Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2011, Page 24
24 | Sport Umsjón: Tómas Þór Þórðarson tomas@dv.is 9. maí 2011 Mánudagur
Heimsmeistarinn vann Tyrklandskappaksturinn:
Engin mistök hjá Vettel
„Við byrjuðum vel sem hjálpaði okk
ur að geta séð hvaða hinir ætluðu
að gera og þannig gátum við stýrt
keppninni svolítið okkur í hag,“ sagði
heimsmeistarinn í Formúlu 1, Se
bastian Vettel, eftir að hann tryggði
sér sigur í Tyrklandskappakstrin
um á sunnudaginn. Þetta var fjórða
keppni ársins og þriðji sigur Vettels.
Hann hefði verið með fjóra sigra af
fjórum mögulegum hefði liðið ekki
gert mistök í dekkjastoppum í síð
ustu keppni.
„Við gerðum engin mistök núna.
Auðvitað vorum við með hugmyndir
um hvernig við vildum skipta dekkja
notkuninni en á endanum þarf mað
ur að spila þetta svolítið eftir eyranu.
Það gerði mér auðvitað miklu létt
ara fyrir að geta séð hvað hinir ætl
uðu sér að gera en þeir þurftu allir að
breyta á undan mér þar sem ég var
í forystunni,“ sagði Vettel sem klessti
bílinn við æfingar á föstudaginn síð
asta.
„Allir starfsmennirnir í kringum
bílinn minn og hjá Mark [Webber,
hinum ökumanni Red Bull] hjálp
uðust að. Það þýddi að allir þurftu
að vinna langt fram á nætur og biðst
ég afsökunar á því. Þetta sýnir samt
hversu góður andi er innan okkar
raða,“ sagði Vettel en liðsfélagi hans,
Mark Webber, tók fram úr Spán
verjanum Fernando Alonso á Ferr
ari þegar fimm hringir voru eftir og
tryggði því tvöfaldan sigur Red Bull.
Lewis Hamilton á McLaren var
fjórði og Nico Rosberg á Mercedes
endaði í fimmta sæti. Vettel hefur
örugga forystu í stigakeppni öku
þóra. Hann er efstur með 68 stig en
á eftir honum kemur Hamilton með
47. Jenson Button, Mark Webber og
Alonso koma þar næstir. Eðli málsins
samkvæmt hefur Red Bull því forystu
í stigakeppni bílasmiða. Liðið er efst
með 105 stig, McLaren er í öðru sæti
með 85 en Ferrarimenn hafa 50.
tomas@dv.is
Úrslit
Þjár af fjórum Vettel er búinn að vinna þrjár af fjórum fyrstu keppnum ársins. Mynd REuTERs
Manchester United er aðeins einu
stigi frá því að vinna sinn nítjánda
Englandsmeistaratitil og verða þar
með sigursælasta lið enska boltans
frá upphafi. United vann Chelsea,
2–1, í stórleik tímabilsins á Old Traf
ford á sunnudaginn og náði þar með
sex stiga forystu í deildinni. Fergu
son og hans menn þurfa því aðeins
eitt stig úr síðustu tveimur leikjun
um til þess að tryggja sér titilinn en
um næstu helgi mætir United Black
burn á útivelli og lýkur svo tíma
bilinu með leik gegn Blackpool á
heimavelli.
Javier Hernandez skoraði fyrsta
mark leiksins eftir aðeins 36 sek
úndur en á þessu tímabili hefur ekk
ert mark komið jafn snemma leiks
í deildinni. Nemanja Vidic skoraði
seinna mark United en Frank Lamp
ard minnkaði muninn fyrir gestina í
síðari hálfleik.
Mikið afrek
Leikmenn Manchester United döns
uðu stríðsdans af gleði eftir sigurinn
á Chelsea og það eðlilega, 19. titill
inn handan við hornið. Fyrir tveimur
árum þegar United vann átjánda tit
ilinn og jafnaði met Liverpool sagði
Ferguson að þegar hann tók við Uni
ted hafi ætlunin alltaf verið að velta
Liverpool af stalli sínum sem drottnari
enska boltans. Hann óraði þó aldrei
fyrir að jafna met Liverpool og hvað þá
bæta það.
