Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2011, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2011, Blaðsíða 23
Viðtal | 23Miðvikudagur 8. júní 2011 með honum og eiga framtíð í Gana. Við höfum örugglega bæði vitað að þetta færi svona án þess að tala um það. Mig langaði að fara í skóla.“ San José og Barselóna Inga Dóra hóf nám í mannfræði þeg­ ar heim kom og segir að það hafi ver­ ið gaman að lesa sér til um þá hluti sem hún hafði upplifað og setja þá í fræðilegt samhengi. Hún flutti til San José í Kaliforníu eftir eitt ár þar sem hún var í skipti­ námi. „Ég var mikið að stúdera fem­ ínisma og Afríkufræði. Ég kom heim eftir einn vetur í San José og kláraði mannfræðina. Ég flutti til Barselóna þegar ég var búin að vera í meistara­ námi í hálft ár til að halda því áfram þar. Þar kynntist ég mörgum afrísk­ um innflytjendum og þvældist með fólki frá Fílabeinsströndinni sem var í hljómsveit og spilaði á trommur og dansaði.“ Inga Dóra segir að hvað mann­ fræðina í skólanum varðaði hafi bara verið kenndir grunnkúrsar sem hún hafi verið búin með. „Mér fannst það ekki áhugavert og vildi alls ekki fara heim. Ég var ekkert í skólanum eftir fyrstu tvær vikurnar í Barselóna.“ Hún segir að það hafi verið gam­ an að sjá Barselóna með augum inn­ flytjenda en íslensk vinkona henn­ ar þvældist líka með henni, eins og hún orðar það. „Þetta er mikið götu­ líf. Þetta er einhvern veginn voðalega mikið hippalíf. Fólk er kannski að selja hluti í ákveðinn tíma eða vinn­ ur á kaffihúsi um tíma. Það er svo mikil blanda af fólki hvaðanæva að úr heiminum. Barselóna er yndisleg borg og stemningin er svo skemmti­ leg.“ HIV Inga Dóra fór til Íslands, kláraði þau námskeið á meistarastigi sem þurfti til og hóf samband við Svein Eggerts­ son, lektor í mannfræði við Háskóla Íslands, en þau munu ganga í hjóna­ band í sumar. Hún flutti til Malaví í ársbyrjun 2007. „Ég ætlaði að vera í Malaví í nokkra mánuði til að gera rannsókn­ ina mína í meistaranáminu sem er um konur og HIV. Talið er að um 12% íbúa í Malaví séu smitaðir.“ Dvölin varð lengri eða um tvö ár. Inga Dóra vann að ritgerðinni, lokaverkefni í þróunarfræðum, og fékk auk þess vinnu hjá Þróunarsamvinnustofnun Íslands. Hjónaleysin bjuggu við Apa­ flóa, en þar hafa margir Íslendingar búið sem hafa unnið fyrir stofnunina í Malaví. „Það var dásamlegt að vera þar, tala við konur, þvælast um og stúdera.“ Inga Dóra skrifaði líka um HIV í BA­ritgerð sinni. Hún segir ástæð­ una vera þá að þegar hún kom til Íslands frá Gana hafi hana langað mikið til að segja frá öllu því frábæra sem hún hafði upplifað þar enda hafi það verið mikil lífsreynsla að dvelja þar. „Það truflaði mig þegar fólk var ítrekað að spyrja mig hvort ég vissi að menn nauðguðu hreinum meyjum til að hreinsa sig af HIV. Þessi langlífa sögusögn og fleiri neikvæðar voru það sem fólk vildi tala um, frekar en um jákvæða reynslu mína. Ég fór að stúdera þessar mýtur í sambandi við HIV en það er svo mik­ ið af fordómum og mýtum í sam­ bandi við HIV sem Vesturlandabúar búa til og eiga ekki við rök að styðj­ ast. Það er verið að draga upp mynd af fólki sem ekki veit hvað það er að gera en stjórnast bara af óstjórnlegri kynhneigð sem það ræður ekkert við. Niðurstaða mín er að oft eru dregnir fram alls konar siðir sem eru sagðir stuðla að útbreiðslu HIV og þeir eru kallaðir menningar­ bundnir skaðlegir siðir sem þurfi að breyta eða eyða. Mín niðurstaða er hins vegar sú að þeir siðir sem mest er rætt um eru oft eitthvað sem tíðk­ aðist fyrir mörgum áratugum eða á litlum staðbundnum svæðum. Auð­ vitað á sumt við en alls ekki allt.