Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2011, Qupperneq 18
18 | Umræða 8. júní 2011 Miðvikudagur
„Mér fannst óþarfi hjá
borgarfulltrúa Hönnu
Birnu Kristjánsdóttur
að vera að hnýta
eitthvað í Davíð Oddsson
og hans borgarstjóratíð.“
n Jón Gnarr – Borgarstjórnarfundur í
Reykjavík
„Réttarhöldin eru
skrípaleikur.“
n Geir Haarde – DV.is
„Það vellur gróði
uppúr öllum pottum
Norðuráls.“
n Vilhjálmur Birgisson, formaður
Verkalýðsfélags Akraness – DV.is
„Mikið hljóta þeir á DV að
vera glaðir núna!“
n Vinkona Sveins Andra á Facebook-síðu
hans vegna sambandsslita hennar við
Kristrúnu Ösp Barkardóttur – Facebook
„Bubbi er ekki að taka
viðtal við sjálfan sig.“
n Sigrún Stefánsdóttir dagskrárstjóri
RÚV um það að viðtal við Bubba er í
þættinum hans Bubba – DV.is
Ekki meir Geir
O
ft er metið til refsilækkunar
þegar brotlegir menn iðr
ast eða hafa gert yfirbót. Á
mánudag hélt Geir Haarde
blaðamannafund þar sem hann
svaraði ákæru um að hann hefði ekki
staðið undir ábyrgð sem forsætis
ráðherra. Á fundinum iðraðist hann
einskis, en ásakaði alla sem komu
að málarekstrinum gegn sér. Hann
sakaði þingmannanefndina um „at
hafnaleysi“, sagði að málarekstur
gegn sér væri „óafmáanlegur blett
ur“ á ríkisstjórninni og sakaði þrjá
menn um að bera „höfuðábyrgð á
fyrstu pólitísku réttarhöldunum á Ís
landi“. Á þriðjudag leigði hann sal í
Hörpu undir baráttu sína gegn því að
fara fyrir dóm.
Forsaga málsins er sú að árið
1963 mælti Bjarni Benediktsson, þá
verandi formaður Sjálfstæðisflokks
ins, fyrir nýjum lögum um ráðherra
ábyrgð og landsdóm. Þegar tilefni
gafst til að beita lögunum eftir efna
hagshrun Íslands bar svo við að sjálf
stæðismenn úrskurðuðu þau úrelt.
Lögunum var engu að síður fylgt og
svo fór að reynt var að leggja störf
fjögurra ráðherra fyrir dóm lands
dóms. Aðeins náðist meirihluti fyrir
því á Alþingi að kæra Geir. Líklega
sluppu hinir að hluta til vegna kunn
ingsskapar og pólitíkur, en það þýðir
ekki að Geir hefði líka átt að sleppa.
Geir Haarde var fjármálaráðherra
frá 1998 til 2005. Frá 2006 og fram
yfir efnahagshrunið 2008 var hann
forsætisráðherra. Enginn einn mað
ur gat komist nálægt því að vera jafn
ábyrgur og Geir fyrir stöðu efnahags
mála, nema ef vera skyldi maðurinn
sem var forsætisráðherra frá 1991
til 2004 og í kjölfarið Seðlabanka
stjóri fram yfir hrun. En sá maður var
á ábyrgð Geirs, þótt í skýrslu rann
sóknarnefndar Alþingis hafi margt
bent til að Geir hafi lotið hans stjórn.
Saman mótuðu þeir efnahags
kerfi í ætt við nýfrjálshyggju, þar sem
auðjöfrum átti að vera frjálst að gera
það sem þeir vildu. Þeir leyfðu auð
jöfrunum að spila rúllettu og leggja
heimili og ævisparnað venjulega
fólksins að veði. Þegar gagnrýni var
sett fram á auðjöfrana stóðu þeir við
hlið þeirra og studdu þá gegn gagn
rýninni, en þó fremur Geir en Dav
íð, sem var orðinn ósáttur við valda
missi Sjálfstæðisflokks til auðjöfra.
Þegar allt hrundi sögðu þeir að auð
jöfrunum væri um að kenna. Þeir
bara höndluðu ekki frelsið. En þar
sem auðjöfrar geta ekki borið ábyrgð
á heilu hagkerfunum var niðurstað
an sú að enginn bæri ábyrgðina. Þá
var rifjað upp að ráðherrar bera víst
ábyrgð samkvæmt lögum.