„Fyrir 15–20 árum bjóst eflaust
enginn við þessu. Þetta er mikið af
rek hjá Manchester United að vinna
upp þetta met sinna helstu erkifjenda,“
sagði sigur reifur Ryan Giggs við breska
ríkissjónvarpið eftir leikinn. Giggs lék
enn og aftur stórkostlega á miðjunni
en hann hefur verið maður stórleikj
anna á þessu tímabili. „Þetta er skref
í rétta átt hjá okkur,“ sagði hann hóg
vær. „Tölfræðilega erum við ekki bún
ir að vinna titilinn en vissulega erum
við nálægt því. Við vitum fullvel að við
getum spilað góðan fótbolta en aftur
á móti vorum við meðvitaðir um að
við þyrftum að halda aftur af Chelsea í
leiknum. Byrjunin var auðvitað frábær,
að skora svona snemma. Það hefði
samt verið auðvelt fyrir okkur að hætta
þá en það gerðum við ekki,“ sagði Ryan
Giggs.
Höfum bætt okkur stöðugt
Sir Alex Ferguson var kampakátur eftir
sigurinn og var í raun farinn að fagna
nítjánda meistaratitlinum. „Leik
mennirnir mínir munu ekki klúðra
þessu. Þeir munu ná í þetta stig sem
þarf til. Það er frábært að geta sagt að
við erum sigursælasta lið landsins. Það
tók sinn tíma að byggja grunninn að
þessum árangri en eftir að við unnum
fyrsta titilinn héldum við alltaf áfram
að bæta okkur,“ sagði Ferguson, sem er
ekki vanur að tala svona.
Ferguson hló aðeins aðspurður
um stressandi lokamínútur. „Við erum
alltaf að gera þetta spennandi,“ sagði
hann. „Við hefðum getað skorað sex
mörk í seinni hálfleik. Maður býst auð
vitað við erfiðum leik gegn Chelsea og
hann fengum við. Við fengum samt
draumabyrjun á leiknum með mark
inu frá Chicharito. Heilt yfir stóð liðið
sig frábærlega. Þegar Chelsea skoraði
hjálpuðu stuðningsmennirnir okkur
líka að koma okkur aftur í gang. Ég ber
mikla virðingu fyrir leikmönnunum
mínum og þeir eiga allt gott skilið fyr
ir þessa frammistöðu,“ sagði Ferguson
kátur.
Heimavöllurinn vígi
Enska úrvalsdeildin mun vinnast á
færri stigum í ár en undanfarin tímabil
en stóru liðin hafa verið dugleg að tapa
stigum gegn minni liðunum. Sam
keppnin er orðin mun meiri í bestu
félagsdeild í heimi. Til marks um það
hefur Manchester United aldrei unnið
færri sigra á útivelli á ári þar sem það
er í titilbaráttu, aðeins fimm stykki auk
níu jafntefla. Það er þó heimavöllurinn
sem hefur verið vígi liðsins. Sigurinn
gegn Chelsea var sá sautjándi á tíma
bilinu í átján leikjum, 52 stig í sarpinn
af 54 mögulegum. Eina liðið sem sótt
hefur stig á Old Trafford er WBA.
Nítjándi titillinn
handan hornsins
n Manchester united vann Chelsea 2–1 í stórleik tímabilsins n Vantar eitt stig í titilinn
n Met Liverpool aldrei verið í meiri hættu n 52 stig af 54 mögulegum á Old Trafford
Gulls ígildi Það er erfitt að
þræta fyrir að sex milljóna punda
maðurinn Javier Hernandez sé
kaup ársins. Mynd REuTERs
Tómas Þór Þórðarson
blaðamaður skrifar tomas@dv.is
Enska úrvalsdeildin
Aston Villa - Wigan 1-1
0-1 Charles N'Zogbia (10.), 1-1 Ashley Young
(16.).
Bolton - sunderland 1-2
0-1 Boudewijn Zenden (45.+1), 1-1 Ivan Klas-
nic (87.), 1-2 Sulley Muntari (90.+3).
Everton - Man. City 2-1
0-1 Yaya Touré (28.), 1-1 Sylvain Distin (65.),
2-1 Leon Osman (71.).
newcastle - Birmingham 2-1
1-0 Shola Ameobi (36. víti), 2-0 Steven
Taylor (43.), 2-1 Lee Bowyer (45.).
n Liam Ridgewell, Birmingham (35.)
West Ham - Blackburn 1-1
0-1 Jason Roberts (12.), 1-1 Thomas Hitzl-
sperger (78.).
Tottenham - Blackpool 1-1
0-1 Charlie Adam (76. víti), 1-1 Jermain Defoe
(89.).