“ Íslendingar hafa reist sjúkrahús í Malaví þar sem fólk, sem er smitað af HIV, fær lyf sem hafa gjörbreytt lífi þess. „Fólk getur lifað ágætis lífi ef það fær lyf í staðinn fyrir að veslast upp og deyja úr þessum hræðilega sjúkdómi.“ Spurning um stolt Inga Dóra og Sveinn bjuggu í þorpi við Malavívatn og var rennandi vatn einungis í fáum húsum. Inga Dóra segir að innfæddir hafi notað vatn úr Malavívatni til að elda úr, vaska upp, þvo fötin sín og baða sig. Þá var ekk­ ert rafmagn í þorpinu heldur eldaði fólk matinn á hlóðum. „Ef vatnið er ekki soðið nógu vel og börnin drekka það þá geta þau dáið úr niðurgangi. Það er ekki óalgengt.“ Inga Dóra og Sveinn leigðu lít­ inn kofa og tók það um hálftíma að ganga með fram ströndinni að aðal­ þorpinu á svæðinu „Ég hafði ekki neitt fyrir stafni heldur gekk um og athugaði hvort einhver vildi tala við mig. Ég tók mörg formleg viðtöl en það sem veitti mér mestar upplýs­ ingar var þegar ég hitti fólk af tilviljun og fór að spjalla. Ég man að ég var í fyrstu oft spurð hvert ég væri að fara. Það hlógu margir að þessu en þetta var í fyrsta skipti sem þeir hittu hvíta manneskju sem vissi ekki hvert hún var að fara, venjulega var hvítt fólk að fara frá a til b eða gera eitthvað ákveðið.“ Dáist að styrk kvenna Inga Dóra segir að aðstæður kvenna í Malaví séu allt aðrar en í Gana. „Malaví er miklu fátækara land en Gana. Stúlkur eru minna menntað­ ar, atvinnutækifæri eru fá, konur eiga fleiri börn og eru almennt séð miklu bundnari heimilinu. Þar af leiðandi eru færri tækifæri til að standa á eig­ in fótum fjárhagslega þannig að það skiptir konur í Malaví meira máli að giftast mönnum sem geta séð fyrir þeim og fjölskyldum þeirra. Ég dá­ ist virkilega að styrk þessara kvenna. Þetta er ekki auðvelt líf. Þær gera allt með bros á vör og leggja mikinn metnað í að líta vel út. Þótt þær eigi lítinn pening þá hugsa þær um að vera í fallegum og hreinum fötum. Þetta er spurning um stolt.“ Inga Dóra segir að konur í Malaví fæði fimm til sjö börn og að margar líti tortryggnum augum á getnaðar­ varnir. „Það hefur þó breyst mikið á undanförnum tíu árum því konur hafa mikla þörf fyrir að hafa stjórn á barneignum. Þær tala gjarnan um að vegna fátæktar vilji þær ekki eign­ ast fleiri börn. Þær geta fengið horm­ ónasprautur sem duga í um hálft ár og eru þær niðurgreiddar.“ Hvað verjur varðar, bæði með barneignir í huga sem og til að verjast HIV­smiti og öðrum kynsjúkdómum, segir Inga Dóra að í Malaví sé svipað viðhorf og hér á landi. „Sumir spyrja af hverju þeir eigi að borða sælgæti í bréfi og segja að smokkar séu óþægi­ legir. Auðvitað nota margir smokka en það vantar samt upp á. Þá er verið að hvetja fólk til að fara í blóðprufu auk þess sem það fær fræðslu um áhættuþætti.