Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2012, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2012, Page 15
Erlent 15Miðvikudagur 13. júní 2012 G ranary-torgið sem verður opnað í London í vikunni kemur til með að verða eitt- hvert stærsta almennings- rými í einkaeigu í Evrópu. Opin svæði í borgum Bretlands sem áður voru í eigu ríkis og eða sveitar- félaga falla nú í auknum mæli í hend- ur einkaaðila. Gagnrýnendur segja eigendurna hugsa um gróða frekar en hagsmuni almennings. Jeevan Vasagar, blaðamaður The Guardi- an, birti á dögunum úttekt á þessari einkavæðingu almenningsrýmisins. Þar kemur fram að einkavædd al- menningsrými sé að finna víðs vegar um Bretland. Þeirra á meðal eru heilu verslunarsvæðin eins og Princesshay í Exeter, og söguleg torg og götur í Aust- ur-London í eigu J.P. Morgan. Occupy- mótmælendur í London fengu að finna fyrir eignarhaldi á almennings- görðum þegar þeim var meinað að vera á áður opnum svæðum. Lokað á almenning Til þessa hafa verslunarmiðstöðv- ar og viðskiptahverfi eins og City of London verið á umráðasvæði einka- aðila og fáir hafa velt vöngum yfir því. Sú þróun sem nú hefur átt sér stað hefur hins vegar vakið upp spurn- ingar um það hversu langt einka- aðilar geta seilst í því að leggja und- ir sig opin svæði. Grasblettum sem báru tré undir berum himni og voru áður opnir öllum borgurum eru sum- um hverjum lokað þegar eigendum þeirra hentar, enda þeirra einkaeign. Þetta var einmitt raunin á krýn- ingarafmæli Elísabetar Bretlands- drottningar í byrjun júní segir í úttekt The Guardian. Þá var almenn- ingi meinaður aðgangur að ákveðn- um svæðum við ána Thames sem einungis voru opin fyrir útvalda. Öryggisverðir komu í veg fyrir að fólk færi inn á þessi svæði án sér- stakra armbanda sem útbúin voru af eigendum svæðanna. Þá var Tower- og Millenium-brúnum lokað fyrir almenningi en fólki leyft að vera á Lambeth, Westminster og Blackfri- ars-brúnum en varað við að þar yrði allt „troðfullt af fólki.“ Endurskipulagning lykilorðið Naomi Colvin er einn þeirra sem tók þátt í Occupy London-mótmæl- unum. Í samtali við The Guardian segist hann hræðast þessa þróun, hún miði að því að búa til þjóðfé- lag þar sem fólk geri lítið annað en að vinna og versla. Hægt sé að fara á viðburði á opnum svæðum í boði einkaaðila en það sé á þeirra forsendum en ekki á forsendum fólksins eða samfélagsins. „Það er engin leið fyrir fólk að gera eitt- hvað á eigin vegum – gera eitt- hvað „spontan“.“ Vísar hann meðal annars til þess að Occupy-mótmæl- endur hafi oftar en ekki þurft frá að hverfa vegna eignarhalds á opnum rýmum. Endurskipulagning er lykilorðið þegar kemur að þessari tilfærslu almenningssvæða yfir til einka- aðila. Svæði sem áður voru í eigu sveitarfélaga og eða ríkisins drabb- ast niður vegna þess að ekki er til fjármagn til þess að halda svæð- unum við. Lausnin á þessu vanda- máli er síðan sú að fá einkaaðila í það að endurskipuleggja svæðin á eigin kostnað. Svæðin eru þá iðu- lega endurgerð á forsendum fyrir- tækjanna sjálfra, sem vilja græða á slíkum framkvæmdum. Þannig er samfélagsandanum fórnað – hon- um er í raun eytt, að mati Colvin. Þorpið í borgina Samantha Heath, framkvæmda- stjóri hjá stofnun um sjálfbærni í London, er sammála Colvin um að almenningsrýmin