Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2012, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2012, Blaðsíða 22
22 Menning 19. nóvember 2012 Mánudagur Leitað að jólunum í Þjóðleikhúsinu n Sýningar að hefjast áttunda árið í röð Þ jóðleikhúsið sýnir nú, áttunda árið í röð, ævintýrið Leitin að jólunum sem aðallega er ætl­ að yngri leikhúsgestunum. Tveir skrýtnir og skemmti­ legir náungar taka á móti gestum í anddyri leikhússins en með þeim í för eru tveir hljóðfæraleikarar. Leiða þeir börnin um ævintýraheim leik­ hússins, með leik og söng. Með­ al viðkomustaða á ferðalaginu eru Kristalssalurinn, leikhúsloftið og Leik hús kjallarinn. Börnin fá að ferð­ ast inn í ævintýraveröld jólanna og sjá leikþætti um jólin frá því í gamla daga og í nútímanum. Er þetta fyrirkomu­ lag einstaklega hentugt fyrir litla leik­ húsgesti sem eiga stundum erfitt með að sitja kyrrir. Leitin að jólunum er eftir Þorvald Þorsteinsson og er sýningin hljóð­ skreytt með tónlist Árna Egilsson­ ar við Jólasveinavísur Jóhannesar úr Kötlum. Sýningin var frumsýnd í Þjóð­ leikhúsinu á aðventunni árið 2005 og hlaut Grímuna sem barnasýning ársins árið 2006. Leikritið hefur notið mikilla vinsælda og uppselt hefur ver­ ið á nánast hverja einustu sýningu frá frumsýningu. Leikstjóri er Þórhallur Sigurðsson og leikarar þau Selma Björnsdótt­ ir, Ólafur Egill Egilsson, Ragnheiður Steindórsdóttir, Edda Arnljótsdótt­ ir, Hilmir Jensson, Ævar Þór Bene­ diktsson, Þórunn Arna Kristjánsdóttir og Vigdís Hrefna Pálsdóttir. Hljóð­ færaleikarar eru Darri Mikaelsson og Helga Kristbjörg Guðmundsdóttir. Sýningar hefjast þann 24. nóvem­ ber næstkomandi. n Útgáfutón- leikar Ylju Hljómsveitin Ylja sem gaf út sína fyrstu breiðskífu síðastliðinn föstu­ dag, á Degi íslenskrar tungu, mun að tilefni þess halda útgáfugáfu­ tónleika á Kex Hostel fimmtu­ daginn 6. desember næstkomandi. Guðný Gígja Skjaldardóttir og Bjartey Sveinsdóttur stofnuðu hljómsveitina árið 2008 þegar þær ákváðu að sameina krafta sína í gítarleik og söng. Haustið 2011 gekk svo Smári Tarfur Jósepsson til liðs við hljómsveitina, en hann leikur á slidegítar. Hægt er að nálgast miða á tón­ leikana á miði.is en þeir hefjast klukkan 20:30. Kuldi frá Yrsu Metsöluhöfundurinn Yrsa Sig­ urðardóttir hefur sent frá sér nýjan sálfræðitrylli í anda Ég man þig, sem fer nú sigurför um heiminn og verður fljótlega kvikmynduð. Bókin nefnist Kuldi og fjallar um ungan mann sem er að rannsaka upptökuheimili fyrir unglinga á áttunda áratug síðustu aldar. Á meðan á rannsókninni stendur fara undarlegir atburðir að skekja tilveru hans og dóttur hans. Hvort atburðirnir tengjast þeim hörm­ ungum sem dundu yfir unglinga­ heimilið eða sviplegu fráfalli barnsmóður hans skömmu áður, munu lesendur komast að við lestur bókarinnar. Það er Veröld sem gefur bók­ ina út. Blúshátíð Bjögga Gísla Blúshátíð Bjögga Gísla verð­ ur haldin í fyrsta skipti dagana 22.