Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2012, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2012, Blaðsíða 3
Snjóflóð féllu á Sauðárkróki n Gríðarlegur snjóþungi og hús rýmd vegna hættu Þ rjú hús voru rýmd á Sauðár­ króki á sunnudag vegna snjó­ flóðahættu. Miklar hengjur höfðu myndast á Nafarbrún­ um fyrir ofan húsin og hluti þeirra fall­ inn að því er Vernharður Guðnason hjá Almannavörnum Skagafjarðar seg­ ir í samtali við fréttavefinn Feyki. Það er því ljóst að lítil snjóflóð féllu eins og myndin ber með sér. Vernharð sagði í samtali við Feykir. is að næstu skref yrðu ákveðin í sam­ ráði við sérfræðinga Veðurstofunnar á sunnudag en ljóst væri að íbúar mættu ekki fara heim til sín fyrr en búið væri að ganga úr skugga um að öllu væri óhætt. Ekki er algengt að snjóflóð falli á Króknum og sagðist Vernharð ekki vita til þess að hús hafi verið rýmd áður en í eitt skipti hefði það verið íhugað. Mikill snjóþungi var á Sauðárkróki um helgina og lét Haraldur Ingólfs­ son, formaður Björgunarsveitar Skag­ firðinga, hafa eftir sér að sunnudegin­ um hefði verið varið í að draga bíla úr sköflum. „Aðfaranótt laugardags voru tvær ferðir farnar á Þverárfjallið til að að­ stoða ökumenn sem lent höfðu í vand­ ræðum en einnig voru tvær ferðir farn­ ar á Laxárdalsheiðina og Laxárdalinn í sömu erindagjörðum. Þá aðstoðaði Skagfirðingasveitin við að koma lítilli rútu upp á veg í Norðurárdalnum en sú hafði farið útaf en engin meiðsli á þeim tveimur farþegum sem þar voru innanborðs né bílstjóranum.“ Miðstjórnarfundur Framsóknar­ flokksins fór fram á Sauðárkróki um helgina þar sem þingmaður flokksins slasaði sig illa eins og lesa má um á baksíðu DV í dag. n Hús á kafi Hér má sjá skafla á hæð við ein- býlishús sem kaffært hafa byggð á Sauðár- króki um helgina. Mynd Feykir.is (birt Með leyFi) Vilja loka á Ísrael Stjórn ungra Vinstri grænna krefst þess að íslensk stjórnvöld beiti sér af fullum krafti á alþjóðavísu til að binda enda á það hörmungarástand sem nú ríkir á Gaza­ströndinni. Þörf sé á raunverulegum aðgerð­ um og Ísland þurfi að slíta stjórn­ málasambandi við Ísrael og þrýsta á þær þjóðir sem styðja við hernað­ arbrölt þeirra með vopnasölu og fjárstuðningi. Þetta kemur fram í ályktun stjórnar UVG sem sam­ þykkt var á fundi hennar á sunnu­ dag. Ung Vinstri græn hvetja kjörna fulltrúa og aðra Íslendinga sem geta haft raunveruleg áhrif á alþjóða­ vettvangi „að gera það sem í þeirra valdi stendur til að binda enda á fjöldamorðin á Gaza­ströndinni og styðja við hjálparstarf á svæðinu.“ Mótmæla blóðbaði „Fimm börn undir tveggja ára aldri höfðu týnt lífi á hádegi í gær,“ seg­ ir í tilkynningu félagsins Ísland­ Palestína á sunnudag. Félagið hefur boðað til mótmælafundar í dag, mánudaginn 19. nóvember, klukkan 17 fyrir framan sendiráð Bandaríkjanna á Laufásvegi. Seg­ ir að tilefnið sé grimmilegar árásir Ísraelshers og fjöldamorð þeirra á palestínskum borgurum á Gaza­ ströndinni. „Nú þegar hafa rúmlega 50 manneskjur verið myrtar, þar af þrettán börn. Heilbrigðiskerfið á Gaza á erfitt með að sinna stöð­ ugum straumi slasaðra. Stórfelld­ ur skortur á lífsnauðsynlegum lækningavörum er farinn að kosta mannslíf að sögn lækna.“ Þar segir ennfremur að Banda­ ríkin séu í lykilstöðu til að stöðva blóðbaðið á Gaza. Þess vegna krefj­ ist félagið Ísland­Palestína þess að Bandaríkjamenn með Barack Obama forseta í fararbroddi „stöðvi fjöldamorðin í Palestínu.