Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2012, Page 19
Neytendur 19Miðvikudagur 16. maí 2012
Grænmeti
oG annað
Góðmeti
á Grillið
n Grilltíminn er kominn en það er vel hægt að hugsa um hollustuna þótt grillin séu komin út
F
lestir tengja grillmat við steik-
ur, hamborgara og annað
kjötmeti en það eru til ýmsir
hollari kostir sem má skella
á grillið á sumarkvöldi. Papr-
ika, maísstönglar og eggaldin eru
nokkrar tegundir grænmetis sem
er gómsætt á grillið. Það er hægt
að grilla grænmetið á mismunandi
vegu til að mynda í heilu lagi á ál-
pappír eða skera það í grófa bita og
þræða á pinna. Heilgrillaður laukur
og hvítlaukur sem meðlæti er holl-
ur og bragðgóður kostur en auk þess
eru ostafylltir sveppir algjört lostæti
og má nota þann ost sem hverjum
og einum þykir bestur. Þá má grilla
flestar tegundir grænmetis og það
eru um að gera að prófa sig áfram og
hræðast ekki nýjungar. Svo má ekki
gleyma að nefna fiskinn sem er alltaf
hollur grillréttur.
DV hefur fengið nokkra einstak-
lingar til að gefa lesendum hug-
myndir að góðum grænmetisgrill-
réttum, meðlæti eða öðrum hollum
kostum á grillið sem tilvalið er að
prófa í sumar.
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
Á bbcgoodfood.com má finna
fjölmargar uppskriftir og þar á meðal
eru nokkrar af grænmetisréttum á
grillið. Ein þeirra er gulrótarborgarinn
Gulrótar- og sesamborgari
750 gr gulrætur, afhýddar og hakkaðar
410 gr kjúklingabaunir í dós
1 laukur, saxaður
2 msk. tahini + 1 tsk. í sósuna
(möndlusmjör)
1 tsk. cumin
1 egg
3 msk. ólífuolía
100 gr brauðmylsna úr grófu brauði
1 tsk. sítrónusafi + smá af berkinum
150 ml hrein jógúrt eða AB mjólk
3 msk. sesamfræ
Klettasalat, rauðlaukur, lárpera og chili-
sósa til að setja á borgarann
n Aðferð:
1. Setjið 1/3 af gulrótunum, kjúklinga-
baunir, lauk, 2 msk. tahini, cumin og egg
í matvinnsluvél. Maukið vel og setið svo
í stóra skál. Hitið 1 msk. olíu á pönnu
og bætið afganginum af gulrótunum
út í. Steikið í 8–10 mínútur, eða þar til
gulræturnar eru orðnar mjúkar. Bætið
gulrótunum í skálina ásamt brauð-
mylsnu, sítrónuberki og sesamfræjum
2. Deilið blöndunni í 6 hluta og mótið í
buff. Blandið saman jógúrt, 1 tsk. tahini
og sítrónusafa og kælið
3. Kveikið á grillinu (má líka alveg
steikja á pönnu). Penslið borgarana
með olíu og grillið í u.þ.b. 5 mínútur
á hvorri hlið. Smyrjið jógúrtsósunni á
annað brauðið og chili-sósu á hitt, setjið
lárperu rauðlauk og klettasalat á milli
Berglind Sigmarsdóttir gefur
hér uppskrift af kalkúnaborgara en hún
segir að heppilegt sé að búa til dálítið
marga í einu enda fást um 10 stykki úr
einni kalkúnabringu. Ef ekki sé ætlunin að
elda þá alla í einu er tilvalið að pakka þeim
inn í plastfilmu eða setja í frystipoka og
frysta til að nota síðar. Einnig sé hægt að
nota kjúklingabringur í stað kalkúns. Þessi
uppskrift er úr nýútkominni bók hennar
Heilsuréttir fjölskyldunnar
Kalkúnaborgarar í speltham-
borgarabrauði
1 kg kalkúnabringa, skorin í grófar lengjur
1 msk. súrsað engifer
1 laukur
2 hvítlauksgeirar
½ grænt chili
½ tsk. kumminduft
½ tsk. kóríanderduft
½ msk. sjávarsalt
2 egg
2 msk. brauðrasp (eða hneturasp, sjá
uppskrift að kjötbollum með basilíku og
hvítlauk)
2 msk. jómfrúarólífuolía, til steikingar
n Aðferð:
1. Setjið kalkúnalengjurnar ásamt engifer,
lauk, hvítlauk og chili í hakkavél. Færið
síðan hakkið yfir í hrærivélarskál með
hnoðara. Bætið síðan kummin, kóríander,
salti, eggjum og raspi saman við
2. Blandið vel saman og mótið borgara
3. Penslið ólífuolíu á grillgrindina og
aðeins yfir borgarana svo þeir festist ekki
við
4. Leggið á meðalheitt grillið og leyfið að
grillast í u.þ.b. 4 mínútur á hvorri hlið (fer
eftir hitanum á ykkar grilli hvað borgarinn
þarf svo hann sé eldaður í gegn)
Berið fram með guacamole (mexíkóskt
avókadómauk) hvítlaukssósu, kletta-
salati og sætkartöflufrönskum
Sætkartöflufranskar
1. Skrælið sætar kartöflur og skerið í frekar
þunnar skífur
2. Hellið jómfrúarólífuolíu yfir og saltið
3. Setjið á ofnplötu eða skúffu efst í
ofninn og bakið í 25 mínútur við 175°C
Spelthamborgarabrauð
4–6 stk.