verði oft og tíðum sálarlaus eftir slíka endur- skipulagningu – meira til skrauts en til notkunar. Opnu svæðin í London sem séu í einkaeigu séu meira og minna gráir steypu klumpar, fjöl- breytileikinn sé lítill sem enginn. Í skýrslu skipulagsráðs London sem kom út á síðasta ári er bent á jákvæða og neikvæða punkta við eignarhald einkaaðila á áður opn- um svæðum. Ein helst gagnrýnin er á öryggisgæslu eins svæðisins sem er sögð vera svo öfgafull að ekki sé hægt að taka myndir þar. Borgarstjóri London, Boris John- son, hefur talað um að koma „þorp- inu aftur inn í borgina.“ Segist hann vilja skapa andrúmsloft trausts og vináttu í hverfum borgarinnar. Gall- inn við þessa ósk Johnson er sú að í þorpunum var alltaf landskiki í eigu almennings, segir Heath. „Þar var ekki sú tilfinning ráðandi að landið væri í eigu húsráðandans. Þetta var land í sameign.“ Almenningsgarðar í hendur einkaaðila Jón Bjarki Magnússon blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is „Ég á ‘etta“ n Íslendingar hafa lengi vel álitið sig hafa rétt á því að ganga frjálslega um landið. Það gæti þó verið að breytast sé litið til þróunar úti í heimi sem og ný- legra fregna innanlands. Flestum er það eflaust í fersku minni þegar eigendur Kerfélagsins meinuðu Wen Jiabao, for- sætisráðherra Kína, og forystumönnum ríkisstjórnar Íslands að heimsækja Kerið í aprílmánuði síðastliðnum. Sagði Óskar Magnússon, einn eigendanna, af því tilefni að þeim hefði ekki borist formleg beiðni um heimsókn. Þá bætti hann því við að persónuleg skoðun eigendanna hefði eitthvað með þessa ákvörðun að gera. „Ég get ekki sagt hvernig við hefðum brugðist við því. Það liggur þó fyrir að Kerfélagið hefur ekki haft þessi stjórnvöld í hávegum, hvorug þeirra, og vegur þeirra hefur ekki aukist við þetta.“ n Nýleg frétt í DV af svipuðum meiði vakti einnig mikla athygli. Þar kom fram að nýir eigendur jarðarinnar Horns í Skorradal í Borgarfirði, Árni Hjörleifsson og Ingibjörg Davíðsdóttir, hafi lokað afleggjaranum sem liggur að fjallinu Skessuhorni með hengilási. Hingað til hafa fjallgöngu- menn sem hyggjast klífa hið tignarlega Skessuhorn keyrt um þennan afleggjara í landi Horns til að komast að fjallinu, en það er ekki mögulegt lengur. Ummæli á fésbókarsíðu Ingibjargar, þar sem hún ræðir um kaupin á Horni, benda raunar til þess að hún líti á Skessuhorn sem sína persónulegu eign. Þar segir Ingibjörg meðal annars: „Við eigum núna Matterhorn Íslands (Tobleronefjallið) – Skessuhorn, sem er í landi Horns.“ Þá birtir hún mynd af Skessuhorni þar sem hún segir: „Þvílík fegurð!! Ég á ‘etta.“ n Sífellt fleiri opin svæði einkavædd n Almenningi meinaður aðgangur „Það er engin leið fyrir fólk að gera eitthvað á eigin vegum – gera eitthvað „spontan“. Opið rými Listamaðurinn Banksy hefur vakið heimsathygli fyrir götulistaverk sín en hér má sjá verk eftir hann á Waterloo-stöðinni í London. Hann breytti undirgöngum í risastóran sýningarsal sem var opinn fyrir almenning. Mynd REUTERS/FinbaRR O‘REiLLy Mótmælt á Tower-brúnni Fjöldi fólks kom saman á Tower-brúnni í tilefni af því að haldið var upp á krýningarafmæli drottningarinnar. Almenningsrými í einkaeigu voru lokuð almenningi. Mynd REUTERS/nigEL ROddiS kona heims

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.