Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2012, Síða 4
4 Fréttir 16. maí 2012 Miðvikudagur
Skilorð og sekt fyrir hundsdráp
n Sigurður Daðason dæmdur fyrir að drekkja hundinum Kol
T
uttugu og sjö ára karlmaður,
Sigurður Daðason, var á
mánudag dæmdur í 30 daga
skilorðsbundið fangelsi í Hér-
aðsdómi Vestfjarða fyrir að hafa
drekkt hundinum sínum Kol með
hrottafengnum hætti á Þingeyri í
desember síðastliðnum. DV sagði
fyrst frá og hefur fjallað ítarlega
um málið síðan það kom upp en
hundshræið fannst bundið við tvö
bíldekk af gerðinni Federal Fermoza,
sem voru á álfelgum, í Þingeyrarhöfn
þann 8. desember. Samkvæmt ákæru
málsins er talið að Sigurður hafi
bundið hundinn einhvern tímann
á tímabilinu 5.–8. desember síðast-
liðinn og kastað honum í sjóinn við
vegbrú í botni Dýrafjarðar.
Í dómi Héraðsdóms Vestfjarða er
einnig kveðið á um að Sigurður verði
sviptur heimild til að hafa dýr í sinni
umsjá, versla með þau eða sýsla með
öðrum hætti næstu fimm árin. Þá
er honum gert að greiða 100 þús-
und krónur í sekt til ríkissjóðs vegna
brotsins. Við ákvörðun refsingar var
sérstaklega litið til þess að Sigurður
ákvað ekki einungis að aflífa dýrið
sjálfur í bága við lög heldur notaði
hann aðferð sem dómurinn taldi í
hrópandi andstöðu við lög um dýra-
vernd. Taldi dómurinn hann hafa
haft skýran ásetning til að fremja
brotið. Sigurður játaði brot sitt og var
það talið honum til refsilækkunar.
DV hefur greint frá því að Sigurði
hafi verið hótað í netheimum og þá
sérstaklega á Facebook-síðu sem
stofnuð var sérstaklega til að nafn-
greina og birta myndir af fólki sem
gerst hefur sekt um að níðast á dýr-
um. Þá hefur DV heimildir fyrir því
að Sigurður og sambýliskona hans
hafi ekki átt sjö dagana sæla á Þing-
eyri síðan málið kom upp.
F
járfestarnir Árni Hauksson og
Friðrik Hallbjörn Karlsson hafa
gengið frá sölu á samtals rúm-
lega 5 milljónum hluta í smá-
sölurisanum Högum til fjár-
festingarfélagsins Draupnis. Um var
að ræða hluti sem áður voru í eigu
samlagsfélagsins Búvalla sem er að
stærstu leyti í eigu þeirra Árna og Hall-
björns. Draupnir er í eigu Jóns Dið-
riks Jónssonar fjárfestis sem er einna
þekktastur fyrir störf sín fyrir Glitni á
árunum fyrir hrunið 2008. Þetta kem-
ur fram í tilkynningum til Kauphallar-
innar á þriðjudaginn.
Í viðskiptunum felst að eignar-
haldsfélag Jóns Diðriks leysir til sín
hluti í Högum sem félagið á tilkall til
vegna eignarhalds síns í Búvöllum
slhf. Í tilkynningunni til Kauphallar-
innar kemur fram að viðskiptin séu í
samræmi við það markmið að tryggt
sé dreift eignarhald á Högum. „Þessi
viðskipti eru í samræmi við markmið
Búvalla slhf. um dreift eignarhald á
Högum hf.“ Verðmæti hlutar Draupn-
is í Högum er rúmlega 90 milljónir
króna.
Hagar eiga og reka verslanir eins og
Bónus, Hagkaup, Útilíf og fleiri. Smá-
sölukeðjan er sú stærsta á Íslandi.
Fáir eftir í Búvöllum
Einungis tveir hluthafar eru nú eftir í
Búvöllum þegar Draupnir hefur leyst
til sín hlut sinn en um er að ræða eign-
arhaldsfélögin Hagamel, sem er í eigu
Árna, Hallbjörns, Sigurbjörns Þor-
kelssonar og Tryggingamiðstöðvar-
innar, og eignarhaldsfélagið Miröndu,
sem er í eigu Berglindar Jónsdóttur.
Berglind er ein af Sjólasystkinunum
svokölluðu sem ráku útgerðina Sjóla-
skip í Vestur-Afríku þar til árið 2007.
