Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2012, Síða 8
8 Fréttir
DV í hýsingu
hjá Advania
Útgáfufélagið DV hefur sam-
ið við Advania um hýsingu fyrir
fréttavef fyrirtækisins, DV.is. Við
undirbúning samstarfsins var lögð
mikil áhersla á afköst, áreiðan-
leika, uppitíma og hátt öryggisstig.
„Hnökralaus uppitími DV.is er eitt
af meginatriðunum í okkar rekstri,
enda er þetta þriðji fjölsóttasti
vefur landsins í dag, samkvæmt
mælingum. Það hentar okkur hjá
DV að eiga í nánu samstarfi við
trausta þjónustuaðila,“ segir Reyni
Traustason, ritstjóri DV. „Við hjá
Advania höfum ekki marga við-
skiptavini með stífari kröfur um
öruggan rekstur og uppitíma en
DV, sem er einn öflugasti fjölmiðill
og netmiðill landsins. Við höfum
að undanförnu bætt mjög við
uppbyggingu okkar á sviði hýsing-
ar og netkerfa og að vissu leyti sér-
hæft okkur í rekstri álagsþungra
vefsvæða. Við leggjum mikið upp
úr því að vera í fararbroddi hér á
landi þegar kemur að hýsingu og
sérhæfðum netbúnaði fyrir álags-
þung vefsvæði með mikla umferð,“
segir Eyjólfur Magnús Kristinsson,
framkvæmdastjóri rekstrarlausna
hjá Advania.
Lést á Esjunni
Maðurinn sem varð bráðkvaddur í
Esjuhlíðum á sunnudag hét Kjart-
an Jónsson. Kjartan var 59 ára og
starfaði sem rafmagnsverkfræð-
ingur hjá Símanum. Kjartan var
ekkill og lætur eftir sig tvö upp-
komin börn, þrjú barnabörn og
aldraða foreldra.
Kjartan var í fjallgöngu á Esj-
unni á sunnudaginn þegar hann
veiktist skyndilega. Björgunar-
sveitarmenn voru fluttir með
þyrlu Landhelgisgæslunnar í
hlíðar Esju, en aðrir göngumenn
tilkynntu Neyðarlínu um veik-
indi mannsins. Þyrla Landhelgis-
gæslunnar átti í erfiðleikum með
að athafna sig á svæðinu vegna
veðurs og þurfti frá að hverfa eftir
að björgunarsveitarmenn voru
komnir á Esjuna.
Þ
etta var bara greinileg smöl-
um af hálfu prestsins inn á
fundinn,“ segir Ragnar Bern-
burg, sem sat í safnaðarráði
Fríkirkjunnar. „Hann var
búinn að safna öllu sínu já-fólki allt
í kringum sig á fundinn. Það var allt
afgreitt einn, tveir og sjö, keyrt í gegn
og allir klöppuðu. Þetta var alveg
ótrúlegt,“ segir Ingunn Hafdís Þor-
láksdóttir, fyrrverandi varaformaður
safnaðarráðs Fríkirkjunnar, um aðal-
fund safnaðarráðsins sem fram fór
síðastliðið mánudagskvöld.
Deilur innan safnaðarins
Eins og DV hefur sagt frá hafa um
nokkurt skeið verið deilur innan
safnaðarins. Snúa þær að því að að-
ilar innan hans hafa verið ósáttir við
Hjört Magna Jóhannsson, sóknar-
prest í Fríkirkjunni, og saka hann
um að vera ósamvinnufúsan og taka
samstarfsfólk sitt fyrir, jafnvel leggja
það í einelti. Deilurnar náðu há-
marki þegar fjórir af sjö meðlimum
safnaðarráðs kirkjunnar sögðu sig úr
ráðinu. Á aðalfundinum á mánudag-
inn var kosið í nýtt safnaðarráð.
Safnaðarráðsmeðlimirnir fyrr-
verandi sögðust hafa reynt að fá
vinnufrið og samstarfsvilja frá Hirti
Magna í mörg ár án árangurs. Korn-
ið sem fyllti mælinn hefði verið það
að Hjörtur Magni mun hafa sagt
að hann vildi losna við séra Bryn-
dísi Valbjarnardóttur sem einnig er
prestur í Fríkirkjunni.
„Slúðurkerlingar og gula
pressan“
Blaðamaður DV mætti á aðalfund-
inn en var vísað út úr kirkjunni með
þeim orðum að einungis þeir sem
væru skráðir í söfnuðinn gætu ver-
ið á fundinum og blaðamenn væru
ekki velkomnir. Ingunn segist ekki
vita til þess að fólki hafi verið vísað
frá aðalfundi áður en Hjörtur Magni
mun vera mjög ósáttur við umfjöll-
un DV um deilurnar í kirkjunni. Hef-
ur hann meðal annars gert slúður-
konur safnaðarins og gulu pressuna
að umtalsefni í predikun hjá sér en
nokkrir af þeim sem DV hafði sam-
band við telja það vera afar ósmekk-
legt af prestinum að tala um slíkt í
predikun. „Þarna sé ráðist gegn pers-
ónum,“ eins og einn viðmælandi
blaðsins orðaði það og það sé ekki
hlutverk presta.
