Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2011, Blaðsíða 26
26 | Fólk 8. júní 2011 Miðvikudagur
Heldur útgáfutónleika í Þjóðleikhúskjallaranum
Húðflúr fyrir Hverja plötu
„Ég tók mér dags fyrirvara í að
ákveða hvað ég ætlaði að fá mér. Ég
á eftir að sjá eftir þessu eftir svona
tólf ár,“ segir rapparinn knái Emmsjé
Gauti sem lét húðflúra á sig nafn
nýrrar plötu sinnar um helgina. „Ég
er með smá tattú-dellu. Það er engin
sérstök ástæða fyrir því að ég lét gera
þetta önnur en sú að ég var búin að
plana að ef ég gæfi út disk þá myndi
ég fá mér eitthvað í tengingu við það.
Þetta er svo sem ekkert djúp ástæða
önnur en sú að ég er að gefa út plötu
og ákvað að nýta tækifærið fyrst það
voru svona færir „artistar“ á land-
inu,“ segir hann en þetta er ekki eina
húðflúrið sem hann ber: „Þetta er
sjötta tattúið sem ég fæ mér. Ég er að
eyðileggja líkama minn,“ segir hann
og hlær. Hann segir þó ekki ólíklegt
að hann endurtaki leikinn ef hann
gefur út fleiri plötur. „Þá verð ég bara
að bomba fleiri tattúum á mig. Þetta
er engan veginn búið, það er nóg
pláss eftir. Þó ég sé lítill þá er samt al-
veg nóg pláss eftir. Ég kem alveg öll-
um plötum sem ég mun gefa út áður
en ég drepst á líkamann,“ segir Gauti.
Tímamótaverk
Platan hans Emmsjé Gauta kemur út
10. júní og er gefin út af Geimsteini.
Gauti er ánægður með gripinn:
„Platan er geðveik. Fólk er að flokka
þetta með Thriller og Dark Side of
the Moon. Þetta er tímamótverk.
Þetta er svona plata sem fólk á eftir
að taka coverið og ramma það inn
og setja upp á vegg – þetta er þann-
ig plata,“ segir hann á léttu nótun-
um. Mikil vinna liggur að baki plöt-
unni og margir koma við sögu við
vinnslu hennar. „Ég er búinn að vera
að vinna í henni í svona eitt og hálft
ár. Aðalpródúsentarnir á bak við mig
eru Gnúsi Yones og Redd Lights.“
Útgáfutónleikar
Emmsjé Gauti ætlar að fagna út-
gáfunni með tónleikum í Þjóðleik-
húskjallaranum á fimmtudagskvöld
og hefst gleðin klukkan 21.30 og
kostar litlar 1.000 krónur inn. „Þetta
er geðveikt „venue“ og það hafa
ekki verið margir hip hop-tónleikar
þarna undanfarið. Síðan koma allir
fram sem koma fram á plötunni. Það
eru Blaz Roca, Frikki Dór, Bernd-
sen, Rósa Sometime, Leifur ljósvaki,
Gnúsi Jones, Dabbi T og Intro Beats
er svo dj kvöldsins. Síðan sjá Diddi
Fel og Class B úr Forgotten Lores um
upphitun,“ segir Emmsjé Gauti og
lofar mikilli stemningu á tónleikun-
um. viktoria@dv.is
Húðflúrið Gauti
ætlar að fá sér eitt
húðflúr fyrir hverja
plötu sem hann
gefur út.
Með listamanninum Gauti og
Chip Baskin frá Alabama sem á
heiðurinn af húðflúri Gauta.
Elma Lísa
á súlunni
Leikkonan Elma Lísa Gunnars-
dóttir kynnti sér nýtt listform í vik-
unni – súludans. Elma skellti sér,
samkvæmt Facebook-síðu hennar,
í súluformstíma. Elma segir frá því
á síðunni að þetta hafi ekki verið
auðveldur tími og hún muni aldrei
„dissa“ þetta listform, eins og hún
orðar það. Þetta eru ekki fyrstu
danssporin sem Elma stígur á æv-
inni en hún var einn þekktasti Free-
style-dansari landsins á sínum yngri
árum og vann Freestyle-keppni
Tónabæjar oftar en einu sinni.
