Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2012, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2012, Blaðsíða 24
em-staðreyndir sem þú vissir ekki 24 Sport 13. júní 2012 Miðvikudagur Rasismi rannsakaður UEFA hefur hafið rannsókn á meintum rasisma gegn Mario Balotelli, framherja Ítalíu, og Theodor Gebre Selassie, varnar- manni Tékklands. Báðir eru þeir sagðir hafa orðið fyrir því að stuðn- ingsmenn andstæðinganna upp- hófu apahljóð að leikmönnunum á EM 2012, en báðir eru þeir dökkir á hörund. Spænskur stuðningsmanna- hópur hefur viðurkennt að um 200 stuðningsmenn þjóðarinn- ar hafi viðhaft slíkt í garð Balotelli þegar Spánverjar léku gegn Ítalíu. Þá staðfesti UEFA að fyrir lægju sönnunargögn um að Selassie hafi orðið fyrir kynþáttaníði í leik Tékk- lands gegn Rússlandi. Selassie sá ekki ástæðu til að leggja fram formlega kvörtun: „Ég hef lent í miklu verra.“ Talsmaður UEFA segir mál- in verða rannsökuð. Samkvæmt reglum sambandsins bera knattspyrnusambönd þjóðanna ábyrgð á brotum stuðningsmanna sinna. K róatíska landsliðið hefur verið kært af Knattspyrnusambandi Evrópu, UEFA, vegna atvika sem áttu sér stað í 3–1 sigurleik liðsins gegn Írlandi í C-riðli á sunnu- dag. Einn áhangandi Króatíu missti sig í stuðinu og sá sig tilneyddan til að rjúka inn á völlinn, vel merktur króatísku fánalitunum. Maðurinn var tæklaður af öryggisvörðum og fluttur nauðugur af velli. Hann var þó ekki hættur. Á leið sinni út af kastaði hann kveðju á Slaven Bilic, landsliðsþjálf- ara Króatíu, sem var víst ástæða þess að hann lagði í víking inn á völlinn. Þjálfarinn tók honum ágætlega. Um netið hefur gengið myndband af at- vikinu þar sem Bilic sést kasta kveðju á kappann til baka og þá virðast þeir ætla að kveðjast með einum nettum kossi á kinnina. Slíkur var þó æsingurinn í hinum óboðna gesti að ekki vildi betur til en svo að hann og Bilic kysstust beint á munninn. Bilic tók þessu öllu saman af gríðarlegri yfirvegun enda eitursvalur. Samlandar þessarar boð- flennu áttu margir erfitt með að hemja flugelda sína og blys í stúkunni í leiknum. Mikinn reyk lagði frá þess- um gleðiblysum Króatanna sem varð til þess að leikurinn í Poznan tafðist. Nú hefur UEFA ákveðið að draga Króatíu til ábyrgðar vegna framferð- is stuðningsmannanna. Samkvæmt The Guardian er Króatía fjórða þjóð- in til að vera kærð af UEFA eftir fyrstu átta leiki fyrstu umferðar móts- ins. Sambandið er einnig að rann- saka atvik er varða stuðningsmenn Rússlands, Þýskalands og Portúgal. Aganefnd mun fara yfir mál Króata á föstudaginn kemur, líklega þarf króatíska knattspyrnusambandið að greiða sekt. mikael@dv.is Kyssti Bilic á munninn n Króatar í klandri eftir innrás aðdáanda Blessaður! Bilic tók stuðningsmanninum ágætlega. Kastaði á hann kveðju og gott betur en það. Úrslit EM í knattspyrnu Riðill A Grikkland – Tékkland 1-2 0-1 Jiracek (3.) 0-2 Pilar (6.) 