Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2012, Page 20
Á
takið Hjólað í vinnuna stendur
yfir dagana 9. til 29. maí og er
því að ná hámarki um þessar
mundir. Fyrir þá sem eru með
keppnisskapið í lagi er enn
ekki orðið of seint að skrá lið til leiks.
En fyrir hina sem vilja bara hjóla sér
til gamans og heilsubótar þá er eng-
inn tími betri en vorið til að draga fram
fákinn og nýta hann sem samgöngu-
tæki til að komast til og frá vinnu.
Margir kunna þó af ýmsum ástæð-
um að mikla fyrir sér að hjóla í vinn-
una. Þær hindranir sem fólk setur fyrir
sig eru þó oftar en ekki yfirstíganleg-
ar þegar betur er að gáð. Það er um
að gera að hugsa í lausnum því
vandamálin eru jú til að leysa
þau.
Leiðin er of löng, eða
hvað?
n Ferðir sem eru sjö til tíu
kílómetrar á hjóli taka álíka lang-
an tíma á bíl og hjóli á háannatímum
innanbæjar.
n Prófaðu að hjóla í vinnuna og taka
strætó heim á kvöldin. Leyfilegt er að
taka hjól með í suma vagna og hægt
er að skipuleggja hjólreiðar í sam-
ræmi við almenningssamgöngur.
n Þó ótrúlegt megi virðast þá tekur
aðeins um fimmtán mínútur að hjóla
hálfa borgina. Hægt er að sjá korter-
skortið bæði á vefsíðunum hjolreid-
ar.is og reykjavik.is.
n Það er fátt skemmtilegra en að taka
fram úr bílaröðinni á hjóli á háanna-
tíma.
n Mundu að eftir því sem styrkur
þinn eykst breytist hugarfarið gagn-
vart vegalengdum.
Hvernig finn ég bestu hjólaleið-
ina?
n Gott er að hafa í huga að leiðin sem
þú ert vön/vanur að fara á bílnum er
ekki endilega sú heppilegasta fyrir
hjólið.
n Hjólavefsjáin (is.ridethecity.com/
iceland) er líklega best geymda leynd-
armál internetsins sem allt of fáir vita
af. Þar er hægt að fá tillögur um hent-
ugustu hjólaleiðirnar á milli staða.
n Kortið sýnir líka hvar göngustígar
liggja og þannig gætir þú stytt leið
þína og séð nýja hlið á borginni.
Hvar á ég að geyma hjólið?
n Góðir geymslustaðir geta leynst
víða, til dæmis í kompu eða við
svalir. Taktu hjólið inn ef mögu-
legt er.
n Óskaðu formlega eftir
því við atvinnurekanda
að hann bæti geymslu-
aðstöðu fyrir reiðhjól.
Bætt heilsa starfsmanna
er allra hagur.
n Víða um borgina er búið að
setja upp hjólagrindur
n Notaðu tryggan lás til að læsa
stellið við hjólagrind eða eitthvað
annað tryggt ef slík grind er ekki til
staðar.
Þarf ég að fara í sturtu?
n Á mörgum vinnustöðum er
sturtuaðstaða. Ef hún er ekki til
staðar kannaðu þá hvort slík að-
staða er annars staðar í hús-
inu sem þú getur fengið
aðgang að.
n Hjólaðu rólega í
vinnuna svo þú svitnir
minna.
n Ekki klæða þig of
mikið. Mundu að það
þarf ekki mikinn fatnað á
meðan hjólað er.
n Hægt er að taka með sér þvotta-
poka í vinnuna.
Ég þarf að vera uppáklædd/ur í
vinnunni
n Fáðu þér bögglabera og töskur
undir föt.
n Fáðu þér góðan bakpoka.
n Hafðu nokkur sett af föt-
um og ein til tvenn skópör
í vinnunni. Taktu skyrtur/
boli og hrein undirföt dag-
lega með þér.
n Hafðu fötin með þér dags-
daglega, gott er að rúlla upp
drögtum, skyrtum og jakkafötum í
stað þess að brjóta saman.
n Settu fötin í hreinsun í ná-
grenni við vinnustað þinn.
Hvernig skal tækla
íslenska veðráttu?
n Er veðrið svo slæmt
þegar þú ert komin/n út?
n Reiknaðu með aðeins meiri tíma
ef það er mótvindur.
n Hjólaðu í léttum gír eins og þú
værir að hjóla upp brekku.
n Það er nauðsynlegt að eiga eina
vatnshelda flík, og nota hana.
n Ef þú ert í vinnunni þegar byrj-
ar að rigna og ekkert er vatnshelt
til staðar, taktu þá strætó heim eða
fáðu far.
n Njóttu þessa að þjóta
heim, blotna á leiðinni
og fara í þurrt heima.
n Hafðu alltaf auðpakk-
anlegan hlífðarjakka
meðferðis.
n Notaðu ljós og annan bún-
að til að vera sýnileg/ur í myrkri og
lélegu skyggni.
Þarf ég hjólreiðaföt?
n Nei, í rauninni ekki. Notaðu þinn
venjubundna klæðnað þegar veður
og aðstæður leyfa.
n Bolur og vindheldur jakki duga
í flestum veðrum og gott er að láta
lofta aðeins um líkamann.
n Föt og annar búnaður kemur
smátt og smátt og endist oft mjög
lengi.
