Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2012, Síða 23
Afmæli 23Miðvikudagur 16. maí 2012
16. maí
40 ára
Iwona Anna Sielatycka Suðurhólum
2, RVK
Sigurjón Björgvinsson Hásteinsvegi 9,
Vestmannaeyjum
Svanhildur Harðardóttir Hraunbæ 92,
RVK
Guðrún Halldóra Ólafsdóttir Lækjamót-
um 2, Sandgerði
Guðleif Hafdís Indriðadóttir Laufrima
2, RVK
Ragnar Örn Egilsson Tröllateigi 11, Mos-
fellsbæ
Arnar Þór Óskarsson Kötlufelli 3, RVK
Jóhanna Tryggvadóttir Stuðlaseli 2, RVK
Valdimar Kristinsson Garðsenda 3, RVK
Arnar Grétarsson Esjugrund 96, RVK
Hallfríður Guðmundsdóttir Guðrúnar-
götu 3, RVK
Hulda Björnsdóttir Blikaási 6, Hafnarfirði
Þór Stefánsson Baldursbrekku 11, Húsavík
Hjalti Már Björnsson Safamýri 16, RVK
Valur Kristján Valsson Hólabraut 9,
Blönduósi
Stefán Hallsson Borgarhlíð 4b, Akureyri
Bjarki Rafn Albertsson Hlíðargötu 14,
Neskaupstað
Davíð Guðnason Keldulandi 13, RVK
Árni Ívar Erlingsson Álftamýri 10, RVK
50 ára
Laima Jancauskiené Laugavegi 161, RVK
Ólafur Arason Akraseli 37, RVK
Anna Erla Þorsteinsdóttir Smárabraut 20,
Höfn í Hornafirði
Jón Bergþór Kristinsson Vesturvangi 32,
Hafnarfirði
Haraldur Guðlaugsson Hryggjarseli 12, RVK
Valgerður Geirsdóttir Frostaskjóli 47, RVK
Margrét Steindórsdóttir Lindarbergi 48,
Hafnarfirði
Jóhann Jónsson Hjallahlíð 10, Mosfellsbæ
Erla Lóa Ástvaldsdóttir Sjávargötu 13,
Álftanesi
Ævar Björn Þorsteinsson Brekkusmára 6,
Kópavogi
Gunnar Sigurðsson Garðhúsum 12, RVK
Eggert Lindberg Ólafsson Salthömrum
2, RVK
Rannveig Þórsdóttir Unufelli 31, RVK
Anna Birna Christiansen Hátúni 10b, RVK
Ólafur Ragnar Hilmarsson Unufelli 33, RVK
60 ára
Ingibjörg Jónsdóttir Álfhólsvegi 27, Kópavogi
Aniela Paderecka Strandgötu 86b, Eskifirði
Helgi Bragason RVKurvegi 16b, Hafnarfirði
Friðrik Örn Guðmundsson Smárahvammi
6, Egilsstöðum
Gústaf Adolf Gústafsson Hjallabrekku 13,
Kópavogi
Ingileif Guðjónsdóttir Efstasundi 84, RVK
Aðalbjörg Sigmarsdóttir Vaðlatúni 30,
Akureyri
Kristrún Ástvaldsdóttir Holtabyggð 4,
Hafnarfirði
Sigríður Jónsdóttir Tjarnargötu 22, RVK
Pétur Örn Jónsson Hamravík 10, Borgarnesi
Erla Dagmar Lárusdóttir Tjarnarási 3,
Stykkishólmi
Sigurður Kjartan Harðarson Stapasíðu
16, Akureyri
Hannes Jóhannsson Stóru-Sandvík, Selfossi
Sigfríður Friðþjófsdóttir Ásbúð 56,
Garðabæ
70 ára
Ásta L. Eggertsdóttir Dofrabergi 19,
Hafnarfirði
Ragnar H. Guðmundsson Espilundi 3,
Garðabæ
Arnheiður Jónsdóttir Birkigrund 17, Selfossi
Kristrún Valdimarsdóttir Sæunnargötu 4,
Borgarnesi
Margrét H. Kristinsdóttir Safamýri 34, RVK
Gunnar Hjörtur Gunnarsson Brekkuseli
26, RVK
Margrét Eiríksdóttir Hæðargarði 29, RVK
Guðmunda Alda Eggertsdóttir Súluvöllum
ytri, Hvammstanga
Jóhanna Guðjónsdóttir Hrafnhólum 21,
Selfossi
María Karlsdóttir Stekkjargötu 19, Reykja-
nesbæ
75 ára
Guðmundur Kristinn Guðmundsson Þing-
holtsstræti 27, RVK
Helgi Gíslason Garðabraut 20, Akranesi
Guðmundur Kjartan Ottósson Mánatúni
6, RVK
80 ára
Sigurður Jónsson Sóltúni 13, RVK
Sigrún Cortes Rauðalæk 30, RVK
Erna Sigurðardóttir Birkivöllum 32, Selfossi
