Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2012, Blaðsíða 6
6 Fréttir
Athugasemd
frá Kára Arnóri
Kári Arnór Kárason, fram-
kvæmdastjóri lífeyrissjóðsins
Stapa, hefur sent DV athuga-
semd vegna fréttar sem birt-
ist í blaðinu á mánudag. Þar
var fjallað um laun Kára sem
hækkuðu um 15,6 prósent árið
2011 frá árinu 2010. Árslaun
Kára árið 2010 voru rétt rúmar
fjórtán milljónir króna en árið
2011 voru þau 16,6 milljónir
króna.
„Þegar undirritaður tekur
sæti í stjórn félags eða samtaka
og þiggur þaðan stjórnarlaun,
dragast þau laun frá launum
mínum hjá sjóðnum. Þetta er
gert til að ég hafi ekki efna-
hagslegan ávinning af stjórnar-
setum. Ef ég geng úr slíkum
stjórnum hækka laun mín hjá
sjóðnum að sama skapi. Í lok
árs 2010 og byrjun árs 2011
gekk ég úr tveimur slíkum
stjórnum og hækkuðu laun
mín hjá sjóðnum þá um það
sem nam stjórnarlaunum hjá
þessum félögum. Að öðru leyti
voru laun mín lækkuð um 10%
eftir hrun og hafa síðan fylgt
almennum launabreytingum,“
segir Kári.
Rétt er að taka fram að DV
hafði samband við Kára áður
en fréttin birtist en hann gaf
blaðamanni ekki færi á að bera
upp erindið við sig.
Egill Einarsson alvarlega veikur:
Gillz í
góðum
höndum
„Það er mjög svipað ástandið á
honum, þetta er allt á réttri leið,“
segir Ester Ásbjörnsdóttir, móðir
Egils Einarssonar, í samtali við
DV en sonur hennar var fluttur á
sjúkrahús á laugardag með heila-
himnubólgu. Ester greindi frá því
í samtali við DV á mánudag að
Egill væri kominn af gjörgæslu og
kominn úr lífshættu.
Ester segir starfsfólk Landspít-
alans hugsa vel um Egil en hann
mun hafa verið með lungna-
bólgubakteríu sem orsakaði
heilahimnubólguna.
„Það er góð umönnum hérna.
Það er gott fólk að hugsa um
hann og er þetta allt til fyrir-
myndar,“ segir Ester.
Egill veiktist skyndilega á laug-
ardagsmorgun og var fluttur á
sjúkrahús eftir hádegi og að sögn
móður hans var það í raun fyrir
snarræði fjölskyldumeðlima sem
það var gert.
Heilahimnubólga er bólga í
himnum sem umlykja heilann
sem oftast orsakast af sýkingu af
völdum veiru eða bakteríu. Sam-
kvæmt Vísindavefnum er heila-
himnubólga af völdum bakteríu,
líkt og hjá Agli, sjaldgæfari, en
„hins vegar yfirleitt mjög alvar-
leg og án meðferðar deyja lang-
flestir.“
Þ
að gerist eitthvað mjög al-
varlegt þessa nótt, hann
snappar algjörlega. Það
hefði engum dottið í hug að
hann myndi gera eitthvað
svona tveimur dögum fyrr. Þetta var
bara eins og léleg hryllingsmynd,“
segir Guðný Björk Guðjónsdóttir en
aðfaranótt 21. apríl réðst piltur á átj-
ánda ári á dóttur hennar sem er fyrr-
verandi unnusta föður hans. Piltur-
inn stakk konuna ítrekað með hníf
en árásin átti sér stað í kjallaraíbúð
konunnar sem hún leigir í sama húsi
og pilturinn bjó í ásamt föður sínum.
Konan hafði verið í sambandi með
föður piltsins og hefur þekkt piltinn
frá því að hann var 11 ára. Hún og
faðir piltsins slitu samvistir fyrir um
tveimur árum, en hefur verið vel til
vina.
Frjáls ferða sinna
Konan komst lífs af en hún barðist
hetjulega gegn piltinum sem sagðist
ætla að nauðga henni og síðan drepa.
Vegna ungs aldurs er ekki hægt að úr-
skurða piltinn í gæsluvarðhald vegna
almannahagsmuna. Lögreglan fer
nú með rannsókn málsins og er pilt-
urinn á ábyrgð barnaverndaryfir-
valda. Samkvæmt heimildum DV
dvelur pilturinn heima hjá móður
sinni og þremur yngri systkinum, en
grunur leikur á að pilturinn eigi við
geðræna erfiðleika að stríða. Á með-
an lögreglan rannsakar málið er pilt-
urinn frjáls ferða sinna. Fórnarlamb
piltsins útskrifaðist nýlega af sjúkra-
húsi en hún þurfti að gangast undir
stóra aðgerð vegna áverka sinna.
Á leið úr landi
Guðný Björk undrast að pilturinn
sem réðst á dóttur hennar með hníf
gangi laus aðeins þremur vikum eft-
ir atburðinn. Guðný og dóttir hennar
eru nú á leið úr landi, en þær finna
fyrir ótta og telja sig ekki vera örugg-
ar í þeim aðstæðum sem þær eru nú.
