Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2012, Blaðsíða 11
Fréttir 11Miðvikudagur 16. maí 2012
Græddu 17 milljarða
n Fjárfesting Samherja í Afríku hefur borgað sig upp n Arðgreiðslur upp á 4 milljarða
Þorsteinn Már
Baldvinsson
Helga S. Guðmundsdóttir
n Skráð fyrir 33 prósentum í Sam-
herja í gegnum eignarhaldsfélagið
Stein ehf.
n Steinn ehf. á helmingshlut í Fjár-
festingarfélaginu Firði ehf. sem á 12
prósent hlut í Samherja.
n 39 prósenta hlutur í Samherja:
1.533 milljóna arður frá 2007.
n Eignir Steins ehf. nema 2,9
milljörðum í ársreikningi 2009.
Kristján Vilhelmsson
n Skráður fyrir 33 prósenta hlut í
Samherja.
n Arðgreiðsla upp á tæplega 1.297
milljónir króna.
Ársreikningur Polaris Sea-
food fyrir árið 2011 liggur ekki
fyrir. DV hefur hins vegar heim-
ildir fyrir því að skuldir Samherja
við Íslandsbanka vegna fjárfest-
ingarinnar í Afríkuútgerðinni hafi
numið um 70 milljónum evra um
mitt ár í fyrra. n
Gæði skólanna endurspeglast ekki
„Þetta sýnir að nemendur úr minni skólum
og skólum úti á landi, þeir eru bara að
standa sig prýðilega í Háskóla Íslands,“
segir Ólafur Þ. Harðarson.
E
kki er marktækur munur á
einkunnum nemenda í Há-
skóla Íslands eftir því frá
hvaða framhaldsskóla þeir út-
skrifuðust. Þetta er niðurstaða
rannsókna sem gerðar hafa verið inn-
an Háskóla Íslands. Frekar var hægt
að byggja á árangri í samræmdum
prófum, meðan þau voru haldin. DV
greindi frá því á dögunum að nem-
endur sem vilja komast í eftirsótta
menntaskóla á höfuðborgarsvæð-
inu þurfa allháa meðaleinkunn til að
komast inn í þá skóla og það orðspor
hefur farið af ákveðnum framhalds-
skólum að nemendur komi betur
undirbúnir til háskólanáms hafi þeir
stundað nám í viðkomandi skóla.
„Þetta sýnir að nemendur úr
minni skólum og skólum úti á landi,
þeir eru bara að standa sig prýðilega
í Háskóla Íslands,“ segir Ólafur Þ.
Harðarson, forseti félagsvísindasviðs
Háskóla Íslands. „Svona úttektir og
rannsóknir eru gríðarlega mikilvæg-
ar til að slá á fordóma í samfélaginu,“
segir hann.
Gæði framhaldsskólanna
endurspeglast ekki
Í rannsókn sem Kristjana Stella Blön-
dal, lektor í félags- og mannvísinda-
deild, vann ásamt Jóni Torfa Jónas-
syni, forseta menntavísindasviðs
Háskóla Íslands, kemur fram að sam-
ræmd próf í íslensku sem þá voru
haldin við lok grunnskóla, hafi gefið
betri vísbendingar um líklega náms-
framvindu en það úr hvaða fram-
haldsskóla nemendur komu. Það er
að segja, að nemendur sem sýna góð-
an árangur á samræmdum prófum
eru líklegri til að sýna góðan árangur
í áframhaldandi námi, hvort sem það
er framhaldsskóli eða háskóli. Vert er
að hafa í huga að niðurstaðan er frá
árinu 2005 og var rannsóknin unnin
úr gögnum um fólk sem fæddist árið
1975.
Sýna niðurstöður könnunarinn-
ar það einnig að ef tekinn er sá hóp-
ur nemenda sem fékk einkunnir á
bilinu 7,1–8,0 í samræmdu prófi í ís-
lensku þá ræðst það ekki af þeim
framhaldsskóla sem þeir voru í
hvernig þeim gengur í háskóla. Vel-
gengni þeirra byggir á námsgetunni
og því hvernig nemandi leggur sig
fram. Meginniðurstaðan er því sú að
ekki finnst skýrt mynstur sem end-
urspeglar mismunandi gæði fram-
haldsskólanna. Hér staldra kannski
margir við og benda á að rannsóknin
endurspegli ekki endilega núverandi
skólakerfi og sé jafnvel það sem kalla
má barn síns tíma. Hins vegar styðja
nýlegar niðurstöður skýrslu kennslu-
málanefndar Háskóla Íslands við
gögnin um fólk fætt árið 1975.
