Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2011, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2011, Page 16
16 | Erlent 8. júní 2011 Miðvikudagur „Hér er um umferðarslys að ræða. Það er hið sanna í málinu.“ Þetta seg- ir á miða, sem líbískur læknir lét falla fyrir fætur blaðamanns fréttastofu Reuters. Síðastliðinn sunnudag fóru líbískir fulltrúar hliðhollir Muamm- ar al-Gaddafi með alþjóðlega frétta- menn í vettvangsferð um Trípólí, höfuðborg Líbíu. Markmið fararinn- ar var að sýna fréttamönnunum fram á hinn ótrúlega skaða sem loftárásir Atlantshafsbandalagsins hafa vald- ið í borginni, og þá sérstaklega hið mikla manntjón á óbreyttum borg- urum. Hápunktur ferðarinnar var ferð á sjúkrahús þar sem stúlka lá þungt haldin, en hún var fórnarlamb einnar loftárásar – að sögn Líbíu- manna. Vestrænir fjölmiðlar hafa farið mikinn síðan fréttamaður Reuters sagði frá miðanum. Eru fréttaskrif nokkurn veginn á þá leið að gert er grín að málflutningi Líbíumanna sem kvarta sáran undan loftárásun- um og áhrifunum sem þær hafa á óbreytta borgara. Falsaðar sögur Samkvæmt fréttum af vettvangs- ferðinni var farið með fréttamenn- ina á sjúkrahús þar sem bæði móð- ir stúlkunnar og nágranni staðfestu að áverkar hennar væru vegna loft- árásar. Nágranni þessi var hins vegar einnig staddur í hinum enda borgar- innar nokkrum klukkustundum síð- ar, þegar fréttamenn voru boðaðir á heimili þar sem sprengja átti að hafa lent. Við nánari skoðun sögðu frétta- menn að meint sprengja hafi verið rússnesk olíutunna, sem hafi ver- ið greinilegt vegna þess að tunnan var merkt með kyrillísku letri. Um- ræddur nágranni, sem sagðist einnig vinna fyrir ríkisstjórn Gaddafis, sagði hins vegar að sprengjan hafi hæft olíugeymslustöð í nágrenninu, og þaðan hafi tunnan flogið. Þeir frétta- menn sem hlustuðu á vitnisburð ná- grannans tóku hann ekki trúanlegan. Ekki nýtt af nálinni Ómögulegt er að leggja dóm á það hvort stúlkan sem liggur þungt hald- in á spítala í Trípólí hafi verið fórn- arlamb loftárásar eður ei, miðað við þennan fréttaflutning. Sé einung- is um áróðursbragð stjórnar Gadd- afis að ræða, er í það minnsta ljóst að ekki er um fyrsta áróðursbragð af þessu tagi að ræða. Það verður þó að teljast kaldhæðnislegt að vestræn- ir fjölmiðlar gangi svo langt að gera næstum gys að málinu, líkt og um augljóst áróðursbragð sé að ræða – burtséð frá réttmæti loftárásanna. Það voru nefnilega vestrænir fjöl- miðlar sem gleyptu við einu frægasta áróðursbragði sem hefur verið sett á svið í seinni tíð, en þá voru það ein- mitt Bandaríkjamenn sem voru að verki. Margir gleyma því að þegar Bandaríkjamenn tóku ákvörðun um að leggjast í stríðsrekstur í Persaflóa- stríðinu hinu fyrra, var sú ákvörðun einmitt byggð á sviðsettri lygi. Nayirah hjúkrunarkona Persaflóastríðið hófst 2. ágúst árið 1990 þegar Írakar réðust inn í Kúveit, nágrannaríki sem var eitt sinn ný- lenda breska heimsveldisins. Allt frá því að Írakar hernámu Kúveit var ljóst að vestræn ríki myndu ekki láta það afskiptalaust, enda hafði Kúveit verið eitt fárra Arabaríkja sem mátti telja til bandamanna Vesturvelda. Í Bandaríkjunum reyndist hins vegar erfitt að fá stuðning bæði þings og al- mennings við því að koma Kúveitum til aðstoðar, enda um fjarlægt smá- ríki að ræða sem fæstir Bandaríkja- menn höfðu heyrt minnst á. Þetta breyttist þó allt saman eftir að bandarísk þingmannanefnd um mannréttindi, hélt opinn fund þann 10. október 1990 – til þess einmitt að fjalla um ástandið í Kúveit. Formað- ur nefndarinnar, Tom Lantos, kallaði til sögunnar 15 ára stúlku og sagði að hún gæti ekki komið fram undir sínu eigin nafni. Hún átti eingöngu eftir að ganga undir nafninu Nayirah hjúkrunarkona. Skelfileg saga Nayirah tók til máls og sagði sögu sína með grátstafinn í kverkunum. Hún lýsti því hvernig reynsla henn- ar ætti eftir að breyta henni um ókomna tíð. Hún