Um tíma héldu Búvellir utan um
44 prósenta hlut í Högum en meðal
eigenda félagsins voru nokkrir lífeyr-
issjóðir og sjóður Arion banka, Stefn-
ir. Þessir aðilar hafa klofið sig út úr
hluthafahópi Búvalla síðustu mánuði,
lífeyrissjóðirnir í nóvember og Stefnir
í lok janúar síðastliðinn. Hagamelur
á tæplega 11 prósenta hlut í Högum
en Miranda innan við prósent. Árni
Hauksson, sem er stjórnarformaður
Haga, hefur gefið það út opinberlega
að hluthafar Búvalla hafi alltaf ætlað
að leysa til sín hluti sína í Búvöllum og
halda utan um þá persónulega.
Tæplega 550 milljónir í arð
Ársuppgjör Haga fyrir síðasta
rekstrar ár var kynnt í lok síðustu
viku. Rekstrar ári Haga lýkur í febrúar.
Hagnaður fyrirtækisins nam rúmlega
2,3 milljörðum króna og jókst vöru-
sala um nærri 1,5 milljarð á milli ára
– endaði í tæplega 68,5 milljörðum
króna. Þá var greint frá því að til stæði
að greiða hluthöfum Haga arð upp á
samtals tæpar 550 milljónir króna.
Hagamelur, félag Árna og Hallbjörns,
mun því fá rúmlega 10 prósent af
þeirri upphæð.
Ekki náðist í Árna, Hallbjörn eða
Jón Diðrik á þriðjudaginn.
Jón leysir til sín
hlutinn í Högum
n Félag Árna og Hallbjörns fær rúmlega 55 milljóna arð„Þessi viðskipti eru í
samræmi við mark-
mið Búvalla slhf. um dreift
eignarhald á Högum hf.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Fá arð upp á rúmar 55 milljónir
Eignarhaldsfélag Árna Haukssonar og
Friðriks Hallbjörns Karlssonar fær arð
frá Högum upp á rúmlega 55 milljónir
króna. Einungis tveir hluthafar eru nú
eftir í samlagsfélaginu Búvöllum.
Hlaut sex mánaða dóm:
Misnotaði
systurdóttur
sína
Karlmaður var á þriðjudag
dæmdur í sex mánaða fangelsi,
þar af þrjá mánuði skilorðsbund-
ið, í Héraðsdómi Suðurlands fyrir
að misnota fjögurra ára systur-
dóttur sína kynferðislega. Auk
þess var hann sakfelldur fyrir að
eiga rúmlega þrjú þúsund barna-
níðsmyndir á tölvu sinni. Mað-
urinn játaði brot sín að hluta en
þau framdi hann í nóvember árið
2010 þegar hann gætti stúlkunnar.
Meðal þess sem maðurinn játaði
var að hafa snert kynfæri stúlk-
unnar.
Í skýrslu sálfræðings um
þroska, hvata og almennt heil-
brigðisástand mannsins kom fram
að maðurinn sé talinn misþroska
þar sem talsverður munur hafi
mælst á milli verklegs og málfars-
legs hluta greindarprófs sem hann
var látinn undirgangast. Félags-
legur skilningur mannsins var þó
sagður ágætur í skýrslunni þrátt
fyrir að hann væri einangraður og
mjög óöruggur í samskiptum við
annað fólk.
Þrátt fyrir þetta var talið að
maðurinn gerði sér grein fyrir því
að kynlíf á milli barna og fullorð-
inna væri ólöglegt. Ljóst þótti hins
vegar að maðurinn hafi kynferðis-
legan áhuga á stúlkubörnum og
að hann hafi haft hann í mörg ár.
Samkvæmt áhættumati er lítil
eða miðlungs hætta talin á að
maðurinn fremji frekari kynferð-
isbrot. Er talin mest hætta á að
maðurinn leiti á börn þegar hon-
um gefst færi til þess en ólíklegt að
hann muni leita sérstaklega eftir
því að nálgast börn utan heimilis
síns eða skipuleggi það sérstak-
lega. Í sálfræðiskýrslunni er það
hins vegar talið líklegt að hann
noti barnaklám aftur.
Sérstaklega var minnst á það
í dómnum að rannsókn lögreglu
hafi verið ábótavant vegna barna-
níðsmyndanna sem hann var
með í tölvu sinni og að rannsókn
málsins hafi legið niðri um nokk-
urra mánaða skeið. Þá var einnig
sérstaklega litið til þess að mað-
urinn hafi verið samvinnuþýður,
að hann hafi ekki brotið af sér
áður og að hann hafi játað brot
sitt þegar ákvörðun var tekin um
refsingu.
Grimmúðlegt Svona fannst hundurinn Kolur
í Þingeyrarhöfn í desember síðastliðnum.