Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2012, Side 10
10 Fréttir 16. maí 2012 Miðvikudagur
S
amanlagður hagnaður
tveggja íslenskra eignar
haldsfélaga í eigu Samherja
sem halda utan um eignar
hluti fyrirtækisins í útgerð
inni Kötlu Seafood á Kanaríeyjum
nemur tæplega 139 milljónum doll
ara. Þetta eru tölur sem fram koma
á ársreikningum eignarhaldsfélag
anna tveggja, Mercury Seafood ehf.
og Polaris Seafood ehf., á árabilinu
2007 til 2010. Þessi tvö félög eiga
dótturfélögin Miginato Holdings og
Fidelity Bond Investments sem aftur
eru skráðir eigendur útgerðarinnar
á Kanaríeyjum. Útgerðin á Kanarí
eyjum stundar fiskveiðar við vestur
strönd Afríku.
Miðað við gengi dollarans um
þessar mundir nemur þessi upp
hæð tæplega 17,6 milljörðum króna
en þegar upphæðin er reiknuð út
frá gengi krónunnar í lok árs 2008
nemur hún tæplega 16,7 milljörðum
króna. Mestur var hagnaður félag
anna tveggja árið 2008 en þá nam
hagnaður Mercury Seafood rúmlega
62 milljónum dollara, nærri 7,5 millj
örðum króna, og hagnaður Polaris
Seafood tæplega 37 milljónum doll
ara, um 4,4 milljörðum króna. DV
hefur fjallað um þessa útgerð Sam
herja í Afríku síðustu vikurnar.
Meðal þess sem komið hefur fram
í umfjöllun DV er að tekjur Samherja
af þessari útgerð nemi á milli 30 og 40
prósenta af heildartekjum félagsins.
Þetta þýðir að árið 2010 hafi tekjur
Samherja af Afríkuveiðunum numið
á bilinu 22 til 24 milljarða króna.
Hafa greitt á arð upp á tæpa
þrjá milljarða
Á tímabilinu 2007 til ársins 2010, frá
því útgerðin í Afríku var keypt, hafa
arðgreiðslur Samherja til hluthafa
sinna numið tæplega 3 milljörðum
króna. Stærstu hluthafar Samherja
eru Þorsteinn Már Baldvinsson, og
fyrrverandi eiginkona hans, og Krist
ján Vilhelmsson. Þorsteinn á tæp 40
prósent í Samherja í gegnum eignar
haldsfélagið Stein og Kristján á 33
prósent í fyrirtækinu. Miðað við þess
ar tölur hafa Þorsteinn og kona hans
tekið við arði upp á meira en 1.100
milljónir króna frá árinu 2007. Þegar
tekið er mið af arðgreiðslunni til hlut
hafa Samherja fyrir árið 2010, sem
ekki kemur fram fyrr en í ársreikningi
fyrir 2011, hækkar þessi arðgreiðsla
upp í rúmlega 1.500 milljónir króna.
Þá hefur Kristján Vilhelmsson tek
ið við arði upp á nærri einn milljarð
króna frá Samherja frá árinu 2007.
Þessi upphæð hækkar upp í nærri
1.300 milljónir króna þegar tekið er
mið af ætlaðri arðgreiðslu ársins 2010.
16 milljarða viðskipti
Samherji keypti útgerðina, sem á
og rekur sex verksmiðjutogara sem
stunda fiskveiðar við strendur Vest
urAfríku, af útgerðarfyrirtækinu
Sjólaskipum á vormánuðum 2007
fyrir um 190 milljónir evra, um 16
milljarða króna miðað við gengi
krónunnar á þeim tíma. Togararnir
veiða aðallega hestamakríl og sard
ínu við strendur Marokkó, Máritan
íu og Senegal. Glitnir fjármagnaði
viðskiptin að stærstu leyti. Í árs
reikningi Samherja fyrir árið 2007
er tekið fram að kaupverð útgerðar
innar í Afríku hafi numið rúmlega
16,5 milljörðum króna. „Fjárfesting
samstæðunnar í þessum eignar
hlutum nam 16.528 millj. kr.“
Um þetta segir í skýrslu rannsókn
arnefndar Alþingis þar sem vitnað
er í afgreiðslu lánanefndar Glitnis á
umsókn Samherja um fyrirgreiðslu
vegna viðskiptanna. „Samherji hf.
hefur óskað eftir brúarláni að fjár
hæð allt að 140 m.EUR (11.700 m.kr.)