“ Inga Dóra segir að niðurstaða rannsóknarvinnunnar hafi verið sú að ef setja ætti upp þróunarverkefni til að draga úr smiti á HIV þá væri mun árangursríkara að tala við fólkið sjálft og spyrja það hvernig það haldi að HIV­veiran smitist og hvernig hægt sé að vinna gegn smiti. UN WOMEN Inga Dóra flutti til Íslands, hún klár­ aði ritgerðina og hóf störf sem fram­ kvæmdastýra UNIFEM sama dag og hún skilaði ritgerðinni. Í dag heita samtökin UN Women en um er að ræða þróunarsjóð Sameinuðu þjóð­ anna í þágu kvenna. Landsnefnd UNIFEM á Íslandi hefur starfað í 21 ár en landsnefnd­ ir starfa víða um lönd. Tveir starfs­ menn eru á skrifstofunni hér á landi en tugir sjálfboðaliða vinna ýmis störf. „Það er náttúrulega gaman að koma inn í samfélag þar sem fólk er tilbúið að vinna mikið út af ástríðu. Því finnst þetta vera verðugur mál­ staður og það er gefandi að vera í þannig umhverfi.“ Inga Dóra segir að unnið sé að vitundarvakningu með því að halda viðburði til að fræða Íslendinga um stöðu kvenna í þróunarlöndunum og af hverju það skiptir máli að styðja við bak kvenna. „Við leggjum áherslu á að ef við styrkjum konur þá styrkjum við líka börnin þeirra og allt samfélagið. Það dregur úr framleiðslu samfélagsins þegar konur hafa ekki tækifæri til að nýta krafta sína. Við erum líka með réttindagæslu sem felst í að þrýsta á utanríkisráðu­ neytið og ríkisstjórn Íslands að sýna málstaðnum stuðning. Svo erum við í fjáröflun sem heitir Systralagið en það felst í því að hvetja Íslendinga til að greiða ákveðna upphæð mánað­ arlega til að styðja við „systur“ sínar. Lág upphæð í hverjum mánuði getur haft mikil áhrif.“ Fiðrildaáhrifin UN Women á Íslandi verður með fjáröflunarviku í september sem köll­ uð er fiðrildavikan. „Þá ætlum við að vekja athygli á þeirri vinnu sem UN Women sinnir í yfir hundrað löndum og hvetja Íslendinga til að taka þátt í að hafa fiðrildaáhrif, því eins og lít­ ið fiðrildi sem blakar vængjum sín­ um getur haft veðurfarsáhrif í fjar­ lægum löndum getum við greitt lága upphæð mánaðarlega og haft gífur­ leg áhrif á líf kvenna og fjölskyldna þeirra í fjarlægum löndum.“ Inga Dóra segir að UN Women vinni á svolítið sérstakan hátt að því leyti að sá peningur sem safnast í hverju landi fer til höfuðstöðvanna í New York. „Síðan eru það frjáls félagasamtök í þróunarlöndunum sem sækja í þann sjóð. Fólk í lönd­ unum sjálfum skilgreinir því vanda­ málin, kemur með lausnirnar og sækir um fjárhagslegan stuðning til að framkvæma þessi verkefni. Ég tel að árangur verkefna hjá UN Women sé góður af því að þá er unnið í gras­ rótinni.“ Inga Dóra segir að mikil barátta fylgi starfi UN Women. Er hún sjálf baráttukona? „Þegar maður sér eitt­ hvað sem manni finnst vera mikið óréttlæti þá fyllist maður náttúrulega baráttuhug.“ Sólin er enn að slást við skýin. Svava Jónsdóttir Bjó í rastakommúnu í Gana Kærastinn var trommusmiður Verið að smíða jimbe-trommur. Að elda mat með Lífu Mataræðið gat verið einhæft. Hefur ferðast víða Með góðum vinkonum í Malaví. Brúðkaup í Malaví Konur þar hafa ekki jafnsterka stöðu og í Gana. „Við leggjum áherslu á það að ef við styrkjum konur þá styrkjum við líka börnin þeirra og allt samfélagið. „Ég sá konur sem skoðuðu fatatutlur af líkum eiginmanna, bræðra og feðra 15 árum eftir að þeir voru drepnir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.