Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2012, Side 6
6 Fréttir 19. nóvember 2012 Mánudagur
Leggja rækt við íslensku
n Nemendur af erlendum uppruna á meðal verðlaunahafa
S
extíu og þrír grunnskóla nem
ar í Reykjavík tóku á Degi ís
lenskrar tungu við Íslensku
verð laun um unga fólks ins
í bókmenntaborginni Reykja vík.
Verðlaunin voru afhent við hátíð
lega athöfn í Norður ljósa sal Hörpu,
að viðstaddri frú Vigdísi Finnboga
dóttur, fyrrverandi forseta og vernd
ara verðlaunanna.
Markmið Íslenskuverðlaunanna
er að hvetja nemendur til framfara
í tjáningu talaðs máls og ritaðs og
vekja þau til vitundar um auðinn í
íslenskri tungu.
Í tilkynningu frá Reykjavíkur
borg segir að þeir grunnskólanem
ar sem tóku við verðlaunum að
þessu sinni hafi skarað fram úr á
ýmsa vegu í íslenskunámi, frum
legum skrifum og tjáningu.
Nokkrir þeirra séu tvítyngdir
og verðugir fulltrúar nemenda af
erlendum uppruna sem hafa náð
góðum tökum á nýju tungumáli í
nýju landi.
Meðal verðlaunahafa voru ljóð
skáld, leikritaskáld, ræðuskör ungar
og lestrarhestar á aldr inum 8–15
ára. Allir verðlaunahafar fengu til
eignar veglegan verð launa grip sem
hannaður er af Ingibjörgu Hönnu
Bjarnadóttur.
„Fúkkinn er
að drepa mig“
n Segir iðnaðarfyrirtæki hafa svikið sig n Ritaði gagnrýni á húsið sitt„Ég get verið hér í
þunglyndiskasti
yfir svikulum iðnaðar-
mönnum í mjög myrkri
kompu og það er bara
alveg ágætt.
F
ólk er vant því að bara deyja
ofan í skóna þegar það lend
ir í svona verktökum en ég er
búin að gera það bara nógu oft.
Ef það þarf að slá yfir glugg
ana vegna þess að þeir leka svo mik
ið þá náttúrulega bara auglýsir mað
ur viðkomandi í leiðinni,“ segir Auður
Haralds rithöfundur en hún brá á það
óvenjulega ráð að mála á húsið sitt á
Bergþórugötu gagnrýni á verk iðnað
armanna sem hún fékk til að skipta
um glugga á heimili sínu.
Mikill fúkki
Samkvæmt Auði eru komin tvö ár
síðan hún réð verktaka á vegum tré
smiðju Stálsmiðjunnar til að skipta
um gler í tveimur gluggum sem
komnir voru til ára sinna. Fyrir verk
ið borgaði hún rúmlega 300.000 krón
ur, en sökum þess hvernig gengið var
frá gluggaísetningunni segir hún að
raki hafi komist inn í veggi hússins og
valdið tjóni.
„Ég fékk verktaka til að skipta
um glugga. Hann smíðaði glugga
sem voru rangt gerðir á allan hátt og
fárán legir. Gluggarnir eru núna ónýt
ir og fúkkinn er að drepa mig af því
að vatnið flæðir inn í veggi hússins
og það var ekki um að annað að gera
en að slá yfir þetta.“
Auður segir það hafa verið erfitt
að ná sambandi við verktakann og
að henni hafi sífellt verið lofað bót
og betrun en aldrei hafi nógu vel ver
ið gengið frá gluggunum. Hún hafi
ítrekað skrifað verktakanum bréf til
að koma óánægju sinni á framfæri
ásamt því að hafa samband símleið
is. Að lokum hafi hún þó fengið af
slátt af reikningi sínum hjá fyrirtæk
inu.
Fékk nóg
Auður hafði á endanum samband við
lögfræðing en samkvæmt Auði sagði
hann að upphæðin væri það lág að
það tæki því ekki að fara í mál. „Hann
er með 25.000 kall á tímann en ekki
ég svo honum fannst ekki taka því
að fara í mál. Hann sagði mér að fá
heldur fund með framkvæmdastjór
anum sem ég gerði. Hann sagði mér
þá að maðurinn sem hafði verið yf
irmaður trésmiðjunnar væri látinn
og að þeir gætu ekki borið ábyrgð á
þessum gluggum mínum endalaust.