Fólk hafði treyst Geir, enda gaf
hann sig út fyrir að standa fyrir
trausta efnahagsstjórn. „Þegar öllu
er á botninn hvolft er traust efna
hagsstjórn mikilvægasta velferðar
málið,“ auglýsti hann grimmt með
myndum af sjálfum sér fyrir kosning
arnar 2007. Niðurstaðan af störfum
hans var andstæðan við trausta efna
hagsstjórn. Þegar það kom á daginn,
í aðdraganda hrunsins, reyndi Geir
hvað hann gat að leyna þeim hrika
lega efnahagsvanda sem Íslendingar
stóðu frammi fyrir. Hann lét eins og
ekkert væri, villti um fyrir þeim sem
gagnrýndu stöðuna og beinlínis laug
fram á síðustu stund.
„Höfuðábyrgð,“ „athafnaleysi“
og „óafmáanlegur blettur“ eru orð
sem eiga fyrst og fremst við um störf
Geirs og afleiðingarnar af þeim. En
hann iðrast ekki og heldur því nán
ast blákalt fram að hann hafi bjarg
að Íslandi. Í stað þess að undirgang
ast höfuðábyrgð sína firrir hann sig
henni og ásakar alla aðra. Þegar ís
lenska krónan hrundi var það al
heimsvandi. Þegar íslenska banka
kerfið sló heimsmet í bankahruni var
það efnahagslegur fellibylur. Þegar
beitt er lögum sem varða hans eigin
ábyrgð er það „óafmáanlegur blettur“
á ríkisstjórninni sem tók við rústun
um af honum. Þá sjaldan að ábyrgð
kemur fyrir í heimsmynd hans liggur
hún hjá öllum öðrum en honum.
Á endanum er málið einfalt. Geir
er grunaður um að hafa brotið lög og
á að mæta fyrir dómara, eins og aðrir
sem hið sama gildir um. Hann verð
ur ekki sá fyrsti sem mætir fyrir dóm
ara fullur af hroka, sjálfsvorkunn og
iðrunarleysi og varpar ábyrgðinni
yfir á alla aðra.
Leiðari
Trúir þú á þig?
„Algjörlega, alla leið,“ segir Bubbi
Morthens, sem gaf út nýjan
geisladisk Ég trúi á þig, á afmælis-
degi sínum 6. júní. Bubbi
semur að venju allt
efnið á diskinum en fer
nýjar leiðir og er það nú
sálartónlist sem hann
hefur samið. Hann
spilar nú með nýrri
hljómsveit sinni, Sól-
skuggunum.
Spurningin
Bókstaflega
Jón Trausti Reynisson ritstjóri skrifar.„Þá sjaldan að
ábyrgð kemur fyrir
í heimsmynd hans liggur
hún hjá öllum öðrum en
honum.
Kúlulán Jónmundar
Þótt rólegt sé á yfirborðinu innan
Sjálfstæðisflokksins kraumar undir
niðri óánægja sem snýr ekki síst að
starfi Jónmundar
Guðmarssonar
framkvæmda
stjóra sem hvarf
af bæjarstjóra
stóli Seltjarnar
ness og er ekki
saknað. Vaxandi
hópur innan
flokksins gagn
rýnir sambandsleysi Valhallarfólks
ins við almenna flokksfélaga. Ganga
sumir svo langt að segja flokks
starfið vera í molum. Þá hafa ein
hverjir áhyggjur af kúlulánum upp
á milljarða sem Jónmundur á aðild
að ásamt viðskiptafélögum sínum.
Fyrirlestur
útrásarkonu
Meðal þess fáa sem gert hefur verið
í flokksstarfi Sjálfstæðisflokksins
er að halda hádegisfundi í Valhöll
til að fræða og
upplýsa kjarna
flokksins. Þar
þykir hafa tekist
fremur illa til í
einhverjum til
fellum. Maturinn
sem boðið er
upp á, undir
yfirskriftinni
Fróðlegt og nærandi, kemur
frá fyrirtækinu Happi, sem er í
eigu útrásarvíkingsins Þórdísar
Sigurðardóttur, systur þess fallna
bankastjóra Hreiðars Más. Gert
er beiskjublandið grín að þessari
tengingu á meðal andófsmanna
ríkjandi afla.
Forsetinn vígreifur
Sjómannadagurinn um liðna helgi
einkenndist af vopnaskaki vegna
áforma um breytingar á kvótakerf
inu. Talsmenn útvegsmannafélaga
um allt land notuðu daginn til að
fylkja sínu liði með því að benda á
allan kvótann sem hyrfi frá þeim.
Sumir talsmenn sjómanna tóku
í sama streng. Ólafur Ragnar Gríms
son, forseti Íslands, stóðst ekki
mátið og flutti sína ræðu á Patreks
firði, þeim bæ sem misst hefur hvað
flest fólk. Þar talaði forsetinn nógu
skýrt til þess að menn skildu að
hann vill bylta kerfinu.