til allt að 3 mán. til kaupanna. Heild
arvirði Sjólaskipa er 190 m. EUR og
hefur Samherji þegar lagt fram 50
m.EUR sem eigin fjárframlag.“
Í skýrslu rannsóknarnefndar Al
þingis er minnst sérstaklega á það
í umfjölluninni um viðskipti Sam
herja með útgerð Sjólaskipa að Þor
steinn Már Baldvinsson, forstjóri
Samherja, hafi verið stjórnarformað
ur Glitnis fyrir bankahrunið – Þor
steinn tók við stjórnarformennsku
í bankanum í febrúar 2008. „Mesta
aukning á skuldastöðu Samherja
var við Glitni, en framkvæmdastjóri
og einn aðaleigandi Samherja, Þor
steinn Már Baldvinsson, var stjórn
arformaður bankans á þessu
tímabili.“ Glitnir var eina fjármála
fyrirtækið sem fjármagnaði viðskipti
Samherja með útgerðina í Afríku en
auk þess lagði Samherji fram eigin
fjárframlag til viðskiptanna.
Fjárfestingin borgað sig upp
Miðað við þessar hagnaðartölur
þessara tveggja eignarhaldsfélaga er
hagnaður Samherja af útgerðunum
við Afríkustrendur síðastliðin fimm
ár það mikill að fjárfesting fyrirtæk
isins hefur nokkurn veginn borgað
sig upp á tímabilinu. Samherji hef
ur getað greitt skilmerkilega og auð
veldlega af lánunum vegna fjárfest
ingarinnar í Afríku sökum þeirra
miklu tekna sem veiðar fyrirtækis
ins þar hafa skapað.
Eftir bankahrunið 2008 færðust
skuldir Samherja vegna fjárfesting
arinnar í útgerðinni í Afríku frá Glitni
og yfir til Íslandsbanka. Um þetta
segir í ársreikningi Mercury Seafood
fyrir árið 2009: „Langtímaskuldir
félagsins eru allar við Íslandsbanka
hf. samkvæmt lánasamningi þar sem
systurfélögin Polaris Seafood ehf. og
Mercury Seafood ehf. eru sameigin
legir lántakendur.“
Lánin endurfjármögnuð
Í byrjun árs 2010 sameinuðust Merc
ury Seafood og Polaris Seafood undir
nafni þess síðarnefnda. Félagið er
skráð fyrir eignum upp á nærri 255
milljónir dollara en á móti þeim eru
skuldir upp á rúmlega 119 milljónir
dollara. Þar af eru rúmlega 89 millj
ónir dollara við bankastofnanir, Ís
landsbanka. Polaris átti að greiða
rúmlega 80 milljónir dollara af þess
um skuldum árið 2011 en miðað við
ársreikning félagsins var lán félags
ins hjá Íslandsbanka endurfjár
magnað til margra ára og á fyrirtæk
ið að greiða 10 til 15 milljóna dollara
afborganir á næstu árum. Á árunum
2009 og 2010 greiddi Polaris niður
meira en 50 milljónir evra af skuld
um sínum.
Græddu 17 milljarða
n Fjárfesting Samherja í Afríku hefur borgað sig upp n Arðgreiðslur upp á 4 milljarða
Arðgreiðslur til
hluthafa Samherja
2011
969 milljónir*
2010
769 milljónir
2009
657 milljónir
2008
922 milljónir
2007
613 milljónir
*ÆtLaður arður
Arðgreiðslur 2007 til 2011:
3.930
milljónir króna
„Langtímaskuldir
félagsins eru allar
við Íslandsbanka hf.
LÍU tók undir gagnrýni á rányrkju í Afríku
n Í september 2009 birti Landsamband ís-
lenskra útvegsmanna (LÍÚ) frétt á vefsíðu
sinni þar sem tekin var upp gagnrýni á
rányrkju Evrópusambandsins í dönsku
blaði, Arbejderen. Í blaðinu var rætt við
ráðgjafa frá Kenýa sem sagði Evrópu-
sambandið stela fiskinum í sjónum við
Afríkustrendur. Þar sem LÍU eru hags-
munasamtök útgerðarmanna hefur til-
gangur fréttarinnar líklega verið að benda
á að Evrópusambandið arðræni fátækar
þjóðir í Afríku og að sambandið myndi líka
arðræna Íslendinga ef Ísland gengi í sam-
bandið og deildi fiskimiðum sínum með
öðrum aðildarríkjum. Ekki var minnst á
veiðar Íslendinga við Afríkustrendur í frétt
LÍÚ en þeir Kristján Vilhelmsson og Þor-
steinn Már Baldvinsson hafa setið í stjórn
og varastjórn sambandsins síðastliðin
ár. Þá var heldur ekki tekið fram að hluti
af veiðum Samherja við Afríkustrendur
byggi á samningi sambandsins við einstök
Afríkuríki.
