Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2012, Qupperneq 20
Gefur út tímarit um Ísland
n Allt sem er íslenskt er Sólveigu huglægt
M
eginþemað í blaðinu er
allt sem er íslenskt. Það
sem Íslendingar eru stolt-
ir af, ég er sjálf Íslending-
ur sem er stoltur af þessum hlutum
og vil segja frá þeim,“ segir Sólveig
Baldursdóttir, ritstjóri tímaritsins
Iceland The Inside Story. Tímaritið
er nýkomið út og markhópurinn er
ferðamenn sem koma til landsins.
Sólveig þekkir tímaritabransann út
og inn en hún var ritstjóri Gestgjaf-
ans um árabil. Nýja tímaritið gef-
ur hún hins vegar sjálf út. „Ég geri
þetta á eigin forsendum og er alveg
frjáls með efnistök,“ segir hún. Sól-
veig skrifar mikið af efni blaðsins
sjálf en fær líka hjálp góðra penna.
„Það er heilmikið mál að setja
svona saman en mjög skemmti-
legt,“ segir hún.
Í blaðinu er meðal annars að finna
umfjöllun um tísku, matargerð, list,
náttúru og viðtal við mæður meðlima
hljómsveitarinnar Of Monsters and
Men svo eitthvað sé nefnt. „Ég fór svo-
lítið aðra leið með umfjöllunina um
Of Monsters and Men. Það vill þannig
til að dóttir mín er trompetleikari sem
hefur verið að spila með þeim og út
frá því komst ég að mæðrum þeirra og
hóaði þeim saman. Það er svona önn-
ur nálgun,“ segir hún.
Sólveig er spennt fyrir fram-
haldinu og stefnir á að gefa út tvö
blöð á ári. „Allavega til að byrja með
þá kemur út blað að sumri og vetri,“
segir hún.
Ert þú á leið í
fangelsi?
n 10 reglur til að lifa dvölina af
Enginn okkar hefur áhuga á að
lenda í fangelsi en fyrir suma er
dvöl á bak við lás og slá blákald-
ur veruleiki. Eftirfarandi listi er
byggður með bandarísk fangelsi í
huga en eflaust má yfirfæra margt
á íslensk tukthús.
Ekki leita verndar
Þeir sem bjóða upp á vernd
í fangelsum gera það ekki af góð-
mennsku. Oft eru þessir einstak-
lingar að leita að einhverjum til
að níðast á.
Ekki ræða glæpinn
Þessi regla á sérstaklega við
þá sem hafa brotið af sér kynferð-
islega. Þeir fangar eru oftast með
skotmark á bakinu.
Forðastu fjárhættuspil
Að flækjast inn í fjár-
hættuspil í fangelsi getur verið
stórhættulegt. Þú gætir lent í því
að eiga ekki fyrir skuldum þínum
eða, ef þú vinnur, gert ranga aðila
reiða. Hins vegar er ágætt að læra
að spila áður en þú ferð inn til að
stytta þér stundirnar.
Ekki ganga í lið með
vörðunum
Að kjafta um aðra fanga við
verðina getur verið hættulegt.
Hins vegar skaltu umgangast
verðina af virðingu.
Ekki stofna til skulda
Þegar þú kemur í fangelsið
munu aðrir fangar eflaust bjóðast
til að lána þér hluti þar til þú
kemur þér fyrir – til að mynda
tóbak. Ekki taka slíkum boðum,
oftar en ekki er verið að gabba
þig til að taka á þig skuld sem þú
átt erfitt með að losna við. Ef þú
reykir skaltu reyna að nota tæki-
færið og hætta að reykja.
Ekki stara á aðra fanga
Horfðu beint fram fyrir þig
þegar þú gengur. Augnabliks gláp
á annan fanga getur hreinlega
verið hættulegt.
Ekki nota eiturlyf
Ef þú ert fíkill á bak við lás
og slá aukast líkurnar á skuldum
verulega. Ekki láta freistast.
