Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2011, Side 18
18 | Umræða 9. maí 2011 Mánudagur
„Stöðug og
stjórnlaus heift
þín í garð Ríkis-
útvarpsins og
starfsmanna þess
er fólki hér innandyra
raunar mikið undrunar-
efni. Sjálfum finnst mér
þetta jafnvel jaðra við að
vera rannsóknarefni
– a.m.k. fyrir sjálfan þig.“
n Úr bréfi Páls Magnússonar útvarps-
stjóra til Eiðs Guðnasonar, fyrrverandi
ráðherra. – eidur.is
„Ég vil frekar
deyja hér en í
Íran“
n Flóttamaðurinn Mehdi
Kavyanpoor í viðtali við DV
síðastliðið haust. Mehdi hellti yfir sig
bensíni og reyndi að kveikja í sér í
Rauðakrosshúsinu á föstudaginn. Hann
hefur í sjö ár beðið um hæli hér á landi. –
DV
„Það var ótrúlegt að sjá
Jakob í þessum leik. Mikið
svakalega var hann
góður.“
n Hlynur Bæringsson körfuknattleiks-
maður hrósaði liðsfélaga sínum Jakobi
Sigurðssyni í hástert eftir að lið þeirra
vann sænska meistaratitilinn. – Vísir
„Ég hef aldrei fyrr í kjara-
baráttunni séð jafn litla
herkænsku og klaufalega
hernaðarlist. Það er svo
kaldhæðni örlaganna að
þeir sem borga herkostn-
aðinn af þessu eru ekki
LÍÚ.“
n Guðmundur Gunnarsson, fráfarandi
formaður Rafiðnaðarsambands Íslands,
hafði þetta að segja um herbrögð LÍU og
SA í aðdraganda kjarasamninga. – DV
Verðlaun spillta ráðherrans
Á
rni Mathiesen, fyrrverandi
ráðherra, vann það óþurft-
arverk að skipa Þorstein
Davíðsson, lágt metinn lög-
fræðing, sem héraðsdómara. Árni
sat sem fjármálaráðherra á þessum
tíma og tók að sér óþurftarverkið
þar sem Björn Bjarnason dóms-
málaráðherra viðurkenndi van-
hæfi sitt. Þorsteinn var tekinn fram
fyrir hæfari einstaklinga og var sá
skilningur almennur að þar hafi
ráðið mestu að hann er sonur Dav-
íðs Oddssonar, fyrrverandi forsæt-
isráðherra og flokksbróður Árna.
Hæstiréttur dæmdi ráðherrann
sekan um að hafa framið stjórn-
sýslubrot. En það er í takti við inn-
gróna spillingu í samfélaginu að
tvær milljónir í miskakostnað og
málsbætur falla á ríkið. Sá spillti
er verðlaunaður með fjárframlagi.
Þannig telur rétturinn að almenn-
ingur hafi borið ábyrgð á ráðherr-
anum og gjörðum hans. Niður-
staðan er því sú að brotamaðurinn
þarf í engu að gjalda verka sinna.
Ráðherrar nútíðar og framtíðar
þurfa því í engu að kvíða. Þeir geta
sukkað og brotið af sér án þess að
þurfa að gjalda synda sinna.
Þorsteinsmálið er aðeins einn
angi á áratugalangri dómarafléttu
Sjálfstæðisflokksins gamla. Skipu-
lega var gæðingum og ættmenn-
um úr röðum flokksins raðað inn í
dómstóla landsins þar sem margir
þeirra sitja enn. Dómarar Davíðs
skipta tugum. Þetta ástand var af
almenningi að mestu látið óátalið
sem sýnir þá inngrónu og viðbjóðs-
legu spillingu sem átti sér stað á
Íslandi. Þegar stjórnmálaflokkur
tekur upp á því að leggja undir sig
lögreglu og dómstóla er hámarki
spillingar náð. Þá er lýðræðið fokið
út í veður og vind og stjórnarskrá-
in afgreidd eins og skíturinn undir
fótum níðinganna.
