Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2011, Síða 4
4 | Fréttir 20. júní 2011 Mánudagur
Fjölskylduhjálp Íslands verðlaunar sjálfboðaliða:
Sjálfboðaliði ársins
Ásta Katrín Vilhjálmsdóttir var í gær,
sunnudag, útnefnd sjálfboðaliði
ársins hjá Fjölskylduhjálp Íslands.
Ásgerður Jóna Flosadóttir, formað-
ur Fjölskylduhjálparinnar, segir
að Ásta Katrín hafi staðið sig sér-
staklega vel sem sjálfboðaliði og að
launum fékk hún fallega glerstyttu
með nafninu sínu á sem Markó
merki gefa Fjölskylduhjálpinni ár-
lega. Hún fékk einnig tvo flugmiða til
Evrópu en ferðin er veitt með stuðn-
ingi Iceland Express. „Allt sjálfboða-
starf byggir á góðum sjálfboðaliðum
sem við höfum svo sannarlega not-
ið góðs af. Sjálfboðaliðar okkar eru
einstakir,“ segir Ásgerður Jóna.
Veðrið lék við sjálfboðaliða og
aðstandendur Fjölskylduhjálpar-
innar þegar sumarhátíðin fór fram
við húsakynni Fjölskylduhjálpar-
innar í gær, sunnudag, og þar var
kátt á hjalla, enda veitingarnar góð-
ar. Ásgerður segir að síðastliðna tíu
mánuði hafi 3.757 einstaklingar leit-
að til þeirra eftir mat. Fjöldi úthlut-
ana á þessu tímabili sé 26.120. Það
sýni hve þörfin sé gríðarleg. Þess má
geta að hver sá sem sækir um aðstoð
þarf að sýna fram á þörf sína fyrir
aðstoðinni.
Svokölluð matarkort hafa ver-
ið í umræðunni í tengslum við út-
hlutun hjálparstofnana. Ásgerð-
ur tekur dæmi og segir að ef hver
þeirra 1.140 fjölskyldna sem var út-
hlutað mat um páskana hefði fengið
matarkort að verðmæti 10 þúsund
krónur, hefðu útgjöldin numið 11,4
milljónum króna. „Sú upphæð dug-
ar okkur til vörukaupa í þrjá mán-
uði og á því tímabili úthlutum við til
hátt í 12.000 fjölskyldna. Það gefur
augaleið að við munum velja að út-
hluta mataraðstoð vikulega þar sem
við höfum ekki efni á matarkortun-
um. Spurningin er hvort við hjálp-
um 1.200 fjölskyldum með matar-
kortum eða 12.000 fjölskyldum með
matvælum.“
baldur@dv.is
„Ég var farþegi í bíl og var að koma
upp að veitingastað. Þá biðu þeir [lög-
reglan innsk. blm.] þar eftir mér,“ seg-
ir Karl Bjarni Guðmundsson, sem er
betur þekktur sem Kalli Bjarni úr Idol-
keppninni, um væntanleg málaferli á
hendur sér. Hann hefur verið ákærð-
ur fyrir fíkniefnabrot en að sögn Kalla
Bjarna var hann með 1,6 grömm af
marijúana og tvær ecstasy-töflur í
fórum sínum þegar lögreglan leitaði
á honum við veitingastað í Reykja-
nesbæ.
Berst við púkana
„Þetta er eitthvað sem ég samdi um
á sínum tíma, en þeir vilja greinilega
dæma í þessu og það er bara ágætt.
Ég reikna ekki með að þurfa að sitja
inni en ef svo er þá er það örugg-
lega ódýrara en að láta sekta mig fyrir
þetta,“ segir Kalli Bjarni og tekur fram
að hann hafi ekki miklar áhyggjur af
málaferlunum. „Það er ekki búið að
dæma í þessu máli og ég er ekkert bú-
inn að gefa það út að ég sé sekur. Það
eru nokkrir þættir í þessu máli sem
ég er ekki tilbúinn til að tala um í fjöl-
miðlum.“
Aðspurður hvort hann sé enn í
neyslu fíkniefna segist hann ekki vilja
tjá sig um það. „Ég er að lifa mínu lífi
en maður er að berjast við sína púka,
og ég er örugglega ekki einn um það.
Það eru margir að berjast við sína
púka, hver í sínu horni.“
Handtekinn tvisvar áður
Kalli Bjarni hefur tvisvar áður ver-
ið handtekinn fyrir fíkniefnabrot og
hlotið dóma vegna þeirra. Árið 2007
fékk hann tveggja ára dóm fyrir að
hafa reynt að smygla tæpum tveimur
kílóum af kókaíni til landsins. Hann
sagðist sjálfur hafa verið burðardýr
og að hann hafi verið djúpt sokkinn
í fíkniefnaneyslu og komið sér í mikl-
ar skuldir vegna hennar. Þegar skuld
Kalla var orðin svo há að hann réð
ekkert við hana munu fíkniefnasal-
arnir hafa sett honum afarkosti. Hann
átti að fara til Frankfurt í Þýskalandi
og þaðan átti hann að smygla kóka-
íni til Íslands. Einn heimildarmaður
DV sagði hann ekki hafa mótmælt
því sterklega. Sami heimildarmaður
sagði að hugmynd fíkniefnasalanna
hafi verið sú að það væri ólíklegt að
Kalli yrði stoppaður í tollinum sökum
fornrar frægðar. Hefði hann komist
með fíkniefnin í gegnum tollinn hefði
skuldin verið látin falla niður. Sjálfur
á Kalli ekki að hafa átt annan kost en
þann að smygla fíkniefnunum. Ári
síðar, á meðan hann beið enn afplán-
unar vegna brotsins, var hann aftur
handtekinn með fíkniefni í fórum sín-
um. Þá var hann handtekinn á hóteli
í Reykjavík ásamt vinkonu sinni. Sjö-
tíu grömm af amfetamíni fundust í
fórum hans og var talið að fíkniefnin
væru ætluð til sölu og dreifingar. Kalli
Bjarni sagði í viðtali við DV, eftir að
hann hafði lokið afplánun, að hann
hefði snúið við blaðinu og fangelsis-
vistin hefði kennt honum að meta líf-
ið upp á nýtt.