Æfðu líkamann
Að þjálfa líkamann styttir
þér ekki aðeins stundir heldur
verða stæltir einstaklingar síður
skotmark. Ekki sýna veikleika-
merki. Réttu úr baki og horfðu
fram fyrir þig þegar þú gengur –
ekki horfa niður á tærnar.
Haltu þér saman
Ekki blanda þér í heitar
umræður um eldfim efni líkt og
trúmál og pólitík. Slíkar rökræður
geta auðveldlega breyst í rifrildi
og slagsmál. Að sama skapi skaltu
ekki reyna hnýsast í einkamál
annarra fanga.
Sýndu virðingu
Virðingin er oft það eina
sem fangar eiga. Ef þú tekur hana
frá þeim er voðinn vís. Ekki leika
þér að því að eignast óvini.
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Tíu mýtur um
brjóstakrabba
Á
Íslandi greinast þrjár
konur í hverri viku með
brjóstakrabbamein en
brjóstakrabbamein er sú
tegund krabbameins sem
flestar konur fá. Mikið hefur verið
rætt um brjóstakrabbamein en hvað
er rétt og hvað eru ýkjur? Er rétt að
ólíklegra sé að krabbamein grein-
ist í litlum brjóstum? Hefur svita-
lyktareyðir áhrif á sjúkdóminn?
Hafðu staðreyndirnar á hreinu.
Mýta: Konur fá brjósta-
krabbamein aðallega vegna
erfða.
Staðreynd: Samkvæmt American
Cancer Society eru aðeins 5–10
prósent tilfella brjóstakrabba-
meina ættgeng. Á nýja vefnum
brjostakrabbamein.is kemur fram
að 80 prósent kvenna sem grein-
ast með brjóstakrabbamein þekkja
engin dæmi um sjúkdóminn í fjöl-
skyldu sinni. Svo virðist sem lífsstíll-
inn skipti mestu máli.
Mýta: Konur með lítil
brjóst eru í minni hættu.
Staðreynd: Stærð brjóstanna hef-
ur engin áhrif. Brjóstakrabbamein
myndast í frumunum í göngunum
sem búa til mjólkina og flytja hana
að geirvörtunum. Allar konur hafa
sama fjölda af göngum, sama hversu
stór brjóstin eru. Stærð brjósta fer
hins vegar eftir fitumagni.
Mýta: Brjóstakrabbamein
byrjar alltaf sem hnúður.
Staðreynd: Um það bil 10 prósent af
greindum einstaklingum hafa engan
hnúð. Og 80–85 prósent hnúða sem
finnast í brjóstum eru góðkynja.
Mýta: Brjóstamyndatökur
koma í veg fyrir eða minnka
líkur á brjóstakrabbameini.
Staðreynd: Regluleg brjósta-
myndataka hefur ekki áhrif á líkurn-
ar á að þú fáir brjóstakrabbamein.
Myndatakan gæti hins vegar greint
krabbameinið og minnkað þannig
líkur á að þú tapir fyrir sjúkdómn-
um en á brjostakrabbamein.is kem-
ur fram að hópleit dragi úr líkum á
að deyja úr sjúkdómnum um 25–30
prósent eða meira. Allar konur yfir
fertugt ættu að fara árlega í mynda-
töku.
Mýta: Brjóstamyndatökur
valda brjóstakrabbameini.
Staðreynd: Hættan á skaða vegna
geislans er agnarlítil miðað við þann
ávinning sem snemmgreining hefur
í för með sér. Tækninni hefur einnig
fleytt fram og samkvæmt Americ-
an Cancer Society veldur brjósta-
myndataka í dag 50 sinnum minni
geislun en hún gerði fyrir 20 árum.
Mýta: Pillan veldur
brjóstakrabbameini.
