Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2011, Blaðsíða 14
14 | Neytendur Umsjón: Gunnhildur Steinarsdóttir gunnhildur@dv.is 8. júní 2011 Miðvikudagur
Skítugur bakpoki
Eftir erfiða og skítuga gönguferð
getur bakpokinn verið ansi sjúsk-
aður. Þá er best að skola af pokan-
um með garðslöngu eða setja hann
í volgt bað en þetta kemur fram á
alparnir.is. Þar segir einnig að nota
skuli tannbursta til að ná skítnum
úr rennilásum og af öðrum erfiðum
svæðum. Einnig að forðast skuli að
nota sápu á bakpokann nema ef um
sé að ræða olíublett á pokanum, eftir
til dæmis ólívuolíu eða sólarvörn.
Í slíkum tilfellum sé best að nota
milda lyktarlausa sápu, eins og til
dæmis sápuflögur. Síðan skal pok-
inn skolaður vel og þurrkaður.
Yndislegt
starfsfólk
n Lofið fær Skalli í Ögurhvarfi fyrir
góða þjónustu. „Ég er nýfluttur í
hverfið og hef verslað við Skalla
nokkrum sinnum eftir að ég flutti.
Ég vil endilega fá að koma að lofi þar
sem mér finnst verslunin ódýr
og starfsfólkið yndislegt. Alltaf
þegar ég hef lagt leið mína
þangað er þjónustan frábær
í alla staði. Ég mæli því
eindregið með Skalla,“
segir ánægður við-
skiptavinur.
Slök þjónusta
n Lastið að þessu sinni fær Max í
Garðabæ. „Ég þurfti að ná tali af versl-
unarstjóra sem var upptekinn með
viðskiptavini. Hann var látinn vita af
mér en ég heyrði strax að hann var
bara að spjalla um daginn og veginn
við hinn kúnnann. Þegar hann loks
kom til mín eftir 15 mínútur bað ég
um skýringu á biðinni og þá svaraði
hann með þjósti að þetta
væri bróðir hans sem
hann hefði ekki séð
lengi. Það þarf vart að
taka fram, að ég hef
ekki stigið þar inn fyrir
dyr síðan og mun ekki gera.“
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
Lof&Last
E
ld
sn
ey
ti Bensín Dísilolía
Algengt verð 232,3 kr. 231,2 kr.
Algengt verð 232,1 kr. 230,9 kr.
Höfuðborgarsv. 232,1 kr. 231 kr.
Algengt verð 232,3 kr. 231,2 kr.
Algengt verð 233,3 kr. 231,2 kr.
Melabraut 232,1 kr. 230,9 kr.
Allt að 50 prósenta munur er á verði
hjá þeim flugfélögum sem fljúga til
og frá Íslandi í sumar og oft er um
tugþúsunda mun að ræða. Þann-
ig er 76.000 krónum ódýrara fyrir
hjón að ferðast til Stokkhólms með
Icelandair en Iceland Express. Ice-
landair er þó oftar en ekki með dýr-
asta fargjaldið þótt til að mynda sé
óhagstæðast að fljúga með Iceland
Express til New York. Eins eru er-
lendu flugfélögin stundum dýrasti
kosturinn og má þar nefna að tölu-
vert dýrara er að fljúga með SAS til
Osló en þeim íslensku og Lufthansa
býður upp á langdýrasta fargjaldið til
Hamborgar.
15 flugfélög og 54 áfangastaðir
Samkvæmt upplýsingum á heima-
síðu Keflavíkurflugvallar eru 13 er-
lend flugfélög sem fljúga til og frá
landinu í sumar, og Icelandair og
Iceland Express. Áfangastaðirnir
eru 54 í Evrópu og Norður-Amer-
íku og nú þegar Íslendingar hugsa
sér til hreyfings er ekki úr vegi að
skoða flugfélögin og þau verð sem
þau bjóða.
Vikuferðir til Evrópu og Norður-
Ameríku
Skoðuð voru verð á vikuferðum
hjá flugfélögunum um miðjan júní
annars vegar og miðjan eða seinni
part júlí, hins vegar. Tekið skal
fram að flugfélögin fljúga ekki öll
daglega og því ekki hægt að skoða
nákvæmar vikuferðir hjá þeim öll-
um. Eins eru mismunandi verð
eftir vikudögum og því væri hugs-
anlega hægt að finna ódýrara eða
dýrara fargjald ef dvalið er skemur
eða lengur í viðkomandi borgum.
Verðin sem hér birtast voru feng-
in með því að leita á heimasíðum
flugfélaganna. Reynt var að finna
lægsta verðið hverju sinni og þar
sem breyta þurfti yfir í íslenskar
krónur var miðað við gengi á er-
lendum gjaldmiðlum þann 7. júní
2011. Um er að ræða fargjald fyr-
ir einn fullorðinn og ekki var lagt
mat á gæði flugferða, þjónustu um
borð eða annað sem gæti haft áhrif
á verðlagningu.
n Yfir sumartímann fljúga 15 flugfélög til og frá Íslandi n Það getur munað allt
að 50 prósentum á flugfargjöldum n Erlendu flugfélögin eru ekki alltaf ódýrari
Dusseldorf
Air Berlin
17.–23. júní - 50.817 kr.
20.–28. júlí - 64.640 kr.
Lufthansa
15.–21. júní - 83.052 kr.
15.–21. júlí - 99.424 kr.
Washington
Icelandair
14.–21. júní - 100.640 kr.
22.–29. júlí - 104.540 kr.
Delta
17.–24. júní - 70.490 kr.
21.–27. júlí - 75.390 kr.
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
New York
16.–23. júní - 100.105 krónur
14.–21. júlí - 92.440 krónur
Iceland Express
15.–22. júní - 80.420 krónur
14.–21. júlí - 101.640 krónur
Delta
17.–24. júní - 69.910 krónur
21.–28. júlí - 78.910 krónur
Chicago
Delta
18.–25. júní - 108.607 kr.
22.–29. júlí - 109.470 kr.
Icelandair
18.–25. júní - 114.340 kr.
22.–29. júlí - 119.740 kr.
Halifax
Delta
16.–22. júní - 146.160 kr.
21.–28. júlí - 109.470 kr.
Icelandair
15.–22. júní - 115.890 kr.
18.–25. júlí - 132.040 kr.
London
Icelandair
15.–22. júní - 51.800 kr.
17.–24. júlí - 51.820 kr.
Iceland Express
16.–23. júní - 46.723 kr.
22.–29. júlí - 48.047 kr.
Boston
Iceland Express
16.–23. júlí - 63.193 krónur
19.–26. júní - 81.534 krónur
Icelandair
14.–21. júní - 83.460 krónur
14.–21. júlí - 81.260 krónur
Delta
12.–20. júní - 70.490 kr.
21.–28. júlí - 89.790 kr.
Ódýrustu
flugfargjöldin