Úlfarnir - WBA 3-1
1-0 Steven Fletcher (14.), 2-0 Adlene
Guedioura (27.), 3-0 Steven Fletcher (47.),
3-1 Peter Odemwingie (54. víti).
stoke - Arsenal 3-1
1-0 Kenwyne Jones (28.), 2-0 Jermaine
Pennant (40.), 2-1 Robin van Persie (80.), 3-1
Jonathan Walters (82.).
Man. united - Chelsea 2-1
1-0 Javier Hernandez (1.), 2-0 Nemanja Vidic
(22.), 2-1 Frank Lampard (68.).
sTAðAn
Lið L u J T M st
1 Man. Utd 36 22 10 4 73:34 76
2 Chelsea 36 21 7 8 67:30 70
3 Arsenal 36 19 10 7 69:39 67
4 Man. City 35 18 8 9 54:33 62
5 Tottenham 35 14 14 7 51:44 56
6 Liverpool 35 16 7 12 54:39 55
7 Everton 36 12 15 9 50:44 51
8 Stoke City 36 13 7 16 46:44 46
9 Bolton 36 12 10 14 49:50 46
10 Fulham 35 10 15 10 43:36 45
11 Newcastle 36 11 11 14 51:52 44
12 Sunderland 36 11 11 14 41:53 44
13 WBA 36 11 10 15 52:68 43
14 Aston Villa 36 10 12 14 45:58 42
15 Blackburn 36 10 9 17 42:56 39
16 Birmingham 36 8 15 13 36:54 39
17 Wolves 36 10 7 19 41:62 37
18 Blackpool 36 9 9 18 49:71 36
19 Wigan 36 7 15 14 36:59 36
20 West Ham 36 7 12 17 41:64 33
Enska Championship-deildin
Barnsley - Millwall 1-0
Bristol City - Hull 3-0
Burnley - Cardiff 1-1
Crystal Palace - nott. Forest 0-3
Leicester - Ipswich 4-2
Middlesbrough - doncaster 3-0
norwich - Coventry 2-2
n Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn
fyrir Coventry.
Preston - Watford 3-1
QPR - Leeds 1-2
n Heiðar Helguson var í byrjunarliði QPR
og skoraði eftir 30 sekúndur. Hann var
tekinn af velli á 72. mínútu.
Reading - derby 2-1
n Hvorki Ívar Ingimarsson né Brynjar
Björn Gunnarsson voru í leikmannahópi
Reading.
scunthorpe - Portsmouth 1-1
n Hermann Hreiðarsson lék allan tímann
fyrir Portsmouth.
swansea - sheff. united 4-0
sTAðAn
Lið L u J T M st
1 QPR 46 24 16 6 71:32 88
2 Norwich 46 23 15 8 83:58 84
3 Swansea 46 24 8 14 69:42 80
4 Cardiff 46 23 11 12 76:54 80
5 Reading 46 20 17 9 77:51 77
6 Nottingham F. 46 20 15 11 69:50 75
7 Leeds 46 19 15 12 81:70 72
8 Burnley 46 18 14 14 65:61 68
9 Millwall 46 18 13 15 62:48 67
10 Leicester 46 19 10 17 76:71 67
11 Hull 46 16 17 13 52:51 65
12 Middlesbro 46 17 11 18 68:68 62
13 Ipswich 46 18 8 20 62:68 62
14 Watford 46 16 13 17 77:71 61
15 Bristol City 46 17 9 20 62:65 60
16 Portsmouth 46 15 13 18 53:60 58
17 Barnsley 46 14 14 18 55:66 56
18 Coventry 46 14 13 19 54:58 55
19 Derby 46 13 10 23 58:71 49
20 Cr. Palace 46 12 12 22 44:69 48
21 Doncaster 46 11 15 20 55:81 48
22 Preston 46 10 12 24 54:79 42
23 Sheffield Utd 46 11 9 26 44:79 42
24 Scunthorpe 46 12 6 28 43:87 42
n QPR með Heiðar Helguson innanborðs er
meistari og leikur í úrvalsdeildinni á næsta tímabili
eins og norwich sem endaði í öðru sæti.
n swansea mætir nott. Forest og Cardiff og
Reading eigast við í undanúrslitum umspilsins um
síðasta lausa sætið í úrvalsdeildinni.
n Preston, sheffield united og scunthorpe
eru fallin.