Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2012, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2012, Blaðsíða 4
Þingrof „alveg nauðsynlegt“ n Prófessor segir fund LÍÚ einn ömurlegasta atburð í sögunni S vanur Kristjánsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, telur „langhyggileg- ast og reyndar alveg nauðsyn- legt,“ að þing verði rofið sem fyrst og kosið til Alþingis strax um miðjan ágúst. Svanur var í viðtali við Speg- ilinn á Rás 2. Hann segir að andrúmsloft- ið á Alþingi sé gjörsamlega ólíð- andi þar sem allir tali um að á sér sé troðið og mönnum finnist þeir vera beittir valdi úti um allt. Fyrir vikið sé hann farinn að hafa áhyggj- ur af lýðræðinu. Svanur vill að þing- ið endurnýi umboð sitt svo hægt sé að byrja að takast á við mál á borð við breytingar á fiskveiðistjórnunar- kerfinu. Hann segir mikilvægt að vinda ofan af því lénsskipulagi sem nú sé við lýði við stjórn fiskveiða og „koma á skikkanlegu kerfi.“ Svanur segir að mestu máli skipti í lýðræðislegu þjóðfélagi að sá sem taki ákvarðanir hafi til þess umboð. Hann gagnrýnir aðgerðir LÍÚ að undanförnu. „Þessi fundur sem LÍÚ boðaði til á Austurvelli er einn ömurleg- asti atburður í sögu þessa lands, þar sem vinnuveitendur eru að hvetja og flytja fólk sem er í vinnu hjá þeim á slíka fundi,“ segir Svan- ur. Hann vill að ný lög um stjórn fiskveiða taki ekki gildi fyrr en þau hafi verið samþykkt í þjóðarat- kvæðagreiðslu og búið sé að kjósa nýjan meirihluta Alþingis. Þá geti þjóðin farið að snúa sér að ein- hverju öðru, enda kominn tími til. 4 Fréttir 13. júní 2012 Miðvikudagur Svanur Kristjánsson „Þessi fundur sem LÍÚ boðaði til á Austurvelli er einn ömurleg- asti atburður í sögu þessa lands.“ Nordjobb um mál finnsku stúlkunnar: „Þetta er bara ekki svona einfalt“ Stefán Vilbergsson, forsvarsmað- ur Nordjobb á Íslandi, segir að mál finnskrar stúlku, sem segir að bóndi sem réð hana í vinnu hafi þverbrotið ráðningarsamninga hennar, sé ekki alveg eins slétt og fellt og ætla mætti af fyrstu um- fjöllun Vísis um málið. Þar kom fram að stúlkan, sem heitir Maija og kom til Íslands frá Finnlandi til að starfa á vegum Nordjobb, hefði verið ósátt við starfskjör sín þegar hún mætti til starfa á bóndabæ. Maija segist hafa þurft að vinna 12 tíma vaktir án yfirvinnugreiðslu og segir að bóndinn hafi tjáð sér að hvað frídagana varðaði myndi hann sjálfur ákveða hvenær hún fengi að taka þá. Samkvæmt samningi átti hún að vinna á átta tíma vöktum og eiga tvo frídaga í viku. „Þetta er bara ekki svona ein- falt,“ segir Stefán í samtali við DV. Hann segir að konan hafi haft samband við Nordjobb á Íslandi og þau hafi strax farið að skoða aðstæður á bóndabænum. Í ljós kom að um algjört samskiptaleysi var að ræða milli starfsmanna og yfirmanns. „Bóndinn hafði ekki sagt þeim að í upphafi sumarsins væru ekki allir starfsmenn mætt- ir og því væri vaktafyrirkomulag í uppnámi,“ segir Stefán. Enn frem- ur hafði Stefán eftir umræddum bónda að um hefði verið að ræða skammtímaástand ráða hefði átt bót á nokkrum dögum seinna þegar tekist hefði að fullmanna stöður. „Vinnuveitandinn vissi ekki að hún væri þetta ósátt. Ég held að hér sé um samskiptaleysi að ræða. Vinnuveitandinn hefði átt að láta vita af þessu fyrirkomulagi og starfsfólkið hefði átt að láta vita af því að það væri ósátt,“ segir hann. Hann segir að vissulega sé mis- jafnt hvernig aðstæður séu á mark- aðinum en að hann hafi talið að þarna hafi ekki verið um að ræða slæmar aðstæður. „Ég sá ekki bet- ur en að þetta yrði bara mjög eðli- legt, en hún vildi vera örugg um öll sín mál og fannst felast óöryggi í að þetta væri ekki eins og talað var um í byrjun,“ segir Stefán. „Það var ekki komin nein reynsla á þetta myndi ég segja.