Jói genginn
í það heilaga
Útvarps- og veitingamaðurinn Jóhannes
Ásbjörnsson, eða Jói eins og hann er
betur þekktur, gekk í það heilaga um
helgina með unnustu sinni til margra ára,
Ólínu Jóhönnu Gísladóttur. Brúðkaupið
fór fram í Háteigskirkju og veislan var
haldin í Hörpu. Sigmar Vilhjálmsson,
besti vinur og samstarfsfélagi Jóa, sá um
veislustjórn og lék á als oddi. Mikið stuð
var í veislunni og dönsuðu gestir undir
dúndrandi tónum frá hljómsveitinni
Vinum Sjonna.
Kristrún Ösp fyrirsæta og Sveinn Andri lögfræðingur hætt saman:
„Þetta er bara eins og gengur og ger-
ist, það gengur ekki allt upp,“ segir
fyrirsætan Kristrún Ösp Barkardótt-
ir um sambandsslit sín og Sveins
Andra Sveinssonar lögfræðings.
Kristrún staðfesti sambandsslitin
í samtali við DV en vildi ekkert tjá
sig frekar um þau. Skömmu seinna
skrifaði Kristrún svo á Facebook-síðu
sína: „Ég staðfesti sambandsslit okk-
ar Sveins, það er engin gremja eða
leiðindi enda sofum við enn í sama
rúmi og okkur heilsast báðum vel.“
Samband Kristrúnar og Sveins
Andra vakti mikla athygli þegar þau
tóku saman í vor. Kristrún staðfesti
að hún og Sveinn ættu í ástarsam-
bandi í byrjun apríl en hún sagðist
þá vera „mjög hamingjusöm“. Sveinn
Andri tjáði sig einnig um sambandið
og sagði þau vera ástfangin en vildi
ekkert segja frá því hvernig þau
kynntust.
Sambandið vakti ekki síst athygli
vegna þess að mikill aldursmunur er
á Kristrúnu og Sveini eða 27 ár. Krist-
rún er fædd árið 1990 en Sveinn árið
1963 og er hann tveimur árum eldri
en faðir hennar. Sveinn Andri lét það
ekki á sig fá og vitnaði í ummæli grín-
istans Groucho Marx þegar umræð-
an stóð sem hæst: „A man is only as
old as the woman he feels.“
Sveinn Andri hefur ekki tjáð sig
um sambandsslitin en hann breytti
þó hjúskaparstöðu sinni á Facebook
í einhleypur. Vinir lögfræðings-
ins voru duglegir við að hughreysta
hann og skrifuðu ummæli eins og:
„Knús gamli“ og „Þú harkar þetta af
þér!“.
Kristrún er ekki óvön því að vera
með sér eldri mönnum en hún átti
um langt skeið í ástarsambandi við
knattspyrnugoðsögnina Dwight
Yorke. Yorke, sem er fæddur 1971,
gerði garðinn frægan meðal ann-
ars með stórliði Manchester United.
Kristrún fór iðulega út að hitta Yorke
sem kom fram við fyrirsætuna eins
og prinsessu.
Kristrún hefur þó ekki bara ver-
ið með eldri mönnum því áður en
hún kynntist Sveini fann hún ástina
í örmum Stefáns Lárusar Reynisson-
ar. Stefán er tveimur árum yngri en
Kristrún og sagði hún í samtali við
DV á sínum tíma: „Ég hef komist að
því að peningar og frægð hafa ekkert
í það að vera ástfangin.“ Ástin entist
þó ekki lengi og hættu þau saman á
sjálfan Valentínusardaginn. Krist-
rún sagðist ekki hafa séð eftir því að
hafa verið í sambandinu heldur hafi
það hjálpað henni að átta sig á því
sem hún í raun vissi alltaf: „Ég þarf
alvörukarlmann og get ekki sætt mig
við neitt minna.“
Sofa ennþá
í a rú i
Sveinn Andri
Er aftur orðinn
piparsveinn.
Kristrún Ösp
„Það gengur
ekki allt upp.“