Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2012, Page 23
V
inir mínir, Barf Bags sem
gerðu þetta myndband,
misstu vinnuna sem þjálf-
arar hjá Skíðasambandi
Íslands eftir að mynd-
bandið kom út,“ segir Halldór
Helgason snjóbrettakappi um snjó-
brettamyndbandið umdeilda sem
fór eins og eldur í sinu um netið fyr-
ir nokkru. Halldór skilur gagnrýn-
ina sem myndbandið hefur fengið
en segir það kannski verða til þess
að vekja fólk til umhugsunar. „Þetta
verður kannski til þess að foreldr-
ar tali við börnin sín um notkun
netsins og sjái til þess að þau virði
þau aldurstakmörk sem tilgreind
eru. Svona hafa margar snjóbretta-
myndir verið í gegnum tíðina en
auðvitað hafa ekki allir húmor fyr-
ir þessu. Margir hafa reynt að koma
þessari mynd á okkur bræður en
við komum í rauninni ekki nálægt
henni þótt ég hafi reyndar sést í
henni. Við auglýstum merkin okkar
þarna og létum hana á síðuna okk-
ar – helgasons.com. Við erum með
húmor fyrir þessu og bökkum þessa
stráka 100 prósent upp.“
Í fjárhættuspilum í Mónakó
Halldór og Eiríkur bróðir hans búa
í Mónakó og spila af og til í einu af
frægasta spilavíti heims. Eftir að
vinir þeirra misstu vinnuna vildi
Halldór reyna að hjálpa þeim. „Við
spilum alltaf fyrir litlar upphæðir
og bara til gamans en um daginn
fór ég með 1.500 evrur (250.000 ís-
lenskar krónur) í rúllettu og hét á
vini mína sem gerðu myndbandið.
Ætlunin var að koma upphæðinni
upp í 8.000 evrur svo þeir gætu
haldið áfram að gera myndir. Ég
ákvað að bíða eftir að sami liturinn
kæmi upp þrisvar og þá lét ég 1.000
evrur á svartan og 500 á rauðan,
til að vera pottþéttur. Ég náði strax
í 5.000 evrur en svo tapaði ég öllu
niður í 1.000 aftur. Þá hringdi ég í
strákana og sagðist ætla að breyta
um kerfi og bíða eftir að sami litur-
inn kæmi þrisvar sinnum og láta
1.000 evrur á hinn og komst aft-
ur upp í 4.000. Þá hringdi ég aftur
í strákana og sagði þeim að ég væri
kominn á síðasta veðmálið. Þeir
báðu mig um einn greiða, að bíða
eftir að sami liturinn kæmi fjór-
um sinnum og þá mætti ég veðja
4.000 á hinn litinn sem ég gerði og
endaði með að vinna 8.000 evrur
eða 1,3 milljónir íslenskra króna.
Þetta var alveg fáránlegt og ótrú-
lega skemmtileg tilfinning. Nú geta
vinir mínir keypt allt sem þeir þurfa
til að taka upp næstu mynd,“ segir
Halldór og bætir við að hann hafi
aldrei upplifað annað eins adrena-
línflæði. „Ég er vanur miklu í gegn-
um snjóbretti en þetta var öðruvísi.
Ég vissi að ég væri að gera þetta til
að hjálpa vinunum og tilfinningin
var ótrúleg. Ég ætlaði aldrei að
geta sofnað um nóttina, ég var svo
ánægður,“ segir Halldór en neitar
því að hann óttist að verða spilafíkn
að bráð. „Ég hef alveg hemil á mér.
Ég veit hvað er rétt og rangt og það
skiptir máli.“
Snjóbrettafólk er ekki að fíflast
Halldór býst ekki við að næsta
mynd félaganna verði jafn gróf og
sú fyrri. „Þetta var bara leið hjá
þeim til að ná athygli og hún virk-
aði. Öll stærstu snjóbrettablöð
og -síður í heiminum póstuðu
myndinni svo þeir eru komnir á
kortið. Ég ætla rétt að vona að allt
snjóbrettafólk verði ekki stimplað
eftir þessa einu mynd. Snjóbretta-
fólk er ekki að fíflast og leika sér
allan daginn því þetta er virkilega
erfitt sport og mikil vinna þótt það
besta sé hvað þetta er fáránlega
skemmtilegt.“ n
É
g hef alltaf verið mjög mik-
ill áhugamaður um uppistand
og þetta hefur verið mitt upp-
áhalds skemmtiefni,“ segir
Gunnar Hrafn Jónsson, fréttamað-
ur á RÚV og einn af fimm kepp-
endum um titilinn Fyndnasti mað-
ur Íslands 2012, sem komust áfram
upp úr undankeppninni sem haldin
var í síðustu viku. Hann hefur mik-
ið spáð í uppistand í gegnum tíðina
og þá aðallega breskt. Sjálfur hefur
hann þó ekki mikla reynslu af því að
standa á sviði en hann var liðstjóri í
ræðukeppni Morfís á sínum tíma
og var þar að vissu leyti í hlutverki
uppistandara. „Ég byrjaði sjálfur á
þessu fyrir nokkrum mánuðum eftir
að ég hitti uppáhalds uppistandar-
ann minn, Doug Stanhope. Hann
kom hérna með hálfgerðri leynd og
var bara með eina sýningu á Litla-
Hrauni. Og bauð mér.“ Eftir sýn-
inguna spjölluðu þeir aðeins um
bransann og í kjölfarið ákvað Gunn-
ar Hrafn að prófa að setja saman sitt
eigið prógramm. „Ég var búinn að
vera að safna bröndurum í mánuði
ef ekki ár og svo sá ég þessa keppni
auglýsta og ákvað að slá til. Ég hugs-
aði með mér að þarna gæti ég próf-
að prógrammið fyrir framan fullan
sal og þyrfti ekki að hafa áhyggjur af
því að vera óþekktur að reyna að ná
kannski tuttugu manns á sýningu.“
Efni Gunnars Hrafn virkaði svona
líka vel á áhorfendur, sem tóku hon-
um fagnandi og hlógu mikið.