270 ml volgt vatn
6 gr þurrger
½ msk. lífrænt hunang, helst fljótandi
75 gr gróft spelthveiti
300 gr fínt spelthveiti
25 gr hveitiklíð
1/3 dl jómfrúarólífuolía
1 eggjarauða
2 msk. mjólk/hrísmjólk
1 msk. sesamfræ
1 msk. graskersfræ
½ tsk. sjávarsalt
n Aðferð:
1. Hitið vatn í 37°C, setjið í hrærivélarskál
og hellið þurrgeri saman við
2. Látið gerið leysast aðeins upp og
blandið hunangi og olíu út í. Hrærið saman
3. Bætið salti og hveitiklíði saman við og
svo afganginum af spelthveiti, grófu og
fínu, í skömmtum og látið hnoðarann á
vélinni hnoða aðeins inn á milli
4. Setjið volgan klút yfir skálina (ég hita
viskustykki á heitum ofni áður en ég set
það yfir) og hafið skálina á hlýjum stað í
50 mínútur
5. Setjið þá deigið aðeins aftur í hnoðar-
ann og hnoðið örlítið
6. Skiptið deiginu í 4–6 hluta eftir því
hvað þið viljið stór brauð. Mótið bollur
(eins og hamborgarabrauð sem eru flöt
að neðan en kúpt að ofan) og setjið á
bökunarplötu klædda bökunarpappír
7. Stingið aðeins í bollurnar með gaffli
8. Blandið saman mjólk og eggjarauðu og
penslið á bollurnar. Stráið sesamfræjum
og graskersfræjum yfir. Leggið rakt stykki
yfir og látið hefast aftur í 25 mínútur
9. Hitið ofninn í 190°C
10. Takið stykkið af bollum og setjið plötu
í miðjan ofn. Bakið í 10–15 mínútur en ef
þið eruð bara með 4 brauð bakist aðeins
lengur
Guacamole
1 avókadó, frekar mjúkt
1/3 laukur, fínt saxaður
1 hvítlauksgeiri, maukaður
1/3 chili, fínt saxað
Safi úr hálfri sítrónu
Salt og pipar
n Aðferð:
Stappið avókadó með gaffli og blandið
síðan öðru hráefni saman við
Hvítlaukssósa
½ dós sýrður rjómi
1 msk. heimagert majónes eða létt
majónes
1 hvítlauksgeiri, maukaður
Salt og pipar
Öllu blandað saman
Grænmeti sem hentar vel á grillið
Gulrætur, tómatar, paprika, maísstönglar,
sveppir, eggaldin, laukur, aspas, fennikka,
squash og vorlaukur
Sólveig Eiríksdóttir eða Solla á
Grænum deilir þessari uppskrift.
Grillaðar eggaldinrúllur með
geitaosti og klettasalati
1 eggaldin
Nokkrar msk. ólífuolía
Smá salt og nýmalaður svartur pipar
½ dl geitaostur – má nota fetaost eða
maukaðar kjúklingabaunir
3 msk. ferskur kóríander, smátt saxaður
– má nota steinselju
½ dl valhnetur, smátt saxaðar
4 döðlur, smátt saxaðar
½ rauður chili-pipar, steinhreinsaður og
smátt saxaður
Handfylli klettasalat
n Aðferð:
Skerið eggaldinið í ½ cm þunnar sneiðar
eftir endilöngu. Penslið með ólífuolíu og
kryddið með smá salti og nýmöluðum
svörtum pipar. Setjið á heitt grillið,
galdurinn er að snúa þeim reglulega
svo eggaldinið nái að eldast og grillast.
Hrærið saman geitaosti, kóríander,
valhnetum, döðlum, chili, smá salti
og nýmöluðum svörtum pipar. Setjið 1
matskeið af fyllingu og nokkur kletta-
salatlauf á endann á hverri rúllu. Rúllið
upp, setjið á fat, stráið smá ólífuolíu yfir
og berið fram
Sólveig Regína Biard ÍAK
einkaþjálfari, gefur hér uppskriftir af
góðum forrétti sem er ferskur og hollur
og hentar vel með grillmáltíðinni
Smálúðuforréttur
Smálúðan (má nota lax) 400–500 gr
skorið í litla teninga og sett í mót
1 græn paprika, smátt söxuð
1 laukur, smátt saxaður
4 hvítlauksrif
Smá salt, pipar og dill
Safa úr ca. 4 sítrónum og 2 lime hellt
yfir allt
Öllu blandað saman og látið standa í
ísskáp yfir nótt
Ef maður vill setja þennan í sparifötin þá
er mjög gott að bæta við 1–2 hvítvín-
sglösum í blönduna
Sósa með:
Sýrðum rjóma (5%) hrært saman við
safann af fiskinum
Borðað með til dæmis ristuðu brauði
Kúskúss-salat, frábært með
grilluðum kjúklingi:
200 gr kúskús sett í skál, ekki soðið
4 tómatar saxaðir mjög smátt
1 laukur saxaður mjög smátt
1 paprika söxuð mjög smátt (má vera
græn eða rauð)
Pínu salt og pipar
Fersk mynta, söxuð
4 msk. ólífuolía
Safi úr 3–4 sítrónum
Öllu blandað saman og látið standa í
nokkra tíma inni í ísskáp
Eftirréttur
Fullt af jarðarberjum skorin í bita
Lögur:
Hvítvín
Hlynsíróp
Fersk mynta, söxuð smátt
Látið liggja í 15–30 mínútur
Sósa:
Þeyttur rjómi
Vanilla
Börkur af lime