Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2012, Síða 22
Alvöru dansleikur í Iðnó
n „Það er svo gaman að spila þessa tónlist“
N
æstkomandi laugardags-
kvöld, þann 8. september,
verður haldinn alvöru rokk
og ról dansleikur í Iðnó
þar sem Stebbi Ó. swingsextett
mun halda uppi fjörinu fram á
nótt. Sextettinn mun leika vinsælt
rokk og ról frá sjötta áratugnum
og sveiflusmelli frá þeim fimmta í
bland við íslenska dægurtónlist.
„Þetta er hugarfóstur Stefáns
Ómars, eða Stebba Ó, sem setti
þetta band saman til að spila í
einkasamkvæmum fyrst. En mál-
ið er að þetta er svo gaman. Það er
svo gaman að spila þessa tónlist
og vera með þessa hljóðfæraskip-
an í þessum nostalgíufíling að við
ákváðum að kýla á þetta og halda
opinn dansleik,“ segir Eiríkur Rafn
Stefánsson, trompetleikari og son-
ur Stefáns Ómars.
Hann mælir með því að fólk
pússi dansskóna, dragi fram köfl-
óttu jakkana og kjólana og skelli
brilljantíni í hárið. „Það er hluti af
stemningunni að klæða sig í þess-
um anda en það skiptir samt ekki
öllu máli,“ segir Eiríkur sem ítr ekar
að ekki sé gerð krafa um að dans-
gestir klæði sig upp í anda tímabils-
ins. „Fólk bara kemur þarna til
að eiga góða kvöldstund á alvöru
dansleik.“
Eiríkur, sem bæði syngur og
blæs í trompet, verður sjálfur með
brilljantín í hárinu. Hann lofar
góðu stuði á laugardaginn og hvet-
ur fólk til að fjölmenna í Iðnó.
Húsið opnar klukkan 21:30 og
Stebbi Ó. swingsextett stígur á
svið klukkutíma síðar. Um miðbik
dansleiksins mun töframaðurinn
Jón Víðis stíga á svið og sýna sjón-
listir af stakri snilld. Aðgangseyrir
er 1.500 krónur og eru miðar seldir
við innganginn.
solrun@dv.is
22 Menning 5. september 2012 Miðvikudagur
H
ér áður fyrr átti ég í löngum
samræðum við vin minn
sem vann við pípulagn-
ir í hjáverkum og var mjög
mótfallinn því að ég notaði
múffuheitið um bakkelsi, þar sem
hann þekkti það eingöngu sem nafn
á samskeytingarhólkum sem tveim-
ur rörum er stungið inn í til að tengja
þau saman. Og á allra síðustu árum
hefur heitið því miður verið notað um
annars konar hólka.“ Svo ritar Nanna
Rögnvaldardóttir í formála nýútkom-
innar bókar sem ber heitið Múffur í
hvert mál. Eins og nafn bókarinnar
gefur til kynna er um að ræða upp-
skriftabók þar sem múffur taka á sig
ýmsar myndir.
Formáli bókarinnar er einkar
skemmtilegur en þar fer Nanna með-
al annars yfir sögu múffunnar í ís-
lenskri tungu. Orðið hefur verið til
síðan á 18. öld og var upphaflega not-
að yfir ákveðna tegund af handskjóli
kvenna. Eins og fram kemur hér að
undan hefur það í seinni tíð verið not-
að yfir allt aðra hluti, en 30 ára hefð er
fyrir því að kalla „muffins“ múffur á ís-
lensku.
Allt sem þú þarft
Múffur í hvert mál er einstaklega
handhæg og afar hentug fyrir þá sem
ekki eru vanir að baka, en Nanna fer
mjög ítarlega í það bókinni hvernig
best er að bera sig að í múffubakstri.
Hvað ber að hafa í huga og hvað ber
að varast þegar kemur að bakstrinum.
Þá bendir hún á hvernig áhöld er best
að nota og í bókinni er jafnframt tafla
yfir það hvernig breyta á grömmum
yfir í desilítra eða bolla, eftir hráefni.
Bókin hefur í raun að geyma allar þær
upplýsingar sem þú þarft, ætlir þú að
læra að baka góðar múffur.
Hunda- og kattamúffur
Bókinni er skipt niður í sex tegundir
af múffum, sumar eru meinhollar og
orkuríkar á meðan aðrar eru sætari
undir tönn. Uppskriftirnar eru margar
hverjar mjög frumlegar svo ekki sé
sterkar tekið til orða. Þegar ég fletti
fyrst í gegnum bókina staldraði ég til
dæmis við „hangikjötsmúffur“ annars
vegar og „reyklax- og vorlauksmúffur“
hinsvegar. Nanna lætur þó ekki staðar
numið í frumlegheitum þar því bók-
in inniheldur einnig uppskriftir að
hunda- og kattamúffum sem ætlaðar
eru gæludýrum.
Eldri hjón sem fengu að glugga í
bókina hjá mér höfðu á orði að upp-
skriftirnar væru ógirnilegar. Ég get að
vissu leyti verið sammála því að við
fyrstu sýn líta hangikjötsmúffur eða
reyklax- og vorlauksmúffur ekkert
sérstaklega vel út á prenti. En þegar
betur er að gáð eru flestar uppskrift-
irnar mjög áhugaverðar og eins og
Nanna bendir á má í raun setja allt í
múffur. Það er ekkert sem á að stoppa
bakarann í þeim efnum, nema þá
helst skortur á hugmyndaflugi. Og þá
er gott að hafa Múffur í hvert mál við
höndina.
