Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2012, Side 53
Fólk 53Helgarblað 5.–7. október 2012
Þ
að verður bara partí fyrir
vini og vandamenn,“ segir
Reynir Hilmarsson sem
verður fertugur á laugar-
daginn. Reynir er sjómaður og býr
á Húsavík. Hann segist ekki vera
mikið afmælisbarn en ákvað að
halda upp á daginn í þetta skiptið.
„Ég tók mér frí frá sjónum til
að geta haldið upp á þetta,“ segir
hann kátur og bætir aðspurður
við að það sé í fínu lagi að ná fer-
tugsaldrinum. „Það er í góðu. Líf-
ið verður bara betra eftir því sem
maður eldist. Er það ekki bara
þannig?“ spyr Reynir sem býður
um 30 manns í gleðskapinn. „Svo
færist gleðin niður á Gamla Bauk
þar sem við höldum áfram að
djamma.“
Á
gúst Bjarnason kvikmynda-
gerðamaður fagnar þrítugs-
afmæli sínu um helgina.
Ágúst er alinn upp í Reykja-
vík. Hann hóf flugnám sem ung-
lingur og um tvítugt fór hann að
starfa sem útvarpsmaður á FM
957. Eftir nokkur ár hjá 365 miðl-
um fór hann í viðskiptafræði í Há-
skólanum í Reykjavík þaðan sem
hann útskrifaðist árið 2004. Ágúst
starfaði svo hjá Íslandsbanka þar
til hann skipti alfarið yfir í kvik-
myndagerð og leiklist. Eftir góðan
árangur á Íslandi fór Ágúst í fram-
haldsnám í kvikmyndaframleiðslu
við Suður-Kaliforníuháskóla og
hefur síðan haft annan fótinn í
Hollywood undanfarin ár. Hann
hyggst nú einbeita sér að handrita-
skrifum, leiklist og öðrum ævintýr-
um hér á Íslandi þar sem honum
finnst það skemmtilegra en í Los
Angeles á þessum tímapunkti.
Ágúst á tvær systur; Ingi-
björg er barnalæknir og Kristín
er flugfreyja hjá Icelandair. Faðir
hans er Bjarni Ágústsson fram-
kvæmdastjóri og móðir hans heitir
Matthildur Kristinsdóttir en hún
starfar á öldrunarheimilinu Selja-
hlíð.
Þ
að verður afmæliskaffi á
laugardaginn og svo ætla ég út
að borða með eiginmannin-
um á veitingastaðinn La Vita e
Bella á sjálfan afmælisdaginn,“ segir
Alís Ólafsdóttir á Akureyri sem verð-
ur þrítug á föstudaginn. „Þetta verða
sem sagt bara rólegheit,“ segir Alís
sem er lítið fyrir að kíkja út á lífið.
„Ég er bindindiskona og drekk því
ekki áfengi. Auðvitað er gaman í
hófi að kíkja út en það verður ekki
í þetta skiptið,“ segir hún og bætir
aðspurð við að hana langi mest
í iPhone í afmælisgjöf. „Og svo
langar mig líka í nýja skó. Ég er
samt ekki með neina skóáráttu.
Mig vantar bara skó.“
Lífið betra
með aldrinum
Tekur Ísland fram
yfir Los Angeles
Langar í skó og iPhone
Reynir Hilmarsson verður fertugur á laugardaginn
Ágúst Bjarnason verður þrítugur um helgina
Alís Ólafsdóttir ætlar út að borða í tilefni dagsins
Skál Alís er bindindiskona og ætlar ekki út
á lífið í tilefni þrítugsafmæli síns.
Sjómaður
Reynir er sjó-
maður og býr
á Húsavík.
Með Klöru í
The Charlies
Ágúst og Klara
Elísdóttir úr
hljómsveitinni
The Charlies
úti að borða á
Geisha House í
Los Angeles.
É
g finn allavega ekki fyrir mik-
illi pressu,“ segir Birkir Örn
Karlsson, 15 ára keppandi
í Dans dans dans, en fyrsti
þáttur verður sýndur þann 20.
október. Birkir Örn er bróðir Berg-
lindar Ýrar Karlsdóttur sem sigraði í
fyrri þáttaröðinni.
Flestir muna eftir fallegum nú-
tímadönsum Berglindar Ýrar en
litli bróðir hennar er samkvæmisd-
ansari sem hefur dansað síðan hann
var níu ára. Sjö ár eru á milli systk-
inanna og að sögn Birkis Arnar eru
þau miklir vinir. „Ég fylgdist vel með
henni keppa í fyrra og mætti í salinn
þegar hún dansaði sóló og einnig í
úrslitunum. Ég verð að viðurkenna
að ég bjóst ekkert endilega við að
hún myndi vinna en ég var viss um
að hún yrði ofarlega. Ég er viss um
að hún á eftir að fylgjast vel með
mér enda erum við góðir vinir,“ seg-
ir hann og bætir við að hann upplifi
sig ekki í skugga hennar. „Alls ekki.