Erla Guðmundsdóttir Stillholti 19, Akranesi
85 ára
Auður Aðalsteinsdóttir Hvassaleiti 26, RVK
Dagbjört G. Stephensen Miðleiti 3, RVK
Hermann Bridde Bólstaðarhlíð 45, RVK
Hjördís Alda Ólafsdóttir Seljalandsvegi
8, Ísafirði
Halldóra Gunnlaugsdóttir Tjarnarlundi
3e, Akureyri
Bjarney Jónsdóttir Sigtúni 43, RVK
90 ára
Helga Kristinsdóttir Skúlagötu 20, RVK
95 ára
Áslaug Helga Árnadóttir Suðurlandsbraut
66, RVK
17. maí
40 ára
Radina Íris Bogicevic Trönuhjalla 21,
Kópavogi
Tibor Ördögh Fífumóa 5b, Reykjanesbæ
Kristín Björg Kristjánsdóttir Melabraut 7,
Seltjarnarnesi
Vilhjálmur Bergs Smáratúni 9, Álftanesi
Snorri Páll Jónsson Fjarðarási 10, RVK
Guðbjartur Hafsteinsson Heiðvangi 1,
Hafnarfirði
Sigrún Óskarsdóttir Kársnesbraut 119,
Kópavogi
Sonja Hafdís Poulsen Grashaga 16, Selfossi
Einar Þór Guðjónsson Fróðaþingi 46,
Kópavogi
Guðni Magnússon Laufskógum 7, Hveragerði
Arnbjörg Högnadóttir Klukkubergi 1,
Hafnarfirði
María Guðmundsdóttir Bæjarási 5,
Bakkafirði
Skúli Tómas Hjartarson Bogabraut 9,
Skagaströnd
Sigrún Anna Jónsdóttir Silfurgötu 25,
Stykkishólmi
Sólveig Sigurðardóttir Völusteinsstræti 14,
Bolungarvík
Hallgrímur Kristinsson Logafold 80, RVK
Ásgrímur Haukur Helgason Leirutanga 10,
Mosfellsbæ
Daníel Hinriksson Spóahólum 6, RVK
Íris Thorberg Georgsdóttir Eskihlíð 26, RVK
50 ára
Ólafur Elís Gunnarsson Grenilundi 4, Akur-
eyri
Georg Óskarsson Álfhólsvegi 87, Kópavogi
Sveinbjörn Gizurarson Aflagranda 7, RVK
Jón Guðbjörn Bjarnason Fjarðargötu 17,
Hafnarfirði
Svandís Þóroddsdóttir Móasíðu 6c, Akureyri
Þorgils Óttar Mathiesen Hegranesi 28,
Garðabæ
Ólöf Guðmundsdóttir Hraunbæ 109d, RVK
Kristmann Kristmannsson Urðarhæð 12,
Garðabæ
Brynja Marvinsdóttir Engjavegi 18, Selfossi
María Aletta Margeirsdóttir Bröndukvísl
21, RVK
Sigþrúður Jónsdóttir Eystra-Geldingaholti1,
Selfossi
Jón Freyr Jóhannsson Jaðarseli 2, Borgarnesi
60 ára
Gunnlaugur S. Stefánsson Heydölum,
Breiðdalsvík
Sigurður Jónasson Þinghólsbraut 56,
Kópavogi
Guðrún Ingveldur Baldursdóttir Reynil-
undi 5, Akureyri
Una A. Sölvadóttir Laxatungu 51, Mosfellsbæ
Lilja Finnbogadóttir Þverholti 4, Akureyri
Halldóra Birna Gunnarsdóttir Blöndu-
bakka 16, RVK
70 ára
Guðrún V. Ragnarsdóttir Sóltúni 18, RVK
Bjarni Ólafur Kristjánsson Aðalstræti 41,
Þingeyri
Karl Sigurðsson Bræðratungu 5, Kópavogi
Þórunn Matthíasdóttir Þverholti 7, Mos-
fellsbæ
Ásta Björt Thoroddsen Hlynsölum 1,
Kópavogi
75 ára
Arnheiður Eggertsdóttir Öldugranda 9, RVK
Sjöfn Kristínardóttir Laugarnesvegi 118, RVK
Steinar Hallgrímsson Álfhólsvegi 19,
Kópavogi
Sigrún Gissurardóttir Kirkjusandi 1, RVK
80 ára
Aase Vilborg Madelaire Dunn Hnjúkabyggð
27, Blönduósi
Guðrún Kristinsdóttir Lóulandi 3, Garði
Margrét Ásgeirsdóttir Mávabraut 4d,
Reykjanesbæ
Erla Jóhannsdóttir Hjaltabakka 24, RVK
Erla Þóroddsdóttir Hraunbæ 178, RVK
Ómar Elísson Háholti 29, Akranesi
85 ára
Heiða Tryggvadóttir Sléttuvegi 11, RVK
Einar Jónsson Hringbraut 50, RVK
95 ára
Helga Guðmundsdóttir Aðalstræti 22,
Bolungarvík
Nanna S. Pálsdóttir Garðbraut 85, Garði
Afmælisbörn
Til hamingju!
