Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2012, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2012, Blaðsíða 12
Evrópa logar M illjónir manna héldu út á götur helstu borga Evrópu í síðustu viku til að mót­ mæla niðurskurðarað­ gerðum stjórnvalda. Þetta eru einhver stærstu mótmælin hing­ að til í hrinu mótmælaaðgerða sem hafa farið stigvaxandi í kjölfar efna­ hagsþrenginganna í álfunni. Fjölmennustu mótmælin voru í Portúgal og á Spáni en þar kom til heiftarlegra átaka á milli lögreglu og mótmælenda með þeim afleiðingum að fjöldi borgara særðust illa og þörfn­ uðust aðhlynningar á sjúkrahúsi. Ástandið í Evrópu, þá sérstaklega í suðurhluta álfunnar, er einkar eldfimt. Átök síðustu daga þykja ekki líkleg til að lægja öldurnar. Fjöldi verkalýðs­ félaga um alla Evrópu hafa samein­ ast í baráttu sinni gegn niðurskurðar­ áformum stjórnvalda. BBC greinir frá mótmælunum síðustu daga sem sum­ ir mótmælandanna sjálfra hafa kosið að kalla „evrópska vorið“. Allsherjarverkfall Miðvikudaginn 14. nóvember voru víðtæk allsherjarverkföll á Spáni og í Portúgal. Umferð var meðal annars stöðvuð og skólum lokað og læst. Þá lá flug til og frá löndunum nán­ ast niðri. Þá var einnig mótmælt í 21 Evrópuríki. Atvinnuleysi á Spáni er 25 prósent en það er hvergi hærra í allri Evrópu. Stór hluti atvinnulausra er á þrítugs­ aldri og það kemur því ekki á óvart að stór hluti mótmælenda hafi verið á þrítugsaldri. Ríkisstjórn Spánar reyndi að tala verkfallið niður og sagði meðal annars að rafmagnsnotkun hefði ver­ ið áttatíu prósent af því sem gerðist á venjulegum degi. Verkalýðsfélögin bentu hinsvegar á að verkfallið hefði stöðvað starfsemi stórra fyrirtækja, þar á meðal Danone og Heineken. Gegn auknum ójöfnuði Aðgerðirnar á miðvikudaginn voru skipulagðar af samtökum evrópskra verkalýðsfélaga í verslun og þjón­ ustu. Einn talsmanna samtakanna sagði í samtali við BBC að niður­ skurðaráform ríkisstjórna álfunn­ ar væru ekki að virka. „Þetta er að valda auknum ójöfnuði, þetta er að valda auknum félagslegum óstöðug­ leika og þetta er ekki að leysa efna­ hagskreppuna,“ sagði hann. Fimm­ tíu borgarar slösuðust í átökum við óeirðarlögreglu í Lissabon, höfuð borg Portúgal. Þá særðust að minnsta kosti sjötíu mótmælendur á Spáni þennan eina dag og 140 voru handteknir. Kveiktu í lögreglubílum Í Valensía á Spáni skutu lögreglu­ menn mótmælendur með gúmmí­ kúlum og lömdu þá með kylfum. Fjölmargir slösuðust alvarlega. Þá börðust verkfallsverðir og lögreglu­ menn á rútustöð í höfuðborginni á meðan mótmælendur reyndu að koma í veg fyrir að rútur færu á brott. Aðrir mótmælendur í Madríd kveiktu í ruslatunnum sem gerði það að verkum að aðalgöngugatan varð mettuð reyk. Í Barcelóna kveiktu mótmælendur hinsvegar einnig í lögreglubílum. Engin framtíð Verkalýðsfélög á Spáni og í Portú­ gal hófu verföll sín strax á mið­ nætti aðfaranótt miðvikudagsins. Aðgerðunum er beint gegn niður­ skurði stjórnvalda í velferðarkerf­ inu. Niðurskurðurinn eykst í sífellu á sama tíma og skattar eru hækkað­ ir og laun eru lækkuð. Þetta veldur eins og gefur að skilja mikilli ólgu sem brýst síðan út í mótmælum með jöfnu millibili. „Þeir eru að taka framtíðina frá okkur,“ sagði á stórum borðum sem héngu á öll­ um