Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2012, Síða 6
Fordæma fjöldamorðin
n Sameiginleg yfirlýsing forsætisráðherra Norðurlandanna
F
orsætisráðherrar Norðurland-
anna fordæma árásir gegn íbú-
um Sýrlands í sameiginlegri til-
kynningu sem þeir hafa sent
fjölmiðlum. Þeir telja fjöldamorðin
í Houla og Qubayr fullkomlega
óviðunandi. Þau sýni að stjórnvöld
í Sýrlandi hafi að engu sex liða frið-
aráætlun Kofi Annan á vegum Sam-
einuðu þjóðanna. Í tilkynningunni
segir að forsætisráðherrarnir krefjist
þess að sýrlensk stjórnvöld breyti taf-
arlaust stefnu sinni og hrindi áætl-
un Annan í framkvæmd. Kalla verði
árásarmenn til ábyrgðar enda hljóti
brot gegn ákvæðum samningsins að
hafa afleiðingar í för með sér. Gjáin
milli lögmætra krafna almennings
um lýðræði og stöðugra árása stjórn-
arliða útiloki pólitíska lausn málsins
meðan Assad sé við völd.
Forsætisráðherrarnir hvetja
stjórnarandstæðinga í Sýrlandi til
þess að virða sex liða áætlun Kofi
Annan og að leita friðsamlegra póli-
tískra lausna.
Norðurlöndin taka þátt í friðar-
gæslu í Sýrlandi og styðja heilshugar
aðstoð Annan, Sameinuðu þjóð-
anna og Arababandalagsins við Sýr-
lendinga í leitinni að friðsamlegri
pólitískri lausn. Það er mikilvægt
að mati forsætisráðherranna að al-
þjóðasamfélagið hafi breiða og sam-
stillta aðkomu að málinu.
Forsætisráðherrarnir undirstrika
þá ábyrgð sem lögð er á herðar ör-
yggisráðs Sameinuðu þjóðanna.
Fastafulltrúar ráðsins verði að grípa
til skýrra aðgerða og þrýsta á stríð-
andi öfl í landinu. Stríðandi fylk-
ingar megi ekki túlka aðgerðir al-
þjóðasamfélagsins til að koma á friði
í Sýrlandi sem undanþágur til áfram-
haldandi valdbeitingar.
6 Fréttir 13. júní 2012 Miðvikudagur
Fjármálaráðherra yrkir níðvísur:
Kveðst á við
amx-menn
Steingrímur J. Sigfússon, fjár-
málaráðherra og formaður Vinstri
grænna, er farinn að kveðast á við
stjórnendur vefjarins amx.is sem
sendu honum pillu í bundnu máli
á dögunum. Ljóð amx-liða, sem
birtist í dálknum Fuglahvísl var á
þessa leið:
Fáum var hann fyrirmynd,
fáir nefndu hann Jóhann.
Með Jóhönnu hann sökk í synd,
síðan bara dó hann
Steingrímur J. ákvað að láta
þessari níðvísu ekki ósvarað og
sendi þeim amx-liðum, sem eru
hallir undir íhaldssamasta kjarna
Sjálfstæðisflokksins, vísu til baka
„Ekki kippi ég mér upp við hefð-
bundið og reglulegt nag ykkar í
mig, en þótti fróðlegt þetta með
kveðskapinn og kíkti því á hann.
Þá fór í verra, því mér þótti illa
kveðið. Ég vil því bjóða ykkur að
birta þetta svar frá mér og bréfið
með ef þið viljið,“ skrifar Stein-
grímur og lætur síðan vísuna
fylgja með:
Illa kveðinn er þinn leir,
ýldu fylgir þefur.
Þegi skaði þegar deyr,
þessi aumi vefur.
Jóhanna Sigurðardóttir Hefur ásamt
forsætisráðherrum annarra Norðurlanda
fordæmt fjöldamorðin í Sýrlandi.
Rétti tollvörð-
um fíkniefnin
Tæplega þrítugur karlmaður, af
erlendu bergi brotinn, var stöðv-
aður við hefðbundið eftirlit toll-
gæslu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar
á sunnudag, vegna gruns um að
hann væri með fíkniefni á sér. Sá
grunur reyndist á rökum reistur,
því maðurinn afhenti tollvörðum
kannabisefni sem hann var með í
tösku sinni. Efnunum hafði hann
komið fyrir í tannkremstúpu. Lög-
reglan á Suðurnesjum ræddi við
manninn, sem þurfti að greiða
sekt á vettvangi, en var síðan frjáls
ferða sinna.
H
ingað til hafa réttindi okkar
verið algjörlega háð geð-
þóttaákvörðunum og velvilja
starfsfólks hjá opinber-
um stofnunum,“ segir Anna
Kristjánsdóttir, fulltrúi í nefnd velferð-
arráðuneytis um réttindi transfólks á
Íslandi. Alþingi samþykkti á mánudag
lög sem miða að því að tryggja réttar-
stöðu hópsins. „Það er loksins búið að
setja reglur um hluti sem þegar eru
staðreynd,“ segir Anna og bætir við að
í sjálfum sér breytist framkvæmd kyn-
leiðréttingar ekki mikið með setningu
laganna en að ekki megi gera lítið úr
gildi laganna enda hafi ríkt lagaleg
óvissa um réttindi hópsins. Hún seg-
ir erfitt fyrir þá sem ekki hafa upplifað
að vera duttlungum annarra háð um
réttindi sín að ímynda sér þá réttarbót
sem felist í lögunum.
