Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2011, Qupperneq 6
Gagngerar endurbætur á húsi Björg-
ólfs Thors Björgólfssonar við Frí-
kirkjuveg 11 bíða betri tíma að sögn
Ragnhildar Sverrisdóttur, talskonu
Björgólfs Thors. Langafi Björg-
ólfs Thors, athafnamaðurinn Thor
Jensen, byggði húsið í upphafi síð-
ustu aldar og bjó þar um árabil
ásamt langömmu Björgólfs, Margréti
Þorbjörgu. Björgólfur keypti húsið
af Reykjavíkurborg á 650 milljónir
króna, sem samsvarar um þreföldu
fasteignamati hússins, í maí árið
2008, með það fyrir augum að opna
þar safn um langafa sinn. „Það hef-
ur aldrei verið planið að hafa þarna
íbúðarhús, þetta hefur alltaf verið
hugsað sem einhvers konar safn um
Thor,“ segir Ragnhildur.
Endurbætur á húsinu, sem er
rúmlega þúsund fermetrar að stærð,
hafa hins vegar setið á hakanum
þar sem Björgólfur Thor hefur stað-
ið í ströngu, meðal annars vegna
skuldauppgjörs síns. Björgólfur Thor
samdi um það við lánardrottna sína
í skuldauppgjörinu í fyrra að hann
fengi að halda húsinu við Fríkirkju-
veg 11. Á meðan hefur húsið ver-
ið leigt og lánað undir ýmiss konar
starfsemi, meðal annars til ÍTR, verk-
efnis á vegum Háskólans á Bifröst og
annars slíks að sögn Ragnhildar.
Í ársreikningi eiganda húss-
ins, Novator F-11, sem svo aftur er
í eigu eignarhaldsfélagsins Nova-
tor ehf., fyrir árið 2009 kemur fram
að rekstrar kostnaður hússins hafi
einungis numið rúmum 7 milljón-
um króna í hitteðfyrra, sem er mjög
lág uphæð miðað við stærð húss-
ins. Novator ehf. er svo í eigu eign-
arhaldsfélagsins BeeTeeBee Ltd.
sem skráð er á Bresku Jómfrúaeyj-
um. Húsið á Fríkirkjuvegi 11 er því á
endanum í eigu félags á Bresku Jóm-
frúaeyjum.
Lægri afborganir í
kjölfar uppgjörs
„Það þarf auðvitað að fara í gagnger-
ar endurbætur á húsinu þegar þar að
kemur. Það er planið auðvitað. Hins
vegar er ansi margt sem þarf að klára
fyrst, Björgólfur er í miðju skulda-
uppgjöri: Á meðan er ekki svig-
rúm til að gera það sem þarf að gera
þarna...,“ segir Ragnhildur.
Eignarhaldsfélag hússins skuldar
samtals um 294 milljónir króna, sam-
kvæmt ársreikningi ársins 2009. Um
er að ræða fimm veðskuldabréf sem
hvert var upphaflega að upphæð 50
milljónir króna. Verðmæti hússins er
hins vegar bókfært sem 650 milljón-
ir króna – kaupverðið sem Björgólfur
Thor greiddi fyrir húsið árið 2008.
Björgólfur Thor er hins vegar
í ágætismálum með húsið í þeim
skilningi að hann þarf ekki að greiða
mjög háar afborganir af þessum
nærri 300 milljóna króna lánum sem
hvíla á eignarhaldsfélagi hússins.
Fram til ársins 2014 þarf Björgólfur
Thor ekki að greiða nema á bilinu 3
til 3,8 milljónir króna á ári af þess-
um lánum. Samkvæmt ársreikningi
Novator F-11 fyrir árið 2008 áttu ár-
legar afborganir af skuldum félagsins
hins vegar að nema tæpum 9 millj-
ónum króna á ári fram til ársins 2014.
