Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2012, Side 21
Sport 21Mánudagur 19. nóvember 2012
Ríku liðin og restin
G
allhörðustu knattspyrnu-
áhugamenn rámar eflaust
í spænska félagsliðið Real
Oviedo sem um tíma fyrir
síðustu aldamót átti nokk-
ur sæmileg tímabil í efstu deildinni
á Spáni. Síðan þá hefur mjög hallað
undan fæti, liðið nú í þriðju deildinni
og skuldir orðnar svo miklar að meira
að segja forráðamenn Real Madrid
ákváðu að hefja sérstaka söfnun til
að Real Oviedo færi ekki á hausinn.
Fyrir viku síðan benti ekkert til
annars en að Real Oviedo væri að
deyja hægum dauða þrátt fyrir fram-
lag stórliðsins frá Madrid. En nú um
helgina gjörbreyttist staðan skyndi-
lega. Á augabragði losnaði félagið
ekki aðeins við stærsta hluta skulda
sinna heldur er sennilega líka óhætt
að fara að veðja á að Real Oviedo
gæti orðið næsta stórveldi í boltan-
um innan fárra ára.
Hvað gerðist nákvæmlega? Jú,
ríkasti einstaklingur heims, athafna-
maðurinn Carlos Slim frá Mexikó,
keypti ráðandi hlut í félaginu. Sá varð
ekki milljarðamæringur á ölmusu-
gjöfum og engum dettur annað í hug
en Slim ætli sér það sama og fjöldi
annarra milljarðamæringa á undan
honum; að gera Real Oviedo að stór-
veldi í boltanum.
Himin höndum tekið
Einn helsti knattspyrnuspekingur
bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar
ESPN velti upp þeirri spurningu fyrir
skömmu hvort nú væri ekki tíminn til
að setja loks á laggir Evrópska súper-
deild sem lengi hefur verið talað um.
Benti Gabriele Marcotti á að þeim
væri hægt og bítandi að fjölga fé-
lagsliðunum sem hefðu moldríka
bakhjarla og vilja til að nota það
fjármagn til að kaupa dýrustu og
jafnframt bestu knattspyrnumenn
heims.
Kveikjan að skrifum Marcotti,
sem vöktu mikla athygli og umræð-
ur á netinu í kjölfarið, var sigur Glas-
gow Celtic á Barcelóna í Meistaradeild
Evrópu á dögunum. Sigurinn var eins
óverðskuldaður og frekast er unnt í
einum knattspyrnuleik eins og töl-
fræði leiksins sýnir og sannar. Celtic
átti í heildina fjögur skot í öllum leikn-
um á móti 24 skottilraunum gestanna.
Skotarnir voru með boltann 28 pró-
sent leiktímans á móti 72 prósentum
Barcelóna. Með öðrum orðum; sigur-
inn var fáránlega „ósanngjarn.“
Stærsta andartak í sögu Celtic?
En, bendir Marcotti á í grein sinni,
þó Celtic hafi ekki átt mikið í leikn-
um og stigin þrjú hafi á engan hátt
tryggt Celtic áfram úr riðli sínum
mátti álíta af fagnaðarlátunum í
Glasgow að liðið hefði sigrað sjálf-
an Meistaradeildartitilinn. Dagblöð í
borginni birtu flennistórar fyrirsagn-
ir um stórkostlegan sigur og velflest-
ir aðdáendur, að þjálfara liðsins og
fyrirliða meðtöldum, töluðu um eitt
stærsta andartakið í sögu Celtic.
Sé mið tekið af fornri og glæstri
sögu Glasgow Celtic sem eitt sinn
hampaði Evrópumeistaratitlinum
í knattspyrnu, hefur þrívegis kom-
ist í úrslitaleik þeirrar keppni, hef-
ur 43 sinnum orðið skoskur meistari
og 35 sinnum skoskur bikarmeistari
er óneitanlega dálítið kjánalegt að
telja nauman 2–1 sigur á heimavelli
gegn Barcelóna í riðlakeppni Meist-
aradeildarinnar sögulegan fyrir liðið.
Þýðing þessa fyrir boltann
Sé staðan í Evrópuboltanum orðin
sú að sögufrægt lið eins og Celtic
telji það stórafrek að slefa einum
heimasigri gegn einum af risunum í
knattspyrnunni er þá ekki spurning
um að fara að breyta til er innihaldið
í grein Marcotti.
Er ekki kominn tími á einhvers
konar súperkeppni stórliða á borð
við Barcelóna, Manchester United,
Chelsea, Bayern, Inter Milan, Real
Madrid, PSG, Ajax, Manchester City
og annarra félagsliða sem annað-
hvort hafa verið moldrík lengi eða
hafa nýlega komist í álnir sökum
vellauðugra nýrra eigenda.
Dæmin eru of mörg um skjóta
velgengni félagsliða sem komast
í fjármagn og kaupa ellefu topp-
menn á næstu fimm mínútum. Nýj-
ustu dæmin eru líklega hið spænska
Malaga og franska PSG. Um tíu ára
skeið áður en milljarðamæring-
ur keypti Malaga var áttunda sætið
langbesti árangur liðsins í efstu deild
á Spáni. Í kjölfar kaupa milljarða-
mæringsins á liðinu og fjárfestingar
í leikmönnum, er liðið í fimmta sæti
í spænsku deildinni og taplaust í
Meistaradeild Evrópu.
PSG var lengi vel stórlið en skuld-
ir og lélegur árangur voru að setja
liðið á höfuðið skömmu eftir síðustu
aldamót. Auðkýfingur keypti liðið
og síðan hefur liðið hampað einum
titli og sést nú reglulega á toppnum
í frönsku deildinni.
Ekki þarf heldur að fara mörgum
orðum um Manchester City, Chelsea
eða þau mörgu rússnesku lið sem
auðkýfingar eiga nú með manni og
mús. Kannski verður Real Oviedo
hið nýja spútniklið Meistaradeildar-
innar eftir fjögur til fimm ár. Nýr
eigandi liðsins er svo ríkur að hann
getur kallað Roman Abramovich fá-
tækling.
Kannski kemst Glasgow Celtic
upp úr sínum riðli og gerir frekari
rósir í Meistaradeild Evrópu með
sínum stífa varnarleik og skyndi-
sóknum öllum nema aðdáendum
sínum til mikils ama.
Hið fyrrnefnda er samt margfalt
líklegra. n
n Sífellt fleiri milljarðamæringar í boltanum n Bilið milli ríku liðanna og hinna breikkar
Albert Örn Eyþórsson
blaðamaður skrifar ritsjorn@dv.is
Sá ríkasti Carlos Slim kom Real Oviedo til bjargar á elleftu stundu og mun án nokkurs vafa
dæla milljörðum í félagið.MYND: REUTERS