Staðreynd: Einhverjar rannsókn-
ir frá 1990 sýndu fram á auknar
líkur hjá konum sem höfðu ver-
ið á pillunni. Samkvæmt vefnum
brjostakrabbamein.is er ekki hægt
að tengja getnaðarvarnarpillur
við auknar líkur á brjóstakrabba-
meini. Hins vegar geta þær veitt
nokkra vörn gegn krabbameini í
eggjastokkum.
Mýta: Ungar konur fá ekki
brjóstakrabbamein.
Staðreynd: Þótt konur sem eru
komnar á breytingaskeiðið séu lík-
legri til að fá brjóstakrabbamein
getur sjúkdómurinn lagst á konur á
öllum aldri. Konur undir fimmtugu
eru 25 prósent greindra en í þeim
hópi eru líkurnar meiri á að deyja
úr sjúkdómnum. Kannski vegna
þess að yngri konur hafa venjulega
þéttari brjóst sem gerir að verkum
að það er erfitt að greina hnúða í
myndatöku. Allar konur sem eru
komnar yfir tvítugt ættu að skoða
brjóst sín sjálf í hverjum mánuði,
biðja heimilislækni sinn að þreifa
þau á þriggja ára fresti og fara í ár-
lega myndatöku frá fertugu.
Á vefnum brjostakrabbamein.
is kemur fram að frá fæðingu til
39 ára aldurs fær ein kona af 231
brjóstakrabbamein, frá aldrinum
40–59 séu líkurnar ein af hverjum 25
konum og frá aldrinum 60–79 séu
líkurnar ein af hverjum 15.
Mýta: Svitalyktareyðir veldur
brjóstakrabbameini.
Staðreynd: Þótt þú sleppir svita-
lyktareyði getur þú ekki verið viss
um að fá ekki brjóstakrabbamein.
Á vefnum brjostakrabbamein.
is kemur fram að engar sannan-
ir séu fyrir því að svitalyktareyðir
eða það að draga úr svita í holhönd
hafi áhrif á líkur á sjúkdómnum.
Svokölluð tengsl byggjast á röng-
um upplýsingum um líffærafræði
og vanþekkingu á brjóstakrabba-
meini.
Mýta: Það er hægt að koma í
veg fyrir brjóstakrabba.
Staðreynd: Vissulega geturðu
minnkað líkurnar á brjóstakrabba-
meini en þar sem við vitum
ekki nægilega vel hvað veldur
brjóstakrabbameini getum við ekki
komið í veg fyrir það. Hreyfingar-
leysi, offita, drykkja og reykingar
eru taldar auka líkur á sjúkdómn-
um. Brottnám beggja brjósta er
talið minnka líkur hjá þeim kon-
um sem þykja afar líklegar til að fá
brjóstakrabbamein um 90 prósent.
Mýta: Brjóstakrabbamein er
dauðadómur.
Staðreynd: Á vefnum
brjostakrabbamein.is kemur fram
að rúmlega 80 prósent kvenna sem
greinast með brjóstakrabbamein
sýna engin merki þess að krabbinn
hafi dreift sér út fyrir brjóstasvæðið.
Um 80 prósent þeirra kvenna lifa að
minnsta kosti í fimm ár, flestar miklu
lengur.
Láttu lækni skoða þig ef:
n þú finnur hnúð.
n útlit eða tilfinning á brjósti
eða geirvörtu breytist.
n þú finnur hnúð eða þykkildi
undir handarkrika.
n brjóst eða geirvarta er
óvenju viðkvæm.
n stærð eða lögun brjóstsins
breytist.
n brjóstið er heitt viðkomu.
n húðin er rauð eða bólgin.
n geirvartan losnar af.
A
B
C
D
E
F
G
H
I
J
n Stærð brjósta hefur engin áhrif á líkur á því að fá krabbamein
Íslenskt er gott Sólveig skrifar
um íslenska hluti fyrir ferðamenn
í nýja tímaritinu sínu.
20 Lífsstíll 13. júní 2012 Miðvikudagur