Menn væru búnir að koma trekk í
trekk og ég væri aldrei ánægð. Þá
fékk ég nóg og fékk annan verktaka í
þetta. Sá maður var undirverktaki hjá
öðrum verktaka þannig að hann gat
ekki smíðað glugga nema hinn verk
takinn gæfi grænt ljós. Sá maður gat
ekki gefið grænt ljós af því að sím
inn hans var bilaður frá því snemma
í vor og þetta var um haust og þá fékk
ég alveg nóg. Ég hringdi í undirverk
takann og sagði að þetta væri hinum
verktakanum óviðkomandi og hvort
að hann gæti ekki bara slegið yfir
gluggana hjá mér því að ég væri búin
að fá nóg.“
Reynt að verða við kröfum
Í dag eru því stórar viðarplötur yfir
tveimur gluggum á húsi Auðar sem
gerir það að verkum hún sér ekki út
um þá né fær birtu inn.
„Þetta sleppur. Ég get verið hér í
þunglyndiskasti yfir svikulum iðnað
armönnum í mjög myrkri kompu og
það er bara alveg ágætt því að þessi
sami smiður og sló yfir gluggana lauk
við þakið en sá djöfull fór án þess að
klára þakið og það hafði lekið í nokkur
ár, “ segir Auður og það er auðheyrt að
hún hefur fengið sig fullsadda af sam
skiptum sínum við iðnaðarmenn.
Bjarni Thoroddsen framkvæmda
stjóri Stálsmiðjunnar segir að reynt
hafi verið að verða við kröfum Auðar
eftir fremsta megni. „Við gerðum allt
sem í okkar valdi stóð til að leysa þetta
mál bæði með því að koma þarna aft
ur nokkrum sinnum og lagfæra og
með að gefa henni afslátt.“ n
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
Skilaboð Auður Haralds
rithöfundur málaði skilaboð
á viðarplanka sem eru yfir
gluggum á húsi hennar.
Vilhjálmur skilar
brúðkaupsgjöf
frá Eir
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrr
verandi stjórnarformaður Eirar,
hefur skilað brúðkaupsgjöfinni
sem Sigurður Helgi Guðmunds
son gaf honum og eiginkonu
hans. Um var að ræða gjafa
bréf frá Icelandair upp á 100.000
krónur. Gjafabréfið segir Sig
urður Vilhjálm hafa farið fram á
að fá í brúðkaupsgjöf. Vilhjálm
ur vísar því á bug að hann hafi
„skipað“ Sigurði að gefa sér gjöf
ina.„Í ljósi fjölmiðlaumræðu um
brúðargjöf til okkar hjóna frá Eir
í júní 2008 og með hvaða hætti
fyrrverandi forstjóri Sigurður
Helgi Guðmundsson hefur mat
reitt málið í fjölmiðlum, höf
um við ákveðið að skila þessari
brúðargjöf og að endurgreiða
andvirði hennar til Eirar.“
Össur vill
íhlutun
Öryggisráðs
Össur Skarphéðinsson utan
ríkisráðherra fordæmir áfram
haldandi árásir Ísraela á Gaza
svæðinu, sem og eldflaugaárásir
Hamassamtakanna á Tel Aviv og
Jerúsalem og segir að Öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna beri skylda
til að álykta um málið og gera sitt
til að skakka leikinn sem fyrst.
Kastaði pening-
um í sjóinn
Grímuklæddur maður ógnaði af
greiðslustúlku á Kaffivagninum
á Granda á laugardag og krafðist
þess að hún léti sig hafa peninga.
Fjöldi vitna varð að ógnandi til
burðum mannsins sem stökk yfir
borðið og hafði með sér peninga.
Maðurinn var fljótt eltur uppi af
lögreglunni og kastaði hann þá
peningunum í sjóinn. Eigandi
kaffivagnsins, Stefán Kristjáns
son segir þetta fyrstu ógnina í
þrjátíu ára rekstri staðarins.
Grunnskólanemar verðlaunaðir
Haukur Hákon Loftsson úr Ártúns-
skóla var meðal þeirra sem tóku við
Íslenskuverðlaunum unga fólksins úr
hendi frú Vigdísar Finnbogadóttur.