helstu torgum Madríd­borgar á meðan mannfjöldinn safnaðist þar saman í tugþúsundavís. Fyr­ ir stóðu þar óeirðarlögreglumenn gráir fyrir járnum. „Vondar fréttir“ í Portúgal Í Lissabon, höfuðborg Portú­ gal, stormuðu mótmælendur út á götur með borða þar sem Evrópu­ sambandið var fordæmt, rétt eins og Alþjóðagjaldeyrissjóður­ inn og Seðlabanki Evrópu. Sam­ kvæmt nýjustu tölum er atvinnu­ leysi í landinu komið upp í sextán prósent og hefur það aldrei verið meira. Forsætisráðherra landsins, Pedro Passos Coelho, hefur viður­ kennt að þetta séu „vondar fréttir“ en bendir á að við þessu hafi verið búist. Óeirðarlögregla réðist gegn mótmælendum sem höfðu safn­ ast saman fyrir utan þinghúsið í Lissabon, og lamdi þá með kylf­ um. Mótmælendur brugðust við með grjótkasti. Átök um alla álfu Átök brutust einnig út á milli lög­ reglu og mótmælenda í ítölskum borgum í síðustu viku. Þannig not­ aðist óeirðarlögregla þar í landi meðal annars við brynvarða bíla til þess að dreifa mannfjöldanum í höfuðborginni, Róm, að því er fram kemur á vef Reuters. Frönsk verkalýðsfélög skipulögðu meira en hundrað mótmælagöngur víða um Frakkland en fóru ekki fram á verkfall að svo stöddu. Þá söfnuð­ ust mótmælendur í Belgíu saman fyrir utan sendiráð Þýskalands, Spánar, Grikklands, Kýpur, Portú­ gal og Írlands á meðan sólarhrings verkfall lestarstarfsfólks stöðvaði starfsemi helstu hraðlesta Thalys og Eurostar. Hundruð Grikkja söfnuðust saman fyrir utan þinghúsið í Aþenu þar sem þeir sveifluðu risastórum fánum suð­ rænu landanna, Spánar, Grikklands, Portúgal og Ítalíu, í samstöðu með baráttu íbúa þessara landa. n 12 Erlent 19. nóvember 2012 Mánudagur n Verkföll og fjöldamótmæli skekja Evrópu n Milljónir mótmæla í helstu borgum Jón Bjarki Magnússon blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is 0 10 20 30 Finnland Lettland Litháen Pólland Rúmenía Tyrkland Búlgaría Makedónía Kýpur Grikkland Malta Ítalía Spánn Portúgal Frakkland Bretland Írland Þýskaland Holland Lúx. Sviss Belgía Danmörk Tékkland Austurríki Slóvenía Ungverjaland Svíþjóð Hrina verkfalla vegna bágrar stöðu í efnahagsmálum * Horfur Fram að 14. nóv. Þar sem skipulögð mótmæli hafa brotist út vegna efnahagsmála Lönd þar sem sjálfstæðir hópar hafa tekið sig saman um aðgerðir gegn niðurskurði K.Pong, 15/11/2012 Atvinnuleysi* (sem % af vinnuafli) Spánn Grikkland Portúgal Írland Kýpur Ítalía Frakkland Bretland Belgía Þýskaland Evrusvæðið ESB 2012 2013 „Þetta er að valda auknum ójöfnuði, þetta er að valda auknum félagslegum óstöðugleika og þetta er ekki að leysa efnahagskreppuna. Sparkað í mótmælanda Lögreglumaður sparkar í konu í borginni Valensía á Spáni en fjöldi fólks hefur slasast alvarlega í mótmælum á Spáni síðustu daga. Mynd OccuPy ViEnnA Á hlaupum Óeirðarlögreglumenn eltust við mótmælendur á götum Rómar, höfuðborgar Ítalíu í síðustu viku. Mynd REutERS Milljónir mótmæla Mótmælt var um alla Evrópu í síðustu viku en talið er að alls hafi margar milljónir tekið þátt. Hér má sjá mannfjöldann á Colon-torgi í Madríd þann 14. nóvember. Mynd REutERS Lissabon brennur Lögreglumaður á verði í Lissabon á meðan allsherjarverkfall stendur yfir og mótmælt er um alla borg. Mynd REutERS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.