Fjölskyldubönd slitin
Hinn vígfimi og rökfasti Þorvaldur
Gylfason, prófessor og stjórnlaga
þingmaður, er á Eyjunni sagður
hafa komið í bókbúð og spurt um
Rosabaug Björns Bjarnasonar.
Hafði hann fengið það svar að þar
væri bókin ekki seld. Hermt er að
hann hafi látið í ljósi ánægju með
það. Björn bloggar um uppákom
una og er bersýnilega ekki skemmt.
Þar nefnir hann að Þorvaldur sé ein
af sögupersónum og sem slíkur vilji
hann sem minnsta dreifingu. Sú var
tíðin að þeir félagar voru
tengdir fjölskylduböndum
í gegnum Vilmund heit
inn, bróður Þorvaldar, og
Valgerði, systur Björns.
Þau bönd virðast hafa
rofnað.
Sandkorn
tRyGGVAGötu 11, 101 REykjAVík
Útgáfufélag: DV ehf.
Stjórnarformaður:
Lilja Skaftadóttir
Ritstjórar:
jón trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir traustason, rt@dv.is
Fréttastjóri:
Ingi Freyr Vilhjálmsson, ingi@dv.is
Ritstjórnarfulltrúi:
jóhann Hauksson, johann@dv.is
Umsjón helgarblaðs:
Ingibjörg Dögg kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is
Umsjón innblaðs:
Ásgeir jónsson, asgeir@dv.is
DV á netinu: dv.is
Aðalnúmer: 512 7000, Ritstjórn: 512 7010,
Áskriftarsími: 512 7080, Auglýsingar: 512 7050.
Smáauglýsingar: 512 7004.
Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins
á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
Það er algengt í íslensku samfélagi að saklausir menn séu dregnir fyrir dóm og þeir síðan
kjöldregnir í um
ræðunni. Þetta
hófst líklega með
Árna Johnsen,
þingmanninum
sem tók út laun
í timbri og dúk.
Eins og hann
benti sjálfur á
var að baki máli
hans samsæri fjölmiðla, lögreglu
og dómstóla um að koma honum
á kné. Þótt Árni benti réttilega á að
timburmál hans hefðu verið mistök,
sem strax voru leiðrétt var hann eigi
að síður læstur inni í fangelsi. Inni
lokun hins saklausa varð reyndar til
góðs því hann beitti sér fyrir mann
réttindum í steininum og útvegaði
ný rúm fyrir fanga. Þá varð hann
sjálfur að listamanni.
Annar þingmaður, Ásbjörn Óttarsson, varð einnig fyrir aðför. Honum varð á að reikna sér
arð frá fyrirtæki
sínu á tapári sem
er lögbrot. Eftir
miklar vangavelt
ur náði hann að
lýsa yfir sakleysi
sínu með skír
skotun til þess að
endurskoðandi
hans hefði klúðr
að framtalinu. Endurskoðandinn
sem tók sökina var látinn og gat því
ekki borið hönd fyrir höfuð sér. Ás
björn situr nú á þingi og er sakleysi
hans hvítt sem nýfallin mjöll.
tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er eitt hinna saklausu guðs
lamba sem orðið hafa fyrir hnjaski í
umræðunni. Hann var bankastjóri
og fékk kúlulán
sem erfitt er að
standa undir. Þá
sköruðust ýmsir
hagsmunir þegar
hann var efna
hagsráðgjafi for
sætisráðherra
en á sama tíma
með sporslur frá
einkabanka. En hann er að sjálf
sögðu saklaus eins og hinir.
Nýjasta dæmið um offors þeirra sem vilja réttlæti er að Geir Haarde er dreginn fyrir lands
dóm fyrir aðgerðaleysi í aðdraganda
hrunsins. Geir er annálað ljúfmenni
sem öllum vill vel. Honum svíður að
vera líkt við þann norska Quisling
eða aðra brotamenn gegn samvisku
þjóða. Þá hefur það tekið á hann
að vera líkt við StraussKahn sem
Geir hefur þá væntanlega sakfellt.
Fjöldasamtök hafa verið stofnuð til
að bjarga Geir frá landsdómi. Heyra
mátti óminn frá þeim í Hörpu þar
sem upprisufundur var haldinn. Það
er auðvitað fráleitt að draga æðsta
mann hrunsins fyrir dóm í því skyni
að fá skorið úr um sekt eða sýknu.
Sjálfstæðismenn eru ofsóttir. Um
það er engum blöðum að fletta.
Böðlarnir á vinstri vængnum eru
blóðugir upp að öxlum. Hættum að
leita að sökudólgum, syngur hrun
kórinn í Hörpu. Horfum brosandi
fram á veginn og gleymum hinu
liðna. Fortíðin er horfin en framtíðin
bíður með nýju hruni.
Svarthöfði
SaklauS guðSlömb