Mér finnst bara frábært að hún hafi
unnið.“
Birkir Örn hefur keppt mikið er-
lendis og þar á meðal á nokkrum
heimsmeistara-
mótum. „Frænka
okkar dansar líka
en annars erum
það bara við tvö
sem dönsum í fjöl-
skyldunni,“ segir
hann og bætir við
að hann hafi próf-
að ýmsar aðrar
íþróttir. „Ég hef að-
eins spilað golf og
svo er ég að reyna
koma mér í gott
form með cross-
fit þessa dagana.
Þegar ég var yngri
var ég í fótbolta en
hætti af því að ég
hafði ekkert gam-
an af því. Svo byrjaði ég í fimleikum
og var í þeim í nokkur ár áður en ég
fór í dansinn. Ég fann mig þar. Mér
finnst svo æðislegt að hreyfa mig,
mér líður svo vel þegar ég dansa,“
segir hann og bætir aðspurður við
að hann hafi ekki enn ákveðið hvort
hann ætli sér að verða atvinnu-
maður í dansinum. „Ég hef allavega
engan áhuga á að hætta að dansa,“
segir hann og bætir við að hann
mæli eindregið með því að krakk-
ar sem hafi gaman af dansi prófi að
taka þátt í þættinum. „Ég var of ung-
ur í fyrra en var staðráðinn
í að taka þátt. Þetta hefur
verið alveg frábær reynsla.“
Birkir Örn, sem er á
fyrsta ári í Verslunarskóla
Íslands, segir vinina skiln-
ingsríka hvað dansáhugann
varðar. „Vinir mínir eru alla-
vega ekkert að setja út á það
að ég sé dansari. Enda eru
nokkrir þeirra í dansi líka.
Ég fann meira fyrir fordóm-
um þegar ég fór í ballett og
nútímadans þegar ég var að
undirbúa mig fyrir Dans dans
dans. Fólk er klárlega með
meiri fordóma fyrir ballett en
samkvæmisdönsum. En ég
læt það ekkert á mig fá.“ Birkir
Örn þvertekur fyrir að frægðin hafi
breytt systur hans. „Engan veginn.
Hún hefur ekkert breyst og lætur
ekki eins og hún sé eitthvað fræg.“ n
Finn ekki
Fyrir pressu
n Birkir Örn Karlsson er 15 ára keppandi í Dans dans dans
„Fólk er klárlega
með meiri for-
dóma fyrir ballett en
samkvæmisdönsum.
Ekki í vinnunni á
afmælisdaginn
n Jóhanna Sigurðardóttir sjötug
H
rannar Björn Arnarsson, aðstoðarmaður hennar, sagði
hana hafa tekið sér frí frá vinnu á afmælisdaginn og að-
spurður hvernig hún mundi eyða deginum sagðist
hann ekki hafa nákvæmar upplýsingar um það en
gæti sagt að hún yrði að heiman.
Jóhanna er fædd í Reykjavík árið 1942 og er dóttir
hjónanna Sigurðar Egils Ingimundarsonar og Kar-
ítasar Guðmundsdóttur. Eiginkona Jóhönnu er Jón-
ína Leósdóttir, blaðamaður og leikskáld. Jóhanna á
synina Sigurð Egil og Davíð Steinar frá fyrra hjóna-
bandi en sonur Jónínu er Gunnar Hrafn Jónsson.
Hún lauk verslunarprófi árið 1960 og starf-
aði sem flugfreyja hjá Loftleiðum á árunum 1962
til 1971 en þaðan lá leið hennar til Kassagerðar
Reykjavíkur þar sem hún starfaði til ársins 1978.
Hún gegndi stöðu félagsmálaráðherra frá 1987
til 1994 og tók aftur við því embætti 2007. Hún
varð félags- og tryggingamálaráðherra í ársbyrjun
2008 þar til hún tók við forsætisráðherrastólnum
árið 2009. Sama ár var Jóhanna á lista Forbes yfir
100 áhrifamestu konur heims. n
Glæsileg Áhorfendur völdu Berglindi Ýri sem besta dansara landsins í fyrra.
Samkvæmisdansari
Birkir Örn hefur æft
samkvæmisdans frá níu
ára aldri og hefur keppt
á nokkrum heimsmeist-
aramótum.