Svo virðist því sem samið hafi verið
um lægri árlegar afborganir af skuld-
um félagsins frá því ársreikningi fyrir
2008 og 2009 var skilað. Ætla má að
um þetta hafi verið samið í skulda-
uppgjöri Björgólfs Thors þar sem
hann samdi um að fá að halda hús-
inu þrátt fyrir að lánardrottnar hans
hafi leyst til síns nokkrar aðrar fast-
eignir í hans eigu.
„Spurning um þolinmæði“
Ragnhildur segir að ekki liggi fyrir
hvenær verði gengið frá endurbót-
unum á húsinu. „Húsinu er hald-
ið við, það sem þarf. En gagngerar
endurbætur á svona stóru 100 ára
gömlu timburhúsi eru mikið fyrir-
tæki og þær kosta sitt. Þetta er hins
vegar planið; þetta er allt spurning
um þolinmæði,“ segir Ragnhildur.
Hún segir að endurbæturnar á Frí-
kirkjuvegi 11 velti á því að skulda-
uppgjör Björgólfs Thors gangi eft-
ir: „Þá verður farið að huga að
þessu.“
Húsið að Fríkirkjuvegi 11 bíð-
ur því enn eftir því að verða gert
almennilega upp og að verða nýtt
undir þá starfsemi sem Björgólfur
Thor ætlaði því upphaflega, umrætt
safn um langafa sinn. Í viðtali við
DV í fyrra þar sem rætt var um mál-
ið við Ragnhildi sagði hún að Björg-
ólfur yrði ekki í rónni fyrr en hann
væri búinn að ganga frá lánunum og
koma húsinu í gagnið. „Hann lagði
mikla áherslu á að halda húsinu og
mun leggja alla áherslu á að borga
upp skuldirnar á því og gera það
veðbandalaust í komandi framtíð.
Þetta er hundrað ára gamalt hús og
getur alveg beðið í nokkur ár. Hann
segir það sjálfur að hann verði ekki í
rónni fyrr en hann verði búinn að af-
létta þessum veðum og borga þess-
ar skuldir og fari að sinna þessu húsi
með sóma.“
6 | Fréttir 20. júní 2011 Mánudagur
Faðir á vakt stakk sér alklæddur í laugina:
Bjargaði barni frá drukknun
Litlu mátti muna að illa færi í sund-
lauginni við Jaðarsbakka á Akranesi
á laugardag þegar ungur drengur á
sundi byrjaði að sökkva. Faðir sem var
að störfum í lauginni var á vakt á sund-
laugarbakkanum þegar hann varð
þess var að drengurinn kallaði eftir
hjálp og stökk út í laugina eftir honum.
„Ég varð þess var að ungur dreng-
ur á hálfgerðu hundasundi kallaði á
hjálp. Ég leit í kringum mig og sá þá
að hann var að byrja að sökkva. Ég
stakk mér því út í og náði að grípa und-
ir hendurnar á honum og synda með
hann í land.“
Hann kom drengnum svo upp á
sundlaugarbakkann, þar sem dreng-
urinn kastaði upp örlitlu vatni og var
honum mjög brugðið. Hann varð þó
stálsleginn stuttu seinna og aftur tilbú-
inn til að leika sér með vinum sínum.
„Vinir hans voru mun upprifnari af
atvikinu en hann nokkurn tímann og
hann jafnaði sig fljótlega,“ segir mað-
urinn sem ekki vildi láta nafns síns
getið.
Tími skiptir miklu máli þegar um
drukknun er að ræða og því ljóst að
mikil mildi er að ekki fór verr. Faðir-
inn brást rétt við aðstæðunum þegar
hann skellti sér alklæddur í laugina
eftir drengnum.