G
unnar er fæddur í
Hvítanesi við Ísa-
fjarðardjúp hvar hann
sleit skæðum frum-
bernskunnar. „Þegar
ég var sex ára flutti fjölskyldan
inn í Ögurvík og við settumst
að í húsi sem hét Svalbarð og
hafði áður fóstrað Sverri Her-
mannsson og hans fjölskyldu.
Það var mjög gott að alast upp
þarna, enda kannski flest gott í
fjarlægð. Eftir að við fluttumst
á Akranes saknaði ég mjög
sveitarinnar og var loks sendur
í sveit hjá mæðginum í Laug-
ardal við Djúp, þar sem besta
laxveiðiá landsins er. Þar var
ekkert sem minnti á 20. öldina
nema útvarpið og sveitasíminn.
Þarna var ég bara eitt sumar,“
segir hann spaugsamur.
Hann kláraði skóla á Akra-
nesi og fór síðan til Reykjavík-
ur og lauk landsprófi og þaðan
lá leiðin í MR og svo í Háskóla
Íslands. „Það þótti ekki góð lat-
ína á Akranesi á þessum árum
að fara í háskóla, alvöru menn
menntuðu sig til sjómennsku
eða sem iðnaðarmenn. Ég var
eini utanbæjarmaðurinn í 120
manna árgangi í MR. Aðrir
komu af höfuðborgarsvæðinu.
Á sumrum vann ég á Akranesi
og spilaði mikið knattspyrnu
með ÍA. 1961 og 1962 spilaði ég
með meistaraflokki og annað
árið náðum við að verða í öðru
sæti á Íslandsmótinu, einu stigi
á eftir KR. Ég tók mér svo fimm
ára hlé frá boltanum. Að því
loknu gekk ég til liðs við meist-
araflokk KR og varð Íslands-
meistari með þeim 1968,“ segir
hann og nú lýsir keppnisblik í
augum.
Gunnar lagði fyrir sig verk-
fræði í háskóla og lauk fram-
haldsnámi frá háskóla í Þránd-
heimi í Noregi. „Það var gott
að læra þar, góðir kennarar og
stífur agi. Strax þegar ég byrjaði
í verkfræðinni hóf ég sumar-
störf hjá Reykjavíkurborg. All-
ir sem voru í verkfræði fengu
vinnu hjá borginni við mæling-
ar og annað slíkt enda vöntun á
tæknimönnum og miklar fram-
kvæmdir í gangi. Það var verið
að byggja Breiðholtið, ekki lok-
ið við að byggja Fossvoginn og
framkvæmdir á fullu í Árbæn-
um. Aðeins þriðjungur gatna-
kerfisins var malbikaður en
borgin var búin að leggja fram
10 ára áætlun um að ljúka við
malbikun gatna. Það vantaði
því ekki framkvæmdir.“
Borgin varð starfsvettvang-
ur Gunnars, síðustu áratugina
við umferðardeild og þar varð
honum ljóst mikilvægi þess að
reyna að stemma stigu við um-
ferðarslysum. „Það sem ég er
stoltastur af að hafa gert er að
koma í gegn og hanna svart-
blettakassann. Þar eru skráð öll
óhöpp og slys í umferðinni frá
ársbyrjun 1983 og nú er hægt að
sjá hvaða staðir eru erfiðastir og
bregðast við því. Áður var þetta
allt tilviljanakennt og byggt á
einhverjum óljósum tilfinning-
um. Nú hefur þessi gagnabanki
sannað sig.“
Gunnar hefur setið í fjölda
nefnda og ráða í gegnum tíð-
ina. „Af nefndarstörfum er ég
ánægðastur með að hafa stöðv-
að framkvæmdirnar við Korp-
úlfsstaði þegar ég var í bygg-
inganefndinni. Þar stóð til að
eyða ótrúlegum upphæðum í
endaleysu.
Ég var einn af stofnendum
íþróttafélagsins Léttis í Reykja-
vík og var formaður þess í 24 ár.
Ég hef fengið viðurkenningu frá
félaginu fyrir að vera fyrstur til
að keppa í knattspyrnu á sjö-
tugsaldri. Það er líklega sú við-
urkenning sem ég er hamingju-
samastur með.“
Þegar Gunnar er spurð-
ur hvernig leggist í hann að
mæta sjötugsafmælinu verð-
ur hann brosmildur og horf-
ir út um gluggann yfir borg-
ina sína. „Það leggst vel í mig.
