Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2012, Qupperneq 15
Þetta er
sjúkt
Þetta er andstyggileg
hugmyndafræði
Ég er alveg gríðar-
lega spenntur
Menntaskólanemar ræða klám og klámvæðingu. – DVEva Hauksdóttir gagnrýnir „dólgafeminisma“. – DVDaníel Geir Moritz þreytir frumraun sína á leiksviði. – DV
Sinnaskipti Sjálfstæðisflokksins
Spurningin
„Já, það væri æðislegt.“
Sævar Óli Helgason
41 árs atvinnulaus
„Já. Ég held að allir ættu
að vita hvers vegna.“
Svavar Skúli Jónsson
20 ára nemi
„Já, helst sem fyrst.“
Þóra S. Magnúsdóttir
18 ára barþjónn
„Já, algjörlega.“
Þórður Kári Steinþórsson
19 ára tónlistarnemi
„Já, ég held það.“
Páll Þórsson
35 ára kennari
Á að slíta stjórn-
málasambandi
við Ísrael?
1 „Hann virti ekki einu sinni hjónabandið mitt“ Jón Gerald
Sullenberger gerði upp viðskipti sín við
Jón Ásgeir Jóhannesson.
2 Bensínlausi Jón
3 Vilhjálmur skilaði gjafa-bréfinu frá Eir Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson fékk gjöf frá Sigurði
Helga Guðmundssyni.
4 Ætlaði að hefja skotárás á Twilight-frumsýningu Móðir
bandarísks ungmennis kom í veg fyrir
voðaverk.
5 Maður með Romney andlits-húðflúr sér ekki eftir neinu Eric
Hartsburg fékk sér kennimerki Mitt
Romney í andlitið.
6 Erill á Selfossi og Akranesi í nótt Lögreglan hafði í nógu að snúast
aðfaranótt sunnudags.
7 Fáðu omega-3, A- og D-vítamín úr fæðunni Góð ráð um
matarræði á neytendasíðu DV.
Mest lesið á DV.is
Þ
að skiptir miklu máli að vand
að sé til allrar ákvarðanatöku
þegar kemur að meðferð eigna
og krafna gömlu bankanna. Rík
isstjórnin og Seðlabankinn hafa verið
einhuga um að gæta að fjármálastöð
ugleika sé ekki ógnað þegar kemur að
úrlausn þessara mála. Upphlaup og
pólitísk látalæti eiga ekki við þegar um
jafnmikilvægt og flókið mál er að ræða.
Það er því sérstök ástæða til að
fagna auknum áhuga þingflokks Sjálf
stæðisflokksins á leiðum til þess að
verja krónuna og þar með kjör lands
manna gegn mögulegu útflæði eigna
erlendra kröfuhafa. Formaður þing
flokksins, sagði til dæmis á beinni línu
DV fyrir helgina: „Aðalatriðið er að það
náist samstaða um stefnuna í þessu
máli og þar leikur forsætisráðherra
lykilhlutverk, hún þarf að leiða saman
ASÍ, SA, stjórnina og stjórnarandstöð
una í stefnumótun.“
Formaður Sjálfstæðisflokksins
sagði í fréttum Stöðvar 2 síðastliðinn
fimmtudag að „þingið verður að hafa
síðasta orðið.“ Auðvitað eigum við að
vera bandamenn í þessu máli. Engu að
síður er nauðsynlegt að leiðrétta nokk
ur atriði sem og halda öðrum til haga.
Vel upplýst mál
Í fyrsta lagi er það ekki rétt sem Bjarni
Benediktsson hefur haldið fram að
upplýsingar hafi ekki legið fyrir um
vandann samfara mögulegu hundruða
milljarða útstreymi eigna til dæmis við
væntanlegt uppgjör til erlendra kröfu
hafa úr þrotabúum Glitnis og Kaup
þings. Það var meðal annars sá vandi
sem varð til þess að Alþingi styrkti
gjaldeyrishöftin 12. mars síðastliðinn
með lagasetningu. Það er hins vegar
mikilvægt að almenningur átti sig á því
að allur þingflokkur Sjálfstæðisflokks
ins greiddi atkvæði gegn frumvarpinu
af ástæðum sem eru mér ráðgáta. Samt
höfðu allir þingmenn, líka þingmenn
Sjálfstæðisflokksins, fyrir framan sig
greinargerð með frumvarpinu þar sem
meðal annars stóð: „Í frumvarpi þessu
er lagt til að tilteknar fjármagnshreyf
ingar á milli landa, sem verið hafa
heimilar til þessa, verði takmarkaðar.