Mikill fjöldi var á Akranesi um
helgina en þar var haldið fótboltamót
Norðuráls. Foreldrar skiptu með sér
verkefnum á mótinu og var maðurinn
á svokallaðri foreldravakt. Hann seg-
ir mikinn metnað hafa verið lagðan í
skipulagningu mótsins og öryggisat-
riða þess. „Allir Skagamenn og foreldr-
ar sem koma að mótinu leggja mikinn
metnað í það að allt gangi vel fyrir sig
og þarna sást hversu vel er staðið að
öllum öryggismálum hjá okkur. Það
einfaldlega virkaði“
astasigrun@dv.is
„Þetta hefur alltaf
verið hugsað sem
einhvers konar safn um
Thor.
n Björgólfur borgar minna af Fríkirkjuvegi 11 eftir skuldauppgjör n Aðeins sjö milljónir
í rekstur hússins n Talskona Björgólfs segir að lagfæringar á húsinu bíði betri tíma
Óðal BjörgÓlfs
Bíður viðgerða
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Lítið fé í reksturinn Einungis rúmar sjö milljónir króna voru notaðar í rekstur hússins á Fríkirkjuvegi 11 árið 2009. Húsið er í eigu Björgólfs
Thors Björgólfssonar og bíður enn.
Bjargaði dreng í sundi Mikil mildi þykir að
ekki fór verr í sundlauginni að Jaðarsbökkum.
Ætla að stefna
ríkinu
Hópur fólks sem tapaði milljörðum
á kaupum hlutabréfa í Glitni vikuna
fyrir þjóðnýtingu bankans ætlar að
stefna ríkinu. Þetta kemur fram á
visir.is. Þar kemur fram að hópur-
inn segist hafa verið rændur þar sem
ráðamönnum hafi verið grafalvarleg
staða bankakerfisins ljós en engu að
síður leyft kaup og sölu á hlutabréf-
um í bankanum.
Málið má rekja til þess að í sept-
ember 2008 ákvað ríkið að leggja
Glitni til nýtt hlutafé að upphæð 600
milljónir evra en varð um leið eig-
andi 75 prósenta hlutar í bankanum.
Viku síðar féll bankinn en opið var
fyrir viðskipti með hlutabréf í bank-
anum hjá Kauphöllinni þá viku. Haft
er eftir Guðmundi Jóni Matthíassyni,
sem fer fyrir hópnum, að fórnar-
lömbin séu saklaust fólk sem hafi
ætlað að kaupa í tryggasta banka
landsins.
Vilja meiri
hækkun en aðrir
Engin niðurstaða fékkst á sáttafundi
Félags íslenskra atvinnuflugmanna
og Icelandair sem haldinn var í gær.
Fundurinn fór
fram í húsnæði
ríkissáttasemj-
ara frá 10 til 14.
Ekki hefur verið
ákveðið hvenær
næsti fundur
verður haldinn
en hann er þó
sagður munu
fara fram innan tveggja daga. Yfir-
gnæfandi meirihluti flugmanna Ice-
landair samþykkti á laugardag að
boða til yfirvinnubanns þann 24.
júní næstkomandi. Vísir greindi frá
því í gærkvöldi að flugstjórar hjá
Icelandair væru flestir með mun
hærri heildarlaun en forsætisráð-
herra. Bróðurpartur flugmanna væri
á ríflegum ráðherralaunum. Þrátt
fyrir það væru flugstjórar ekki til í að
samþykkja viðlíka hækkun og samið
var um á almennum vinnumarkaði
í vor.
Jón Gnarr veiðir
ekki lax
Borgarstjóri Reykjavíkur Jón Gnarr
ætlar ekki að veiða fyrsta laxinn í Ell-
iðaánum á morgun eins og venjan
er. Þetta árið er það Reykvíkingur
ársins sem hreppir þann heiður en í
fyrramálið verður greint frá því hver
hlýtur þá nafnbót. Borgarstjóri ætlar
samt sem áður að vera viðstaddur
atburðinn. Almenningur gat komið
með ábendingar um Reykvíking
ársins. Þriggja manna dómnefnd
fór svo yfir ábendingarnar og valdi
þann einstakling sem kynnt verður á
morgun hver er.