Ríkið átti aldrei að borga fyr-
ir hinn spillta ráðherra. Það er há-
mark ósvífninnar að svo skyldi fara.
Margra ára málaþref með tilheyr-
andi kostnaði endaði með óbreyttu
ástandi að öðru leyti en því að aus-
ið var fé úr ríkiskassanum. Þor-
steinn situr áfram sem dómari. Árni
fékk bitling í útlöndum eftir að hafa
átt sinn þátt í að steypa Íslandi í
fjárhagslega glötun. Og það mun
taka áratugi að hreinsa dómskerf-
ið af hinum bláu og vanhæfu. Af-
greiðslan á brotlega ráðherranum
er öskrandi dæmi um það sem hinir
spilltu komast upp með á Íslandi.
Leiðari
Er þetta komið?
„Þetta er
löngu komið,“
segir Sigurður
Hlöðversson
formaður
United-klúbbs-
ins á Íslandi.
Manchester
United lagði
Chelsea á Old
Trafford á
sunnudag 2–1
og er nú hársbreidd frá því að vinna
nítjánda Englandsmeistaratitilinn.
Spurningin
Bókstaflega
Reynir Traustason ritstjóri skrifar„Dómarar Davíðs
skipta tugum.
Anna Mjöll í stuði
n Óhætt er að segja að Anna Mjöll
Ólafsdóttir hafi sjaldan eða aldrei
vakið eins mikla athygli og nú,
þegar hún hefur
gengið að eiga
hinn rúmlega
níræða bílasala,
Calvin Coolidge
Worthington.
Anna á að baki
góðan söngferil
og var meðal
annars fulltrúi
Íslands í Eurovision á sínum tíma
með Sjúbídú. Hún hefur undan-
farnar áratugi lifað og hrærst innan
um fræga fólkið í Los Angeles.
Meðal þeirra sem hún hefur átt sem
kunningja eru Playboy-kóngurinn
Hugh Hefner og goðsögnin Michael
Jackson. En með hjónabandinu
hefur frægðarsól Önnu Mjallar
risið hærra innan lands og utan en
nokkru sinni fyrr.
Borgarstjóralaun aftur
n Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson fyrrver-
andi borgarstjóri Sjálfstæðisflokks-
ins, er ekki á flæðiskeri staddur þótt
hann hafi vikið
úr borgarstjórn
og misst þær
dúsur sem þar
var að finna. Nú
er hann orðinn
framkvæmda-
stjóri hjúkrunar-
heimilanna Eirar
og Skjóls. Starfið
var ekki auglýst en samkvæmt
Fréttatímanum fær Vilhjálmur
um 1.440 þúsund krónur í mán-
aðarlaun. Af því eru 220 þúsund
bílastyrkur. Gamli góði Villi er því
orðinn launahærri en borgarstjór-
inn í Reykjavík.
Aðstoðarmaður
á lausu
n Á meðan Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
var borgarstjóri var þúsundþjala-
smiðurinn Jón Kristinn Snæhólm
aðstoðarmaður hans. Var hann
mjög áberandi í starfi starfi sínu og
þótti á stundum skyggja á sjálfan
borgarstjórann sökum útgeislunar
og fyrirferðar. Jón Kristinn hvarf af
sjónarsviðinu um leið og Vilhjálm-
ur. Nú spá gárungarnir því að hann
muni hefja störf við hlið Vilhjálms á
hjúkrunarheimilunum.
Bókabrenna
Hermanns
n Kraftaverkamaðurinn Hermann
Guðmundsson var verðlaunaður
fyrir frábæran rekstur á N1 með
því að vera settur inn í stjórn Sam-
taka atvinnulífsins. Svo óheppi-
lega vildi til að fyrirtæki hans
var tekið yfir af lánardrottnum.
Á dögunum setti Hermann að
sögn Íslandsmet í förgun bóka.