“ Kröfur fundarins eru að sögn félagsins þær að blóðbaðið verði stöðvað, herkví­ in rofin, og að íbúar Palestínu fái að njóta alþjóðlegrar verndar. Þá er þess krafist að Palestína hljóti sjálf­ stæði. Fjöldi annarra félagasamtaka eru sögð styðja mótmælin. Meðlimir félagsins mótmæltu friðsamlega fyrir framan sendiráð Bandaríkjanna síðasta haust en þá var lögreglan með mikinn viðbún­ að. Líklega verður sama upp á ten­ ingnum nú. Innflytjenda- lög taka gildi Alþingi hefur samþykkt frum­ varp Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra um málefni innflytjenda og öðlast lögin þegar gildi. Með lögunum er mælt fyrir um hvernig stjórn­ sýslu í málefnum innflytjenda skuli háttað og hlutverk og starfsemi Fjölmenningarseturs, innflytjendaráðs og þróunar­ sjóðs innflytjenda bundið í lög. Innan árs frá gildistöku lag­ anna skal velferðarráðherra leggja fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um fram­ kvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda til fjögurra ára. LítiL endurnýjun hjá SamfyLkingu n Oddný burstaði Björgvin í Suðurkjördæmi n Tæpt hjá Össuri í Reykjavík N iðurstöður úr flokksvali Sam­ fylkingarinnar í Reykjavík og Suðurkjördæmi eru afar þýðingarmiklar og hleypa lífi í leit flokksins að næsta for­ manni. Í því sambandi má nefna afar góða kosningu Oddnýjar G. Harðar­ dóttur í Suðurkjördæmi og Sigríð­ ar Ingibjargar Ingadóttur í Reykja­ vík. Nú er ljóst að konur munu leiða lista Samfylkingarinnar í að minnsta kosti tveimur kjördæmum. Ekki er mikið um uppstokkun á listum Sam­ fylkingarinnar eins og sést glögglega á niðurstöðum prófkjörsins í Reykja­ vík. Í efstu sjö sætum þess er Björk Vilhelmsdóttur sú eina sem ekki situr á þingi. yfirburðir Oddnýjar miklir Oddný G. Harðardóttir var ótvíræður sigurvegari í flokksvali Samfylkingar­ innar í Suðurkjördæmi. Hlaut hún rúmlega tvöfalt fleiri atkvæði í fyrsta sætið en keppinautur hennar, Björg­ vin G. Sigurðsson, sem leiddi listann fyrir síðustu kosningar. Ljóst er að aðkoma Björgvins að efnahagshrun­ inu á stóran þátt í löku gengi hans en einnig má vera að afstaða hans í virkj­ anamálum hafi fallið í grýttan jarð­ veg. Í næstu sætum á eftir Oddnýju og Björgvin eru nýliðar úr sveitastjórn­ um kjördæmisins. Þriðja sætið skipar Arna Ír Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi í Árborg, og tekur hún sæti Róberts Marshall sem genginn er til liðs við Bjarta framtíð. Sigur Oddnýjar var afar afgerandi og kom það mörgum í opna skjöldu. „Hún er bara að stimpla sig inn sem einn sterkasti frambjóðandi Samfylk­ ingarinnar,“ segir einn af heimildar­ mönnum DV úr röðum flokksins sem telur úrslitin koma henni á kortið fyr­ ir væntanlegan formannsslag. „Ég lít bara á þetta þannig að menn treysti mér til þessara starfa,“ segir Oddný í samtali við DV en segist ekki hafa velt fyrir sér formannsframboði af neinni alvöru. „Ég hef ekki hugleitt það en það hafa margir nefnt þetta við mig eftir úrslit helgarinnar.