Sjálfum finnst honum sér takast
best til þegar hann segir reynslu-
sögur af sjálfum sér. „Ég reyni svo-
lítið að byggja á því. Ég hef lent í
allskonar fáránlegum hlutum og
verið út um allt, til dæmis í Kína og
Palestínu, og lent í mörgum skrýtn-
um aðstæðum. Þannig að það er
hægt að gera mikið með það.“
Bakgrunnur Gunnar Hrafns í
fréttamennskunni nýtist honum
vel í uppistandinu en hann býr að
því að kunna að tala fyrir framan
fólk. Hann viðurkennir þó að það
fylgi því svolítið öðruvísi stress að
standa á sviði heldur en fyrir fram-
an sjónvarpsmyndavélar eða tala
í útvarp. „Þarna er maður að láta
dæma sig, hvort maður er sniðugur
einstaklingur eða ekki og það getur
verið svolítið ógnvekjandi. En þetta
er líka „adrenalínkikk“ og þegar
maður er kominn niður af sviðinu
og fólk búið að klappa og hlæja þá
líður manni helvíti vel,“ segir Gunn-
ar Hrafn hlæjandi.
Aðalkeppnin um titilinn Fyndn-
asti maður Íslands 2012 fer fram
þann 23. nóvember næstkomandi,
á skemmtistaðnum Spot í Kópa-
vogi. n
Fólk 23Mánudagur 19. nóvember 2012
„Þetta er líka adrenalínkikk“
n Fréttamaðurinn Gunnar Hrafn keppir um titilinn Fyndnasti maður Íslands
Hjónin saman í
kynjafræðum
Fyrrum fréttamaðurinn, skáldið og
ritstjóri Akureyri vikublaðs, Björn
Þorláksson, er harður femínisti.
Björn og eiginkona hans, Arndís
Bergsdóttir doktorsnemi í safna-
fræði, hafa nú skráð sig saman í
námskeið í Háskóla Íslands í kenn-
ingum í kynjafræðum. Bók Björns,
Heimkoman, vakti mikla athygli en
þar lýsti Björn því þegar hann var
rekinn úr vinnunni af Fréttastofu
Stöðvar 2 og inn á heimilið og
hvernig sú lífsreynsla hafði áhrif á
og breytti lífsskoðunum hans. Ef-
laust eiga hjónin eftir að standa sig
vel í náminu enda deila þau áhuga
á efninu.
Hitti goðið sitt Gunnar Hrafn setti saman
sitt eigið uppistands prógramm eftir að
hafa hitt uppáhalds uppistandarann sinn,
Doug Stanhope.
Gaf vinunum
Gróðann
Valdi heilsugeir-
ann fram yfir
Hollywood
Linda Pétursdóttir er farsæl kona.
Í síðustu viku rifjaði hún upp sigur
sinn í keppninni Ungfrú Alheim-
ur og skrifaði um það nokkrar línur
á Facebook-síðu sinni. „Á þessum
degi árið 1988 stóð ég á sviði í Royal
Albert Hall og líf mitt breyttist að ei-
lífu. Í kjölfarið fékk ég ýmis tilboð og
sum hver um að leika í kvikmynd-
um, en ég neitaði því öllu, það var
ekki fyrir mig. Valdi heilsugeirann
fram yfir Hollywood. Glöð með þá
ákvörðun því ég veit það sem ég
vinn við í dag er það sem fær hjarta
mitt til að slá ögn hraðar flesta daga.
Þess utan er ég afleit leikkona.
24 ár líða hratt og eru ágæt
áminning um að njóta lífsins, rækta
ástvini og umfram allt njóta dags-
ins í dag því við vitum aldrei hvað
morgundagurinn ber í skauti sér. Ég
trúi á það góða í fólki, stundum hef
ég brennt mig á því en það er bara
allt í lagi. Og með það í huga að
njóta lífsins reima ég á mig skóna,
klára græna drykkinn minn og skelli
mér á hugleiðslunámskeið í fyrir-
tækinu mínu.“
n Vinir Halldórs
Helgasonar snjó-
brettakappa misstu
vinnuna eftir mynd-
bandið umdeilda
Andrenalínflóð Halldór
og vinur hans Árni Ingi
fagna gróðanum.
Allt að gerast hjá Völu Grand:
Vala stefnir
í fitness
Glamúrdrottningin Vala Grand
stefnir á að taka þátt í fitness-
keppni á næsta ári. Þetta kom fram
í viðtali Mónitor við Völu. Viðtalið
var tekið á læknastofu rétt áður en
Vala lagðist undir hnífinn í brjósta-
stækkunaraðgerð. Eins og fram
hefur komið í DV er Vala ástfangin
upp fyrir haus og mun ganga að
eiga hann Eyjólf sinn á næsta ári.
Það má því með sanni segja að
árið 2013 verði stórt í lífi Völu.
„Við erum með húmor fyr-
ir þessu og bökkum þessa
stráka 100 prósent upp