Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2012, Síða 14
Kannast ekki við viðurnefnið
n Goðsögnin um körfuboltahæfileika Obama hrakin í nýrri bók
S
amkvæmt væntanlegri ævi
sögu um Barack Obama, for
seta Bandaríkjanna, eftir
David Maraniss, var Obama
ekki jafn góður körfuknattleiks
maður á sínum yngri árum og
stuðningsmenn hans hafa stund
um haldið fram. Bandaríska blað
ið Washington Post tekur málið
upp, en ævisöguhöfundurinn ræddi
við marga fyrrverandi skólafélaga
Obama til þess að fá úr því skorið
hvernig leikmaður hann var.
Niðurstöður höfundarins eru
þær að fæstir skólafélaga Obama
kannist við viðurnefnið „Barry O´
Bomber“, sem hann er sagður hafa
fengið fyrir glæsta frammistöðu
sína á körfuboltavellinum. Obama
spilaði körfubolta í framhaldsskóla
á Hawaii og þótti gífurlega áhuga
samur, en langt frá því að skara fram
úr.
„Ef Obama var óánægður með
hvað hann fékk lítið að spila, þá
lagði hann mjög hart að sér til þess
að komast í liðið. Það var miklu
frekar ástríða og kraftur sem komu
honum áfram heldur en sérstakir
hæfileikar á körfuboltavellinum.
Hann var snjall leikmaður með góð
an leikskilning og gat dripplað bolt
anum, en hann var slakur skotmað
ur og gat ekki stokkið sérlega hátt,“
segir í ævisögunni.
Chris McLachlin, þjálfari Obama,
segir í ævisögunni að Obama hafi
verið frægur fyrir að stökkva aldrei
áður en hann skaut á körfuna og því
auðvelt að verjast honum. Sökum
þess gat hann heldur aldrei troðið
boltanum í körfuna.
14 Erlent 13. júní 2012 Miðvikudagur
H
inni 77 ára Edith Wilmu
Connor finnst fátt skemmti
legra en að stunda eró
bikk með langömmudóttur
sinni. Það skemmtilegasta
sem hún gerir er þó að að lyfta lóð
um enda er hún elsta vaxtarræktar
kona heims.
Heimsmetabók Guinness stað
festi á dögunum að Connor væri
elsta vaxtarræktarkona heims árið
2012.
Byrjaði að æfa á sjötugsaldri
„Þegar ég undirbý mig fyrir keppni,
þá lyfti ég eins miklu og ég get,“
segir Connor í samtali við Reuters
fréttastofuna. „Ég hef gaman af
því að bæta 25 pundum ofan á og
geri það,“ segir Connor. Hún er bú
sett í Denver í Colorado í Banda
ríkjunum og byrjaði seint í líkams
rækt. Hún var komin á sjötugsaldur
þegar hún byrjaði að æfa til þess
að losa sig við streitu. „Þetta var
eitthvað sem ég gat gert ein, fyrir
mig sjálfa,“ segir hún. „Þetta var
stresslosandi. Ég sat við tölvu allan
daginn, þannig að það var betra
fyrir mig að taka út álagið á lóðun
um í staðinn fyrir að taka það út á
starfsmönnunum,“ segir Connor
sem rak fyrirtæki með eiginmanni
sínum.
Vaxtarræktin veitti hugarró
Á 65 ára afmælisdaginn tók hún
þátt í fyrstu vaxtarræktarkeppn
inni. „Á þeim tímapunkti varð ég
forfallin,“ segir Connor sem upp
frá því varð einkaþjálfari.
Hún byrjar flesta daga á eró
bikki eða öðrum upphitunar
æfingum og gerir svo lyftingar
æfingar. Hún æfir að minnsta kosti
þrisvar í viku, yfirleitt oftar. Hún er
með fimm konur í einkaþjálfun hjá
sér, allar yfir fimmtugu. „Á mín
um aldri þá finnst mér enn gott að
hreyfa mig. Vaxtarræktin gaf mér
hugarró, eitthvað sem ég gat not
ið og kennt öðrum. Og það er það
sem ég er að gera.“
Í nóvember á síðasta ári fór
hún í axlaraðgerð og þurfti að
hætta að lyfta í smá tíma. Hún er
þó byrjuð aftur af fullum krafti og
segist ekki ætla að hætta þó hún
muni kannski ekki keppa í neinum
keppnum á árinu.