Bág réttindi transfólks
Árið 2010 flokkuðu ILGA, alþjóðleg
samtök hinsegin fólks, Ísland í tíunda
sæti Evrópuríkja vegna lagalegrar
stöðu hinsegin fólks. Listinn tók að-
eins mið af lagalegum rétti og ekki var
gerð tilraun til að greina samfélags-
legan rétt. Það vakti nokkra athygli
að Ísland fékk fullt hús þegar kom
að réttindum til giftinga og lagalegri
vernd samkynja para og foreldra. Þá
kemur fram að lagaleg vernd sé gegn
hatursglæpum vegna kynhneigðar
og að gleðiganga hinsegin fólks fari
fram án vandræða. Lagaleg staða
transfólks var hins vegar svo slæm að
mati samtakanna að Ísland féll niður
í tíunda sæti listans. Anna segir skýr-
inguna fyrst og fremst felast í að lög
hafi ekki verið til.
Skerpt á tæknilegum atriðum
„Ferli leiðréttingar styttist aðeins með
lögunum. Ferlið var 18 mánuðir en
verður nú eitt ár. Það er mikil breyting
frá því sem var þegar við – þessi elstu
– vorum að fara í gegnum ferli,“ segir
Anna og rifjar upp eigin reynslu. „Ég
beið til að mynda í ellefu ár frá því að
ég fór til læknis og gat loks breytt um
nafn í þjóðskrá,“ segir hún.
„Nýju lögin ná ekki yfir hegn-
ingarlögin sem er það sem ILGA og
Alþjóðasamtök leggja mestu áhersl-
una á,“ segir Anna og bætir við að
hegningarlög falli undir verksvið inn-
anríkisráðuneytis og þar sé vinna í
gangi sem miði að breytingum. Hún
vonist til að sjá það frumvarp á næsta
þingi enda sé fyrst og fremst um orða-
breytingar að ræða. Í dag veita almenn
hegningarlög almenningi og minni-
hlutahópum vernd á grunnréttindum
en í þeim er ekki að finna vörn gegn
mismunun vegna kynvitundar. Þótt
ákvæðin gildi um réttindi allra borg-
ara er talið mikilvægt að skerpa sér-
staklega á réttindum hópa sem talin er
hætta á að brotið sé á. Af þeim sökum
sóttust Samtökin 78 og fjöldi annarra
félaga hinsegin fólks á Íslandi eftir
því að orðið kynvitund yrði tilgreint
í mannréttindakafla nýrrar stjórnar-
skrár. Því var hafnað í atkvæðagreiðslu
ráðsins og er því ekki í drögum nýrrar
stjórnarskrár.
Translög og Stonewall
Gildistaka laganna verður 27. júní
næstkomandi á alþjóðlegum bar-
áttudegi hinsegin fólks. Þann dag
árið 1969 varð gríðarlegt uppþot
á Stonewall Inn, litlum bar í New
York. Átökin eru oftar en ekki talin
upphaf nútíma mannréttindabar-
áttu hinsegin fólks í heiminum. Þótt
mannréttindabarátta hópsins eigi
lengri sögu má rekja stofnun fjölda
mannréttindahreyfinga sem og Gay
Pride-ganga í heiminum til átak-
anna. Stonewall þætti varla nokkrum
bjóðandi í dag en ekkert klósett var á
staðnum sem að auki var í eigu mafí-
unnar. Ef til vill er staðurinn lýsandi
fyrir bága stöðu hinsegin fólks en
meðal gesta voru lægstu lög samfé-
lagsi – ungt heimilislaust hinsegin
fólk, fórnarlömb mansals sem og
transfólk stundaði staðinn gjarnan.
Sú hefð hefur myndast hér á landi
að lög er varða stór skref í réttinda-
baráttu hinsegin fólks taka gildi
þennan dag. Árið 1996 voru lög um
staðfesta samvist samþykkt og öð-
luðust gildi á þessum degi en það
sama á við um lög um ein hjúskap-
arlög sem tóku gildi árið 2010.
Þess má geta að Jóhanna Sig-
urðardóttir forsætisráðherra og Jón-
ína Leósdóttir giftu sig sama dag og
lögin tóku gildi, fyrst samkynja para
á Íslandi.
Réttindi en
ekki velvild
n Transfólk loks með réttindi bundin í lög n Hingað til háð velvild einstaklinga
„Með lögunum
getum við hins
vegar gert kröfu um að fá
ákveðna þjónustu.
Anna Kristjáns
Ellefu ára bið Anna Kristjánsdóttir segir
leiðréttingarferli transfólks verða mun
styttra með lögunum en þegar hún hóf eigið
ferli sem tók 11 ár.
Atli Þór Fanndal
blaðamaður skrifar atli@dv.is
Hinsegin ganga Liður í mannréttindabaráttu hinsegin fólks eru hinsegin dagar sem enda með gríðarstórri göngu. Hinsegin dagar eru
haldnir hátíðlegir í ágústmánuði á hverju ári.