–25. nóvember næstkomandi. Á hátíðinni verður boðið upp á frábær tónlistaratriði víðsvegar af landinu ásamt einu atriði þar sem listamennirnir koma alla leið frá Þýskalandi. Um er að ræða miklar blúshetj­ ur sem nostrað hafa við blúsinn í tugi ára í bland við yngri tónlist­ armenn sem eflaust munu halda heiðri blússins á lofti um ókomna tíð. Meðal tónlistamanna sem koma fram eru: Björgvin Gíslason og hljóm­ sveit. Bubbi Morthens. Magnús Eiríksson, Þórir Baldursson, Beggi Morthens og hljómsveit. Hans Blues, Skúli Mennski og hljóm­ sveit, Vintage Caravan. Blússveit Þollýar. Blágresi, Johnny & The Rest. Pollock bræður. Beggi og Mood, Lame Dudes, Guðgeir blúsari. Gunnar Örn og hljóm­ sveit, Guðmundur og Blús­ hundarnir, Dúettinn Víglund­ ur, 3B, Friðrik Jónsson og Jens Einarsson. Metsöluhöfundar hakka í sig lakkrís n Skrifa um málefni sem þau kannast við og snerta þau sjálf H ringurinn eftir Söru B. Elf­ gren og Mats Strandberg er upphaf fantasíu þríleiks fyr­ ir unglinga sem hefur slegið rækilega í gegn. Útgáfurétturinn hefur verið seld­ ur á tuttugu og fjögur tungumál og í Svíþjóð eru vinsældirnar með ólík­ indum en bókin hefur selst í meira en 200 þúsund eintökum þar. Hún kom nýverið út hér á landi hjá Bjarti bókaforlagi í þýðingu Þórdísar Gísla­ dóttur og þau Mats og Sara heim­ sóttu Ísland til að fylgja eftir útgáf­ unni. Þau hittu blaðamann á Hótel Holti og ræddu um efni bókarinn­ ar, samstarfið og þá persónulegu tengingu sem þau hafa við sögu­ hetjurnar. Frá smábæ í líkingu við Engelfors Sagan gerist hún í nútímanum þar sem sænskum ungmennum er ógn­ að af hinu illa. Það hefur smeygt sér inn í framhaldsskólann í smábænum Engelfors, ungur maður tekur eig­ ið líf og síðan ung stúlka. Ungmenn­ in eru knúin áfram af innri rödd sem ógjörningur er að standast. Mikl­ ir og niðurrífandi kraftar ógna sam­ félaginu og í mestri hættu eru sex ungar stúlkur sem þekkja ekki hver aðra en eru knúnar til að grípa til varna. „Við hefðum skrifað þessa bók þótt enginn hefði viljað lesa hana nema við sjálf, segir Sara. Við erum bæði frá smábæ í líkingu við Engel­ fors og við eigum bæði töluvert í öll­ um söguhetjum bókarinnar.“ Fyrir þá sem hafa ekki lesið bók­ ina má upplýsa að allar söguhetjurn­ ar hafa einhvern djöful að draga. Anna Karin er frá sveitabæ, þybbin og einræn og lögð í einelti, Minoo er gáfnaljós og finnst hún utangarðs, Ida er fordómafull og hrædd yfir­ stéttastúlka, Vanessa býr við ótryggar fjölskylduaðstæður og lifir á brún­ inni, Rebekka glímir við átröskun, Linnea þarf að sjá um sig sjálf og virðist hörð af sér. Utangarðs og lögð í einelti „Ég var lagður í einelti og þegar ég var lítill þá var ég ef til vill svolítið eins og hún Anna Karin. Þó var ein­ eltið aldrei svo slæmt en nóg til þess að láta mér líða illa, segir Mats sem segist hafa flust eins fljótt og hann gat til Stokkhólms til að flýja aðstæð­ ur sínar. Ég var aðeins 16 ára gamall og sá um mig sjálfur. Um tíma var ég mikið að skemmta mér og djamma, svolítið eins og Vanessa. Þegar ég sé sextán ára krakka í dag þá bregður mér alltaf svolítið. Ég hugsa með mér að ég sé heppin að vera á lífi, var ég virkilega svona ungur þegar ég stóð á eigin fótum?