1-2 Gekas (53.) Pólland – Rússland 1-1 0-1 Dzagoev (37.), 1-1 Blaszczykowski (57.) Staðan L U J T Skor Stig 1. Rússland 2 1 1 0 5:2 4 4. Tékkland 2 1 0 1 3:5 3 3. Pólland 2 0 2 0 2:2 2 2. Grikkland 2 0 1 1 2:3 1 Riðill B Staðan L U J T Skor Stig 1. Danmörk 1 1 0 0 1:0 3 2. Þýskaland 1 1 0 0 1:0 3 3. Holland 1 0 0 1 0:1 0 4. Portúgal 1 0 0 1 0:1 0 Riðill C Staðan L U J T Skor Stig 1. Króatía 1 1 0 0 3:1 3 2. Spánn 1 0 1 0 1:1 1 3. Ítalía 1 0 1 0 1:1 1 4. Írland 1 0 0 0 1:3 0 Riðill D Staðan L U J T Skor Stig 1. Úkraína 1 1 0 0 2:1 3 2. England 1 0 1 0 1:1 1 3. Frakkland 1 0 1 0 1:1 1 4. Svíþjóð 1 0 0 1 1:2 0 n Fyrsta umferðin gerð upp n 12 fróðlegir molar frá Opta Sports Runan Markið sem Samir Nasri skoraði gegn Englandi kom eftir 21 franska sendingu í röð. Það er næstlengsta sendingaruna á undan marki á EM síðan 1980. Bitlausir Leikmenn enska lands- liðsins virkuðu áhuga- og bitlausir fram á við. Það má kannski rekja til þess að aðeins 51 prósent sendinga þeirra á vallarhelmingi andstæðinganna gekk upp. Það er lægsta hlutfall hjá öllum liðum. Þýska stálið Portúgalar virðast ráða illa við Þjóðverja í loftinu. Síðustu þrjú mörk sem Portúgal hefur fengið á sig í loka- keppni EM hafa öll verið þýsk skallamörk. Ekki hauslausir Joleon Lescott skoraði opnunarmark Englands á EM í ár með skalla. Þetta er þriðja Evrópumótið sem England tekur þátt í þar sem fyrsta mark þeirra kemur eftir skalla. England hefur hins vegar aðeins unnið sex af þeim fjórtán EM leikjum sem þeir hafa skorað fyrsta markið í. Markaregn Króatar brutu sterka vörn Íra á bak aftur með 3 mörkum. Árið 2008 dugði það þeim að skora aðeins 4 mörk til að vinna alla sína leiki í riðlakeppninni. Á sama tíma var þetta í fyrsta skipti sem Írar fá á sig þrjú mörk eða meira í Evrópukeppni. Stressaður John O‘Shea, varnar- maður Íra, var ekki að finna samherja sína í fyrri hálfleik gegn Króötum. Aðeins 48 prósent sendinga hans gengu upp. Skallinn Fyrsta umferðin var um- ferð skallamarka. 40 prósent markanna 20, sem skoruð voru, voru skoruð með skalla. Sextán prósent markanna í undankeppninni komu eftir skalla. Yfirburðir Ítalir voru ekki öfundsverðir að þurfa að mæta heims- og Evrópumeisturum Spánar í fyrsta leik. Leikmenn Cesare Prandelli voru enda aðeins með knöttinn 34 prósent leiktímans. Minnst allra liða. Einangraður Mario Gomez, framherji Þýskalands, skoraði sigurmarkið í leiknum gegn Portúgal. Hann þarf ekki að vera virkur í spilinu til að skapa hættu. Hann kom aðeins átta sinnum við boltann í fyrri hálfleik. Grófir Pólverjar brutu oftast allra þjóða af sér í fyrstu umferð EM. Dómari leiksins þurfti í 23 skipti að flauta eftir að grískur leikmaður lá í valnum. Tæklingar Steven Gerrard, fyrirliði Englands, reyndi hvað hann gat til að láta finna fyrir sér. Hann og pólski miðjumaður- inn Eugen Polanski áttu flestar tæklingar í fyrstu umferð – sjö hvor. Óvænt eða hvað? Margir töldu sigur Dana á Hollandi óvæntustu úrslit fyrstu umferðar. Danir hafa hins vegar aldrei tapað leik á EM þegar þeir eru fyrri til að skora. Hafa unnið 5 af þeim 9 leikjum. Rándýr Silva Umboðsmaður brasilíska varnar- mannsins Thiago Silva hefur stað- fest að þeir eigi í viðræðum við Paris Saint-Germain. Silva leikur með AC Milan en þar á bæ vilja menn fá 50 milljónir evra fyr- ir manninn. PSG er sagt reiðubú- ið til að greiða um 40. Silva yrði þá langdýrasti varnarmaður sögunnar en hann kom til liðsins árið 2008. Antonio Cassano, framherji Milan, hefur stigið fram og fordæmt allar hugmyndir um að selja Silva. „Ég veit ekki einu sinni hvort Milan muni selja hann,“ segir umboðs- maðurinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.