Útlitið er ekki allt
Nanna bendir einnig á að mikill mun-
ur sé á múffum og bollakökum þrátt
fyrir að margir vilji rugla þeim saman.
„Mér finnst bollakökugerð snúast
fyrst og fremst um útlitið, múffu-
bakstur um bragðið, og ég hef alltaf
lagt meira upp úr bragði en útliti,“ rit-
ar Nanna. Og þar höfum við það. Út-
litið er ekki allt.
Það kann að vera að íhaldssamir
bakarar séu ekki alveg tilbúnir að setja
hvað sem er í múffuformin en ég er
ánægð með þetta framtak hjá Nönnu
og ákvað að prufukeyra tvær upp-
skriftir úr bókinni, pítsumúffur með
pepperóní og Snickersmúffur. Báðar
múffutegundirnar komu vel út og ég
er nokkuð viss um að það er ekki hægt
að klúðra uppskriftum úr þessari bók,
þó maður leggi sig fram við það. Það
tók mig mig tæpa tvo tíma (með upp-
vaski og öllu) að henda í tvær tegund-
ir af múffum og tel ég það nokkuð
gott. Nú er frystirinn fullur af múffum
sem ég get gúffað í mig í öll mál.
Það er algjör óþarfi að láta íhalds-
semina halda sér frá þessari bók því
hún er þrælsniðug á allan hátt.
Gúffaðu í
þig múffum
n Uppskriftabókin Múffur í hvert mál er notendavæn og þrælsniðug
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrun@dv.is
Bækur
Múffur í hvert mál
Höfundur: Nanna Rögnvaldardóttir
Útgefandi: Forlagið
Afraksturinn Hér höfum við tvær
Snickers-múffur og eina pítsumúffu með
pepperóní. Einstaklega ljúffengar.
Handhæg Bókin er einkar hentug
fyrir þá sem ekki eru vanir að baka.
Tilvist mannsins
og sólarinnar
Sýningin Dúnn verður frumsýnd
í Tjarnarbíói þann 14. september.
Um er að ræða dansverk, gjörn-
ing, tónverk, ljósverk og leikrit.
Höfundar verksins, Ásrún Magn-
úsdóttir og Berglind Pétursdóttir,
sem jafnframt eru flytjendur þess,
segja Dún í raun vera sjónarspil.
„Umfjöllunarefnið stendur okk-
ur mjög nærri en við ákváðum
að þessu sinni að fjalla um tilvist
mannsins og sólarinnar.
Þetta tvennt tengist traustum
böndum. Þegar við byrjuðum að
fjalla um tilvistina gátum við ekki
látið sólina óafskipta. Tilvistar-
stefnunni helguðum við sjö daga
af lífi okkar. Síðan byrjuðum við að
misnota hana. Sólin fékk 20 mín-
útur en við vissum líka í grunninn
um hvað hún snýst,“ segja höf-
undarnir um verkið.
Moses High-
tower á Kex
Moses Hightower og Snorri Helga-
son munu koma fram á Gogoyoko
wireless-tónleikaseríunni á Kex
hostel næstkomandi fimmtu-
dagskvöld, þann 6. september.
Íslensk-alþjóðlega tónlistarveit-
an gogoyoko.com hefur í rúmt ár
staðið fyrir tónleikaröðinni sem
hefur fengið frábærar viðtökur.
Tónlistarunnendur hafa kunnað
vel að meta það að sjá uppáhalds
tónlistarmennina sína troða upp
með svona óhefðbundnu sniði.
Hljómsveitin Moses Hightower
gaf út sína aðra breiðskífu í ágúst,
sem nefnist Önnur Mósebók, en
fyrsta plata þeirra, Búum til börn,
hlaut mikið lof gagnrýnenda.
Tónleikarnir hefjast klukkan
21 og hægt er að nálgast miða á
midi.is
Háir staflar af
50 skuggum
Þann 4. september var búið að
koma fyrir háum stöflum af bók-
inni Fimmtíu gráum skuggum í
verslunum
Hagkaupa,
en auglýstur
útgáfudagur
bókarinnar
var 5. sept-
ember. Um
er að ræða
íslenska þýð-
ingu bókinnar
Fifty Shades
of Grey eftir E.L. James, sem er
orðin ein mest selda skáldsaga
í Bretlandi frá upphafi. Forsala
bókarinnar á íslensku hófst í síð-
ustu viku og mun hafa farið vel af
stað, en prentað upplag mun vera
þrefalt.
Ef marka má staflana af ein-
tökum bókarinnar í Hagkaupum
er búist við að Fimmtíu skuggar
muni renna út á skömmum tíma.
Það var Ásdís Guðnadóttir sem
þýddi bókina yfir á íslensku.
Stebbi Ó. swingsextett Hljómsveitina skipa: Stefán Ómar Jakobsson, básúna og söngur, Ei-
ríkur Rafn Stefánsson, trompet og söngur, Snæbjörn Gauti Snæbjörnsson, tenórsaxófónn, Þröstur
Þorbjörnsson, gítar og söngur, Jón Rafnsson, kontrabassi, og Þorvaldur Halldórsson, trommur.
„Mér finnst
bollaköku-
gerð snúast fyrst
og fremst um út-
litið, múffubakstur
um bragðið