UppLýsingar: HjoLreidar.is
20 Lífsstíll 16. maí 2012 Miðvikudagur
Kaffihúsatjöld fyrir hjólreiðafólk
n Bjóða upp á kaffi, Kristal og viðhald fyrir hjólandi vegfarendur
F
ólk getur komið við og fengið sér
kaffi eða kristal og jafnvel fengið
viðgerð á hjólinu. Eða bara kíkt
í spjall,“ segir Kristín Lilja Frið-
riksdóttir, verkefnisstjóri almennings-
íþróttasviðs ÍSÍ, en í dag, miðvikudag,
verður þátttakendum átaksins Hjólað
í vinnuna boðið upp á að koma við í
kaffihúsatjöldum sem verða staðsett á
fimm stöðum á höfuðborgarsvæðinu.
Kristín Lilja segir kaffitjöldin hafa
verið með í átakinu Hjólað í vinn-
una frá árinu 2009. Hún óttast ekki að
slæmt veður hafi áhrif á þátttökuna.
„Á meðan það er ekki vindur er þetta
í lagi. Það er alltaf hægt að klæða af
sér kuldann og samkvæmt kortun-
um á veðrið að vera ágætt. Þessi tjöld
hafa alltaf verið vel sótt og ég held að
það hafi komið 1.000 manns til okk-
ar í fyrra. Við verðum frá korter í sjö til
níu á þeim stöðum þar sem traffíkin er
mest.“
Sjálf segist Kristín ekki hjóla í vinn-
una þetta árið. „Ég tek strætó í ár þar
sem ég er ófrísk en annars hefði ég
hjólað. Ég bý í Hafnarfirði og vinn í
Laugardalnum svo það er ágætis spöl-
ur,“ segir hún og bætir við að Íslend-
ingar séu farnir að hjóla meira síðan
átakið hófst. „Klárlega. Ég er búin að
vinna hér frá árinu 2008 og þegar mað-
ur vinnur við svona lagað tekur maður
eftir hjólreiðafólki. Að mínu mati voru
mun fleiri farnir að hjóla í apríl í ár mið-
að við apríl í fyrra. Ég hef að vísu enga
nákvæma staðfestingu á því, bara mína
tilfinningu. Við vitum líka mörg dæmi
þess að fólk byrjaði að hjóla vegna
átaksins og hefur svo haldið fram. Það
er einmitt markmiðið – að fá fólk til að
halda áfram eftir þessar þrjár vikur.“
IKEA framleiðir
myndavélar
Nú hefur IKEA slegist í hóp
myndavélaframleiðenda með því
sem fyrirtækið kallar heimsins
ódýrustu myndavél, Knäppa. Vélin
er ekki komin í búðir og verð hefur
ekki verið gefið upp en hér má sjá
myndir af gripnum. Myndavélin
er stafræn og hægt að tengja hana
beint við tölvuna með USB og
sækja myndirnar.
Hátæknihitakassar
væntanlegir
Nýbakaðar mæður geta fljótlega
sinnt nýfæddum börnum sínum
sem verða að dvelja í hitakassa án
þess að stíga fram úr rúminu. Nýir
hátæknihitakassar eru væntanleg-
ir á markað en hægt er að hreyfa
hitakassana til svo móðirin geti
snert og horft á barnið þótt hún
hafi ekki heilsu til þess að fara á
fætur. Myndbandsvélar eru á kass-
anum svo hjúkrunarfræðingar
geti fylgst með barninu og faðir
þess og systkini horft á nýjasta
fjölskyldumeðliminn úr tölv-
unni heima við. Fyrir vikið getur
barnið fundið snertingu móður-
innar, séð hana og fundið lyktina
af henni sem verður til þess að
tengsl á milli þeirra myndast fyrr.
Hitakassarnir eru einnig mun
hljóðlátari en þeir hefðbundnu og
ekki skemmir flott hönnunin fyrir.
Þýska fyrirtækið BabyBloom vinn-
ur að hönnun kassanna.
Mittismálið skiptir
meira máli en þyngd
Enn eru ákveðin vandkvæði fólgin
í því að meta offitu og heilsufar
eftir mælikvörðum.
Ný rannsókn sýnir að hlutfall-
ið á milli mittisummáls og hæðar
viðkomandi er betri mælikvarði til
að mæla áhættu á hjartasjúkdóm-
um en BMI-mælikvarðinn þar sem
aðeins er stuðst við þyngd og hæð.
Þetta sýndu rannsóknir Evr-
ópuráðs á offitu í Lyon í Frakk-
landi en vísindamenn fóru yfir
tugi rannsókna sem hafa verið
gerðar á BMI-þyngdarstuðlinum
og báru saman við þessa aðferð.
Meira mittismál er frekar tengt
hjartasjúkdómum, bólgum og
insúlínónæmi.
auðvelt Ef viljinn er fyrir hendi er hægt að leysa þau vandamál sem koma upp þegar hjóla
skal í vinnuna, frekar auðveldlega.
n Það er auðveldara en þú heldur að hjóla í vinnuna
Leystu málið
og hjólaðu!
Þjónustuhlé Hjólreiðafólk getur fyllt á tankinn í kaffihústjöldum á höfuðborgarsvæðinu.