Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2012, Síða 15
Erlent 15Miðvikudagur 16. maí 2012
Skuldbinding Mánaðarverð
Engin binding 3.091 kr.
3 mánuðir 2.944 kr.
6 mánuðir 2.688 kr.
12 mánuðir 2.473 kr.
DV sent heim þrisvar í viku, á mánudögum, miðviku dögum
og föstudögum. Netáskrift fylgir frítt með!
Komdu í
áskrift
Það er ódýrara en þig grunar!
Vildi frekar drukkna
en Verða fyrir skoti
É
g hugsaði með mér að núna
myndi ég deyja. Ég vildi frekar
drukkna en verða fyrir skoti.“
Þetta sagði Silja Kristianne Ut-
eng, 21 árs stúlka, við réttar-
höldin yfir Anders Behring Breivik
sem héldu áfram í vikunni. Silja var
í Útey ásamt nokkur hundruð ung-
mennum þegar Breivik steig þar á
land þann 22. júlí í fyrra og hóf skot-
árás. Ungmenni, sem urðu fyrir skot-
um úr byssum Breiviks en lifðu af,
báru vitni fyrir dómnum á mánudag
og lýstu skelfilegri reynslu sinni. Brei-
vik hefur játað að hafa myrt 69 ein-
staklinga í Útey og átta í sprengjuárás í
Osló sama dag.
Synti 600 metra
Silja lýsti því með tárin í augunum
þegar hún heyrði fyrstu skothvellina
við tjaldbúðirnar í eynni. Hún brást
við með því að hlaupa burt en skot
úr byssu Breiviks hæfði hana í hand-
legginn skömmu síðar. Silja áttaði sig
ekki á því að hún hefði orðið fyrir skoti
enda var geðshræringin og ringulreið-
in mikil á umræddu augnabliki. Hún
hljóp beint að vatninu sem umlykur
eyna og freistaði þess að synda í land.
Silja lýsti því að hún hefði talið það
skárri dauðdaga að drukkna en verða
fyrir byssukúlu. Þess vegna hefði hún
látið vaða út í ískalt vatnið en henni
tókst að lokum að synda 600 metra og
sleppa frá Breivik.
Þakinn leðju í runna
Lars Grønnestad, 20 ára, bar einnig
vitni en hann var skotinn í bakið þegar
hann reyndi að hlaupa undan kúlna-
hríðinni. Grønnestad féll í jörðina og
átti erfitt með að hreyfa sig, enda féllu
lungu hans saman. „Ég hugsaði með
mér að ég gæti ekki legið þarna því ég
var á svo opnu svæði. Á meðan ég leit
í kringum mig og reyndi að finna mér
stað til að fara á hugsaði ég hver árás-
armaðurinn væri: hægriöfgamaður
eða vinstriöfgamaður?“ Grønnestad
tókst að lokum að hlaupa inn í runna
og þekja sig aur til að Breivik kæmi
ekki auga á hann.
Dró kúluna úr lærinu
Þriðja vitnið sem kom fyrir dóminn
var hin tvítuga Frida Holm Skoglund.
Skoglund bað Breivik um að yfirgefa
réttarsalinn áður en hún hóf vitnis-
burð sinn, en hún er fyrsta vitnið í
réttarhöldunum til að gera það. Brei-
vik varð við þeirri beiðni og fylgdist
með framburði hennar á sjónvarps-
skjá í herbergi í dómshúsinu í Osló.
Skog lund var skotin í lærið þegar hún
reyndi að flýja undan Breivik. Með
byssukúlu í lærinu tókst henni að flýja
inn í skóg, en hún segist ekki hafa áttað
sig á því að hún hefði orðið fyrir skoti
fyrr en vinur hennar, sem einnig hafði
flúið út í skóg, benti henni á það. „Ég
hugsaði með mér að það gæti ekki ver-
ið. Þetta gat ekki verið alvöru byssu-
kúla. En ég fann fyrir einhverju inni í
lærinu og þegar ég gáði betur var þetta
kúla. Ég dró kúluna út og henti henni
burt. Það var ekki vont.“ Eins og mörg
önnur ungmenni synti Frida í land.
Þegar hún var spurð út í yfirbragð
Breiviks meðan á árásinni stóð sagði
hún hann hafa verið yfirvegaðan en
ákveðinn. Loks var hún spurð hvort
hún vildi segja eitthvað við Breivik.
„Við unnum, hann tapaði,“ sagði hún
ákveðin.
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
n Ungmennin sem urðu fyrir skoti í Útey en komust lífs af segja frá reynslu sinni
Yfirvegaður Frida Holm, ein þeirra sem
urðu fyrir byssukúlu, segir að Breivik hafi
virst yfirvegaður en ákveðinn þegar hann
gekk berserksgang í Útey. MYnD ReuteRS
Synti í land Silju tókst að synda um 600 metra í land. Hún áleit að það væri skárra
að drukkna en deyja af skotsárum.