Hennar lífsstíll
Connor á þrjá syni, sjö barnabörn
og sex langömmubörn. Börnin hafa
mismikinn áhuga á vaxtarrækt en
sum æfa með henni. „Yngsti sonur
minn var fyrsti þjálfarinn minn,“ seg
ir hún. „Nú þjálfar elsta barnabarnið
mitt mig og langömmudóttir mín
æfir með mér,“ segir hún. Connor
segist hafa gaman af því að ögra sér
í ræktinni og er ekki á þeim buxun
um að hætta að lyfta. Vaxtarrækt sé
hennar lífsstíll og hún segist ekki vilja
hætta strax. „Ég er ekki þessi týpa
sem vill setjast í helgan stein.“
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is
Elsta
vaxtar-
ræktar-
„Ég er ekki
þessi
týpa sem vill
setjast í helgan
stein
Alltaf að lyfta Edith Wilma
Connor er elsta vaxtarræktar-
kona heims. Hún segir vaxtar-
ræktina veita sér hugarró.
n Eldri borgari í vaxtarrækt n Æfir með barnabarni og langömmubarni
kona hEims
Lamdi konur
og kærði þær
Ilias Kasidiaris, gríski þingmað
urinn sem í síðustu viku réðst á
tvær konur í beinni sjónvarps
útsendingu, hefur kært konurnar
fyrir að hafa móðgað sig í þættin
um. Kasidiaris er þingmaður
grískra nýnasista en hann er sjálf
ur fyrir dómstólum vegna ákæru á
hendur honum frá árinu 2007.
Þá má geta þess að þingmað
urinn kærði líka sjónvarpsstöð
ina sem sýndi þáttinn, en hann
sakar starfsmenn stöðvarinnar um
að hafa handtekið hann ólöglega.
Það var gert því hann ætlaði að
flýja vettvang.
Ráðherrann ók
af vettvangi
Svo virðist sem viðskiptaráðherra
Bandaríkjanna, John Bryson, hafi
stungað af eftir að hafa ekið aftan á
fólksbíl um helgina. Ekki vildi bet
ur til en svo að hann keyrði á annan
bíl fimm mínútum síðar. Þar missti
hann meðvitund og var fluttur á
sjúkrahús. Þetta segir í fréttatilkynn
ingu frá lögregluembættinu í San
Gabriel í Kaliforníu. Fram kemur
að ekki leiki grunur á að hann hafi
verið undir áhrifum áfengis eða
fíkniefna.
Barack Obama Forseti
Bandaríkjanna var ekki jafn
góður á körfuboltavellinum
og sumir hafa haldið fram.
Bankarán
borga sig ekki
Það er gamall viskumoli að glæpir
borgi sig ekki. En nú hefur það verið
vísindalega sannað. Í það minnsta
hvað bankarán varðar. Ný rannsókn
sýnir fram á að meðalræninginn
er að fá aðeins rúmlega 4.300 dali
úr hverju bandarísku bankaráni.
Það er um hálf milljón króna. Það
dugar fæstum til að lifa á til ævi
loka. Áhættan sé því hreinlega ekki
þess virði enda sýna rannsóknir að
fæstir nái að fremja fleiri en fjögur
rán áður en þeir nást og er fleygt í
fangelsi. Breskir bankaræningjar fá
meira fyrir sinn snúð, um 2,6 millj
ónir króna, á mann.
„Lungu“ fund-
ust á víðavangi
Hann saknar þeirra eflaust, eig
andi líffærisins sem talið er vera
lungu og fannst á miðri gang
stétt í suðurhluta Los Angeles á
sunnudag. Vegfarandi hringdi í
lögregluna og tilkynnti um inn
yflin sem voru umsvifalaust sótt
og send til rannsóknar. Dánar
dómstjóra hefur verið falið að
komast að því hvort um sé að
ræða lungu og það sem meira
er hvort þau tilheyri dýri eða
manneskju. „Þetta hafði verið
þarna allan daginn,“ segir rann
sóknarlögreglumaður við AP
fréttastofuna.