sagði frá því að hún hafi verið í Kúveit ásamt 27 ára systur sinni sem eignaðist barn þann 27. ágúst. Aðeins fimm dögum síðar hefði írakski herinn ráðist inn í land- ið. Upphaflega hafði þeim systrum tekist að flýja, en eftir að þær festust í eyðimörkinni rétt hjá landamærum Sádi-Arabíu var ekki um annað að ræða en að fara með nýfædda barnið á spítala. Þegar á spítalann var kom- ið ákvað Nayirah að gerast sjálfboða- liði á fæðingadeild spítalans, þar sem mikið af starfsfólki hafði flúið. Það sem gerðist næst var vægast sagt átakanlegt. „Á meðan ég var þarna á spítalanum sá ég þegar íraksk- ir hermenn ruddust inn, vopnaðir byssum. Þeir tóku ungbörn úr hita- kössum, tóku hitakassana með sér og skildu börnin eftir á köldu gólfinu til að deyja. Þetta var hryllilegt.“ Þingmenn nýttu sér Nayiruh Viðbrögðin létu ekki á sér standa. Sama kvöld og Nayirah flutti vitnis- burð sinn var honum sjónvarpað af öllum stærstu sjónvarpsstöðvum í Bandaríkjunum og talið er að áhorf- endur hafi verið allt að 50 milljón- ir talsins. Á næstu vikum áttu alls sjö þingmenn á bandaríska þinginu eftir að vitna í orð Nayiruh, þeg- ar þeir vildu styðja beiðni George H.W. Bush um aukafjárveitingu til að hefja stríð gegn Írak. Bush sjálfur átti eftir að vitna í orð Nayiruh alls tíu sinnum, eða allt þangað til fjár- veitingin varð að veruleika. Banda- rískur almenningur, sem hafði þang- að til kært sig kollóttan um stríð sem fór fram hinum megin á hnettinum, snerist einnig á band með Bush. All- ir kenndu í brjóst um ungbörnin og Nayiruh – og skyldi engan undra. Allt byggt á lygum Hið sanna í málinu átti síðan eftir að koma í ljós, en þá var þegar búið að heyja stríðið – með öllum þeim hörmulegu afleiðingum sem það hafði í för með sér. Það þarf vart að taka fram að Írakar vísuðu frásögn Nayiruh til föðurhúsanna, enda um ómanneskjulegan glæp að ræða. Þegar fréttamenn fengu loks að- gang að spítölunum þar sem meintir glæpir áttu sér stað, gátu þeir ekki séð hægt væri að styðja frásögn Nayiruh. Það var svo 6. janúar árið 1992 sem blaðamaður New York Times, John MacArthur, birti grein sína „Munið þið eftir Nayiruh?“ MacArt- hur hafði komist að því að Nayirah hét í raun Nayirah Al-Sabah og var dóttir Saud bin Nasir Al-Sabah, sendiherra Kúveit í Bandaríkjunum og Kanada. Nayirah hafði aldrei svo mikið sem komið til Kúveit og hafði verið þjálfuð til að fara með vitnis- burð sinn af almannatengslafyrir- tækinu Hill & Knowlton. Fyrirtækið hafði enn fremur framkvæmt skoð- anakannanir þar sem kom í ljós að ungbarnamorð væri tvímælalaust hryllilegasti glæpur sem hægt væri að fremja. Tilviljun? Stríðið í Líbíu heldur áfram Ekki má gleyma því að stríðinu í Líbíu er hvergi nærri lokið. Sam- kvæmt tölum frá ríkisstjórn Gadd- afis hafa nú þegar 718 óbreyttir borgarar fallið í loftárásum Banda- manna, auk þess sem særðir telja 4.067. Talsmenn Atlantshafsbanda- lagsins hafa hafnað þeirri tölu. Hvað sem því líður vonast nán- ast gervallt alþjóðasamfélagið til þess að Gaddafi sjái sóma sinn í því að stíga til hliðar og binda þar með enda á átökin í landinu. Nú standa átökin hæst á þremur stöð- um; við olíuhreinsistöðina í Brega, við borgina Misurata í miðju land- inu og í Nafusa-fjöllunum í útjaðri Trípólí. Nayirah hjúkrunarkona Dóttir sendiherra Kúveit í Bandaríkjunum laug að heiminum, og uppskar samúð allra. Björn Teitsson blaðamaður skrifar bjorn@dv.is n Ríkisstjórn Muammars al-Gaddafis, leiðtoga Líbíu, er sökuð um að ýkja stórlega og jafnvel ljúga til um skaðann sem loftárásir NATO hafa valdið n Vestrænir miðlar harðorðir n Bandaríkjamenn eru ekki ókunnugir slíkum áróðri Naseeb, 7 mánaða Stúlkubarnið sem menn Gaddafis sögðu að hefði verið fórnarlamb loftárásar. „ ...tóku hitakass- ana með sér og skildu börnin eftir á köldu gólfinu til að deyja. Áróður og lygar í stríðsrekstri

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.