Hinn möguleikinn væri að vera
dauður og það vil ég síður,“ seg-
ir hann og skellihlær.
„Ég er hálfnaður að halda
upp á afmælið með fjölskyld-
unni, fór með hluta hennar
til Spánar um páskana og svo
förum við með hinn helming-
inn fljótlega eða kannski bara
um næstu páska. En á afmælis-
daginn fer útskriftarhópurinn
í afmælisferð til Pétursborgar
þannig að hann mun líða í flugi
og rútum en það verður örugg-
lega gaman,“ segir þess síkáti
keppnismaður.
Þ
etta er langlínusímtal,
lyftu upp hendinni ef
þú vilt ná sambandi,“
svona símsvari tekur
á móti manni áður
en Harpa afmælisbarn svarar í
símann sinn. Í óvissu um hvort
nauðsynlegt sé að lyfta hend-
inni er beðið svars og að lokum
er gengið frá hittingi til að ræða
við afmælisdömuna.
„Ég er ekki Gaflari, ég er
Hafnfirðingur alin upp í vestur-
bænum. Þar er heilt ævintýra-
land í hrauninu og æðislegt að
alast þar upp. Í hrauninu var
mikið líf bæði mennskt og svo
var mikið dýralíf þarna líka. Ég
man þegar pabbi elti rottu og
reyndi að rota hana með skón-
um mínum, en hún slapp og
skórinn líka.
Í gjótunum þarna gerðum
við okkur alls kyns leikvelli,
sumar voru fyrir mömmuleiki
þó erfitt væri að koma vögn-
um og kerrum um hraunið,
aðrar gjótur voru fyrir bófa-
leiki og svo koll af kolli. Enda-
laust rými og fjörugt ímynd-
unarafl gat skapað allt þarna.
Amma var nánast í næsta húsi
og þar var ég dekruð út í eitt.
Við amma náðum vel saman
og hún kenndi mér flest gott
sem ég kann. Sérstaklega lagði
hún áherslu á að orð ættu að
standa,“ segir Harpa þar sem
hún skiptir um bleiu á Bjarna
litla.
Harpa var mikið í sveit frá
unga aldri og hefur aldrei slit-
ið taugina við dýrin og sveitina.
„Ég fór ung í sveit á sumrum en
tók mér hlé frá því þegar gelgj-
an var í hámarki og ég varð
skotin, þá gat ég auðvitað ekk-
ert farið en svo leið það hjá og
ég fór aftur í sveitina. Nú er ég
svo heppin að mágkona mín á
heima í sveit og við reynum að
fara þangað sem mest. Kannski
á ég eftir að setjast að í sveit-
inni. Þegar ég var lítil ætlaði ég
að verða ljósmóðir eða bóndi.
Kannski að það fari saman, ég
hef tekið á móti mörgum líf-
um í sveitinni,“ segir Harpa og
skellihlær.
„Núna var ég að flytja á
Vatnsleysuströndina og hér
er fólk allt í kringum mig með
rollur. Kannski að ég fái mér
bara hænur, það væri þó allt-
af byrjunin á búskap,“ segir
sveitakonan hugsi.
Hana hlakkar til afmælis-
ins og að verða þrítug enda
telur hún aldurinn þroska sig.
„Ég verð bara virðulegri við að
eldast, ég fæddist eldgömul sál
og hef alltaf litið upp til eldra
fólks. Á afmælisdaginn verður
opið hús og kaffi á könnunni
hérna á Vatnsleysuströndinni.
Fjölskyldan, vinir og ættingj-
ar munu koma og fá sér sopa
með mér.
Á laugardaginn verður
svo saumaklúbbsgleði. Það
verður fjörugt stelpupartí þar
sem verður matur, brandarar
og baunir,“ segir hún með til-
hlökkun í röddinni.
Gunnar Hjörtur Gunnarsson verkfræðingur 70 ára 16. maí
Stoltur af svart-
blettakassanum
Pabbi reyndi
að rota rottu
Harpa Bjarnadóttir húsmóðir 30 ára 17. maí
Borgin varð starfsvettvangur Gunnars „Það sem ég er stoltastur af
að hafa gert er að koma í gegn og hanna svartblettakassann. Þar eru skráð
öll óhöpp og slys í umferðinni frá ársbyrjun 1983 og nú er hægt að sjá hvaða
staðir eru erfiðastir og bregðast við því.“
Hafnfirðingur alinn upp í vesturbæ „Þar er heilt ævintýraland í
hrauninu og æðislegt að alast þar upp.“
Stórafmæli
Stórafmæli