Hermt er að Hermann hafi upp
á sitt einsdæmi tekið völdin af
markaðsdeild N1 og skrifað upp á
tugmilljóna króna útgáfusamning.
Tæplega 20 þúsund bækur af
sögum Jónínu Benediktsdóttur
og Björgvin G. Sigurðssyni voru
pantaðar. Fullyrt er að rúmlega 15
þúsund eintökum hafi verið ekið í
Sorpu til eyðslu.
Sandkorn
TRyGGVAGöTU 11, 101 REykJAVÍk
Útgáfufélag: DV ehf.
Stjórnarformaður:
Lilja Skaftadóttir
Ritstjórar:
Jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
Fréttastjóri:
Ingi Freyr Vilhjálmsson, ingi@dv.is
Ritstjórnarfulltrúi:
Jóhann Hauksson, johann@dv.is
Umsjón helgarblaðs:
Ingibjörg Dögg kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is
Umsjón innblaðs:
Ásgeir Jónsson, asgeir@dv.is
DV á netinu: dv.is
Aðalnúmer: 512 7000, Ritstjórn: 512 7010,
Áskriftarsími: 512 7080, Auglýsingar: 512 7050.
Smáauglýsingar: 512 7004.
Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins
á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
F
ormaður Flokksins hefur
áhyggjur yfir keðjuverkandi
kostnaði vegna kjarasamn-
inga, að bilið milli bóta og
lægstu launa sé að verða svo lágt að
hann sé að hugsa um að hafa hlut-
verkaskipti við bótaþegann. Og sauð-
heimskur fréttamaðurinn tekur undir
þetta, að það kosti nú sitt að stunda
vinnu, koma krógunum fyrir og svo
allur bílakostnaðurinn við að koma
sér í og frá vinnu. Og Vinnumálastofn-
un kvartar yfir að meint hlunnindi at-
vinnulausra séu vinnuletjandi. Seðla-
bankinn romsar að kjör bótaþeganna
grafi undan stöðugleikanum.
Þessar tíðu uppákomur sjúklegrar
mannvonsku (sparka í líkið) í íslensk-
um fjölmiðlum vekja athygli. Er til
dæmis ekki nokkuð ljóst að neyslu-
viðmið nýlegrar úttektar velferðar-
ráðuneytisins sýna að lágmarkslaun
eru langt undir þessum viðmiðum?
Hvað þá heldur viðmiðum félagssátt-
mála SÞ og ESB! Ef flokksformenn,
fréttamenn og seðlabankahagfræð-
ingar væru bara sæmilega vel gefnir
og læsu þessa sáttmála sæu þeir að
þeir eru skuldbundnir, geta ekki valið
sér viðmið að geðþótta.
Þar sem þessi makalausa mann-
vonska sést yfirleitt ekki hjá frænd-
þjóðunum spyr maður sig hvernig
það megi vera að menn kunni ekki að
skammast sín.
Griðland heimsku og
mannvonsku
Þegar sagan er skoðuð er engu líkara
en að Ísland hafi eftir að upplýsing-
in og skynsemishyggjan festi rætur á
meginlandinu orðið griðastaður og
þrautalending þeirra sem eiga ekki
heima í þess háttar samfélagi.
Þetta birtist einna best í búsetuform-
inu en þau skipta sköpum fyrir öll
samskipti, félagsmótun og siðmenn-
ingu fólks. Yfirleitt þjappar það sér
saman til að hafa gagn og gaman af
hvert öðru. Landnámsmenn voru
aðallega utangarðsmenn sem forð-
uðust samneyti við aðra. Íslendinga-
sögurnar eru ágætis heimild um bú-
setu einangrunar og dreifbýlis sem
leiðir til stöðugra illdeilna um titt-
lingaskít. Enda varð það endalaus
uppspretta vandamála sem birtist í
átakaferlinu fram til 1262 og upp úr
því.
Búsetuformið leiddi til samtaka-
og varnarleysis ekki aðeins í pólitík
heldur einnig í öllum framförum.