Orðrétt sagði í frétt LÍÚ: „Ráðgjafi í
sjávarútvegsmálum hjá Einingarsamtökum
Afríku ásakar Evrópusambandið um hroka
í samskiptum við Afríkuþjóðir og rányrkju
á fiskimiðum þeirra. Þetta kemur fram í við-
tali við Nancy Gitonga frá Kenýa við danska
blaðið Arbejderen í dag. Yfirskrift viðtalsins
er „Þeir stela fiskinum okkar.“
Í viðtalinu dregur Gitonga upp dökka
mynd af framferði Evrópusambandsríkja,
einkum Spánverja, Portúgala og Frakka.
Hún segir ESB árlega semja um aðgang
að fiskimiðum Afríkuríkja, einkum við
vesturströndina, gegn greiðslu. Í fæstum
tilvikum séu í samningunum nein ákvæði
um hámarksafla. Afleiðingin sé rányrkja.
Gitonga segir að veiðar Evrópusambands-
ríkjanna skapi hvorki atvinnu né tekjur fyrir
íbúa þeirra Afríkuríkja sem um ræðir. Á hinn
bóginn skapi veiðarnar stórfellt vandamál
fyrir hundruð þúsunda íbúa sem ekki geta
lengur framfleytt sér af fiskveiðum eða
afleiddum störfum af sjávarútvegi.
„Það á að heita svo að peningarnir sem
ESB greiðir fyrir aðganginn að fiskimið-
unum renni til sjómanna og annarra sem
hafa orðið illa úti vegna þessara veiða.
En raunveruleikinn er annar. Féð fer allt
til landbúnaðarmála og er aðeins dropi í
hafið,“ segir Gitonga.“
„Fjárfesting sam-
stæðunnar í
þessum eignarhlutum
nam 16.528 millj. kr.
arðbærar veiðar Forsvarsmenn Sam-
herja, Þorsteinn Már Baldvinsson, Kristján
Vilhelmsson og Eiríkur S. Jóhannsson,
ásamt forsvarsmönnum Sjólaskipa þegar
tilkynnt var um kaupin vorið 2007.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
w
w
w
. d
v
. i
s
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
2.–3. maí 2012 miðvikudagur/fimmtudagur
5
0
. t
b
l
.
10
2
. á
r
g
.
l
e
ið
b
. v
e
r
ð
4
2
9
k
r
.
samherji græðir á esb
n Ásakanir um rányrkju n Ofveiði við Marokkó
n Mikil leynd yfir útgerðinni n Yfir 20 milljarða tekjur
„Þeir sem
þarna vinna
eru bara ekkert að
tjá sig um það
Ólafur
ragnar
dásamar
kvÓtann
Lofræða í Brussel 4
3Aftur dreginn fyrir dóm
aron
Pálmi
ber við
sjálfsvörnn „Þennan mann verður að stoppa“
ofsagrÓði
við afríku Úr ballett í lyftingar
ÞÚ spArAr 218
ÞÚsund Á Ári
Hulda Waage ætlar að
verða sterkust 27
verktaki fer
í mál við kára
6
n skiptu gamla bílnum í grænan
Ákærður fyrir árás:
10–13
18–19
2. maí sl.
7. maí sl.
w
w
w
.d
v
.i
s
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
7.–8. maí 2012 Mánudagur/Þriðjudagur
5
2
. t
b
l
.
10
2
. á
r
g
.
l
e
ið
b
. v
e
r
ð
4
2
9
k
r
.
n Við eigum risaskip í rányrkju við Vestur-Afríku
Þátttakendur í „nýlendustefnu“
n Heimamenn á trébátum keppa við
100 manna verksmiðjutogara Íslendinga
ÍSLENSKA
ÞJÓÐIN
GRÆÐIR
Á RÁNYRKJU
LÍfEYRISSJÓÐIR oG RÍKIÐ Í AfRÍKUvEIÐUm
fEGURÐARKÓNGUR
vAR 130 KÍLÓ n „Ég varð fyrir aðkasti“
VELDU GÓÐA
SÓLARVÖRN
6
Góðæri í Eyjum
n Vantar fólk í vinnu
BAUHAUS-
ÁHRIfIN
n Vor í efnahagslífinu 2–3
HUSKY-
HUNDUR
DÚXAÐI
á hlýðniprófi
18–19
20–21
26
EBBA Í ÚTRÁS
8
n Eigendur íslenskir,
eignarhald á Tortóla,
rekstrarfélag á Jersey,
skipverjar Rússar, skipið
skráð í Belís og gert út
frá Kanaríeyjum
10–11