Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2012, Side 3
Pétur er í gegnum félög sín
eigandi byggingaverktaka
fyrirtækisins Eyktar. Skuldir
Eyktar hafa einnig vakið athygli
en skuldastaða fyrirtækisins hef
ur hlaupið á tugum milljarða nú
eftir hrun. Önnur félög í eigu
Péturs, eins og eignarhaldsfé
lagið Höfðatorg sem stofnað var
utan um turninn í Borgartúni
sem ber sama nafn, skulduðu 23
milljarða í árslok 2011 og höfðu
þá verið yfirtekin að mestu leyti
af Íslandsbanka. n
Í
sland á geysilega mikið undir
því að það greiðist vel úr vanda
Evrópu,“ sagði Steingrímur J. Sig
fússon, efnahags, viðskipta, sjáv
arútvegs og landbúnaðarráð
herra, í sérstakri umræðu um áhrif
evruvandans á þróun Evrópusam
starfsins og áhrif breytinganna á Ís
land í þinginu á þriðjudag. „Ég verð
að segja frá því að ég fæ mig ekki með
nokkru móti til þess að tala glað
hlakkalega um þessi vandamál þó að
ég sé andvígur inngöngu í Evrópu
sambandið,“ sagði Steingrímur og
bætti við að honum þætti ónotalegt
að finna að líkt og hlakkaði í sum
um andstæðingum aðildar Íslands
að Evrópu vegna vanda álfunnar.
„Getum við nú ekki haldið því að
greindu?“ sagði Steingrímur.
Breytt staða aðildarumsóknar
Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálf
stæðisflokks, kallaði eftir umræðu
um stöðu evrunnar á þinginu og hóf
hana. Hann sagði þá ákvörðun, að
taka upp sameiginlega mynt ESB
landanna, ekki einvörðungu hafa
verið efnahagslega heldur einnig
pólitíska. Með því hefði verið tekin
sú ákvörðun að dýpka sameiningu
ríkjanna. „Sú sameining hefur ekki
gengið fram og það hefur þýtt það að
evran hefur átt erfiðara og erfiðara
uppdráttar. Vegna þess að grund
völlur hennar er ekki rétt lagður,“
sagði Illugi í umræðunni. Hann tel
ur forsendur aðildarumsóknarinn
ar gjörbreyttar frá því þegar Alþingi
tók ákvörðun um að hefja samninga
viðræður við Evrópusambandið að
sumri ársins 2009.
„Bandalagið er að breytast þannig
að það mun verða æ líkara sam
bandsríki. Margir eru þeir sem eru
alveg sáttir við þá þróun og telja hana
heppilega,“ sagði Illugi og benti á að
varla væri hægt að líta fram hjá þeirri
breyttu stöðu sem komin væri upp.
„Þegar við Íslendingar sóttum um
aðild þá var uppi allt önnur staða en
nú er. Þess vegna er það ekkert óeðli
leg krafa að við endurskoðum okkar
afstöðu til þessa máls í ljósi þess sem
er að gerast,“ sagði Illugi og nefndi að
margir teldu evruna eina meginrök
semd aðildarumsóknar Íslands að
sambandinu á sínum tíma.
Bankabandalag Evrópu
Illugi sagðist sannfærður um að
lausn evruvandans væri aukinn
samruni evruríkjanna. „Ég óttast að
það verði gert þannig að farið verði
fram hjá hinu lýðræðislega ferli. Það
verði farið fram hjá kjósendum í álf
unni og menn búi til alls konar sjóði
og fyrirkomulag til að tryggja að
hægt verði að standa með evrunni
en slíkt verði ekki borið undir kjós
endur.“ Hann bætti við að enginn
óskaði sér þess að evrusamstarfið
gliðnaði í sundur. „Það væri skelfi
leg atburðarás sem myndi valda
miklum skaða.“
Steingrímur sagði seðlabanka
Evrópu þegar hafa kynnt viðamikið
bankabandalag sem byggði á mið
lægu eftirlitskerfi með fjármála
stofnunum, sameiginlegu innstæðu
tryggingakerfi og sameiginlegu kerfi
til að takast á við fallandi og fallna
banka í álfunni. Steingrímur sagði
Evrópu hafa átt við krísu að stríða í
rúmt ár án teljandi áhrifa á Ísland.
Viðbúnaður Íslands
„Ég óttast nú að það sem næst okkar
standi hvað varðar áhrif á íslenskt
efnahagslíf sé kannski þrjú fyrir
bæri, fiskur, ál og ferðamenn,“ sagði
Steingrímur um bein áhrif efna
hagssamdráttar í Evrópu á Ísland.
„Það er líklegast að neikvæð áhrif
af þessu berist fyrst til okkar í gegn
um versnandi viðskiptakjör, þyngsli
í útflutningsstarfsemi og hnökra í
bankaviðskiptum ef þau verða í ólagi
og hugsanlega dregur þetta úr ferða
lögum frá þessum löndum.“ Hann
sagði viðbúnað Íslendinga vegna
málsins meðal annars felast í að ráð
herranefnd um efnahagsmál fylgd
ist reglulega með framvindu mála.