Þó margir hefðu kynnst til dæmis
mannvirkjagerð erlendis fyrir og eft-
ir landnámið gat hið dreifða búsetu-
form ekki nýtt þessa þekkingu. Sama
átti við verkmenningu. Hún þróaðist
ekki eða dagaði upp. Menn notuðu
ekki tækni hjólsins og kunnu ekki að
sigla beitivind langt fram á 19. öld.
Að landinn var ekki eins og fólk er
flest birtist í námi hans. Þegar Dan-
ir komu á stjórnsýslu upp úr 1660
fóru væntanlegir embættismenn til
náms í Kaupmannahöfn. Þar rottuðu
þeir sig saman og lærðu sömu lög og
Danir en á allt annan hátt. 1758 fóru
til dæmis íslenskir sýslumenn í anda
þjóðveldisins fram á auknar heimild-
ir til dauðarefsinga vegna kostnaðar.
Hinir dæmdu urðu síðar uppistað-
an í vinnuafli Innréttinganna. Um
svipað leyti benti Stampe (danskur
embættismaður) á að flestir þjófn-
aðir á Íslandi væru framdir í neyð án
þess að sýslumennirnir nýttu ákvæði
neyðarréttar. Og í réttarframkvæmd
sættu ódæmdir hörðum refsingum.
En mannvonska íslenskra lög- og
sýslumanna reið ekki einteyming
saman ber gapastokkana sem mættu
fátæklingum fyrir utan griðasetur
kristilegrar mannúðar (Skálholt, ...).
Í umræðum námsmanna í Kaup-
mannahöfn á tímum Jóns Sigurðs-
sonar birtist þessi félagsmótun
forheimskunnar í botnlausum hei-
móttarskap. Frönsku byltingarn-
ar 1830,1848 og 1871 voru sprottn-
ar upp úr umhverfi og andrúmslofti
félagslegrar vakningar. Bókmenntir
þessa tíma (Zola, Hugo, ...) eru upp-
fullar af hugmyndum um ranglæti
og réttlæti. Þessi siðfræði fór mikið
til framhjá 30 manna Íslendinganý-
lendunni í Kaupmannahöfn sem
reifst aðallega um stafsetningarregl-
ur og hvar Alþingi ætti heima.
Siðfræði mannvonskunnar
Grunnforsenda siðfræði mann-
vonskunnar er að menn séu fædd-
ir jafnir, eigi sig sjálfa og séu sinnar
gæfu smiðir og hugsi aðeins um eigin
ávinning. Bótaþegar og börn þeirra
geti því kennt sjálfum sér um þegar
þau bera fórnarkostnað kapitalism-
ans, standa í matarröðum og lepja
dauðann úr skel. Þessi siðfræði hef-
ur tröllriðið húsum við HÍ frá 1911
og birtist í fyrrnefndum ummælum
flokksformanna, lögfræðinga, hag-
fræðinga, SA og jafnvel kirkjunnar
mönnum.
Er ekki kominn tími til að kenna
þessu fólki aðra siðfræði til að það
læri að skammast sín!ma tíma hef-
ur Harper tekist að sameina hægri-
menn, og hefur fengið til sín hægri-
arm fyrrverandi Liberal-kjósenda.
Ólíkt því sem gerðist annars staðar
hefur hægrimönnum í Kanada tekist
fremur vel upp í efnahagsmálum og
landið hefur komið hlutfallslega vel
út úr kreppunni.
Sumir segja að Kanada sé nú
komið með tveggja flokka kerfi í
reynd. Að minnsta kosti er ljóst að
víglínur á milli hægri og vinstri eru
mun skýrari en áður, og hart verður
tekist á næstu árin.
Siðfræði mannvonskunnar
Kjallari
Sævar
Tjörvason
„ 1758 fóru til
dæmis íslenskir
sýslumenn í anda þjóð-
veldisins fram á auknar
heimildir til dauðarefs-
inga vegna kostnaðar.