„Það virðist vera að vegna þess að
hann er 17 ára þá sé hann undir eft-
irliti barnaverndar og manni finnst
dálítið eins og það sé ekki horft á
alvarleika glæpsins. Það er eins og
réttarkerfið geri ekki ráð fyrir svona
háalvarlegum atburðum hjá svona
ungum gerendum,“ segir Guðný
og bendir á að aðeins eru nokkrir
mánuðir þangað til pilturinn verður
18 ára og þá hefði hann verið með-
höndlaður sem fullorðinn. „Af því að
hann er 17 ára virðast ekki vera nein
úrræði.“
„Við erum ekki öruggar hér“
Sérfræðingar á vegum barnaverndar
hafa metið piltinn og telja hann ekki
vera hættulegan umhverfi sínu. Þrátt
fyrir það hefur Guðný efasemdir um
öryggi sitt. „Það sem okkur finnst svo
óhuggulegt er að hann er látinn laus
þremur vikum eftir þennan hrika-
lega atburð bara af því hann er 17
ára. Það eru einhverjir sérfræðingar
sem meta hann ekki hættulegan en
hvernig geta menn verið öruggir um
það að hann fái ekki eitthvað svona
kast aftur. Við þorum ekki annað en
að vera með vernd og við ætlum bara
að fara til útlanda að jafna okkur. Við
erum ekki öruggar hér.“
Dóttir Guðnýjar hefur hvorki náð
sér andlega né líkamlega eftir árás-
ina. Hún þjáist af áfallastreituröskun
í kjölfar árásarinnar og þarf enn
að taka sterk verkjalyf vegna þeirra
áverka sem hún hlaut. Guðný segir
það kraftaverk að ekki hafi farið verr
og að atburðir næturinnar hafi minnt
á lélega hryllingsmynd. „Það er ekki
honum að þakka að hann er ekki
morðingi í dag, það er dóttur minni
að þakka, hún var svo mikil hetja.“
Eru aldrei einar
Guðný segir atburðinn vera harm-
leik en hún hafi samúð með piltin-
um. „Hann sér víst eftir þessu og er
alveg miður sín. Ég hef samúð með
þessum pilti, það er ekki það. Þetta
er auðvitað algjör tragedía fyrir báð-
ar fjölskyldur. En það er bara þetta
að það er svo stuttur tími liðinn frá
verknaði og hann er laus. Mér finnst
við bara ekki vera öruggar. Enginn
gerði ráð fyrir að þetta gerðist og hver
getur verið öruggur um að þetta ger-
ist ekki aftur. Hann hlýtur að gangast
undir einhvers konar geðrannsókn
og það tekur allt svolítinn tíma og
ég treysti því ekkert að hann sé bara
læknaður. En við erum að fara út eftir
nokkra daga, erum bara að undirbúa
það og við erum aldrei einar.“
Verður að uppfylla lagaskilyrði
Bragi Guðbrandsson, forstjóri
Barnaverndarstofu, segir að samspil
tveggja laga eigi við í þessum efnum.
Annars vegar sé það sakamálaþátt-
urinn sem lögreglan fer með og svo
barnaverndarþátturinn. „Lögreglan
hefur heimildir til þess að halda ein-
staklingum í gæsluvarðhaldi eftir al-
varleg brot. Lagaskilyrðin eru í raun
tvenns konar. Annars vegar er hægt
að halda mönnum í gæsluvarðhaldi
á grundvelli rannsóknarhagsmuna,
en hins vegar á grundvelli almanna-
hagsmuna, það er að segja ef álit-
ið er að viðkomandi sé hættulegur
sjálfum sér eða öðrum. Almennt í
málum sem þessum er það lögregl-
an sem metur hvort lagaskilyrði séu
uppfyllt til að fara fram á gæsluvarð-
hald. Ef hún telur það ekki vera þá er
viðkomandi einstaklingur laus þang-
að til barnaverndarnefnd tekur mál-
ið í sínar hendur.“
Markmiðið að veita stuðning
Barnaverndarnefnd í því sveitar-
félagi sem einstaklingurinn býr í fer
því næst yfir málið og leggur mat á
hvaða úrræði komi til greina. „Þar er
markmiðið svolítið annað en varð-
andi sakamálaþáttinn. Markmið
barnaverndarlaga er að veita viðeig-
andi stuðning fyrir einstaklinginn
og þá kemur ýmislegt til greina. Til
dæmis að vista viðkomandi á stofn-
un eins og Stuðlum eða þá að beita
öðrum úrræðum eins og sálfræði-
viðtölum eða öðrum aðferðum sem
eru talin þjóna hagsmunum hans
best. Þegar um svona alvarleg brot er
að ræða lætur lögreglan alltaf fram-
kvæma geðrannsókn á viðkomandi.
Ég ímynda mér úr því að hann er lát-
inn laus þá hafi niðurstaða þeirrar
rannsóknar ekki verið þess eðlis að
lögregla hafi talið ástæðu til að fara
fram á gæsluvarðhald. En þetta er í
verkahring lögreglunnar, ekki barna-
verndarnefndar.“
Mæðgur flýja
land eftir
hnífsstungur
n 17 ára drengur laus eftir að hafa stungið konu 12 sinnum með hníf
„Þetta var bara eins
og léleg hryllings-
mynd.
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
16. maí 2012 Miðvikudagur
Upplifir ótta Guðný Björk Guðjónsdóttir, móðir konunnar sem stungin var, segir þær
mæðgur upplifa ótta á meðan pilturinn hefur ekki fengið úrlausn sinna mála.