Á línubát í Noregi
Í dag vinnur Kalli Bjarni sem sjó-
maður og segir það fara vel sam-
an við tónlistarsköpunina sem er
í fullum gangi en hann hefur verið
að taka upp plötu með frumsömdu
efni. „Ég er á íslenskum/norskum
línubát í Noregi. Ég vinn í mánuð
og er svo mánuð í fríi. Ég er hepp-
inn með þessa vinnu því þótt ég
sé alltaf í fríi í mánuð inni á milli
þá dekka launin það alveg. Ég er
búinn að borga alla plötuna og á
hverja einustu nótu skuldlaust. Ég
er orðinn mjög sáttur við útkom-
una og það er ekki langt í að platan
komi út,“ segir Kalli Bjarni og bæt-
ir við að fólk geti bráðlega farið að
heyra eitthvað af lögunum á öldum
ljósvakans.
Kalli Bjarni vann Idol-keppnina
árið 2006 og gaf í kjölfarið út sína
fyrstu sólóplötu sem hét einfald-
lega Kalli Bjarni. Sú plata seldist
ekki vel og hefur Kalli verið meira
í sviðsljósinu vegna fíkniefnabrota
en tónlistarinnar.
Kalli
Bjarni
aftur
fyrir dóm
n Ákærður fyrir fíkniefnabrot n Segir efnin hafa verið til eigin
nota n Hefur tvisvar áður verið handtekinn fyrir slík brot
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
Ákærður Karl
Bjarni Guðmunds-
son, betur þekktur
sem Kalli Bjarni,
hefur verið ákærður
fyrir fíkniefnabrot
og verður málið
þingfest 23. júní.
Stóð sig sérstaklega vel Fær glerstyttu
frá Markó og flugmiða til Evrópu.
Viðurkenndar
stuðningshlífar
í úrvali
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is
Í sumar er opið virka daga frá kl. 9 -18
Verðlaunaðir Kristinn Hrafnsson og Ingi
R. Ingason með styttuna sem þeir fengu í
verðlaun í Barselóna.
Mynd um árás á óbreytta borgara:
Kristinn og Ingi
verðlaunaðir
Ingi R. Ingason kvikmyndatöku-
maður og Kristinn Hrafnsson
tóku við verðlaunum fyrir mynd
sína Collateral Murder: Hellfire, á
sunnudaginn fyrir viku á Barce-
lona Human Rights Film Festival.
Um er að ræða alþjóðleg verðlaun
á sviði fréttamennsku og mannrétt-
inda. Ingi og Kristinn frumsýndu
myndina á hátíðinni en hún fjallar
um skotárásina sem hermenn
Bandaríkjahers gerðu í Bagdad í
júlí 2007 og var sýnt frá í apríl 2010
í Kastljósinu. Myndband úr þyrlu
Bandaríkjahers sýnir hvernig her-
mennirnir gera árás á almenna
borgara. Margir þeirra létu lífið, þar
á meðal tveir starfsmenn Reuters-
fréttastofunnar.
„Þeir vildu verðlauna okkur fyrir
að fara til Írak til að fá þessa bak-
sögu,“ segir Ingi en hann fór ásamt
Kristni til Bagdad og hitti meðal
annars börn sem lifðu af árásina.
Ingi segir það hafa verið mikinn
heiður að taka á móti verðlaun-
unum, sérstaklega úr hendi Javiers
Couso. Bróðir Cousos var mynda-
tökumaður sem lést í skotárás
Bandaríkjahers á Hotel Palestine
í Bagdad í byrjun Flóastríðsins.
Á hótelinu voru fjölmargir fjöl-
miðlamenn samankomnir þegar
árásin var gerð. „Maður reynir að
gera þetta þannig að það skapist
sem minnst hætta. En maður getur
ekkert lokað augunum fyrir því að
þetta er ekki Disneyland,“ segir
Ingi um hvernig það sé að vinna á
átakasvæðum eins og í Írak.
Ingi segir Kastljósið eiga þakkir
skyldar fyrir að gera þeim kleift að
vinna efnið sem var sýnt í þættin-
um og er uppistaða myndarinnar.
Hann segir Sigmar Guðmundsson
ritstjóra Kastljóssins hafa barist
ötullega fyrir því að verkefnið gæti
orðið að veruleika. Aðspurður um
hvers vegna RÚV hafi ekki sagt frá
viðurkenningunni, en upplýsing-
arnar hafa legið á borði fréttastofu
RÚV í viku, segir Ingi að hann viti
það einfaldlega ekki: „Kannski
finnst þeim þetta ekki nógu merki-
legt.“