“ „Þegar þú ert ungur þá ertu sak­ laus, þú skilur ekki til fulls þær vondu aðstæður sem þú ert í,“ segir Sara. „Já, og kannski er það betra,“ seg­ ir Mats. „Já, þú sérð ekki það vonda, ert enn haldin þeirri gáfu að sjá undur lífsins,“ bætir Sara við. „Ég hafði líka markmið, ég held það hafi bjargað mér. Það var eitthvað mikilvægara í lífi mínu en að djamma. Mig langaði til að skrifa, verða blaða­ maður eða rithöfundur,“ segir Mats. „Ég á líka svolítið í Önnu Kar­ in,“ segir Sara. Hún segist hafa verið utan garðs og gengið vel í skóla. „Þess vegna á ég líka mikið í Minoo,“ seg­ ir hún. „Það á ég líka,“ segir Mats. „Ég átti þó alltaf það að vera góður í skóla.“ Samstarfið eins og ástarsamband Mats hefur áður skrifað skáldsög­ ur fyrir fullorðna, og Sara hefur áður skrifað kvikmyndahandrit. Samstarf þeirra hefur tekist frábærlega að eig­ in sögn. Þegar þau hittust gerðu þau sér strax grein fyrir því að þau þyrftu að vinna saman. Þau líkja samstarfinu við hið fullkomna ástarsamband. „Við hittumst nokkrum sinnum og ræddum um hugmyndir okkar, tókum síðan ákvörðun um að vinna saman. Hann hafði ekki lesið neitt sem ég hafði skrifað, þannig að mér fannst alveg ótrúlegt að hann skyldi vilja skrifa bók með mér,“ segir Sara. „Hún var einfaldlega með svo frá­ bærar hugmyndir, segir Mats. Hann hefði alveg getað stolið þeim bara og sleppt því að vinna með mér,“ segir Sara í gamni sínu. „Nei, ég held að við höfum verið blinduð af ást,“ segir Mats og skell­ ir upp úr. Hann á þó ekki við róm­ antíska ást, heldur ást þeirra á hug­ myndum hvors annars. Þau fengu að heyra að samstarf tveggja rithöfunda væri dæmt til að mistakast og yrði erfitt. „Við trúðum því aldrei og það varð ekki. Samstarf okkar hefur verið algjör draumur og vinátta okkar enn betri,“ segir Mats. „Sem rithöfundar erum við parið sem fluttumst strax inn saman og eignaðist börn og buru,“ segir Sara og hlær og á við að bækurnar séu börn­ in þeirra. „Nú eigum við tvö börn sem við þurfum að ala upp og það þriðja á leiðinni,“ segir Mats og þau skella bæði upp úr og segjast vona að orð þeirra verði ekki misskilin. Sara er enda hamingjusamlega gift. Innbyrða mikið magn af lakkrís „Við vorum mjög fegin þegar fyrsta bókin kom út og samstarfið var enn gott. Það hefði verið skelfilegt ef það hefði soðið upp úr á milli okkar og tvær bækur eftir að skrifa, segir Mats. „Já, hefði forlagið borgað sálfræði­ meðferðina fyrir okkur?“ segir Sara og hlær. Þau segja lítið hafa komið sér á óvart við samstarfið annað en vel­ gengnin. „Jú, segir Mats og fær hug­ ljómun. „Hvað við gátum innbyrt mikið af lakkrís. Við innbyrðum alltaf ómannlegt magn af lakkrís þegar við erum að lesa yfir!“ n „Ég held að við höf- um verið blinduð af ást,“ segir Mats og skellir upp úr. Hann á þó ekki við rómantíska ást, heldur ást þeirra á hug- myndum hvors annars. Líkja samstarfinu við ástarsamband „Ég held að við höfum verið blinduð af ást,“ segir Mats og skellir upp úr. Hann á þó ekki við rómantíska ást, heldur ást þeirra á hugmyndum hvors annars. MYND EYþór ÁrNaSoN Skrýtnir náungar Á sýningunni ferðast leikhúsgestir um leikhúsið og meðal viðkomu- staða eru Kristalssalurinn, leikhúsloftið og leikhúskjallarinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.