“ Munaði 68 atkvæðum Össur Skarphéðinsson utanríkisráð­ herra bar sigur úr býtum í flokksvali Samfylkingarinnar fyrir Reykjavíkur­ kjördæmin tvo. Þó var sigur Össur­ ar afar naumur og munaði aðeins 68 atkvæðum á þeim Össuri og Sig­ ríði Ingibjörgu Ingadóttur. Það er ákveðinn varnarsigur hjá fyrrverandi formanni flokksins en einnig vekur athygli að Sigríður, Skúli Helgason, Helgi Hjörvar og Valgerður Bjarna­ dóttir hlutu öll fleiri atkvæði en Öss­ ur í heildina þó hann hafi fengið flest atkvæði í fyrsta sætið. Hann segir þennan litla mun ekki hafa komið sér á óvart. Össur hefur gefið út að formanns­ framboð sé ekki á dagskrá hjá sér og sigur hans í prófkjörinu breyti engu þar um. Öðru máli gegnir um Sig­ ríði sem hlaut yfirburðakosningu í annað sætið og kemur því til með að leiða annan lista Samfylkingarinnar í Reykjavík. Hún vill halda möguleik­ anum á formannsframboði opnum. Margir máta formannsbuxur Árni Páll Árnason er enn sem komið er sá eini sem tilkynnt hef­ ur um framboð sitt til formanns Samfylkingarinnar. Það er ekkert launungarmál að Árni Páll er ekki fýsilegur formaður í augum margra af forystumönnum Samfylkingar­ innar. Því má telja nær öruggt að Árni Páll fái mótframboð og í því samhengi hafa fjölmörg nöfn verið nefnd að undanförnu. Þeirra á með­ al er Katrín Júlíusdóttir fjármálaráð­ herra. Þó mjótt hafi verið á munun­ um í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi er sigur Árna Páls á Katrínu þar talinn hafa dreg­ ið verulega úr líkunum á framboði hennar. Samkvæmt heimildum DV hef­ ur Guðbjartur Hannesson vel­ ferðarráðherra einnig hugleitt formannsframboð alvarlega. Á föstudaginn verða kynntar niður­ stöður prófkjörs Samfylkingarinn­ ar í Norðvesturkjördæmi, kjördæmi Guðbjarts. Vegni honum vel í því má vera að hann láti til skarar skríða. Heimildir DV herma að Guðbjartur og Sigríður Ingibjörg hafi rætt sín á milli og hugsast geti að þau sameini krafta sína og falist eftir formanns­ og varaformannsstólum. Í ljósi úrslita helgarinnar koma Sigríður og Oddný sterk­ lega til greina þegar kemur að for­ mannskjöri. „Ef Sigríður fer fram verður þetta klárlega hugmynda­ fræðileg barátta,“ segir einn af innstu koppum í búri Samfylk­ ingarinnar í samtali við DV. Þar vís­ ar hann til þess að Árni og Sigríð­ ur hafi markað sér stöðu hvort sínu megin í flokknum, Árni hallist til hægri en Sigríður til vinstri. lítil uppstokkun Ekki verður sagt að mikil endurnýj­ un eigi sér stað í efstu sætum fram­ boðslista Samfylkingarinnar. Það á sérstaklega við í Reykjavík þar sem núverandi þingmenn skipa sex af sjö efstu sætum kjörsins. Ef litið er á efstu þrjú sæti á listum Sam­ fylkingarinnar þar sem prófkjör hafa farið fram er aðeins að finna þrjá nýliða. Það eru þær Björk Vil­ helmsdóttir í Reykjavík, Arna Ír Gunnarsdóttir í Suðurkjördæmi og Erna Indriðadóttir í Norðaust­ urkjördæmi sem hlaut fleiri at­ kvæði en tveir sitjandi þingmenn. Í Norðvesturkjördæmi er ekki út­ lit fyrir mikla uppstokkun enda lík­ legt að Guðbjartur Hannesson og Ólína Þorvarðardóttir haldi sætum sínum. Viðmælendur DV úr Sam­ fylkingunni segja þetta mjög skýra traustsyfirlýsingu við sitjandi þing­ menn flokksins og telja hana sér­ lega áberandi í Reykjavík. n Ólafur Kjaran Árnason blaðamaður skrifar olafurk@dv.is Fréttir 3Mánudagur 19. nóvember 2012 Formannsefnin Árni Páll Árnason er sá eini sem lýst hefur yfir framboði til formanns Samfylkingarinnar en nokkrir mótframbjóðendur koma vel til greina. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir og Oddný G. Harðardóttir fengu byr undir báða vængi í prófkjörum helgarinnar en Katrín Júlíusdóttir laut í lægra haldi fyrir Árna Páli í Suðvesturkjördæmi á dögunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.