin voru augljóslega keypt fyrir þann tíma.“ Skipta með sér 22 prósentum Ef svo fer að kröfuhafar N1 ákveði að breyta kröfum sínum í hlutafé mun Arion banki að öllum líkindum verða stærsti hluthafinn með um 40 prósenta eignarhlut, Íslandsbanki mun eiga í kringum 32 prósent, skuldabréfaeigendur 22 prósent og aðrir minni kröfuhafar afgang- inn. Bjarni er einn skuldabréfaeig- endanna og myndi því fá hlutdeild í þessum 22 prósentum miðað við upphæð skuldabréfaeignar sinnar. Bjarni segir aðspurður að fjár- hæð skuldabréfsins sé lág og að hann verði því aldrei stór hluthafi í N1 ef skuldunum verður breytt í hlutafé. „Skuldabréfaflokkurinn er um 6,5 milljarðar króna þannig að þetta eru dvergfjárhæðir sem ég á þarna í því samhengi.“ Bjarni hefur í gegnum tíð- ina verið viðskiptafélagi fyrrver- andi eigenda N1, bræðranna Ein- ars og Benedikts Sveinssona, en hann stýrði Glitni meðal annars þegar þeir voru ráðandi hluthafar í bankanum. Einar var þá stjórnar- formaður og Bjarni forstjóri. Þegar Baugur og tengdir aðilar tóku Glitni yfir í apríl 2007, eftir að hafa keypt stærstan hluta bréfa Einars og við- skiptafélaga hans í bankanum, los- uðu nýju eigendurnir sig samstund- is við Bjarna úr forstjórastarfinu og réðu Lárus Welding. Segja má, þeg- ar litið er til baka, að þessi ákvörðun hafi verið óheillaspor fyrir Glitni þar sem Lárus var talsvert reynsluminni en Bjarni. Drjúgur á skuldabréfamarkaði Líkt og DV greindi frá í október í fyrra hefur Bjarni Ármannsson ver- ið afar drjúgur á skuldabréfamark- aði á Íslandi frá hruninu 2008. Blað- ið sagði þá frá því að Bjarni væri einn af um 30 til 40 spákaupmönn- um sem kaupa og selja ríkisskulda- bréf á skuldabréfamarkaði. Sérfræð- ingur í fjármálalífinu orðaði það svo að Bjarni væri „skuldabréfamaður“ og hann hefði, öfugt við margra aðra þekkta aðila úr íslensku viðskipta- lífi á árunum fyrir hrun, alltaf verið hrifinn af þeim sem fjárfestingar- kosti. Ársreikningar tveggja eignar- haldsfélaga Bjarna, Landsýnar og Sjávarsýnar, fyrir árið 2009 sýndu báðir töluverða skuldabréfaeign. Samanlögð skuldabréfaeign félag- anna tveggja var rúmlega 2,2 millj- arðar króna í lok árs 2009. Athyglisvert er að skuldabréfa- eign Landsýnar var nærri 6 sex milljarðar króna árið 2008 en var rúmlega 1.200 milljónir króna árið 2009. Bjarni virðist því hafa los- að sig við mikið magn skuldabréfa á árinu 2009. Í yfirliti yfir fjárfest- ingahreyfingar Landsýnar sést að færð er til bókar rúmlega 4 millj- arða króna innistæða vegna breyt- inga á skuldabréfaeign félagsins. Staða Sjávarsýnar var sömuleið- is mjög góð en hagnaður félagsins nam tæpum 170 milljónum króna árið 2009. Þetta þýddi að Bjarni gat meðal annars greitt sér út tæplega 400 milljónir króna í arð árið 2009 vegna rekstrarársins 2008 þegar hagnaðurinn var svipaður. Félagið átti eignir upp á 2,3 milljarða króna og námu skuldir þess einungis nærri 400 milljónum. Félagið fjár- festi í skuldabréfum á árinu fyrir meira en milljarð króna samkvæmt ársreikningnum. DV hefur sömuleiðis greint frá því að Bjarni hafi átt 700 milljóna króna skuldabréf á sparisjóðinn Byr og að hann hafi reynt að nota þá kröfu til að komast yfir spari- sjóðinn í febrúar í fyrra. Bjarni hefur því komið að ýmiss konar skuldabréfaviðskiptum á síðustu árum. n Bjarni Ármannsson á skuldabréf á N1 n Segist hafa eignast skulda- bréfin fyrir febrúar 2010 n Bjarni hefur verið öflugur á skuldabréfamark- aði frá hruni og hefur hagnast umtalsvert á slíkum fjárfestingum Einn skuldabréfa- eigendanna Bjarni Ármannsson er einn af skuldabréfaeigendunum sem gætu eignast hlut í N1 í kjölfar endurskipulagningar olíufélagsins.bjarni Gæti orðið hluthafi í n1 „Ég á skuldabréf á N1. „Ég var nýbúin að safna peningum fyrir sjúka og fatlaða öryrkja fyrir utan prestastefnu á þriðjudaginn,“ segir Helga Björk Magnúsdóttir Grétudóttir í samtali við DV. Helga hafði staðið að söfnun fyrir fatlaða og sjúka öryrkja fyrir utan presta- stefnu á þriðjudaginn. Helga hafði safnað peningunum í fötu sem á stóð „For hungry people in Iceland“. Eftir söfnunina kom hún fötunni fyrir framan við Alþingis- húsið. „Myndasmiður átti að taka mynd af fötunni fyrir utan Alþingis- húsið. En ég leit aðeins frá og þegar ég snéri mér að fötunni aftur þá var hún horfin,“ segir Helga. „Þá sá ég á eftir þingverðinum að fara með hana inn í hús.“ Helgu var bent á það að hún gæti hringt á lögregluna þar sem að þingvörðurinn hefði enga heimild til þess að fjarlægja fötuna. „Lögreglan kom eftir nokkrar mínútur á vett- vang og ég sagði þeim að fatan hefði verið tekin.“ Lögreglan fór inn í Alþingishús og hafði samband við þingvörð- inn. Þá kom á daginn að vörðurinn hafði talið fötuna vera rusl og því hent henni. „Hann taldi fötuna vera rusl, en í þessu voru peningar,“ segir Helga. Lögreglan kom út úr Alþingishús- inu með söfnunarbaukinn og upp- lýsti Helgu um málsatvik. Pening- arnir komust aftur í hendur Helgu og var hún að vonum mjög ánægð með það. „Ég er þakklát lögreglunni fyrir að hafa stutt þetta söfnunarátak og sótt fötuna inn í í hús. “ Hún segist þó síður en svo bera kala til þingvarðarins. „Hann var nú bara að sinna vinnunni sinni, eins og við öll viljum gera,“ segir Helga. Safnaði fyrir öryrkja: Þingvörður tók söfnunar- baukinn Ákæra gefin út Búið er að gefa út ákæru á hendur Birni fyrir að valda eignaspjöllum á húsi sínu í Hólmatúni á Álftanesi. Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.