“ Stúlkan vildi sjálf fara burtu af bænum eftir fjögurra daga vinnu og því varð hún samferða starfs- fólki Nordjobb heim og er nú unnið að því að finna henni nýja vinnu. Þ etta er viðbjóðsleg lykt, bara eins og lykt af úldnum mat- vælum er. Það er svo vond lykt hérna að það er ekki hægt að skilja eftir opna glugga þá angar allt af þessari úldnu fiski- fýlu,“ segir íbúi í Garðinum sem vill ekki láta nafns síns getið. Íbúinn seg- ist alveg vera að gefast upp á megnri ólykt sem er í bænum og orsakast af fiskþurrkunarvinnslum sem standa sunnan við bæinn. Þar eru fiskbein og fiskhausar þurrkaðir og segir hann ástandið vera svo slæmt að íbúar geti í vissum vindáttum ekki haft glugga á heimili sínu opna hvað þá að njóta þess að vera úti við. Mengun yfir Garðinum „Þetta er þannig að við vöknum á nóttunni og þurfum að loka gluggun- um. Svo vond er lyktin. Þetta er úti um allt í bænum, mismikið eftir vindátt. Það er bara mengun yfir Garðinum. Það er ekki hægt að hengja þvott út á snúru, þá angar hann,“ segir hann. Hann segir þetta vera alþekkt vandamál í bænum sem hafi aukist með árunum. Tvær fiskþurrkanir eru á svæðinu. „Þetta hefur verið í gangi í nokkur ár. Fyrst var ein, en svo reis önnur þarna nánast við hliðina og lyktin versnar stöðugt. Fólk er orðið mjög þreytt á henni,“ segir hann og lýsir lyktinni sem mikilli ýldufýlu. „Þetta er lykt af úldnum fiskibein- um og fiskhausum sem er verið að þurrka. Hrikaleg ýldulykt.“ Hann segir lyktina vera meiri í miklu logni og það sé ekki hægt að vera úti við þegar mjög gott veður sé. „Þá kemur lyktin mjög sterk,“ segir hann. Helvíti hart Hann segir það miður að þurfa að búa við þetta þar sem margir, eins og hann, séu fæddir og uppaldir í Garðinum, og vilji búa þar. Lyktin sé hins vegar það slæm að það sé varla líft í bænum lengur. „Það er hægara sagt en gert að flytja héðan. Ef þú átt hús hérna þá selur þú það ekki svo glatt. Það er líka helvíti hart ef mað- ur þarf að flytja burt út af einhverri skítalykt sem flæmir mann í burtu þó manni líki vel á staðnum.“ Hann segist margoft hafa kvartað bæði við bæjaryfirvöld og heilbrigð- iseftirlit Suðurnesja en lítið hafi verið um svör. „Ef maður hringir og kvart- ar þá er bara sagt að þeir geti ekkert gert.“ Verið að vinna að úrbótum DV hafði samband við Heilbrigðis- eftirlit Suðurnesja og þar fengust þau svör að vandamálið væri þekkt og borist hafi kvartanir vegna þess. „Við höfum núna í nokkurn tíma verið að vinna að úrbótum með fyrirtækjun- um. Við væntum þess að þær úrbæt- ur leiði til þess að þessi lykt minnki stórlega og vonandi hverfi. Þetta er ósoneyðingarbúnaður sem er ver- ið að setja upp þarna,“ segir Ríkharð- ur F. Friðriksson. Hann segir að ver- ið sé að vinna að lausn vandamálsins um þessar mundir. „Við verðum bara að sjá hvernig þetta kemur til með að virka en við bindum vonir við það að þetta muni leysa vandamálið.“ Fyrrnefndur íbúi segist ekki hafa mikla trú á úrbótum Heilbrigðis- eftirlitsins. „Þeir segja alltaf að þeir séu að vinna að úrbótum en það ger- ist ekki neitt.“ Arnbjörn Eiríksson, verkstjóri í þurrkunarhúsi Nesfisks, segir úr- bætur vera í gangi. „Það er verið að setja upp ósoneyðingarbúnað núna. Hann hefur reynst vel annars staðar, til dæmis á Húsavík. Það er samt alltaf einhver lykt sem fylgir svona og að mínu mati er hér um skipulagsslys að ræða. Þetta fyrirtæki er búið að standa hér í þrjátíu ár og þetta er iðnað- arhverfi. Íbúðabyggðin sem kom eft- ir á var höfð alltof nálægt þó að nægt pláss væri,“ segir Arnbjörn. n Fiskhausverkun veldur ólykt í bænum n Unnið að úrbótum„Þetta er þannig að við vöknum á nóttunni og þurfum að loka gluggunum. Svo vond er lyktin. Viktoría Hermannsdóttir blaðamaður skrifar viktoria@dv.is Ýldulykt í Garðinum Fiskþurrkun Íbúi í Garði segir fiskþurrkun vera mikið vandamál í bænum. Svo mikil ólykt komi frá þeim að mikill ami sé af. MyNdir eyþór árNaSoN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.