Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2012, Side 18
S
vartar og hvítar flísar gefa
heimilinu skemmtilegt yfir
bragð. Þær minna á fimmta
áratuginn, ísbúðir og amer
ískar vegasjoppur. Það er fremur
auðvelt að gefa baðherbergi eða
eldhúsi nýtt og ferskt útlit með því
að mála yfir eldri flísar með svartri
og hvítri gólfmálningu.
Á heimasíðu Makezine, blog.
makezine.com eru gefin haldgóð
ráð til að endurgera flísar á heim
ilinu í þessum stíl og blaðamaður
DV fékk að auki ráð frá Húsasmiðj
unni um réttu handtökin.
Þetta er það sem þú þarft til
verksins:
n Moppa og fata
n Burstar til að skrúbba með (t.d.
naglabursti)
n Pappírsþurrkur
n Hanskar
n Öndunargríma (ekki nauðsyn)
n Ljósgrár ætigrunnur
n Penslar
n Málningarrúlla
n Gólfmálning í svörtu og hvítu
n Taulímband í lit
Leiðbeiningar:
Skref 1: Byrjið á því að þrífa gólfið
mjög vel. Skrúbbið vel og notið
til dæmis naglabursta til að ná
öllum óhreinindum burt. Mælt er
með því að ýfa upp yfirborðið með
sandpappír. Það er ekki nauðsyn
legt. Notið taulímband til þess að
líma í hornin.
Skref 2: Berið
ætigrunninn á. Best
er að nota ljósgráan
lit. Verið varkár, þeir
sem vilja geta notað
grímu og hanska en
efnið er ekki sérlega varhugavert
og þornar á um hálftíma.
Það þarf hins vegar að láta efnið
virka í þrjá sólarhringa.
Skref 3: Rennið yfir gólfið með
moppunni og þrífið það. Látið
þorna og málið svo gólfið hvítt.
Notið bursta til þess að mála í
kringum skil flísanna en rúlluna
til að mála þær heilt yfir. Athug
ið að stundum þarf fleiri en eina
umferð af hvítri málningu. Látið
þorna yfir nótt.
Skref 4: Notið
taulímband til að
marka skil fyrir
svarta reiti. Hér
eru fjórar flísar
málaðar svartar
í einum reit. Vinnið
mynstrið út frá miðju gólfsins.
Skref 5: Málið með
svartri gólfmálningu.
Berið ykkur eins að
og með hvítu máln
inguna en nú skiptir
öllu að fara afar
varlega með málningarrúlluna
svo ekki slettist á hvítu flísarnar.
Venjulega þarf tvær umferðir af
svartri málningu.
Skref 6: Fjarlægið límbandið, ef
þarf að lagfæra eitthvað má gera
það með litlum pensli.
Hvernig eldar maður lax í uppþvottavél?
n Heilræði um sparnað og hvernig við getum einfaldað lífið
Ú
t er komin bókin: Þú ert snill
ingur. Heilræðabók um hvern
ig við getum einfaldað dag
legt líf okkar og um leið sparað
stórfé.
Í bókinni er að finna ótal heilræði,
allt frá því að elda lax í uppþvottavél
inni í það hvernig góðra vina fund
ir geta styrkt ónæmiskerfið. Bókin er
samvinnu verk efni Matarkörfunnar.
is, Leiðbein ingar stöðvar heimilanna
og Kvenfélagasambands Íslands.
En hvernig fer maður svo að því
að elda lax í uppþvottavél?
Uppþvottavélareldaður lax
Lax eldaður í uppþvottavélinni er
mikið lostæti. Margir vilja meina
að uppþvottavélin varðveiti betur
vítamínin sem eru í laxinum heldur
en pottsuða eða ofnbökun.
Uppskriftin er fyrir fjóra en vel
má elda fyrir heila brúðkaupsveislu
með þessarri aðferð.
Uppskrift
n 1 msk. ólífuolía
n 200 gr laxabitar
n ¼ bolli ferskur súraldinsafi
n Salt og pipar
n 1 sítróna skorin í báta
n 2 álpappírsblöð um 30x30 sm að stærð
Aðferð
Smyrja glanshliðina á ál
papp írsblöðum með olí unni.
Leggja 2 laxabita hlið við hlið á
hvort blað. Brjóta upp á hliðarn
ar á álpappírnum til að varna leka
og láta límónusafann drjúpa jafnt á
bitana. Krydda með salti og pipar.
Brjóta álpapp
írinn saman
þannig að úr verði
tveir loftþéttir
pakk ar. Nota hug
vitið, en ef vökvi
þrýstist úr þeim
eftir að búið er að
pakka, eru þeir ekki
alveg þéttir.
Setja pakkana
í efri hilluna
á uppþvottavél
inni. Stilla vélina á
„normal“ þvott.
Taka álpapp
írinn utan af
og bera fram með
sítrónubátunum.
1
2
3
4 Uppþvottavélin Til margs annars nýtileg en til þvotta.
Aðferðin er vinsæl, hér sést Brooke Burke koma laxi fyrir í
uppþvottavélinni sinni.
SVARTHVÍT
KLASSÍK
Fallegt yfir-
bragð Svartar
og hvítar flísar
gefa fallegt og
fágað yfirbragð.
n Gerðu það sjálf/ur n Nýtt og ferskt útlit með gólfmálningu
18 Lífsstíll 19. nóvember 2012 Mánudagur
Glas verð-
ur að kerti
Það má segja að finnsk hönnun
sé bókstaflega heit þessa dag
ana. Aihio er lína handgerðra
kerta sem eru mótuð eftir frægri
og klassískri hönnun Grapponia
glassins eftir hönnuðinn Nanny
Still en hún er einn þeirra
hönnuða sem gerði finnska gler
hönnun fræga. Á meðal þeirra
sem hönnuðu fyrir Riihimäki
glersmiðjuna voru þau Aino
& Alvar Aalto, Helena Tynell,
Tapio Wirkkala og Tamara.
Kertin eru til sölu í Suomi
PRKL Design sem er staðsett í
bakhúsi við Laugaveg 27.
Tækni-
brellur
í toppi
IKEA stefnir á heimsyfirráð og
hefur fyrirtækið gert auglýsingu
á Bandaríkjamarkaði þar sem
öllu er kostað til. Auglýsingin er
afar ævintýraleg og kallast „‘Play
in´ with my friends“ þar sem lítil
stúlka heldur matarboð og fær til
sín risastór leikföng. Leikföngin og
stúlkan leggja á borð og taka þess
á milli dansspor. Fyrir stuttu síðan
varð IKEA mjög umdeilt fyrir það
að fjarlægja konur úr auglýsingum
sínum fyrir MiðAusturlönd.
Öðruvísi
jólatré
Hjá Habitat er hægt að kaupa
jólatré úr pappa. Jólatréð kem
ur í litlum bútum sem fjölskyld
an getur skemmt sér við að setja
saman. Jólatréð er um 80 cm á
hæð og gleður augað.