Sama ætti við um Seðlabanka og
Fjármálaeftirlit sem fylgdist með
breytingum í álfunni. Steingrímur
bætti við að umboð nefndar um fjár
málastöðuleika hefði nýlega ver
ið endurnýjað á grunni uppfærðrar
verklýsingar.
Hópur um fjármálastöðugleika
var starfræktur fyrir hrun og heyrði
meðal annars undir forsætisráðu
neyti, efnahagsráðuneyti og við
skiptaráðuneyti. Meðal þess sem
Geir H. Haarde, fyrrverandi for
sætisráðherra, var ákærður fyrir var
að hafa ekki gengið nægjanlega úr
skugga um að vinna hópsins gagn
aðist. Þá voru fundargerðir hóps
ins lykilgögn í málinu gegn Baldri
Guðlaugssyni, fyrrverandi ráðu
neytisstjóra fjármálaráðuneytis,
vegna innherjaviðskipta. Baldur
var dæmdur í tveggja ára fangelsi
í Hæstarétti í febrúar síðastliðn
um. Steingrímur bætti einnig við
að stýrihópur um losun gjaldeyris
hafta hefði komið saman og fjallað
um málefni evrusvæðisins og legði
áherslu á að vakta stöðu mála. „Ég
held að það megi segja að viðbún
aður og aðstæður okkar séu góð
ar. Það þýðir ekki að draga úr því að
haldi þessi vandi áfram að versna,
þá verður hann í vaxandi mæli okk
ar vandi,“ sagði hann.
Evruvandinn of lítið ræddur
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Framsóknarflokksins,
kvaddi sér hljóðs í umræðunni og
gagnrýndi sinnuleysi þingsins og
fjölmiðla þegar kæmi að umfjöll
un um vanda evrunnar. „Þó að
það gríðarlega stóra mál hafi ver
ið helsta umfjöllunarefni fjölmiðla
í nánast öllum Evrópulöndum
undanfarin ár þá hefur að miklu
leyti verið litið fram hjá þessu
máli hér á Íslandi. Ekki hvað síst í
þinginu.“
Sigmundur Davíð sagðist undr
ast þennan skort á umræðu í
ljósi aðildarviðræðna Íslands og
Evrópusambandsins. Hann sagði
ljóst að sambandið myndi gjör
breytast á næstu árum og sagði
engan málsmetandi mann halda
öðru fram en að núverandi vandi
Evrópu myndi gjörbreyta sam
starfi þjóðanna. „Annaðhvort
muni það losna í sundur eða fær
ast miklu nær því að vera þjóðríki.“
Sigmundur sagði marga fulltrúa
sambandsins ófeimna við að lýsa
því yfir að stefna skyldi að auknum
völdum sambandsins yfir aðildar
ríkjum þess.
80 milljóna
sumarhöll
Fréttir 3Miðvikudagur 13. júní 2012
n Félag Péturs Guðmundssonar fékk 3,5 milljarða afskrifaða
Myndarleg verönd Það fer líklega vel
um Pétur og gesti hans á veröndinni við
sumarbústaðinn.
M
y
n
d
S
ig
tr
y
g
g
u
r
A
r
i J
ó
h
A
n
n
SS
o
n
Vandi evrunnar er
vandi krónunnar
n Steingrímur segist ekki glaðhlakkalegur yfir vanda evrunnar
„Evran hefur átt
erfiðara og erf-
iðara uppdráttar.
llugi Gunnarsson
„Ég óttast nú að
það sem næst okk-
ur standi hvað varðar áhrif
á íslenskt efnahagslíf sé
kannski þrjú fyrirbæri, fisk-
ur, ál og ferðamenn.
Steingrímur J. Sigfússon
„Annaðhvort muni
Evrópusambandið
losna í sundur eða fær-
ast miklu nær því að vera
þjóðríki.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
óskaði eftir umræðu Illugi Gunnarsson
sagði engan óska þess að myntbandalagið
gliðnaði í sundur en telur ljóst að breytingar
hafi orðið á ESB frá því að Alþingi ákvað að
sækja um. Það kalli á endurskoðun.
undrast litla umfjöllun Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson sagðist undrast hve
litinn gaum þingið og fjölmiðlar hefðu
undanfarið gefið vanda evrunnar. Krísan sé
helsta umfjöllunarefni erlendra miðla.
ónotaleg tilhlökkun Steingrímur J.
Sigfússon sagðist ekki geta fundið til til-
hlökkunar vegna vanda evrunnar þótt hann
væri andvígur aðild Íslands að Evrópusam-
bandinu.
Atli Þór Fanndal
blaðamaður skrifar atli@dv.is
Vandi evru verður okkar Þingmenn ræddu stöðu evrunnar í ljósi efnahagskrísu evrusvæðisins, hugsanleg áhrif breytinga á stöðu
Íslands og aðildarumsókn landsins.