Við gerð fréttarinnar var reynt að
hafa samband við Hjört Magna sím-
leiðis en hann vildi ekki tjá sig við
blaðið. „Ég get ekki talað við þig, þið
búið bara til fréttir. Vertu bless,“ sagði
hann og skellti á blaðamann.
Misskilningur
Fundurinn á mánudagskvöld var
afar fjölmennur. Það mun vera ný-
lunda á aðalfundi sem hafa yfirleitt
verið mjög fámennir. „Yfirleitt hefur
það bara verið safnaðarráð, kórinn
og starfsfólk kirkjunnar sem mætir á
aðalfundinn þannig að þetta var al-
veg ótrúlegt og augljóst að hann var
þvílíkt búinn að safna liði á fundinn,“
segir Ingunn.
Jakob Frímann Magnússon var
einn þeirra sem stigu í pontu. Hann
hefur verið í söfnuðinum frá 12 ára
aldri en segist þó ekki vera mjög
kirkjurækinn. Hann segist telja að öll
deilumál innan kirkjunnar hafi verið
leyst á fundinum. „Fundinum lykt-
aði farsællega og ég vona að þetta
nái góðri lendingu. Magni er öflugur
leiðtogi og það getur stundum gust-
að um slíka menn sem taka af skar-
ið. Ég held að það kunni að hafa gætt
ákveðins misskilnings um hlutverk
safnaðarráðsins. Ég held það hafi
komið fram á þessum fundi. Það hafi
einhver talið að það ætti að vera jafn-
ræði með sjálfum sóknarprestinum
og sóknarmanninum og svo nýráðn-
um aðstoðarmanni, ég held að það
hafi aldrei staðið til og misskilning-
urinn liggi þar. Að þarna væru tveir
prestar hlið við hlið og væru báðir
að ráða sér sjálfir. Samkvæmt reglun-
um er afgerandi forystuhlutverk ætl-
að þeim sem fyrir var og er búinn að
byggja söfnuðinn upp úr því að vera
örsöfnuður yfir í að vera 10 þúsund
manna fjöldahreyfing,“ segir Jakob
Frímann og tekur fram að hann sé
mjög ánægður með það starf sem
Hjörtur hafi innt af hendi innan safn-
aðarins.
Ekki sátt við prestinn
Birgir Rafn Gunnarsson, fyrrverandi
safnaðarráðsmeðlimur, tekur ekki í
sama streng og Jakob Frímann. Hann
telur mikla óánægju ríkja innan safn-
aðarins og tók til máls á fundinum
þar sem hann sagði meðal annars
að Hjörtur ætti að vera prestur allra
í söfnuðinum, ekki sumra. „Það eru
átök í söfnuðinum. Þetta er leið-
indamál og okkur fríkirkjufólki öllu
til skammar. Að geta ekki verið í sátt
og samlyndi hvert við annað. Fólk er
ekki sátt við prestinn og það breytt-
ist ekkert á fundinum. Það var sátt
um það að sameinast um að vinna
í sameiningu að málum en þá verð-
ur presturinn að sýna einhvern lit.
Hann getur ekki bara hundsað þá
sem eru ekki sammála honum og
heilsað sumum sóknarbörnum og
öðrum ekki,“ segir Birgir.
Lögðu fram breytingatillögu
Birgir ásamt Ragnari Bernburg lagði
fram tillögu á fundinum um breyt-
ingu á lögum safnaðarins. Þeir vilja
meðal annars breyta því að það það
þurfi undirskriftir 1/5 safnaðarmeð-
lima til að hægt sé að segja prest-
inum upp. Nú sé það þannig að
presturinn sé sjálfkjörinn eftir sex
ár sé honum ekki sagt upp. „Safn-
aðarlögin eru frá 2001 og eru mein-
gölluð. Presturinn hefur alltof mik-
il völd sem hann á ekki að hafa. Svo
getur safnaðarráðið ásamt formanni
einnig rekið prestinn en það telur sjö
manns,“ segir Birgir. „Við lögðum til
að nýkosið safnaðarráð færi í gegn-
um lögin og endurskoðaði þau, gerði
þau heildstæðari og þau yrðu skýr-
ari og auðveldari í allri framkvæmd.
Að okkar mati eru þau ekki nægilega
skilvirk,“ segir Ragnar.
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is
„Það eru átök
í söfnuðinum“
16. maí 2012 Miðvikudagur
n Segja sóknarprestinn hafa smalað fólki á aðalfund safnaðarráðs
Hjörtur Hjörtur Magni stóð í dyrunum
og heilsaði þeim sem komu á fundinn.
Blaðamanni var hent út af fundinum og
ljósmyndara ekki leyft að fara inn.
MYND:PRESSHOTOS.BIZ
Gengu út Sólrún, Steindór og Ingunn Hafdís sögðu sig úr safnaðarráði Fríkirkjunnar vegna
þess að þau voru ósátt með Hjört Magna.