Er það gert vegna þess að þær gætu að
óbreyttu grafið undan áætlun um los
un fjármagnshafta og valdið alvarleg
um óstöðugleika á gjaldeyrismarkaði,
sem aftur gæti leitt til verulegrar geng
islækkunar krónunnar, höggvið stór
skörð í gjaldeyrisforða þjóðarinnar eða
hvort tveggja.“ Það er ótrúlegt að Sjálf
stæðisflokkurinn hafi ekki áttað sig á
alvöru málsins og greitt atkvæði gegn
þessari lagasetningu.
Í öðru lagi hafa Sjálfstæðismenn
gert afar mikið úr hugsanlegri vá vegna
nauðasamninga gömlu bankanna. Nú
hefur hins vegar komið í ljós að váin
vegna umræddra nauðasamninga er
líklega minni en margir ætla. Már Guð
mundsson seðlabankastjóri segir ís
lenska ríkið ráða vel við skuldir sínar
en Ísland glími hins vegar við greiðslu
jafnaðarvanda. Staðfest hefur verið að
Seðlabankinn hefur þær nauðsynlegu
heimildir til þess að hemja og koma í
veg fyrir hverskyns útflæði gjaldeyr
is sem fellt gæti krónuna og kollvarp
að stöðugleika. Löggjöfin 12. mars var
því nauðsynleg og setti erlendar eign
ir slitastjórnanna undir höftin eins og
Bjarni og Illugi Gunnarsson vita jafn vel
og aðrir.
Eitt mikilvægasta verkefnið
Ég elti hins vegar ekki ólar við það að
þingmenn Sjálfstæðisflokksins reyndu
að fella frumvarpið um gjaldeyrishöft
in í mars síðastliðnum. Sinnaskipti
þeirra eru jákvæð og vitanlega mikils
vert að geta ráðið bót á þeim langvinna
sjúkdómi eftirhrunsáranna sem hengj
an svonefnda og gjaldeyrishöftin eru.
Við þurfum til dæmis að fara yfir það
hvort enn sé þörf lagabreytinga vegna
gjaldeyrishaftanna og hvort breyta
þurfi áætlun um afnám þeirra. Ég gat
um þessi mál í stefnuræðu minni á
Alþingi 12. september síðastliðinn.
Þar sagði ég meðal annars: „Þrátt fyrir
þann mikla og góða árangur sem náðst
hefur liggur fyrir að efnahagsmálin, og
ekki síst gjaldmiðlamálin og gjaldeyr
ishöftin, verða meðal mikilvægustu
viðfangsefna næstu mánaða og miss
era. Flestir viðurkenna að rétt var að
setja tímabundnar skorður við útflæði
erlends gjaldeyris í kjölfar hrunsins og
að varasamt sé að viðhalda gjaldeyr
ishöftum til lengri tíma, enda líklegt
að það skjól sem þau veittu í upphafi
snúist upp í andhverfu sína þegar til
lengdar lætur.“
Samstarf um lausnir
Verkefnið er stórt og mikilvægt. Víð
tæk samstaða um þau skref sem taka
þarf um afnám gjaldeyrishaftanna er
afar æskileg og í raun nauðsynleg. Ég sé
hins vegar ekkert að því að Seðlabank
inn hafi það sérstaka hlutverk áfram
að gæta hagsmuna þjóðarinnar í þess
um efnum með þeim valdheimildum
sem löggjafarþingið hefur fært honum
í glímunni við það sérstæða og mikil
væga verkefni að verjast frekari geng
is og gjaldeyrisáföllum sem gætu sett
heimilin og rekstur fyrirtækja í alvarlegt
uppnám. Sem fyrr stendur ríkisstjórn
in sína vakt og það er gott að vita til þess
að Sjálfstæðisflokkurinn er loksins tilbú
inn að gera hið sama.
„Gerið kerin klár“ Það var allt klárt og nóg að gera hjá verkamönnum hjá Nesfiski í Garðinum á föstudag. Snjór féll og boðaði komu Vetrar konungs.
Mynd SiGtryGGur ari
Myndin
Umræða 15Mánudagur 19. nóvember 2012
Kjallari
Jóhanna
Sigurðardóttir
forsætisráðherra skrifar
„Það er ótrúlegt að
Sjálfstæðisflokk-
urinn hafi ekki áttað sig á
alvöru málsins og greitt at-
kvæði gegn þessari laga-
setningu.