Á vegum nefndarinnar hafa ver-
ið teknar saman tölur sem endur-
spegla árin 2008–2011. Af þeim er
heldur ekki hægt að sjá marktækan
mun á árangri nemenda í háskóla
eftir því í hvaða framhaldsskóla þeir
fóru. Þar eru tekin saman meðaltöl
af einkunnum nemenda í deildum
háskólans og þeim raðað eftir fram-
haldsskólum sem nemandinn stund-
aði nám við.
Skólarnir jafnir en talið var
Þegar gögnin eru skoðuð og tekið er
tillit til þess hvaða einkunnir nem-
endur voru með úr grunnskóla, kem-
ur í ljós að munurinn á milli skóla er
mun minni en almennt hefur verið
talið. Af orðspori sumra skóla mætti
ætla að nemendur þeirra væru mun
betur undirbúnir fyrir háskólanám
en nemendur annarra skóla, en sam-
kvæmt niðurstöðum rannsókna sem
gerðar hafa verið kemur í ljós að slík-
ar staðhæfingar eiga ekki við rök að
styðjast nema að litlu leyti.
„Helstu niðurstöður þessarar
skýrslu eru þær, að þrátt fyrir að það
komi fram dálítill munur eftir því
hvernig nemendum ákveðins fram-
haldsskóla vegnar í háskóla þá er
tvennt sem þarf að hafa í huga í þessu
sambandi. Annars vegar er ótrúlega
lítill munur á meðaltölunum milli
flestra skólanna, hvort sem það eru
gamlir og frægir skólar eða litlir skól-
ar úti á landi. Þarna eru birt meðal-
töl og þarna sér maður að það er ekki
mikill munur á meðaltölunum.
Hins vegar þá koma nemendur
inn í suma framhaldsskólana með
hærri einkunnir á grunnskólaprófi
en inn í aðra. Þannig að jafnvel þó að
það sé einhver munur á einkunnun-
um sem nemendurnir fá í háskóla, þá
segir það eitt og sér ekkert um gæði
framhaldsskólanna,“ segir Ólafur.
Nemendur án framhaldsskóla-
prófs standa sig vel
Ólafur bendir á að nemendur sem
hafi fengið undanþágu frá fram-
haldsskólaprófi til að stunda há-
skólanám standi sig einnig mjög vel.
Meðaleinkunn þeirra sé undir með-
altali, en þó samkeppnishæf. „Það
hefur verið sagt að þeir ráði ekki við
námið í háskólanum, en þessar tölur
sýna að mjög mörgum þeirra gengur
bara mjög vel,“ segir hann.
Ólafur varar við því að skoða töl-
urnar eftir röð, þar sem skólum er
jafnvel raðað í sæti og þá geti mun-
urinn virkað mikill, þegar aðeins
munar litlu á einkunnum. „Munur-
inn á fyrsta sæti og tuttugasta sæti
gæti verið tiltölulega lítill,“ segir
hann og þar að auki að skólinn sem
toppar í einni deild innan háskólans
geti staðið lægra í annarri. n
Framhaldsskólinn
skiptir ekki máli
n Ekki marktækur munur á einkunnum í HÍ eftir framhaldsskólum
„Svona úttektir og
rannsóknir eru gríð-
arlega mikilvægar til að slá
á fordóma í samfélaginu.
Félags-
vísindasvið
Heilbrigðis-
vísindasvið
Hugvísindasvið Mennta-
vísindasvið
Verkfræði- og
náttúruvísindasvið
Borgarholtsskóli 6,29 6,22 6,98 7,67 6,22
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra 6,82 6,74 6,95 7,79 6,58
Fjölbrautaskóli Snæfellinga 6,83 5,71 6,07 7,35 5,84
Flensborgarskólinn í Hafnarfirði 6,38 6,5 6,85 7,65 6,4
Framhaldsskólinn á Húsavík 6,8 6,15 7,18 7,86 6,34
Kvennaskólinn í Reykjavík 6,78 6,98 7,22 7,83 6,81
Menntaskólinn við Hamrahlíð 6,65 7,27 7,47 7,85 6,86
Menntaskólinn á Ísafirði 6,48 7,18 7,22 7,6 6,18
Menntaskólinn við Sund 6,63 6,9 7,12 7,76 6,32
Verslunarskóli Íslands 6,59 7,13 7,35 7,85 6,59
Meðaleinkunn eftir skólumÁsta Sigrún Magnúsdóttirblaðamaður skrifar asta@dv.is
Háskóli Íslands Þúsundir nemenda stunda nám við Háskóla Íslands. Ekki virðist skipta
miklu máli úr hvaða framhaldsskóla þeir koma sé litið til námsárangurs.
Vegnar meðaleinkunnir íslenskra grunnnema frá hausti 2008 til og með hausti 2011 eftir fræðasviðum. Upplýsingarnar eru fengnar úr gagnasafni Kennslusviðs Háskóla Íslands árið 2012